NT - 06.07.1985, Blaðsíða 1
NEWS SUMMARYIN ENGUSH 3SEEP. 20
Ullarvörukaupmenn frá glaðning í haust:
Ameríkanarnir koma í
þúsundavís að versla
■ Nú í byrjun júlí hafa
þegar á annað þúsund
Bandaríkjamenn bókað sig í
sérstakan helgarverslunar-
leiðangur með Flugleiðum
til Reykjavíkur í haust og
vetur og búist er við að tala
þeirra muni tvöfaldast áður
en yfir lýkur.
Að sögn Sigfúsar Erlings-
sonar framkvæmdastjóra
markaðssviðs Flugleiða
kaupa Bandaríkjamennirnir
yfirleitt fyrir mikið fé og
hclst eru það ullarvörurnar
sem heilla. Samkvæmt
lauslegri könnun sem Flug-
leiðir hafa gert eyðir venju-
legur bandarískur ferðamað-
ur 350-500 dollurum að með-
altali eða unr 14-20.000 ís-
lenskum krónum en þess
væru dæmi að menn keyptu í
kassavís og greiddu þá tolla
af vörunum við komuna til
Bandaríkjanna.
Verslunarferðir þessar
sem kallast „A Shopping
Tour to Iceland" og eru aug-
lýstar í sanrvinnu við banda-
rískar ferðaskrifstofur hafa
lengi veriö í undirbúningi.
Langflestir Bandarikja-
mannanna kæmu frá Chicago
en í framtíðinni er vonast til
að þeir sem búa í og við
nágrenni New York og Was-
hington flykkist í þessarferðir.
Ferðir þessar hefðu verið
komnar vel á veg í fyrrahaust
en verkfallið sem þá skall á á
íslandi hefði sett strik í reikn-
inginn, og samkvæmt heim-
ildum NT hafði bandarísk
kona lýst því yfir þegar hún
bókaði sér far í verslunarferð
að hún ætlaði að kaupa ullar-
vörur fyrir 10.000 dollara.
y
Lokar á Þykkvabæjarkartöf lur
■ Konur scm stofnaö hafa lilula-
félag um kaup á þrcuiur hú.suin viö
Vesturgötu undir félags og menn-
ingarstarfscmi fcngu í dag afhcnta
lyklaua aö húsunuin og í portinu
við húsin voru kaupin haldin liá-
tíölcg við inikil fagnaöarhcti,
iúörablástur og söng og glcns.
Konurnar í stjórn hlutafélagsins
scm sjást fremst á inyndinni af-
hcntu 1,4 milljónir króna við
undirritun kaupsainnings cn af-
gangnum 8,1 milljónir krúna vcrö-
ur safnaö á cinu ári mcð sölu
hlutabréfa.
Iflutafjársöfnunin hcfur gcngiö
mjög vcl og þcgar liafa uin K00
konur gcrst hlutahafar.
N'r-iiiynd Svcrrir
3 V2 ár fyrir
nauðgun
■ Hæstiréttur hefur dæmt í
niáli Reynis Lúterssonar, seni
gerði tvær tilraunir til nauðgun-
ar sama kvöldið, við Hverfís-
götu fyrir ári.
Dómurinn telur engan vafa á
því aö Reynir sé sekur í máli
þessu og dæmir hann til 3 ára og
6 mánaða fangelsjsvistar. Til
frádráttar koma þeir 27 dagar
sem Reynir sat í gæsluvarð-
haldi.
Reyni var gert skylt að greiða
annarri konunni sem fyrir
verknaðinum varö, skaðabætur,
Reynir skal auk þess greiða
málskostnað.
Varnarliðið stefnir
að byggingu 250 íbúða
íslenskum hönnuðum gefinn kostur á að vera með
■ Bandaríski herinn á
Keflavíkurflugvelli áformar
að byggja 250 íbúðir fyrir
starfsmenn sína, ef fjármagn
fæst til þess á fjárhagsáætlun
Bandaríkjaþings fyrir 1987.
Tilgangurinn með bygging-
um þessum er, í fyrsta lagi,
að færa þá varnarliðsmenn,
sem búa utan vallar inn á
völlinn, í öðru lagi að endur-
nýja húsnæði, sem þegar er á
vellinum og í þriðja lagi að
auka hlutfall varnarliðs:
manna með fjölskyldur.
Ekki er meiningin, að varn-
arliðsmönnunum fjölgi með
tilkomu þessa nýja fbúðar-
húsnæðis.
Sverrir Flaukur Gunn-
lausson skrifstofustjóri varn-
armálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins sagði í samtali
við NT, að skrifstofan hefði
unnið að því í vetur að skapa
íslenskum hönnuðum mögu-
leika á að taka að sér viss
verkefni á Keflavíkurflug-
velli. Nú hefði opnast mögu-
leiki á, að þeir geti keppt við
bandaríska hönnuði, sem
ekki hefði verið hægt áður.
Miðað væri við, að stofnaðir
yrðu hópar hönnuða, svo
sem arkítekta og verkfræð-
inga, en það ætti síðan eftir
að koma í ljós hvort það
væru íslenskir aðilar, banda-
rískir eða íslenskir og banda-
rískir, sem fengju verkefnið.
Sverrir Haukur lagði áherslu
á að innan hópanna yrðu að
vera nægilega margir sér-
fræðingar til þess að þeir
gætu tekið verkefnið að sér
sem heild.
Nokkrir íslenskir arkítekt-
ar hafa þegar lagt inn um-
sóknir um að fá að vera með
í hönnun íbúðanna, en það
var aðeins fyrir tilviljun, að
stjórn Arkítektafélags ís-
lands barst vitneskja um
þetta til eyrna. Forystumenn
arkítekta gengu því á fund
utanríkisráðherra, þar sem
þeir lögðu áherslu á að þetta
hefði mátt fréttast fyrr. Jafn-
framt lögðu þeir áherslu á að
íslenskir arkítektar ættu að
vera í forsvari fyrir öðrum
mannvirkjum en hernaðar-
mannvirkjum á íslensku
landi.
■ Tilkoma hinnar nýju kart-
öflupökkunarstöövar Þykkbæ-
inga og ákvöröun eigenda henn-
ar (nær allir kartöflubændur í
Þykkvabæ) aö annast um hluta
af dreifíngunni sjálfír - til að
reyna aö koma auknu magni á
markað - mun hafa valdið því
að stjórnendur Grænmetisversl-
unar landbúnaðarins hafa
ákveðið að stöðva dreifíngu á
kartöflum þaðan, í bili a.m.k.
„Nei, þao er ekkert kartöflu-
stríð. En það mun eitthvað til í
því að þeir hjá Grænmetinu hafi
sagt að þeir vilji ekki taka af
okkur kartöflur til dreifingar,
þó ég telji nú víst að það eigi
eftir að breytast. Ástæðan er sú
að við höfum lýst yfir að við
hyggjumst líka nota annað
dreifingarfyrirtæki til að koma
kartöflunum okkar á markað -
en þeir vilja víst að við seljum
annaðhvort allt í gegn um
Grænmetið eða ekkert,“ svar-
aði Páll Guðbrandsson, fram-
kvæmdastjóri Pökkunarsiöðvar
Þykkvabæjar spurningum NT.
Þar eystra sagði hann menn
telja Sunnlendinga hafa í vetur
tapað mikilli hlutdeild í sölu á
Reykjavíkursvæðinu - aðrir
landshlutar liafi náð of stórum
hluta af markaðinum miðað við
framleiðslu á hverju svæði.
Samkvæmt reynslu þeirra m.a.
teldu Þykkbæingar möguleika á
að koma meiru af sinni fram-
leiðslu á markað gegn um tvo
dreifingaraðila í stað aðeins eins
- Grænmetisverslunina.
„Það er kannski ekki rétt að
við ætlum ekki að dreifa kartöfl-
um úr Þykkvabæ. En við verð-
um að vita hvernig við eigum að
taka á þeim málum þegar fleiri
eru farnir að dreifa fyrir þá, og
það mál er ekki leyst,“ sagði
Gunnlaugur 3jörnsson, for-
stjóri Grænmetisverslunarinn-
ar.
Hann kvað samþykktir hafa
verið gerðar í samtökum kart-
öflubænda sjálfra unt það að
menn sættu kvóta, miðað við
framleiðslu hvers og eins. „Það
er þetta sem við erum að halda
í-ekkert annað. Þessi breyting
á ekki að gefa Þykkbæingum
möguleika umfram aðra til að
losna við sína uppskeru," sagði
Gunnlaugur.