NT - 27.06.1985, Blaðsíða 20

NT - 27.06.1985, Blaðsíða 20
Fimmtudagur 27. júní 1985 20 Útlönd Innanlandsflug í Kína skipulagt af Lufthansa? Kínverska ríkisflugfélagið CAAC hefur gert samkomulag við þýska flugfélagið Lufthansa um að Lufthansa aðstoði við rekstur og viðhald kínverska flugflotans. CAAC er víöfrægt fyrir lélegt skipulag og slæma þjónustu. Kínverjar hafa nú í nokkur ár gert tilraunirtil aðbætaskipulag flugfélagsins en með tak- mörkuðum árangri. Þeir hafa m.a. ákveðið að aðskilja flug- umferðarstjórn og flugrekstur en hingað til hefur CAAC ekki aðeins starfað sem flugfélag heldur hefur það einnig séð um flugumferðarstjórn í Kína. Fyrir nokkru ákváðu Kínverj- ar að stofna ný fiugfélög í Kína sem eiga að keppa við CAAC og tryggja betri þjónustu. En margir erlendir flugsérfræðing- ar hafa látið í Ijós ótta um að við Bruce Springsteen gjafmildur: Atvinnulausir í Frakklandi fá 10.000 dollara - breskir námamenn f engu líka sinn skerf París-Reutcr ■ Bandaríska rokkstjarnan Bruce Springsteen gaf nýlega atvinnuleysingjum í borginni Saint-Etienne þar sem atvinnu- ástand er mjög bágborið 10.000 ■ Bandaríska rokkstjarnan Bruce Springsteen er harðdug- legur rokkari. En hann hefur mikla samúð með þeim sem minna mega sín og öriátur á fé ef atvinnulausir eru annars vegar. Fyrir um mánuði síðan gaf hann atvinnulausum bresk- um námamönnum stóra summu og nú síðast njóta franskir at- vinnuleysingjar í Saint-Etienne gjafmildi hans. dollara eða um 420.000 íslensk- ar krónur. Bruce Springsteen hefur mikla samúð og skilning með þeim sem minna mega sín enda fjalla textar hans oftar en ekki um hið erfiða líf sem fátæklingar í storborgum Bandaríkjanna lifa. Hann hélt tónleika í Saint- Etienne fyrir skemmstu og af- henti þá borgarstjóranum ávís- unina með þeim orðum að erfið- leikar og neyð atvinnuleysingj- anna hefði snortið sig djúpt. Springsteen er nú á tónleika- feröalagi í Evrópu og fyrir um það bil mánuði síðan gaf hann atvinnulausum kolanámamönn- um í Bretlandi umtalsverða fjár- upphæð. það aukist aðeins glundroðinn í kínverskum flugsamgöngum. Það er ljóst að Kínverjar hyggja á mikla stækkun flug- flota síns á næstu árum. Fyrr á þessu ári gerðu þeir stóra samn- inga um kaup á sovéskum, bandarískum og evrópskum farþegaflugvélum. Samt er enn langt frá því að flugflotinn anni eftirspurninni sem eykst óðfluga eftir því sem ferðamönnum fjölgar og efnahagur Kínverja batnar. Eitt helsta vandamálið við rekstur og viðhald flugvéla CAAC er sagt vera að félagið hefur keypt flugvélar frá mörg- um mismunandi framleiðend- um. Með þessu hafa kínversk stjórnvöld viljað koma í veg fyrir að Kínverjar verði háðir neinu einu ríki um flugvélar. En rekstrarkostnaðurinn vegna svona margra flugvélategunda er mun meiri en ef CAAC héldi sér við fáar tegundir. Viðgerða- þjónustan og viðhaldskostnað- urinn hækkar við það að hafa margar tegundir flugvéla. Samkvæmt samningi CAAC við Lufthansa mun Lufthansa senda tíu flugsérfræðinga til Peking til að aðstoða Kínverja við rekstur og endurskipulagn- ingu flugflotans á komandi ári. CAAC og Lufthansa munu enn- fremur stofna sameiginlegt fyrirtæki fyrir um 100 milljón mörk (1,37 milljarðar ísl.kr.) sem á að sjá um viðhald og viðgerðir flugvéla CAAC. Dollarinn ofmetinn um 40% YVashington-Reuter ■ Alþjóðaefnahags- stofnunin, Institute for International studies, hef- ur birt skýrslu þar sem því er haldið fram að gengi dollarans sé um 40% hærra að meðaltali gagn- vart öðrum gjaldmiðlum en eðlilegt sé. Alþjóðaefnahagsstofn- unin er einkastofnun sem framkvæmir ýmisskonar efnahagsrannsóknir. Skýrsla stofnunarinnar um gengi dollarans og ýmissa annarra gjaldmiðla var unnin af hagfræðingnum John Williamson. Hann komst m.a. að þeirri niðurstöðu að hátt gengi dollarans sé ein höfuð- ástæðan fyrir því að Bandaríkjamenn skuldi nú orðið meira erlendis en þeir hafa lánað til annarra ríkja eða til erlendra fyrir- tækja. Williamson segir að of hátt dollaragengi hafi leitt til gífurlegs viðskiptahalla sem hefur neytt Banda- ríkjamenn til að taka risa- stór lán erlendis. Erlendar lánastofnanir hafi verið mjög fúsar til að lána Bandaríkjamönnum fé vegna þess hvað vextir í Bandaríkjunum séu háir. Williamson reiknaði m.a. út það gengi sem aðrir gjaldmiðlar yrðu að hafa tii þess'að jafnvægi kæmist á í alþjóðavið- skiptum. Samkvæmt út- reikningum hans er breska pundið 15% of hátt en japanska yenið 12% of lágt, þýska markið 13% of lágt og franski frankinn um 5% of lágur. 'VÍ\EW HOLLAIkD Baggafæribönd Fáanleg bæði traktors- drifin og fyrir rafmótor NEW HOLLAND baggafæribönd má koma fyrir hvort sem er i nýjum eða gömlum hlöðum. Vegna einfaldrar byggingar færi- bandanna eru þau létt og lipur i meðförum. Lengd færibandanna er eftir þörfum hvers og eins og má lengja þau um 2 og/eða 3 metra i senn. Fyrirliggjandi á góðu verði og góðum greiðsluskilmálum. Islamabad-Reuter ■ Indversk blöð skýrðu nýlega frá því að komið hefði til bardaga milli indverskra og pakistanskra hersveita á Siachenjökli í Himalayafjöllum. Bæði Indverjar og Pakistanar gera tilkall til jökulsins. Indversku blöðin sögðu að Pakist- anar hefðu reynt að ná jöklinum úr höndum indverska hersins. I einu blaðinu var því m.a. haldið fram að léttum skriðdrekum hefði verið beitt í átökunum. Pukistanir voru sagðir hafa beðið mikið afhroð á jöklinum sem væri enn á valdi Indverja. Pakistanar harðneita því að nokk- uð sé hæft í þessum fréttum um jökulbardaga. Peir segja að engir bardagar hafi verið á þessu svæði frá því í júlí 1984 þegar pakistanskar hersveitir börðust við indverskan her sem lagði jökulinn undir sig. Pakist- anar segja fréttir um skriðdrekabar- daga á jöklinum fáránlegar þar sem jökullinn sé gjörsamlega ófær fyri þung farartæki og vopn. Kínverskir embættismenn sendir í kapítalistaskóla ■ Hákapítalískir viðskiptafræðing- ar frá Hongkong hafa fengið fjörutíu háttsetta kínverska embættismenn í nám til sín. Embættismennirnir, sem eru úr kínverska viðskiptaráðuneyt- inu og öðrum kínverskum stjórnar- stofnunum, fá tveggja mánaða leið- beiningu í nútímaviðskiptaháttum. Námskeiðið er haldið í Shenzhen rétt við landamæri Hongkong en Shenzhen er einmitt ein helsta til- raunamiðstöð Kínverja við kapítal- ískan atvinnurekstur og þar hafa fjölmargir erlendir aðilar fengið leyfi til að stofna fyrirtæki. Að námskeið- inu loknu verður farið með embættis- mennina í skoðunarferðalag um Hongkong þar sem þeim verður sýnt hvað kapítalisminn þar hefur gefið efnahagnum mikinn drifkraft. Námsgreinarnar, sem eimbættis- mennirnir eiga að læra, eru m.a. viðskiptahagfræði, fvrirtækj astj órn, ■ Kínverska borgin Shenzhen við landamæri Hongkong hefur á örfáum árum starfsmannahald. markaðsöflun, al- breyst úr litlu sveitaþorpi í stórborg með skýjakljúfa og iðandi umferð. Shenzhen þjóðaviðskipti og bankaviðskipti. er helsta tilraunasvæði Kínverja fyrir kapítalískan rekstur.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.