NT - 20.10.1985, Síða 2

NT - 20.10.1985, Síða 2
Surinudagur 20. októbér Nt' Forsíða: Forsíða Tímans 5. febrúar 1966 þegar Hamrafellsmálið stóð sem hæst (Sjá síðu 21-23 í blaðinu) Umsjón: Arnaldur Sigurðsson Gunnar Smári Egilsson Útlit: Ólöf Nordal Teikningar: Jón Axel Björnsson Parið á ströndinni Nú leggjum við þraut fyrir lesendur. Hún felst í þvi að þekkja hverjum hárið tilheyrir sem birtist hér til hliðar. Hver ber þetta hár? Verðlaun: í þessari viku stendur lesendum til boða einn sekkur af rófum að laun- um fyrir rétt svar. SvarsendisttikHárrétt NT-Helgarblað Síðumúla 15 108 Reykjavík „Það var undarlegt sem kom fyrir í fjósinu í nótt,“ sagði ná- grannakona mín. Við höfðum sest niður í makindum við eldhúsborðið og biðum eftir kaffinu. Þessar kaffi- vélar (skollinn hirði þær) eru sumar. svo lengi að hella upp á. „Nú,“ sagði ég, „var kýrin borin og kálfurinn dauður." „Nei,“ sagði hún og hnussaði viö. „Það hefur nú oft komið fyrir.“ „Var hann kannski með tvö höfuð?" Ég var að reyna að vera fyndin. Því miður tekst mér það aldrei. Reyni ég að vera fyndin, setja allir upp hundshaus. Segi ég eitthvað í fúlustu alvöru er eins víst að einhver hlæi. Venjulegast veit ég þá ekki að hverju hlegið er. Og Lollý setti upp hundshaus og fannst þetta greinilega ekkert fyndið. „Jæja,“ sagði ég, „út með það ef það er svona merkilegt." En nú var kaffið tilbúið og Lollý stóö upp til að hella í bollana. Ég þekkti hana nógu vel til að vita að nú þýddi ekki að spyrja frekar í bráð. Hún naut þess aö láta mig bíða eftir sögunni. Hún var eða öllu heldur er svolítill prakk- ari í sér. En hörkudugleg. Sama á hverju hún snertir. Húsverkin ganga í flughasti. Hún er snilldarkokkur. Og dæturnar. Þær eru alltaf vel klæddar. í útiverkunum er hún hreinn víkingur. Sama hvort hey- skapur, gegningar eða garðvinna. Að öllu gengur hún með fítonskrafti. Nú, hún hafði líka fengið öndvegis- 'mann. Hann var fæddur hér og uppalinn, en Lollý var aðflutt úr öðrum landsfjórðungi. Þau höfðu tekið við búi fyrir nokkrum árum af foreldrum hans, sem höfðu þó dval- ið hér áfram. En nú hafði gamli maðurinn dáið á síðastliðnu ári. Það hafði verið mjög kært með Lollý og tengdaföður hennar og hann hafði alltaf borið sérstaka umhyggju fyrir henni. En.þetta var nú útúrdúr. Lollý settist, saup á kaffinu og átti greinilega í erfiðleikum með að hajda aftur af sér. Svo byrjaði hún. „Sjáðu nú til,“ sagði hún. „Skrauta átti aö vera borin og við vorum að vakta hana í allan gærdag. Seint í gærkvöldi fannst mér að hún hefði svo sem ekkert gert að, svo okkur fannst óþarfi aö vakna til að vitja um hana. Ég hafði samt orð á því við Steina að það væri vissara að loka opinu niður í skíthúsið. Ef kýrin bæri var eins víst að kálfurinn brölti eftir flórnum og færi hann niður um gatið var hann dauðans matur. Það eru ekki nema þrír básar frá Skrautu bás að gatinu. En við gleymdum þó bæði að setja hierann fyrir. „Bara laglegur formáli," sagði ég til að dylja eftirvæntinguna. Lollý lét sem hún heyrði ekki og hélt áfram. “Og í morgun þegar ég kom í fjósið var kýrin borin." „Og kálfurinn fastur í gatinu eins og skessan," sagði ég. „Hann hefði nú farið niður ef hann hefði komist að því. Nei, hann lá í flórnum með hausinn við gatið og kýrin var laus. Hún hafði lagst á tröðina hjá kálfinum og lagt aðra framlöppina yfir hann svo hann gat sig hvergi hreyft.“ „Þú skrökvar,“ sagði ég. „ Þetta er eins satt og ég sit hér.“ „Þú hefur gleymt að binda hana." Ég lét mig ekki. „Kýrnar voru ekki leystar í gær.“ „Sleit hún bandið“? „Nei, það lá bara eins og það hefði verið leyst." „Og þú ert viss um að enginn hafi gert það.“ Mér fannst sagan farin að verða nokkuð dularfull. „Hundrað prósent. Hver hefði svo sem átt að leysa kúna. Ég fór ein í fjós í gærkvöldi. „Og hvað gerðist þegar þú komst í fjósið í rnorgun?" „Skrauta lá bara kyrr þangað til ég tók kálfinn." „Og svo?“ „Svo stóð hún upp og fór sjálf á básinn sinn.“ „Nei, nú hætti ég að trúa,“ sagði ég. Vissi þó með sjálfri mér að Lollý var ekki að búa þetta til. Svo datt mér nokkuð í hug. „Hvernig hnút notarðu á böndin?“ „Ég nota bara þennan sama hnút og tengdapabbi notaði alltaf. Hann hefur alltaf dugað hingað til. Ég man ekki til að kýr hafi nokkurn tíma losnað hjáokkur." Við horfðumst í augu. Við vissum báðar hvað hin hugsaði. En svoleið- is segir maður bara ekki upphátt nú á dögum. Ef við hefuðum lesið þessa sögu í gamalli bók hefðum við eflaust hugsað, og brosað út í annað. Það sem fólki datt í hug í gamla daga. En þessi saga er ekki úr bók og hún gerðist ekki í. gamla daga. Það er ekki liðið ár frá því atburðurinn átti sér stað. Og hann átti sér stað. Það er enginn vafi. Og svo erum við að tala um að fólk sé nautheimskt. Sigrún Björgvinsdóttir.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.