NT - 06.07.1985, Blaðsíða 9
Laugardagur 6. júlí 1985 9
NUF-ráðstefna
á íslandi
■ Norrænir kennarar í sjúkra-
þjálfun (Nordiske undervisende
Fysioterapeuter) halda ár hvert
ráðstefnu, þar sem fjallað er um
kennslu í sjúkraþjálfun og
skipst á upplýsingum um
skólamál. Auk þess er aðalfund-
ur haldinn í tengslum við ráð-
stefnuna.
Árið 1985 markar tímamót,
þar sem ráðstefnan fór fram á
Islandi í fyrsta sinn dagana 30.6-
4.7.
Öllum sjúkraþjálfurum, sem
þegar tengjast kennslu í sjúkra-
þjálfun eða hafa hug á að gera
það í framtíðinni var heimil
þátttaka.
Efni ráðstefnunnar var:
1. Verkleg kennsla í sjúkraþjálf-
un.
Ella Kolbrún Kristinsdóttir,
dósent flutti inngangsfyrir-
lestur, en síðan voru hóp-
umræður.
2. Notkun tölvu við kennslu í
sjúkraþjálfun.
Fyrirlestur flutti Ben
Barkman, háskólakennari
frá Amsterdam.
3. Aðalfundur og upplýsinga-
skipti.
Ráðstefnuna sóttu um 80
manns, þar af 22 frá íslandi.
■ Sfjóm Menningarsjóðs Sambandsins og styrkþegar. Stjórnin situr við borðið en í henni eru séra Sigurður Haukur Guðjónsson, Valur Araþórsson og Erlendur
Einarsson, Dagbjörg Höskuldsdóttir og Eysteinn Jónsson eiga einnig sæti í stjórninni, en voru ekki viðstödd þegar myndin var tekin.
17styrkþegar fengu rúma milljón kr.
■ Nú í vor var að vanda út-
hlutað allmörgum styrkjum úr
Menningarsjóði Sambandsins.
Að þessu sinni fengu 17 aðilar
styrki, samtals að fjárhæð 1.030
þús. kr. Styrkþegarnir voru
eftirtaldir.
’85 nefndin, samstarfsnefnd
um lok kvennaáratugar S.t>.,
vegna listahátíðar haustið 1985,
100 þús. kr.
Sr. Eiríkur J. Eiríksson, Sel-
fossi vegna fræðirannsókna er
lendis, 75 þús. kr.
Áhugamannafélag unt upp-
byggingu og verndun Löngu-
búðar, Djúpavogi, 75 þús. kr.
Leikklúbburinn Saga, Akur-
eyri, vegna leikfarar um
Norðurlönd, 75 þús. kr.
Sundlaugarsjóður Grímseyj-
ar, 75 þús. kr.
Kór Langholtskirkju, vegna
söngferðar erlendis, 75 þús. kr.
Pólýfónkórinn, Reykjavík,
vegna söngferðar til Ítalíu, 75
þús. kr.
íslenski Alpaklúbburinn,
vegna tækjakaupa, 60 þús. kr.
Flugbjörgunarsveitin,
Reykjavík, vegna tækjakaupa,.
60 þús. kr.
Baldur Hrafnkell Jónsson,
vegna gerðar heimildakvik-
myndar um Tryggva Ólafsson
listmálara, 60 þús. kr.
Textilfélagið, Reykjavík, 60
þús. kr.
Katrín Sigurðardóttir, Húsa-
vík, vegna söngnáms. 60 þús.
kr.
Þorsteinn Gauti Sigurðsson
píanóleikari, 60 þús. kr.
Guðbjörn Thoroddsen, leik-
ari, vegna kynningarferðar, 30
þús. kr.
Hjalti Rögnvaldsson, leikari,
vegna kynningarferðar, 30 þús.
kr.
Sunddeild Ungmcnnafélags
Njarðvíkur, 30 þús. kr.
Inga Bjarnason leikstjóri,
vegna náms í óperustjórn, 30
þús. kr.
í stjórn Menningarsjóðsins
sitja Valur Arnþórsson, for-
maður, Erlendur Einarsson,
Eysteinn Jónsson, séra Sigurður
Haukur Guöjónsson og Dag-
björt Höskuldsdóttir. Þessir
styrkir voru formlega aflientir
viðtakendum ntánudaginn 1.
júlí.
Meðfylgjandi mynd er tekin
við það tækifæri.
(Eréttatilkynning frá Sambandi
ísl. samvinnufélaga3. júlí 1985).
BRAUTARHOLTI 33 - SIMI: 6212 40
# VIÐ ERUM í hjarta borgarinnar viö Brautarholt.
# VIÐ HÖFUM rúmgóöan sýningarsal og útisölusvæöi.
# VID BJÓÐUM mikiö úrval notaöra bíla af öllum geröum
# VIÐ VEITUM góöa og örugga þjónustu
8mm
VIDEO
DMM híjúmgaf.ii
- fiultetta -
TÆKNINYJUNGAR
ingar um samsetningu, virkun rafrás-
arinnar og um samsetningu ásamt
spilaborði.
Þá má geta fastra liða eins og „Nýtt
á markaðnum", þar eru kynntar nýj-
ungar t.d. ferða-Laser spilari, hátal-
arar, bíltæki, magnarar og margt
fleira. Hljómplötukynningin er á sínu
stað, bent er á hljómplötur með
hljómgæðum. Orðalisti er vfir ýmis
fagorð um hljómtæki, þýðir g þeirra
og útskýringar og síðast en ekki síst
bréf frá lesendum.
Útgefandi Rafeindarinnar er Út-
gáfufélagið Rafeind h.f. Ritstjóri og
ábyrgðarmaður er Steinþór Pórodds-
son.
Blaðið er selt í áskrift og lausasölu
og fæst í flestum bókabúðum og
söluturnum um land allt.
Rafeindin kemur út fjórum sinnum
á ári.
Rafeindin:
8 mm myndbönd
verða allsráðandi
innan tíðar
■ Tímaritið Rafeindin 2. tbl. 3ja
árgangs er komið út. Rafeindin er
eina tímarit sinnar tegundar sem
kemur út hér á landi, þ.e. sérrit unt
hljómtæki, tölvur, video og reyndar
rafeindaiðnað almennt.
í þessu tölublaði (sem er númer 9)
er fjallað um nýtilkomna aðferð við
gerð hljómplatna, (Direct Metal
Mastering) og hvaða áhrif hún getur
haft á hljómgæði og framleiðslukostn-
að. Níels Kristjánsson fjallar um nýtt
myndbandskerfi, 8mm Video, sem
líklegt er að verði allsráðandi á
ntarkaðnum í nánustu framtíð.
(Myndsnældurnar í 8mm kerfinu eru
t.d. svipaðar á stærð og hljómkassett-
ur).
Dr. Þorsteinn I. Sigfússon heldur
áfram hugleiðingum sínum um ofur-
leiðandi rafeindir og hvernig ofur-
leiðni mun nýtast mannkyninu í nán-
ustu framtíð. Petta er seinni hluti
greinar sem Þorsteinn tók sáman fyrir
Rafeindina um þetta sfórmerka fyrir-
bæri.
Einn af áskrifendum blaðsins segir
frá reynslu sinni af vali á myndbands-
tæki og veltir fyrir sér ýmsum tilboðs-
möguleikum. Lesendum er boðið upp
á að smíða rafeindastýrða rúllettu.
Þar er um skemmtilegt tómstunda-
gaman að ræða, gefnar eru leiðbein-