NT - 27.06.1985, Blaðsíða 19

NT - 27.06.1985, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 27. júní 1985 19 Utlönd Þróunarhjálp Vesturlanda: Framlögin hærri í ár en í París-Reuter ■ Vesturiönd hækkuöu fram- lög sín til þróunarhjálpar á árinu 1984 miðað við árið á undan og líklegt er að framlögin hækki enn á þessu ári, að því er talsmenn Samtaka þróaðra iðn- ríkja (OECD) sögðu nýlega. Framlögín eru þó vel fyrir neðan það sem Sameinuðu þjóðirnar mæla með að gefið sé í þróunarhjálp. Framlög olíu- framleiðsluríkjanna í OPEC og Gullá írlandi Dublin-Reuter ■ Alþjóðlegt námuleit- arfyrirtæki telur sig hafa fundið nýtanlegar gull- námur í Sperrinfjöllum á Norður-lrlandi. Á aðalfundi fyrirtækis- ins Ennex International skýrði aðalframkvæmda- stjórinn, Peter McAleer, frá því að síðar á þessu ári yrði tekin ákvörðun um það hvort gullvinnsla yrði hafin í Sperrinsfjöllum. Hann sagði að frekari rannsóknir væru nauðsyn- legar áður en ljóst yrði hvort námumar hefðu meira en 400.000 tonn af gull- grýti með 0,25 til 0,3 únsur afgulli íhverjugrjóttonni. Stæðist það væri hægt að hefja gullvinnslu. McAleer virtist bjart- sýnn á að gullið væri nýtan- legt því að hann sagði hluthöfum að nann teldi að fyrirtækið hefði fundið gullnámur. Reynist það rétt verður það í fyrsta skipti í eina öld að gull finnst á írlandi. austantjaldsrikjanna hafa lækk- að frá því sem verið hefur. Ríkin 17 sem eru í þróunar- hjálparnetnd OECD gáfu 28,6 milljarða dollara í opinbera þró- unarhjálp og vegna sérstakrar neyðarhjálpar til hungursvæð- anna í Afríku. Santa áætlun ætti síðan að leiða til enn frekari aukningar á þessu ári. ■ Næstum öll börn á stórum svæðum í Afríku þjást af nær- ingarskorti. Uppþembdur mag- inn ber vott um eggjahvítuskort en mörg börn eru líka með beinkröm og bjúg. Vesturlönd- in hækkuðu framlög sín til þró- unarhjálpar milli áranna 1983 og 1984 og líklegt er að þau verði enn hærri í ár. Framlögin. eru þó fyrir neðan það sem Sameinuðu þjóðirnar telja eðli- legt að gefið sé til þróunarhjálp- Sovétmenn verjast gervihnattaárásum á öldum Ijósvakans Vcslur-BeHín-Rcuter: ■ Sovéska fréttastofan No- vosti hefur skýrt frá því að Sovétmenn muni grípa til gagn- ráðstafana ef vestrænar sjón- varpsstöðvar reyni að senda sjónvarpsefni mcð gervihnött- um til Sovétríkjanna. Samkvæmt Novosti líta hátt- settir Sovétmenn svo á að slíkar sjónvarpssendingar séu „hug- myndafræðileg árás". Öll ríki hafi rétt til að gera ráðstafanir gegn slíkum ólöglegum sjón- varpssendingum, ckki aðeins á eigin landsvæði hcldur cinnig úti í geimnum. Sérfræðingar í sjónvarps- sendingum með gervihnöttum telja að það sc álíka kostnaðar- samt að trufla sjónvarpútsend- ingar gervihnatta til jarðar og að koma slíkum útscndingum af stað. Sovétmenn starfrækja nú þegar stóra og kostnaðarsama senda sem trufla útvarpssend- ingar frá Vesturlöndum til Sovétríkjanna. Sviss: Okukeppni sólarbíla Zúrich-Rcutcr ■ Fyrsta ökukeppni sólarbíla í heimi stendur nú yfir í Sviss. Ökukeppin hófst á þriðjudag og stendur í fimm daga. Samtals taka 42 bílar þátt í keppninni en ólíklegt er talið að þeim takist öllum að komast á leiðarenda þar sem alskýjað var þegar keppnin byrjaði við Rom- anshorn hjá Constance-vatni ná- lægt Zúrich. Keppninni lýkur í Genf eftir um 370 kílómetra akstur. Sólarbílarnir meaa einungis nota sólarljós sem orkugjafa. En auk „hreinræktaðra" sólar- bíla taka einnig sólarbílar með fótstiginni hjálparvél og rafbílar af ýmsum geröum þátt í keppn- inni. Ökumenn síðastnefndu bílanna fá leyfi til að stinga bílum sínum í samband við rafmagn á leiðinni ef sólarleysið gerir þá orkulausa en „hrein- ræktuðu" sólarbílarnir vcrða að láta sér nægja sólarljósið þótt það verði kannski af skornum skammti. Flestir spá því að Silvurörin frá Vestur-Þýskalandi sigri. Hún var smíðuð af starfsmönn- um hjá Daimler Benz AG í Vestur-Þýskalandi og hefur 432 sólarrafhlööur. Hámarkshraði Silvurörvarinnar er sagður7l km/klst. En ýmsir svissneskir sólarbílar eru einnig sagðir hafa möguleika til sigurs. Hraöskreiðasti bíllinn í keppninni getur ekið með allt að 100 kílómetra hraða á klukkustund en sá hæggengasti fer aðeins á 27 km/klst. Sérstök akstursleyfi fyrir bíl- ana renna út að keppni lokinni en þá verða þcir hafðir til sýnis á fyrstu sólarbílasýningu heims í Sviss. Sovét- mengun drepur skóga MoskVa-Rculer: ■ Samkvæmt sovéska dagblaðinu, Sovietskaya Rossiya, hafa eitraöar lofttegundir frá álveri í Austur-Síberíu drepið tré á mörg þúsund hckturuin iauds. Blaöið scgir að þrátt fyrir ítrekaðar aðvaranir hafi yfirntenn álversins ekki gert ráðstafanir til að draga úr mengun frá ver- inu. Sovésk stjórnvöld hafa þess vegna sektað álverið um fimnt milljónir rúbla (um 240 milljónir ísl. kr.) fyrir að koma ekki fyrir hreinsibúnaði. Fyrst var kvartað yfir menguninni við álverið árið 1970 en mengunin hélt áfram og skógar- höggsmenn hafa ncyðst til að höggva verðmætan barrskóg ú mörg þúsund hekturum í kringum vcrk- smiöjuna. Vígvæðing í Zaire Zaire-stjórn á í höggi við skæruliða í Shaba-héraði suðurhluta landsins. Stjórnin ásakar nágrannaríkin fyrir að styðja skæruliðana. Indverjar auka f lugval lareftirlit Kinshasa-Reutcr ■ Varnarmálaráðuneyti Af- ríkuríkisins Zaire hefur tilkynnt að herstyrkur landsins verði tvö- faldaður upp í 100.000 manns á næstu árum. Að sögn stjórn- valda er markmiðið með eflingu hersins að auka varnarstyrk ríkisins. Leiðtogi stjórnarinnar, Mobuto Sese Seko, hefur varað nágrannaríki Zaire við að hann muni ekki líða tilraunir þeirra til að steypa stjórn sinni með stuðningi við skæruliða. Bandaríkin: Víggirt sendiráð Washington-Reuter ■ Stjórnskipuð nefnd í Bandaríkjunum hefur lagt til við utanríkisráðherrann að bandarísk sendiráð í hinum ýmsu löndum verði endur- byggð þannig að þau geti staðist árásir hermdarverka- manna. Talsmaður utanríkis- nefndar öldungadeildar bandaríska þingsins segir að kostnaður við slíka endur- byggingu sendiráðanna. sem gerði þau að óvinnandi vígjum, gæti numið meira en þremur milljörðum dollara (120 milljarðar ísl. kr.) Bandaríkjamenn hafa miklar áhyggjur af öryggi sendiráðsstarfsmanna sinna erlendis eftir að sendiráðs- menn í sendiráði þeirra í Teheran voru teknir í gísl- ingu árið 1979 og sjálfs- morðsskæruliði ók bíl fullum af sprengiefni að sendiráði þeirra í Beirút árið 1983 með þeim afleiðingum að 46 menn létu lífið. fLojbftmbáShi ZAMBIAXI Nýja Ddhi-Rcutcr ■ Indverjar hafa aukið örygg- iseftirlit á flugvöllum sínum i kjölfar þess að 329 menn fórust meö indvcrskri llugvél á sunnii- dag scm taliö er að hall hrapaö eftir sprengingu sem hryðju- verkamenn hal'i komið fyrir. Öryggiseftirlitið verður nt.a. aukið mcð því að flciri gegnum- lýsingartæki vcrði keypt til að skoða farangur á flugvöllunum og þefhundum verður fjölgað. Farþegar verða líka framvegis beðnir um að bera kennsl á farangur sinn áður en hann cr látinn unt borð. Indvcrjar ákváðu strax cftir slysið að hætta flugferðum til Kanada en þaðan kom flugvélin sent hrapaði í hafið skammt undan írlandi. Kanadísk flugvél scm flaug til Tokyo sama dag reyndist einnig hafa sprengju innanborðs sem sprakk eftir aö flugvélin lenti með þeint af- leiðingunt að tveir menn létust. Vestur-Þýskaiand: Hlutabréf í Springer- blaðahringnum til sölu Herinn í Zaire, sem nú telur um 48.000 menn, er þjálfaður af ísraelskum og frönskum hern- aðarráðgjöfum. Herinn hefur að undanförnu átt í höggi við skæruliða í Shaba-héraði sem er mjög auðugt af námum. Mobuto segir að fyrir nokkr- um dögum hafi nýjar úrvals- sveitir hersins elt innrásarlið uppreisnarmanna frá borginni Moba í átt að hafnarborginni Kigoma í Tanzaníu við Tangan- yikavatn. Vestur-BeHín-Reuter ■ Þýski blaðakóngurinn Axcl Springer hefur ákveðið að selja 49% hlutabréfa í blaðahring sínum, Axel Springer Verlag. Heildarsöluvcrð þcssara hluta- bréfa er sagt vera 558 milljónir marka (rúml. 7,6 niilljarðar ísl.kr.). Springer blaðahringurinn rekur fimm dagblöð og tvö helg- artímarit. þar á meðal er dag- blaðið Bild sem er útbreiddasta dagblað Evrópu. Springerfyrir- tækið mun halda eftir 26,1% eignarhlut í blöðunum og Burda-útgáfufyrirtækið sern er óháð, heldur 24,9%. í fréttatilkynningu frá Spring- er-hringnum varðandi hluta- bréfasöluna segir m.a. að markmið fyrirtækisins sé að standa vörð um sjálfstæði rit- stjórnanna. Til að koma í veg fyrir að sterkir utanaðkomandi aðilar nái meirihluta hlutabréf- anna á sitt vald cru ákvæði sem veita núverandi aðaleigendum forkaupsrétt að hlutabréfunum við endursölu þeirra.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.