NT - 06.07.1985, Síða 22
Helgar-
sportid
KNATTSPYRNA:
■ Fyrri hluta 1. dcildar
lýkur um helgina - eða
reyndar á mánudag.
Aðalleikurinn verður á
Akranesi í dag. Þá fá
Skagamenn efsta liöið í
deildinni, Fram í heim-
sókn. Leikurinn hefst kl.
14:15. Annarleikurverð-
ur í dag. FH og Þór
mætast á Kaplakrikavelli
kl. 16:00. Á morgun
verða leikir ÍBK og Vík-
ings og Þróttar og Víðis.
Báðir hefjast kl. 20:00.
Umferðinni lýkur síðan á
mánudagskvöld með leik
KR og Vals á KR-velli.
í 2. deild eru fjórir
leikir í dag. Allir byrja
kl. 14:00. Það cru leikir
Skallagríms og Leifturs,
Völsunga og Njarðvíkur,
KS og ÍBI og ÍBV og
KA. I 3. deild verða líka
leikir og verða þcir allir í
dag. Þá er spilað í öllum
riðlum 4. deildar um
helgina.
í kvennaboltanum
verða leikir í I. deild. ÍBÍ
og KA leika á ísafirði í
dag kl. 14:00 ogá morgun
leika ÍBK og KA kl.
18:00.
FRJÁLSAR
ÍÞRÓITIR:
Aðalhluti Mcistara-
móts íslands fer fram í
dag og á morgun og síð-
ustu greinarnar veröa á
mánudagskvöldiö.
KRAFTLYFIINGAR:
Miðsumarmót KRAIT’
verður haldið í Garða-
skóla í Garðabæ í dag og
hefst það kl. 14. Flestir
bestu kraftlyftingamcnn
landsins verða meðal
þátttakenda.
Michael Gross er vanur að vera með gull um hálsinn. „Hann elskar að synda,“ er sagt um hann.
Sundkappinn Michael Gross eða „Albatrossinn“:
Hann hamast við
- að slá gömul heimsmet - Keppir við klukkuna en ekki mótherja
■ Vestur-Þjóðverjinn Micha-
el Gross, hctur þckktur sem
„alhatrossinn" var önnum kaf-
inn við eftirlætisiðju sína í síð-
ustu viku, hann hamaðist við að
slá gömul heimsmct í sundlaug-
inni og setja ný. Flestir þeir sem
vinna til vcrölauna í sundi á
Ólympíuleikunum, láta það eft-
ir sér að taka lífínu létt næsta ár
á eftir. Þeir baða sig í frægðinni,
en leggja minna upp úr því að
taka þátt í sundkeppnum.
Ekki „albutrossinn". Þótt svo
engir sundmcnn væru þess
megnugir að veita honum cin-
hverja keppni á nýafstöðnu
meistaramóti Þýskalands, náði
hann að setja tvö heimsmet á
mótinu. Hann synti í kapp við
klukkuna, vel studdur af æstum
áhorfendum, sem öskriiðu og
létu öllum illum látum. Og það
tókst.
Það var stíll yfir báðum
metunum. Gross hafði aðeins
einu sinni áður keppt í 400
metra skriðsundi, en hann lét
sig ekki muna um að bæta
heimsmet Sovétmannsins Vlad-
imir Salnikov um meira en hálfa
sekúndu. Tími „albatrossins"
var þrjár mínútur og 47,80 sek.
Tæpum einum og hálfum
tíma síðar kom hann í mark í
100 metra flugsundi á 53,83
sek., besti tími sem náðst hefur
í þessu sundi f ár.
Tveimur dögum síðar sló
hann annað heimsmet, að þessu
sinni 200 metra skriðsundi.
Gross hefur ætíð litið á 200 m
sundið sem sína sérgrein. Hann
var því ákaflcga sár þegar
Ástralíubúinn Jon Sieben sigr-
aði hann á ÓL í Los Angeles,
að taka á móti silfurverðlaunum
er nokkuð sem „albatrossinn"
er ekki vanur að gera. „Það var
ekki erfitt að koma honum í
gott keppnisskap fyrir sundið á
meistaramótinu,“ sagði þjálfari
Gross, Hartmut Öleker. „Ég
sagði bara „Sieben" við hann.“
En hann lagði ekki svona hart
að sér í sundinu bara til að slá
heimsmet Sieben. Hvort sem
fólk trúir því eða ekki, þá liefur
Gross ákaflega gaman af að
synda. Hann syndir eingöngu
ánægjunnar vegna," sagði Ölek-
er.
„Albatrossinn" kom í mark á
einni mínútu og 57,01 sekúndu,
þremur hundraðshlutum úr sek-
úndu betri tíma en Sieben náði
í Los Angeles. „Fyrstu 100
metrana synti ég mun hægar en
á ÓL, ég gat bara ekki synt
hraðar. En áhorfendur voru
stórkostlegir og á seinni 100
metrunum komst ég á skrið,"
sagði Gross.
Þá lék Gross stórt hlutverk er
sundfélag hans sigraði í þremur
boðsundum á meistaramótinu.
Daginn eftir meistaramótið
■ Knattspyrnudeild KA mun
standa fyrir félags- og firma-
keppni í knattspyrnu dagana
11. og 13. júlí næstkomandi.
Leikið verður þversum á gras-
völlum félagsins við Lundar-
skóla á Akureyri.
Heimilt er að hafa 10 menn í
liði, þó eigi fleiri en sex inn á í
einu. Leiktími verður 2x15
var Gross svo alveg búinn.
Hann svimaði og var nærri
dottinn. Læknar skipuðu hon-
um að taka sér algera hvíld í
viku. „Ég ætlaði hvort sem er að
gera það,“ sagði Gross.
Nú hefur „albatrossinn" sett
stefnuna á Evrópumeistaramót-
ið í Sofíu, Búlgaríu, í ágústmán-
uði. Þar á hann fjóra meistara-
titla að verja.
mín. og verður leyfð rangstaða
og frjálsar innáskiptingar, en að
öðru leyti verður farið eftir
reglum KSÍ um utanhússknatt-
spyrnu.
Þátttökugjald verður 5000 kr.
á lið og verður tekið á móti
þátttökutilkynningum í síma96-
23482 eftir kl. 16 alla virka
daga. Tilkynningar skulu hafa
borist fyrir þriðjudaginn 9. júlí.
■ Hann er víst þekktari með knöttinn á tánum en með
golfkylfu i hendi. Hún leikur samt vel í hendi hans. Ásgeir
Sigurvinsson atvinnumaður í knattspyrnu í golfsveiflu á Akur-
eyri í fyrradag. Nr-mynd: Gyin
Firmakeppnin á Akureyri
Laugardagur 6. júlí 1985 22
Rafael Gordillo:
Farinn frá Real
til Real Madrid
- Gerði fimm ára samning við liðið
■ Spænski knattspyrnumað-
urinn Rafael Gordillo hefur nú
flutt sig um set á Spáni og mun
spila með Real Madrid næstu
fimm árin. Hann var sem sagt
keyptur frá Real Betis til Madr-
id fyrir væna fúlgu.
öordillo var sennilega sá
leikmaður sem hvað mest hvað
keppni Evrópukeppninnar í
knattspyrnu í Frakklandi í
sumar. Hann spilar sem hálf-
gerður útherji og er mjög slyng-
ur boltasparkari. Gordillo hefur
spilað 59 Iandsleiki með Spán-
verjum.
Argentínumenn
á faraldsfæti
- Burruchaga fer til mótherja Vals
■ Þrír Argentínumenn eru
mjög líklegir til að skipta um
félög nú um helgina eða í byrjun
næstu viku. Þeir eru framherj-
inn Alberto Marcico sem spilar
með Ferrocarril í Argentínu,
Jorge Burruchaga miðvallar-
spilari sem spilar með Inde-
pendiente í Argentínu og mið-
vallarspilarinn Juan Barbas sem
spilar með Real Zaragoza á
Spáni.
Marcico fer til Toulouse í
Frakklandi sennilega með
þriggja ára samning uppá
vasann. Burruchaga fer til mót-
herja Vals í Evrópukeppninni,
Nantes frá Frakklandi og Bar-
bas fer til nýliða Lecce í ítölsku
1. deildinni.
Hlauparinn snjalli
Boit hættir
- eftir 15 ára litríkan feril
■ Kenýamaðurinn Mike Boit,
sem var á sínum tíma einn besti
millivegalengdahlaupari í heim-
inum, hefur tilkynnt að hann
muni hætta keppni í frjálsum
íþróttum í september á þessu
ári. Boit á að baki 15 ára
litríkan feril sem m.a. innihélt
heimsmet og samveldisleika-
met. Hann sagðist vonast til að
margar frægar stjörnur myndu
koma til keppni á Mike Boit
Classic-leikunum sem haldnir
verða honum til heiðurs í Nair-
obi íKenýa þann 11. september.
Þá mun hann hlaupa sitt síðasta
keppnishlaup.