NT - 06.07.1985, Side 5

NT - 06.07.1985, Side 5
Laugardagur 6. júlí 1985 5 Sumarleyfi og mannekla hjá sjónvarpinu: Fréttum sjónvarp- að úr þulastúdíói ■ Fréttamenn sjónvarps eru komnir í nýtt umhverfi eins og sjónvarpsáhorfendur hafa vænt- anlega tekið eftir. Bakgrunnur fréttamannanna er allur annar, núna hafa þeir alla jarðkringl- una á bak við sig. Helgi E. Helgason varafrétta- stjóri sjónvarps sagði NT að vegna sumarleyfa starfsmanna og manneklu væri aðalstúdíó sjónvarpsins lokað. Meðan á þessu stendur er fréttunum sjónvarpað úr litlum klefa sem þulur sjónvarpsins sitja í þegar þær kynna dagskrá kvöldsins. Alla jafna er fréttunum sjón- varpað úr sjónvarpssalnum og taka þá allt að 3 fréttamenn sem eru á vakt þann daginn þátt í útsendingunni, auk veðurfræð- ings. Þetta er ekki hægt vegna plássleysis í þulustúdíóinu. Núna er einungis einn maður sem les fréttirnar í beinu frétta- útsendingunni. Öll innskot fréttamannanna og veðurfræð- ings eru tekin upp á myndbönd áður en fréttaútsendingin hefst. Helgi sagði að vegna þessara sumarleyfa væri framleiðsla á öllu innlendu sjónvarpsefni í lágmarki, þar sem stúdíóið er ekkert notað. Helgi sagði að þetta hefði engin veruleg óþæg- indi í för með sér fyrir frétta- mennina, þeir væru að vísu vanir beinum útsendingum en hann telur að vinna eigi fréttirn- ar sem mest fyrirfram. Þegar NT var sýnd aðstaðan í þulustúdíóinu var Magnús Bjarnfreðsson í óða önn að lesa sjónvarp næstu viku. Hann sagði að í sjálfu sér væri ekki vont að lesa inn í þessu litla stúdíói, en bætti því viðað þetta væri ein af þessum hallærisráð- stöfunum sem gripið væri til þegar ekkert væri hægt að gera. Magnús sagði að þegar sjón- varpið hefði ákveðið að sjón- varpa í júlí hefðu menn ekki áttað sig á því að það þyrfti mannskap til að vinna þann tíma. Vönumennirnireru flestir í fríi og óvanir afleysingarmenn komnir í þeirra stað. ■ Þegar aðalsfúdíó sjónvarpsins er lokað er útsendingum sjónvarpsins stjórnað úr þessu herbergi. ■ Magnús Bjarnfreðsson les sjónvarpsdagskrá næstu viku úr stúdíói þulanna. NT-myndir: Róbcrt Sjúkrahúsprestur við Borgarspítalann ■ Sjúkrahúsprestur tók til starfa við Borgarspítalann í Reykjavík og aðrar stofnanir hans, hinn 1. júlí sl. Sr. Sigfinnur Þorleifsson hefur verið ráðinn til að gegna þessu embætti en hér er um nýja þjónustu að ræða. Sr. Sigfinnur mun halda uppi reglubundnum sjúkra- vitjunum, sinna beiðnum og ábendingum og skipuleggja helgihald en hann heíur að baki framhaldsnám í sálu- sorgun og hlaut í tengslum við það starfsþjálfun sjúkra- hússprests á Bethesda sjúkrahúsinu í St. Paul í Bandaríkjunum. Sigfinnur hefur verið starf- andi sóknarprestur í 11 ár. ■ Sr. Sigfinnur Þorleifs- son, sjúkrahúsprestur við Rorgarspítalann. bændur! Boða bindigarn er framleitt á vegum fyrirtækisins fyrir íslenska bændur. Garnið er níðsterkt, (120kg slitþol), eðlislétt (400 m í kg) auk þess sem það hefur mjög mildan snúning. Hafðu samband við sölumenn okkar strax

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.