NT - 03.11.1985, Side 12
12 Sunnudagur 3. nóvember NT
... Þaö er frekar erfitt aö lýsa þessu
ef þú hefur ekki upplifað þetta sjálfur.
Þú verður líka að afsaka ef ég hleyp
úr einu í annað. Vissulega er það
óskiljanlegt en ofurmannlegt, en ég
mun ekki færa nein rök fyrir því.
Hvers vegna? Stundum eru engin
svör. Stundum svarar heimurinn þér
ekki hversu hart sem þú gengur á
hann. Þú ert eins og i kirkjugarði en
ekki innanum lifandi, talandi, skynj-
andi fólk. Og eitthvað bannar þér að
tala við krossana. Þú veist fyrir fram
að þeir munu aldrei svara þér. Þú ert
ekki eins og þeir. Þú ert svo fullur af
lífi að þú ert að springa. Þeir bara
vagga lítið eitt þegar hvessir og
söngur þeirra er á allt öðru tungumáli
en þínu. Og þar sem þú ert að ganga
þarna, og sérð að krossabreiðurnar
ná eins langt og augað eygir, sérð þú
að gleði þín er einskisnýt. Til hvers
að vera glaður einn? hugsar þú og
stoppar. Hræðileg þögn ræðst á þig
úr öllum áttum. Auðvitað finnst þér
þetta barnalegur hugsunarháttur, en
það er sama. Hvernig sem þú reynir
að hrista þetta af þér, alltaf eflist
hugsunin. Þú hneppir að þér. Það er
■ Jóhamar 23.6.’63. Hef ur gef ið út tvær smásögur: T askan ’83, Brambolt ’84, og Ijóð í félagi við Medusa hópinn.
kaldara en þú hélst. Dettur þér þá
ekki í hug það sem öllum dettur í hug
fyrr eða siðar: Hvernig get ég orðið
eins og þeir? Kannski eru þeir glaðir
á sinn hátt. Ég gæti lært að syngja
eins og þeir. Ég gæti látið vindinn
vagga mér eins og þeir gera, og
smátt og smátt yrði ég eins og....
Ófreskja. Þú veist allra manna best
að þú ert þú og þú verður aldrei
annað en það sem þú ert. Þú getur
dregið fram ákveðna eiginleika og ýkt
þá þangað til enginn þekkir þig fyrir
sömu manneskju. En þú ert samt
alltaf þú og þannig vil ég líka hafa þig.
En ég var ekki þarna til að benda þér
á þetta. Þér liður ekki vel, sem er
skiljanlegt, þú finnur enga skynsam-
lega leið og sest á leiði. Þér finnst
tilgangslaust að halda áfram fyrst þú
getur ekki orðið eins og þeir; strax.
Smá stund veltir þú fyrir þér hvert
gleðin fór. En hún bara fór. Nú líða
mörg ár á skömmum tíma, eins og
gerist. Og þú ert ekki lengur til. Jörðin
gleypti þig. Eftir stend ég, og á
svolítið erfitt með að trúa að þú hafir
eitt sinn verið ég.
NT-mynd: Sverrir
á meðan hjartað þykist slá...
Og gaddavirsstúlkan brosir
kæruleysisleg
handarhreyfing
sker
mig
dreymir
Þig
spyr
hver
drekkur kaffi
allan daginn
talar þú
Hugsar hún enn:
Já, ég er akkeri sjávardýra. Kyssiö
mig bara, mér er alveg sama. Hvað er
ég annað en mjúkur steinn, klofinn.
Hugsar hann enn:
En ég elska þig ég
elska þig ég elska
þig ég elska þig.
Hún:
Þú ert nálægur í draumi. Og ein
slæ ég tunglskinsstrengi, trú máli mínu.
Loka skúffu og sný mér við. Of sein.
Þreifa mig áfram og er nærri þér.
Drottin? Er ég ekki hrein? Drottinn!
Engin útgönguleið án elds. Flökta
dauðar rósir. Fjórar kynslóðir í einum
kristal. Samt er eins og ég sé öll
að dofna. Andlit þín sjást snöggvast
rofna hvert frá öðru, smábrotna
og spegillinn sofnar. Dag eftir dag
gengur svartur maður inn í herbergið
mitt. Ert þetta þú eða er kvikmynd
í myrkrinu. Veggurinn andar. Talaðu
við mig. Komdu undir sængina til mín.
En þú ert ekki hér. Myrkrið hatar
mig. Ég vildi þig aldrei hvort eð er. Farðu
aldrei frá mér. ÍHvað á ég að hugsa?
Hann:
Allt er að hverfa.
Ég er að sökkva.
Þú ert hjá mér
Og þú ert ekki hjá mér:
Farðu ekki frá mér.
Ég er hræddur
um að kannski, bara kannski... Ég skil
ekki neitt. Hvers vegna ert þú svona góð við mig.
Hvað á ég sem ég get gefið þér. Ég á ekkert
nema já
sjálfan mig. Þú mátt eiga mig,
en er það nóg.
NÆTURSALA
UM HELGAR
Æðislegir næturréttir sem kitla bragðlaukana:
5T Pítur eins og þær gerast bestar.
Girnilegir hamborgarar og ýmislegt
annað góðgæti.
^ Eirikur, faðir pítunnar á Islandi, er með sitt
eldhressa lið i eldhúsinu og frammi i sal er gamla
góða ,,djúkboxið“ á fullu.
Sendum einnig heim ef þú kemst ekki á staðinn.
Pítu-húsið
_ Iðnbúð 8, Garðabæ
Sími 64 12 90.
Opið til kl. 05
Laugardags-
og sunnudagsmorgna.
Skáld-
mæringar
og
rit-
snillingar
Óskum eftir framhaldssögu (neðan-
máls-sögu) til birtingar
Hún má bæði vera í bundnu máli sem
óbundnu.
Reynið
nýja
birtingar-
leið!
Það er víst ótrúlega spennandi að
skrifa sögu jafnóðum og hún birtist og fá
ferska gagnrýni á hvern nýlokinn staf.
Það fannst Dostójevskí allavega.