NT - 27.06.1985, Blaðsíða 12

NT - 27.06.1985, Blaðsíða 12
Britt Ekland og „Slim Jim“ héldu nýlega upp á hamingjusamt ársbrúðkaupsafmæli sitt og samband þeirra eins og best verði á kosið. Jim sagði að það væri bjartara framundan lijá þeim í peningamálum, „svo nú höfum við Britt mikinn áhuga á því að eignast barn". Britt tók í sama streng. Hún hefur átt tvö börn, og sagði það í sjálfu sér ckkert mál að fæða barn, það hefði gengið auðveldlega hjá sér, -en meðgöngutíminn hefði í bæði skiptin verið sér mikill reynslutími. „En með Jim við lilið mér verður það áreiðanlega allt annað," sagði Britt. ■ „Petta stendur ekki lengi,“ sagði fólk, þegar þau Britt Ekland og Jint McDonnell giftu sig fyrir ári síðan. í fyrsta lagi var það aldursmunurinn sem fólk setti fyrir sig, en Britt er 42 ára en brúðguminn „Slim Jim“ 24. Britt er umtöluð og þekkt leikkona og það hafa ófáar greinar verið skrifaðar um hana í slúðurdálka blaðanna. Margir hafa verið tilnefndir sem kærast- ar Britt gegnunt árin en frægasta ástasamband hennar var þó hjónabanJ hennar og Peter Sellers,hins fræga leikara, sem var ló árum eldri en hún. Þau eignuöust eina dóttur Victoríu, sem nú er 21 árs. Nú snýr Britt dæminu við og giftist manni sem er jafnmörg- um árum yngri en hún og Sellers var eldri. Þau Britt og Peter Scllers giftust 1964 og skildu síðan fjórum árum síðar. Þá bjó hún um tíma með Lou Adler tónlist- armanni og plötuframleiðanda og eignaðist son, Nicholai, scm er fæddur 1973. Það gckk á öllum ósköpunum þau tvö árin sem Britt var með Rod Stewart, poppsöngvaran- urn fræga, sem íslendingar fengu að kynnast nýlcga í sam- bandi við fegurðarsamkeppnina á Broadway. Samband þeirra Rod og Britt cndaði meö því, að hún lögsótti hann og krafðist 12 milljóna sterlingspunda bóta. Þcgar þau Britt og Jim giftu sig fyrir ári var liann í hljóm- sveitinni Stray Cats sem gerði Lou Adler plötuútgefandi ineð soninn Nicholai. Þaö var licldur stutt i sainhúð þeirra Britt og hans. það gott, og hann hafði nóga peninga og lifði hátt - en lánið er fallvalt í poppheiminum og hljómsveitin splundraðist, svo botninn datt úr öllu hjá poppar- anum. Nú vinnur hann að stofn- un nýrrar hljómsveitar, sem heitir Phantom. „Þetta líturallt vel út, og líklega hefur það bara orðið til góðs, að við hættum í Stray Cats," segir Slim Jim hinn ánægðasti í blaðaviðtali, sem haft var við þau hjón í tilefni brúðkaupsafmælisins. „Við höfum kannski minni peninga nú um tíma - en hvað um það, þá lærir maður að spara," sagöi Jim. Hann viður- kenndi þó að hann hefði í tilefni brúðkaupsafmadisins keypt fok- dýran perlu- og demantshring og gefið Britt sinni. Jim segir, að þeir Nicholai, stjúpsonur hans, séu bestu vinir Peter Sellers og Britt giftust 1964 og eignuðust eina dóttur. Þau skildu og hann var nýkvæntur ann- arri ungri leikkonu þegar hann lést af hjartasjúk- dómi. ér um smáfólkið Heildverslun G.ÓIafsson hf. Grensásvegi 8, Reykjavík. Barnavörurnar frá CANNON eru sérlega vandaðar og stílhreinar. Þær hafa staðist ströngustu öryggis- og gæðaprófanir með miklum sóma. Skoðaðu CANNON barnavörurnar í næstu lyfjaverslun.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.