NT - 27.06.1985, Blaðsíða 24

NT - 27.06.1985, Blaðsíða 24
HRINGDU ÞÁ Í SÍMA 68-65-62 Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leið ir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: askrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 ■ Hugmyndin um að stofna einkaskóla á grunnskólastigi kviknaði fyrst hjá okkur í kennaraverkfallinu á síðast liðnu hausti og við ákváðum að hefjast handa og kanna hvort unnt væri að hrinda henni í framkvæmd. Við fengum mjög góðar viðtökur og hvatningu hjá yfirvöldum menntamála, sögðu María Sólveig Héðinsdóttir og Margrét Theodórs- dóttir á blaðamannafundi í gær, er þær kynntu hinn nýja skóla sem þær ætla að setja á stofn í Reykjavík í haust. Starfsleyfi frá menntamála- ráðherra liggur þegar fyrir og ljóst er að Reykjavíkurborg mun einnig styrkja skólann með niðurfellingu húsaleigu af hús- næði í gamla Miðbæjarskólan- um, eða a.m.k. með verulegum afslætti af húsaleigu. Fyrir því hafa þær orð Davíðs Oddssonar borgarstjóra og Ragnars Júlíussonar formanns Fræðslu- ráðs Reykjavíkur. Hins vegar mun hvorki borgarráð né fræðsluráð hafa fjallað um málið. Endanlegur samningur við borgina liggur ekki fyrir. Styrkur ríkisins felst í launa- greiðslum en laun kennara skól- ans verða greidd af fjármála- ráðuneyti samkvæmt samning- um ríkisins og BSRB, en kenn- ■ Eigendur nýja einkaskólans þær María Sólveig Héðinsdóttir og Margrét Theodórsdóttir. NT-mynd: Ari Nýi einkaskólinn: Flestir foreldrar tilbúnir að greiða 3200 kr. á mán.! segja stofnendur; húsnæði tekið af Vesturbæjarskóla sem nú þegar býr við húsnæðisskort arar hins nýja skóla, Tjarnar- skóla, verða síðan yfirborgaðir af skólanum. Ekki fékkst upp- gefið á blaðamannafundinum í gær hversu miklar yfirborganir yrði um að ræða. Þær María Sólveig og Mar- grét sögðu að þær vildu reka skemmtilegan skóla, bæði fyrir nemendur og starfsmenn. Þær vildu ekki fallast á að skóli þeirri byggði á mismunun eftir efnahag foreldra, þótt margir byggju við bág kjör væru flestir foreldrar tilbúnir til að greiða rúmlega 3000 krónur fyrir menntun barna sinna. Mismun- unin ef einhver væri fælist í því að ekki kæmust nema 100 börn hið mesta í Tjarnarskóla.! Varðandi spurninguna um hvernig nemendur yrðu valdir inn í skólann sögðu þær, að sami háttur yrði hafður á og tíðkast við Kvennaskólann, hvert borgarhverfi fengi sinn kvóta. Ekki fengust skýr svör við því hvernig yrði valið ef umsóknir úr hverfunum færu fram úr því sem unnt yrði að verða við, nema hvað þær sögðu að ekki yrði farið eftir getu. Um niðurröðun í bekki sögðu þær að þær hefðu hugsað sér að hafa Hagaskóla sem fyrirmynd, reynt yrði að sjá til þess að ekki yrði gífurlegur munur á getu nemenda en um einhverja stýr- ingu yrði að ræða. Ekki verða fleiri en 25 nemendur í bekkjar- deild og bekkjardeildir verða alls fjórar. Þær María og Margrét sögðu að borgin útvegaði þeim hús- næði, sem nægði til að uppfylla skilyrði grtmnskólalaga um lág- marks fermetrafjölda á hvern nemanda. Þess má geta að Vest- urbæjarskólinn hefur haft afnot af húsnæði Miðbæjarskólans og mun hafa áfram, en sá skóli býr við mun þrengri húsakost en lög gera ráð fyrir að því er upplýst var á fundinum. Verðhækkun á trosinu ■ Verðlagsráð hefur heimilað 7 til 8 prósent verðhækkun á þorski og ýsu til neytenda. Kemur hækkunin í kjölfar fisk- verðshækkunarinnar í upphafi mánaðarins. Þá hefur ráðið hcimilað skipafélögum 8 prósenta hækkun farmgjalda. Um hvort tveggja var fjallað á fundi ráðsins á mánudag. verður ofí mikið bál ■ Mikið bál kom upp í hrúgu af olíumöl, gúmmíbobbingum og fleira dóti sem var fast við geymslubragga Hraðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar. Fór þó betur en á horfðist, þar sem eldur náði ekki að komast í braggann, en þar voru geymd veruleg verðmæti, m.a. fiskkassar, nætur, troll og fleira. Að sögn lögreglunnar á Fáskrúðsfirði er málið á rannsóknarstigi. En svo virðist sem ungur maður á staðnum hafi verið að leika sér að því að kveikja í einhverju dóti og hent því svo á fyrrnefnda hrúgu með þeim afleiðingum að eldur komst í allt saman. Mikinn reyk lagði yfir skreiðarhjalla í grenndinni, en lögreglan kvaðst búin að fá vottorð frá fiskmatsmanni um að skreiðin hafi sloppið við skemmdir, þannig að tjón hafi orðið minna en lcit út fyrir á tímabili. Ofboðslegur hiti var í hrúgunni en gröfumanni tókst þó að ýta henni nokkuð frá bragganum, þar sem síðan logaði í henni fram eftir degi. NT-mynd: Bjami Bjomsson Evrópumótið í bridge: Portúgal ruttúr veginum! - ítalirerunæstneðst- ir eftir 6 umferðir ■ Islendingar unnu . Portúgala í 6. umferð Evr- ópumótsins í bridge, en duttu samt niður um eitt sæti og eru nú í 9.-10. sæti af 21 þátttökuþjóð. Frakk- ar hafa nú tekið forustuna en mótið er enn mjög jafnt. Jón Baldursson, Sigurð- ur Sverrisson, Aðalsteinn Jörgensen og Valur Sig- urðsson spiluðu fyrri hálf- leikinn gegn Pörtúgölum og náðu 22 impa forystu. Jón Asbjörnsson og Símon Símonarson leystu Aðalstein og Val af í seinni hálfleik en í honum náðu Portúgalar að klóra í bakkann og lokastaðan varð 68-59 fyrir ísland eða 16-14 sigur. Það vekur athygli að eftir 6 umferðir eru Italir í næstneðsta sæti á mótinu, en margir höfðu spáðþeim sigri. Frakkar hafa hins- vegar fullan hug á að halda Evrópumeistaratitli sínum. Lið þeirra nú er skipað Chemla, Perron, Soulet, Lebel, Covo og Paladino. Röðin á mótinu er eftir- farandi: 1. Frakkland 111, 2. ísrael 110, 3. Pólland 106, 4. Holland 105, 5.-7. Austurríki, Bretland, Sví- þjóð 109,8. Grikkland 98, 9.-10. ísland, Þýskaland 93, 11. Ungverjaland 88, 12.-14. Noregur, Portú- gal, Spánn 86, 15. írland 85, 16. Danmörk 83, 17. Finnland 82, 18. Belgía 81, 19. Sviss 77,20. Ítalía 75, 21. Luxemborg 52. Sjöunda og áttunda um- ferð verða spilaðar í dag og þá spilar ísland við Svíþjóð og Luxemborg. Þá hefst keppni í kvenna- flokki í dag og spilar ís- lenska liðið við Frakkland og Sviss.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.