NT - 27.06.1985, Blaðsíða 4

NT - 27.06.1985, Blaðsíða 4
Fimmtudagur 27. júní 1985 4 Verða stjörnur á einni nóttu myndlistarsýning á vcrkum skóliincnienda í mörgum skól- unt á Norðurlandi í Safnahús- inu. ■ Lacey hefur aldrei unnið sem fyrirsæta - og kann því ekki til slíkra verka, að því er liún segir sjálf. NT-mynd: Ari Fjölmennasta íþróttamót ársins 1985? Um þúsund 9-14 ára krakkar munu keppa Frá rréflarifura N l í SkagafirOi, Ö.Þ.: ■ Um eitt þúsund ungmcnni hafa tilkynnt þátttöku í Norður- landsleikum æskunnar scm haldnir verða á Sauðárkróki urn helgina. Verður þetta að líkind- um fjölmennasta íþróttamót ársins 1985. Þátttakendur eru á aldrinum 9-14 ára, víðs vegar að af öllu Norðurlandi. Keppt verður í handbolta, körfuknatt- leik, knattspyrnu, frjálsum íþróttum, sundi, golfi, skák og hjólreiðum. Að sögn Björns Sigurbjörns- sonar, framkvæmdastjóra Norðurlandsleikanna er undir- búningur vegna þeirra nú á loka- stigi. M.a. hafa verið útbúnir keppnisvellir á Nöfunum fyrir ofan Sauðárkróksbæ og mun hluti af boltaleikjunum fara þar fram. Hjá ungu kynslóðinni virðist áhugi á knattspyrnunni lang mestur. í knattspyrnu hafa 60 lið tilkynnt þátttöku og má því ætla að þátttakendur í keppninni séu um 600. Um 200 munu keppa í frjálsum íþróttum og unr 13() í sundi. Flestir keppendur koma frá Akureyri, um 350 krakkar. Æskulýðsleikarnir hefjast kl. 20.30 á föstudagskvöld með því að safnast verður saman við barnaskólann á Sauðárkróki og þaðan verður gengið fylktu liði að íþróttavellinum þar sem leikarnir verða settir og mun keppni síðan hefjast. Mótsslit eru áætluð síðdegis á sunnudag. Meðan mótið stendur yfir munu keppendur og fararstjór- ar - sem verða nær eitt hundrað - búa í skólahúsnæði auk þess sem ágætis aðstaða er á tjald- stæðinu við sundlaugina. í tengslum við leikana verður Lacey Ford í viðtali við NT ■ Fyrirsætur geta átt yndislegt líf ef þær vilja það sjálfar. Þær geta ferðast um, kynnst nýju fólki, séð ný og ókunn lönd. Én þær verða líka að hafa mikla trú á sjálfum sér og því sem þær gera, annars hrynur draumur- inn. Þetta segir Lacey Ford - dótt- ir Eileen Ford, þeirrar sem rekur umboðsskrifstofuna Ford Models í New York - og hún veit hvað hún er að tala um. Lacey hefur aldrei unnið sem fyrirsæta sjálf - kann ekki til slíkra verka að því er hún sjálf segir. En hún hefur verið við- loðandi „bransann“ næstum svo lengi sem hún man eftir sér. Allar fyrirsætur Ford Models hafa í gegnum tíðina búið á heimili foreldra hennar f New York og orðið smám saman hluti af fjölskyldunni. Erfið leit Sjálf ferðast hún um heiminn með manni sínum, kemur á umboðsmönnum í hinum ýms- um iöndum fyrir skrifstofu Ford Models í New York. Hún leitar fallegra stúlkna, hittir þær, ræð- ir við þær og lætur taka af þeim myndir. Hún segist geta séð á stúlku eftir skamma viökynn- ingu hvort hún getur orðið góð fyrirsæta eða ekki. í augum stúlknanna geti hún séð gáfna- far þeirra og allar stúlkur sem vilja verða fyrirsætur verði að geta sýnt persónuleika á mynduin. Stúlkur búnar öllu þessu er erfitt að finna. Á sex árum finnur Lacey Ford ef til vill aðeins eina stúlku sem getur orðið góð fyrirsæta - heimsfræg! Aðeins eina stúlku þó svo hún ferðist um öll heimsins lönd. Nógu þroskuð18ára Lacey telur að Lilja Pálma- dóttir sigurvegarinn í Face of the 80’s keppninni sem haldin var nýlega hér á landi eigi góða möguleika á að ná langt í fyrir- sætustarfi. „Lilja sigraði í keppninni vegna þess að hún er fallegri en hinir keppendurnir þó þær séu allar mjög fallegar og glæsileg- ar,“ segir Lacey. „Hún hefur yndislega ferskt og eðlilegt útlit og hún myndast sérstaklega vel. Reyndar fór hún dálítið illa að ráði sínu í samkvæminu þeg- ar úrslitin í keppninni voru kynnt," heldur Lacey áfram. „I samkvæminu var hún í lágbotna skóm svo hún virtist allmiklu minni en hinar stúlkurnar og auk þess skar hún sig úr í klæðaburði á ef til vill ekki nógu góðan hátt. “ Lilja er aðeins átján ára göm- ul en það telur Lacey ekki vera of ungt. Auðvitað séu átján ár ekki mikið en stúlka sem hafi hlotið kosningarétt átján ára gömul eins og tíðkast í Banda- ríkjunum ætti að vera orðin nógu þroskuð til að geta starfað sem fyrirsæta og tekið þátt í Face of the 80’s keppninni þótt það sé að sjálfsögðu nijög persónubundið og velti á henni sjálfri. Helga var of ung Lacey segir auk þess að Helga Melsteð sigurvegarinn í Face of the 80’s keppninni hér í fyrra hafi verið of ung þá, 17 ára gömul, til að fara til New York til að starfa sem fyrirsæta. Auk þess hafi hún ekki verið viss um að vilja það sjálf. Nú sé Helga hins vegar tilbúin til þess og innan skamms taki hún til starfa. Hún eigi að vera einhvern tíma í Evrópu við fyrirsætustörf til að öðlast reyn- slu. Að því loknu fari hún til Bandaríkjanna. „Og ég er viss um að henni á eftir að ganga mjög vel sem fyrirsæta því hún er mjög falleg eins og íslenskt kvenfólk svo oft er,“ segir Lac- ey. Þjálfuð fyrir keppnina Þegar þetta viðtal við Lacey birtist verður hún farin af landi brott til að undirbúa komu Lilju og annarra keppenda til Banda- ríkjanna í lok ársins. „Mig langar til að hún eins og aðrir keppendur öðlist reynslu í fyrirsætustörfum áður en hún tekur þátt í keppninn í New York í janúar. Þess vegna hef ég hug á að láta hana starfa sem fyrirsætu í Evrópu í haust þó engin ákvörðun um það hafi verið tekin. Það þarf að þjálfa hana í að koma fram, dansa og sitja fyrir þvf aðalkeppninni verður sjón- varpað beint í næstum öllum löndum nema íslandi. Þátturinn mun sýna fjöldann allan af fyrir- sætum sem Ford Models hefur á sínum snærum; bæði þær stúlkur sem keppa að þessu sinni um titilinn auk þeirra sem tóku þátt í keppninni árið á undan,“ segir Lacey. Tilgangurinn með þættinum er meðal annars sá að gera almenningi betur ljóst hvað verður um þær stúlkur sem taka þátt í keppninni - sýna almenn- ingi að þessar stúlkur hafi orðið stjörnur á einni nóttu. í stað þess að snúa til baka heim til görnlu. góðu Illinois eða Akur- eyrar. Hún segir að þetta sé gert á virðulegan og skemmtilegan hátt í þættinum enda njóti hann mikilla vinsælda vestra. ■ Örn Árnason, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Þórunn Magnea Magnús- dóttir í hlutverkum sínum í ærslaleiknum Með vífíð i lúkunum. Leikför um Norður- og Austurland: Gamanleikur frumsýndur á Blönduósi ■ Nýr gamanleikur verður frum- sýndur á Blönduósi, þann 1. júlí. Það er leikhópur á vegum Þjóð- leikhússins sem fer í leikför um Norður- og Austurland með gam- anleikinn, „Með vífið í lúkunum," eftir breska höfundinn Ray Coon- ey- Frumsýningin verður í Félags- heimilinu á Blönduósi, þann fyrsta og síðan fer leikhópurinn áfram um norðaustanvert landið, og lýk- ur ferðinni þann 14. júlí í Sindra- bæ, Höfn á Hornafirði. Allsverða 14 sýningar í ferðinni. Með vífið í lúkunum var frum- sýnt í London fyrir tveimur og hálfu ári og gengur þar enn fyrir fullu húsi, þó svo sýningin hafi verið sýnd þar í sjónvarpi um síðustu jól. Um þessar mundir er verið að sýna leikritið í fjölmörg- um löndum Evrópu, sem og í Ástralíu og Bandaríkjunum. Átta leikarar fara með hlutverk í sýningunni, og eru það þau Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Örn Árnason, Anna Kristín Arn- grímsdóttir, Sigurður Sigurjóns- son, Pálmi Gestsson, Sigurður Skúlason, Randver Þorláksson og Þorgrímur Einarsson. Sérsamningar í gras- kögglaverksmiðjum: Deilunni vísað til sáttasemjara ■ Deilu um sérkröfur starfsmanna grasköggla- verksmiðja ríkisins hefur verið vísað til rfkissátta- semjara, og hefur samn- ingafundur verið boðaður næstkomandi mánudag kl. 14. Sigurður Óskarsson for- maður verkalýðsfélagsins Rangæings á Hellu sagði í samtali við NT í gær, að aðalágreiningurinn stæði um greiðslur vegna ábyrgðarstarfa á tækjum. Einnig hefur verið deilt um greiðslu fyrir akstur starfsmanna til og frá vinnu á eigin bílum, og um breytingar á sérsamn- ingnum til samræmis við breytta framleiðsluhætti í verksmiðjunum, einkum þó á Stórólfsvöllum. Lausn var þó í sjónmáli, þegar deilunni var vísað til sáttasemjara. Samningafundir hafa verið nokkrir í deilu þess- ari, en aðilar komust að samkomulagi um áður- nefnda málsmeðferð í ■gær.________________

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.