NT - 20.10.1985, Side 13
o o
NT Sunnudagur 20. október 13
þetta „hálf-menni“ og meinti það
til mín. Og mér fannst óréttlætið
fólgið í orðinu „þetta“. Chris var
álíka mikið „hálfmenni" og ég, en
vegna aldursins og virðingarinnar
sem hann naut meðal bókmennta-
fólks var skítkastinu beint að mér.
En jafnvel í þessu tilfelli kom
einhver mér til hjálpar og þá kona
Louis Jordan. Hún gaf það skýrt í
skyn að svona glósur væru sér
ekki að skapi.
Chris, sváfuð þið Tennessee
Williams nokkurn tímann saman?
C. Jújú, en það varð nú aldrei neitt
meira úr því. Við löðuðumst að
hvor öðrum og fórum í rúmið
tvisvar, þrisvar, held ég. í sjálfs-
ævisögu sinni talar hann huggu-
lega til mín og segir það beint út
að það hafi legið við ástarsam-
bandi.
D. Þetta var þegar Chris var á hátindi
fegurðar sinnar.
. (hlær)
. Eg meina það. Þegar Chris var
um fertugt var hann alveg sláandi.
Var einhvern tímann þrýst á þig að
giftast?
C. Nei, ekki af neinni alvöru.
D. Ekki nema af Ericu Mann.
(almennur hlátur)
D. Mér hefur alltaf þótt það snilldar-
legt hvernig Chris snéri sér út úr
því. Og hvernig hann fékk Grey
Wystan í það í staðinn.
C. Ja, hana vantaði annan ríkis-
borgararétt og nasistarnir voru á
eftir henni, þeir höfðu hana á
óskalistanum. Hún varð að giftast
einhverjum sem var hafinn yfir
allan grun til að komast úr landi.
Fékkst þú Auden í þetta eða gerði
Erikaþað?
D. Ég held að Wystan hafi samþykkt
það strax.
C. Ó, já. Það var líka líkt honum.
Hann naut þess að taka djarfar
ákvarðanir og svo fylgdu óneitan-
lega viss hlunnindi ráðahaginum.
Hann fékk náttúrlega ómælt þakk-
læti Thomasar Mann og allrar
fjölskyldunnar og svo var litið á
þetta sem ákveðna and-Hitler-
íska athöfn. Mann-fjölskyldan var
þekkt fyrir frjálslyndi svo hún hefði
aldrei sett sig upp á móti ráða-
gerðinni þó svo að Auden hafi
verið hommi.
D. Þau gátu það varla þar sem Erica
var sjálf lesbísk.
Fáið þið ekki stundum að heyra
glósurfrá vegfarendum?
D. Jú, auðvitað og sérstaklega á
ströndinni. Ströndin er orðin víg-
völlur homma og brimbrettafríka.
Þetta er búin að vera homma-
strönd frá því ég man eftir og
löngu fyrir þann tíma, örugglega
síðan um miðjan þriðja áratuginn.
Brimbrettafríkin eru nýtt fyrirbrigði
en þau gera tilkall til strandarinn-
ar. Oft þegar maður er einn að
skokka niður á strönd kallar
krakkaskarinn “hommadindiir
eða eitthvað álíka á eftir manni.
Ég verð alltaf jafn hissa á því
hvaðan þau viti það (hlær).
Chris, hvaðan fékkst þú hugmynd-
ina að manninum sem hefur misst
elskhugann í„A Single Man“. Erhún
• algerlega þín sköpun eða byggðirðu
hana á einhverjum sem þú þekktir.
C. Þetta var augljós hugmynd, þú
veist, ekkill sem lítur ekki á sjálfan
sig sem slíkan. En ég hef aldrei
lent í sömu aðstöðu sjálfur.
D. Mig hefur alltaf grunað að hann
hafi verið að ímynda sér hvað
myndi gerast ef við slitum sam-
bandinu, því ég man að þetta
tímabil var ákaflega erfitt fyrir
okkur og ég gaf ýmislegt í skyn,
var mjög erfiður og þreytandi.
Hvernig þreytandi?
D. Bara með því að vera óánægður.
Ég var að nálgast fertugsaldurinn
og fyrir mér jafngilti það dauða.
Ég byrjaði að þjást þegar ég var
28 og komst ekki yfir þetta fyrr en
um 32 ára aldur. Síðan þá hefur
hver afmælisdagur verið sem
andvari. Fimmtugsaldurinn hefur
verið besti tími ævinnar hingað til.
Mér finnst ég vera full frekur að
spyrja næstu spurningar, en þegar
þið hittust fyrst og byrjuðuð að vera
saman var þá skilningur fyrir því að
þið gætuð tekið hliðarspor. Þetta er
það sem öll homosexual-pör verða
að fást við.
D. Við ræddum ekki mikið um það,
en mín afstaða var sú að ég hefði
viss forréttindi til þess að ná mér
í reynslu, því Chris hafði öðlast
sína áður en hann kynntist mér
og mér fannst hann skulda mér
þessa reynslu. Hversu ósann-
gjarnt sem (oetta kann að hafa litið
út fyrir Chris, þá var þetta mín
afstaöa.
Var þetta ósanngjarnt, Chris.
Reyndirðu að hindra hann?
C. Nei, það held ég ekki. Reyndi ég
það?
D. Nei, þú tókst þessu aðdáunar-
lega. Þú hvattir mig ekki til þess
að halda framhjá, en þú tókst því
af sanngirni. En ef honum fannst
ég orðin full nátengdur einhverj-
um sagði hann strax að sér litist
ekki á þaö og það var einmitt þaö
sem ég vildi heyra. I rauninni var
ég að reyna ást hans.
C. Það var samt hræðilegt. Það er
svo franskt að reyna að vera ekki
afbrýðisamur.
D. Já, ef maður er ekki afbrýðisamur
þá er maður áhugalaus held ég.
Chris hafði sínar tilfinningar og ég
var þolandi, en bara upp aö vissu
marki.
Þú hafðir allavega ekki Berlínar-
reynsluna.
C. Alla þá bölvaða, sístelandi.
D. Hvað með það, þá var þetta
reynsla og þá meina ég reynsla
með stóru R-i og það var einmitt
það sem mig skorti. Og þess
vegna fór ég til London í eitt ár og
fór í skóla. Chris kom svo yfir og
var um sumarið, en ég varð að
gera þetta, ég varð að finna fyrir
einhverju sjálfstæði.
Chris, afhverju liggurðu í aftursæt-
inu þegar Don keyrir?
C. Vegna þess að ég tel mig vera
þann eina sem er hæfur að aka
bíl yfirhöfuð, svo ég kýs að missa
af öllu þegar aðrir keyra.
D. í mörg ár var þetta eina vanda-
málið í sambúðinni, afskiptasemi
Chris af aksturslagi mínu. Fyrr á
árum vorum við vanir að fara á sitt
hvorum bílnum til sama staðar til
að hindra að allt færi í háaloft. Ég
man ekki hvor fékk hugmyndina,
en allavega varð það ofaná að
Chris ætti ekki einungis að halda
sig í aftursætinu heldur að liggja
(oar svo hann gæti ekki séð hvað
ég væri að gera. Og eftir það var
vandamálið úr sögunni.
Ég var að hugsa um það I dag
hvaða þekktir menn af kynslóð Chris
hafi komið úr felum og viðurkennt
það opinskátt að þeir væru hommar.
Og fyrir utan Williams og Capote sem
nú eru báðir dánir gat ég. ekki nefnt
neinn. í mörg ár voru Chris, Capote
og Williams nokkurs konar gyðjur
eldri kynslóðarinnar.
D. Hvað með Gore (Vidal). Það er
skrýtið en hann hefur aldrei sagt
það berum orðum.
Nei, hann fer mjög leynt með það.
C. Ég held að það sé að hluta til
vegna pólitísks metnaðar. Vinur
hans, Howard Jones, eralgerlega
trúr Gore. Og öfugt.
D. Þeir hafa verið lengur saman en
við.
C. Jájá, að minnsta kosti einu eða
tveimur árum. Á tímabili þegar
Howard átti við veikindi að stríða
var Gore mjög áhyggjufullur.
Þeim þykir mjög vænt um hvor
annan.
Hann tileinkaði þér sína bestu bók
Chris, eða það sem margir álíta hans
bestu bók (Myra Breckinridge).
D. Og Chris tileinkaði honum sína
bestu bók (A Single Man).
C. Já, það er rétt.
D. Sem var erfitt fyrir Truman að
kyngja.
Meinarðu að Capote hafi fundist
að hann ætti tileinkunina skilið?
D. Ég man að hann talaði um það
einu sinni en þá reyndar í hálf-
kæringi.
Að lokum, sofið þið Chris í sama
rúmi?
D. Við höfum alltaf gert það. Og ekki
bara í sama rúmi heldur, þú
veist... samanfléttaðir.
gse
(þýtt og stytt)
Það geta ekki allir
unnið hjálparstarf —
en flestir geta hjálpað...
RAÍIÐIKROSS
ÍSLANDS
HJALPARSJOÐUR
GÍRÓ 90.000-1