NT - 03.11.1985, Blaðsíða 16

NT - 03.11.1985, Blaðsíða 16
16 Sunnudagur 3. nóvember NT Hugtakið vitfirring hefur aldrei verið skilgreint á vísindalegan hátt en al- menningur notar það til að lýsa afbrigðilegri hegðun en hvað telst afbrigðileg hegðun? Um það mætti lengi deila. Ef eðlileg hegðun þýðir aðlögun að viðteknum venjum og siðmenningu samfélagsins þá er víst að erfitt myndi að segja til um hvað telja skuli vitfirringu og hvað ekki. Til að öðlast frama á vissum sviðum mannlífsins getur verið óhjákvæmilegt að koma sér upp öðrum siðum en þeim sem samfélagið telur góða og gilda. Um það vitna ævir fjölmargra snillinga á listasviðinu, margt gáfumennið hefur verið talið vitfirrt og mörg eflaust verið það, ástfangnir menn og skáld hafa löngum mátt þola að vera dregnir í dilk með brjálæðingum. Saga trúarbragðanna og launhelg- anna gefur til kynna að allt kukl með hið ókunna hneigi mannskepnuna til þess að hugsa afbrigðilega og leiði oft til svo einkennilegrar hegðunar að jafna má við vitfirringu. Það er næstum því algild regla að guöir og aðrar heilagar verur yrða aldrei á þá ófullu þá sem sagðir eru heilir á geði. Hinsvegar eru slíkar verur ófeimnar við þá sem á einhvern hátt skera sig úr fjöldanum; töframenn, kraftaverka- menn, spámenn og aðra slíka lodd- ara. Skemaðurinn eða töframaðurinn sem tilheyrir ættbálkum þeim sem búa við heimsskautasvæði norðurs- ins er oftlega talinn til vitfirrtra. Ske- maðurinn fer sálförum til himna, hann stígur niður til Heljar og hann kannar ómælisdjúp ystu hafa, hann miðlar boðum frá þeim látnu og hann skegg- ræðir við anda. En skemaðurinn er frekar óstöðug- ur á geði, minnsta áreitni getur fengið hann til að stökkva upp á nef sér og ærast svo hastarlega að hann víli ekki fyrir sér að limlesta eða jafnvel drepa þann sem var svo óvarkár að áreita hann. Ef skemaðurinn fær ekki útrás fyrir æði sitt er hann líklegurtil að engjast sundur og saman á gólfinu og froðu- fella, æpandi og gólandi uns hann missir meðvitund. Þegar skemaður- inn rankar úr rotinu er æðið af honum runnið og hann I íkist sjálfum sér aftur. í augum almennings er skemaður- inn haldinn öndum og afar líklega boðberi guðlegs vilja. Mörg ofan- greind einkenni minna mest á floga- veiki; menn í kasti missa meðvitund og engjast sundur og saman, floga- veikin enda fyrr á öldum einatt talin af guðlegum toga og þeir sem af henni þjáðust álitnir guði sérstaklega þókn- anlegir. T rúarleiðsla er annað merkilegt fyrir- brigði. Gríska orðið „ekstasis" þýðir eiginlega að standa utan við sjálfan sig og var upprunalega notað um geðveiki eða ráðleysi. Orðið spannar frá venjulegri hrifningu til andlegrar og líkamlegrarfullnægingaren einnig er það notað til að lýsa hinni djúp- stemmdu leiðslu sem dýrlingurinn og spámaðurinn komast í á sannleiks- stundum. Upplifun dýrlingsins í leiðslu yfirgnæfir alla mannlega reynslu og dýrlingurinn er ekki svo ólíkur brjálæðingi sem er „viti sínu fjær“. Hofgyðja véfréttarinnar í Delfí komst í leiðslu með því að sitja í heilögu sæti beint yfir glufu í gólfinu sem úr rauk áfengur eimur. Hún sagði fram spádóma í þessu leiðslu- ástandi og spádómarnir voru frá Ap- olló sjálfum. Að sjálfsögðu voru orð hennar afar ógreinileg svo ekki var vanþörf á fjölmennri prestastétt til að túlka orð hofgyðjunnar rétt. Einu sinni var það almenn trú að árar gætu búið um sig í brjóstum manna og tekið af þeim ráðin. Púkar þessir hvöttu menn til illverkanna og sá ásetni breytti gjörsamlega um hegðun og tók að mæla á aðra vegu en honum var tamt. Djöfulæði þetta getur orðið sem farsótt og sú farsótt tekurgjarnan á sig trúarlegt yfirbragð, nógar eru heimildirnar um djöfulóðar nunnur. Til að reka út þessa illu ára varð prestur að særa hinn illa úr líkama þess djöfulóða og ekki var ótítt að hinn illi svaraði særingunum fullum hálsi. Orðræður þessar milli prests og púka voru oft nauða keimlíkar þeim sem fara á milli nútíma geð- læknis og geðklofa sjúklings hans. Sumir kristnir meinlætamenn sem uppi voru frá 200 e.K. til 600 e.K. virðast hafa verið óvenjulega brjálaðir menn. Samt vöktu þeir ótakmarkaða hrifningu trúaðs fólks og fordæmi þeirra varð öðrum til eftirbreytni langt fram eftir öldum. Meinlætamenn þessir lifðu einir, föstuðu mikið og héldu sér vakandi og hugleiddu í myrkri svo mánuðum skipti. Sumir lifðu einvörðungu á grasi og grófu sér rætur og muru, aðrir húktu í limi trjánna og enn aðrir komu sér fyrir uppi á háum súlum. Frægastur slíkra súlnadýrlinga var heilagur Símon sem uppi var á fimmtu öld e.K. Hann reisti sér fjögurra metra háa súlu og byggði sér pall ofan á henni. Hann sté aldrei niður af súlunni nema til að reisa sér aðra stærri og meiri. Þriðja súlan sem hann reisti var hinum stærri og meiri og ævi sína endaði dýrlingurinn uppi á ca. tuttugu og sjö metra hárri súlu. Símon á súlunni var víðfrægur á sinni tíð og lýðurinn streymdi frá fjarlægum slóðum til þess að líta hann augum og hljóta blessun hans. Meinlæti er aðeins ein aðferð af mörgum til að koma sér í annarlegt ástand. Dans, söngur, urr, ýlfur, flengingar, hugleiðsla, hitasótt, bænir, brennivín, dóp eða dáleiðsla geta komið að jafn miklu gagni ef sóst er eftir að komast í leiðsluástand, sjá sýnir og fyllast eldmóði. Þýski sálfræðingurinn Wilhelm Wundt (d. 1920) taldi drauma bara vera „venjulegt tímabundið geðveikis- ástand“, og til eru þeir sem draga jafnaðarmerki á milli geðklofasýki og spíritisma. Flengingar, sjálfspyntingar og aðr- ar pyntingar hafa löngum verið al- gengar meðal heittrúaðra söfnuða. Aður fyrr var dans einatt tengdur trúarupplifun, stríðsdansar stríðandi ættflokka voru af trúarlegum rótum og í dansinum komust menn í leiðslu. Sagði ekki Cicero að enginn dansaði ófullur nema brjálaður væri? Einkennilegasta dæmi um skyld- leika dansins við brjálsemina er að vinna í dansfári miðalda sem oft gaus upp í Evrópu. Útbreiddast varð dans- fárið sem byrjaði í Aix-en-Chapelle. Þá fóru börn og fullorðnir dansandi í halarófu um göturnar og sungu og öskruðu og sáu sýnir á hverju götu- horni og það var dansað meðan kraft- ar entust. Fári þessu fylgdi krampi, fólk froðu- felldi og missti að síðustu ráð og rænu. Fárið geisaði um Belgíu, Niðurlönd og Þýskaland, í Metz töldust á einum degi ellefu þúsundir sem dönsuðu eftir götunum. Margt var gert til að reyna að kveða niður þennan ófögnuð en lítt stoðaði og að endingu fjaraði þessi danssýki út af sjálfu sér. í nútímanum lifir þetta fár í heittrú- arsöfnuðum þar sem safnaðarfólkið kemur saman og er gripið trúaræði og sér guðdómlegar sýnir eða talar tungum líkt og postularnir á hvíta- sunnu forðum. Það hefur löngum tíðkast að greina á milli andlegra hneigðra einstakl- inga. Annars vegar eru þeir sem fylgja viðteknum trúarboðum kirkj- unnar en hins vegar eru þeir sem lifa utan við skipulögð trúarbrögð og eru í einkasambandi við almættið. Sem dæmi má nefna muninn á faríseunum og spámanninum Jermíasi sem boð- aði heimsendi. í kirkju nútímans má finna þessa einstaklinga í biskups- skrúða annars vegar en hins vegar sem „dýrlinga" á strætum fátækra- hverfanna. f huga almennings voru þeir sem fylltu óæðri flokkinn taldir til heilagra, blessaðir af guði og í Austurlöndum voru trúarbrjálæðingar í hávegum hafðir. Menn kunnu að hræðast þá en þeir virtu þá engu að síður því maðurinn var blessaður af guði og ruglið sem af munni hans hraut álitið æðsta speki og menn lögðu hart að sér að skilja boðskapinn sem í ruglinu átti að búa. Skemaðurinn og spámað- urinn þættu klepptækir nú á dögum en þeir nutu virðingar í sínu samfélagi á sinni tíð, þeir voru nefnilega tengi- liðurinn við hið liðna og sjáendur þess ókomna. Skynsemi manna er gjörn að inna eftir því hvernig það sé mögulegt að ná tengslunum við andaheiminn ef andaheimur fyrirfinnst þá en undir niðri trúa flestir á dulræn öfl sem aðeins er hægt að virkja með því að komast í leiðslu eða annað annarlegt hugarástand. Vitfirringarog aðrirsem varla teljast heilir á geðsmunum virð- ast vera í nánum tengslum við ein- VITFIRRING VITFIRRING VITFIRRING VITFIRRING

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.