NT - 03.11.1985, Blaðsíða 10

NT - 03.11.1985, Blaðsíða 10
10 Sunnudagur 3. nóvember NT ■ Fyrirmyndarunglingur, nei, unglingur táningur—þrettán ára byrjar maður að vera táningur það segir Tobbi. Það er gaman að vera unglingur já já, en mað- ur fær ekkert að gera fyrir for- eldrunum sem eru svo leiðinleg- ir, maður fær ekkert að vera úti, komdu heim klukkan hálf tólf, klukkan hálf eitt, þú færð ekki að vera lengur meðan hinir mega vera til þrjú eða eitthvað, þú ert vakandi allar nætur segir hún oh oh. Ég veit það ekki, það eru partý, böll, syngja bara eitthvað, diskótek. Oðal, það er búið að breyta Óðali... bannað innan sextán, það eru strákar með okkur i skólanum „fyrir- bæri“ þeir spila þarna. Hagaskóli, diskotek einu sinni í mánuði, mætti vera á föstudög- um það er á fimmtudögum og maður getur ekkert flippað á eftir alltaf að læra þvi það er skóli daginn eftir, spilakvöld það er spiluð félagsvist, bingo og leiklist, ég er i leiklist ekki ég, ég nennti því ekki. Það er einn kennari sem mér finnst skemmtiiegur, einn af hundrað er ömurlega leiðinleg- ur og svo náttúrlega hann byrj- aði að urra á okkur um daginn urr urr. Við erum alltaf á leikritinu Ekkó, það eru svo æðislega margar týpur sem er gaman að horfa á, þeir sem leika ungling- ana eru frábærir og tónlistin, það er svo margt sem maður fer að hugsa, hérna, þegar Narsi fer að vera með hinum krökkun- um þá viija þau ekkert við hann tala og hann drepur næstum þvi hana Ekkó, maður sér baugana undir augunum, eiturlyf og svona... einn er æðislegt boddý, ein er voða Ijóðræn, ein gella. Röddin í Ekkó ég trúði ekki að það væri röddin hennar, þegar hún syngur án mikrafóns, við héldum að það væri Ragga Gísla... ótrúleg rödd og tónlistin er alveg æðisleg. Við þekkjum einn hálfgerðan Narsa hann er að visu ekki í dópi... þetta eru svo ýktar týpur. Persónurnar eru víst allar úr goðafræði er hún ekki grísk? Krakkar eru ferlega tregir að fara í leikhús, já vilja heldur fara í bió, mér finnst mikið skemmti- legra að fara i leikhús. Mér finnst þessar fornu sögur leiðin- legar, Islandsklukkan og svona, já mér finnst það ömurlegt... Skuggasveinn það verður að vera eitthvað fyndið, mér fannst gaman að íslandsklukkunni og þannig og líka svona djók. Reykjavíkursögur Astu Sig- urðar — ég leik í því svo ég get ekki dæmt — mér fannst ofsa- gaman. Mig langar til að lesa sögurnar hennar, ég er ennþá að lesa Önnu Frank, ég líka, er að byrja að lesa hana aftur... það er ógeðslega erfitt það er svo mikið um að vera, maður getur ekki verið að hugsa um neitt annað þegar maður er að lesa. Við eigum að velja ein- hverja bók i íslenskunni... bók! nei hvað heitir það, ha, þjóðsögu eða ævintýri, ég er búin að þvi. Hvað segirðu ég heyri dálítið illa! Mér finnst allir vera næstum eins... ein klíka allir eins svo skiptist það í hópa t.d. þeir sem reykja vilja ekki vera með hinum sem ekki reykja... þetta er fer- lega asnalegt... stundum... ég var einu sinni í klíku í ár en síðan splundraðist hún, við eru i smá klíku núna. ...Kennarinn okkar kom hlaupandi með kúst og barði i borðið, það kom gat, svo tók hann krítina og grýtti henni og henti skólatöskunni í gólfið, ég varð svo vond, á þetta að kallast kennari! og strunsaði burt, hann var með krepptan hnefann... svo sagði hann að hann hefði ætlað að heilsa mér, hver held- urðu að heilsi svona! Við erum óþekk, erum í óþekkasta sjötta bekknum, ég er komin með 19 punkta hún er með 24. Maður fær 2 punkta fyrir að koma of seint, 4 fyrir að skrópa. Þegar maður er kominn með 20 punkta fer maður í straff þá þarf maður að elta umsjónarkennar- ann sinn, ef hann kennir t.d. stærðfræði i niunda bekk þarf maður að fara í þann tima. En umsjónarkennarinn okkar kennir engum nema okkur svo þetta er allt i lagi. Krakkarnir hanga oft á Freddabar, það er svona spila- klubbur þar eyða allir peningun- um sínum. Mamma segir að þar sé gróðrastía óþverrans. Mér finnst fáranlegt þegar foreldrar banna börnunum sínum að vera með einhverjum, mamma hefur aldrei bannað mér að vera með neinum hún hefur bara sagt að

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.