NT - 20.10.1985, Side 18

NT - 20.10.1985, Side 18
1 8 Sunnudagur 20. október NT ÁGÚST PETERSEN Hjörtur Kristmundsson, 57x50 cm olía skólastjóri á striga 1975 ÁGÚST PETERSEN Bjarni Guðmundsson, 52,5x44 cm olía Hreppamaðurinn, á striga 1983-84 hagyrðingur og óðalsbóndi ÁGÚST PETERSEN Gunnar Bergmann, 50x37 cmolía kennari á striga 1978 En þaö er erfitt aö segja til um hvað er góö list og vond. Það er viðurkennt af læröum og leikum aö það er til list sem ekki er góð list. En þaö er erfitt að segja til um hvað er góð list. Eg reyni að láta form, liti og bygg- ingu haldast í bendur, þannig að það styðji hvert annað í einum allsherjar hrynjandi, svo málverkið sé í sam- ræmi. Ekkert of og ekkert van. Þetta er undirstaöan og grindin. Einn málari getur hins vegar lagt mest uppúr litnum, annar mest uppúr forminu og sá þriðji mest uppúr teikningunni. En ég reyni að hafa samræmi þarna á milli. Ég hef haldið mínu striki. Einskon- ar abstraktséraðri figurativsjón, hef ekki farið úr einni stefnu í aðra. Ég ber virðingu fyrir abstrakt og góðum surrealisma. Mitt álit er að þessar tvær stefnur eigi eftir að lifa. En aftur á móti kubismi og annað slíkt sé dautt, þó svo hann lifi í verkum meistaranna. Það er eitthvað við surrealismann sem er svo skylt lífinu sjálfu, angist- inni, sorginni. Ef rétt er á haldið þá er hann lífræn listastefna. Ég lít ekki á mig sem surrealista, þó svo það megi finna áhrif frá honum í sumum verka minna. Ég hef reynt að vera ég sjálfur og leitað að minni eigin stefnu sem samræmist tilfinningum mínum og lífsviðhorfi, sjón og hugsun, og nota til þess málverkið, því ég kann ekkert annað. Ég hef ekki gert annað en málað í tuttugu ár. Það var erfið ákvörðun og ekki sársaukalaus, en ég gaf dauðann og djöfulinn í allt annað og sagði við sjálfan mig að það yrði þá bara að hafa það hvar það lenti. En ætli ég sé ekki sloppinn úr þessu. Úthaldið, ánægjan og viljinn jókst við þessa ákvörðun. En ég má hafa mig allan við að mála eins góðar myndir og þær bestu sem ég málaði fyrir þrjátíu árum. En hinsvegar geri ég í dag jafn góðar myndir og jafnvel betri, en ég má hafa mig allan við. Ég hef aldrei komist á það, né haft til þess löngun að mála úti í náttúr- unni. Það svarar ekki neinu. En ég er ekki að lasta það að fara með stór léreft úti í náttúruna og mála þar. En það hefur ekki hentað mér. Hinsvegar hef ég alltaf haft af því gagn og ánægju að vera úti í náttúr- unni. Það eitt útaf fyrir sig. Og skissa. Ég á heil ósköp af skissum sem hafa safnast upp í gengum tíðina. Ég hef varla litið á sumt af þessu og sumt rétt aðeins. En það er ekki nóg að fara útí náttúruna og skissa. Aðalatriðið er að vera nógu hrifinn, uppnuminn og það að fá ást á mótívinu, hvert sem það er. Festa það vel í minni og njóta þess að horfa á það af lífi og sál. En það spillir ekki að rissa upp, þó ekki væri nema með blýanti. En best er að vinna eitthvað strax á eftir meðan áhrifin vara. Það er hending ef ég nota skissurn- ar á vinnustofunni. Það er þá í mesta lagi til þess að athuga hraun, fjalls- bungu, fólk eða hvað það annars er. Og það er oft betra að skissurnar séu ekki of góðar þegar maður er að vinna stærri verk. Þvi það eru áhrifin sem kristallast í kollinum á manni og í tilfinningunum sem ráða ferðinni. Og þegar maður er ekki alltaf ofan í hlutunum þá sér maður það sem manni finnst að maður hafi séð og það er ekki síður rétt sýn. Sterkari oft og ekki siður sannferðug. Ég geri lítið af því að láta fólk sitja fyrir og eiginlega ekkert. Þaö spillir bara. Það kemur fyrir að ég rissi upp fyrirsæturnar heima hjá þeim. Það er best að sjá þær í sem flestum geðshræringum, gleði, ég vil ekki segja sorg, en það liggur stundum misvel á mannskapnum. Ég reyni að finna skaphöfnina hjá viðkomandi, lífsviðhorf og reyni aö kynnast pers- ónunni sem best. Það er aldrei of mikið af slíku. Og það er að sitja fyrir á sinn hátt. Ég reyni að einfalda hiutina, ég geri það alltaf en ekki síst i portraitun- um. (Slitrur úr samtali.) ÁGÚST PETERSEN Við Kaldársel 68x100 cm olía á striga 1968

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.