NT


NT - 09.11.1985, Qupperneq 3

NT - 09.11.1985, Qupperneq 3
■ Baldur Ágústsson eigandi og stofnandi öryggisþjónustunnar Vara og John J.'S'tinson varaforseti Ademco halda á milli sín viðurkenningarskildinum, sem Baldri var afhentur fyrir 15 ára viðskipti við Ademco. NT-mvnd: Róbert Vari: 15 ára viðskipti við Ademco kynning á fullkomnu viðvörunarkerfi Laugardagur 9. nóvember 1985 3 Sjávarútvegsráðherra hlynntur hugmyndinni „Ég er hlynntur því að settur verði á stofn sérstakur sjávarútvegsskóli, sem myndi falla undir ráðuneytið. Ég held það yrði til góðs,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í samtali við NT í gær. NT hefur skýrt frá því að Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra sagði í ræðu sinni á Iðnþingi, að hann væri að kanna möguleika á að stofna sérstaka fagskóla og fella þá undir fagráðu- i neytin. „Ég hef áður sett fram slíkar hug- myndir, og ég fagna sérstaklega yfir- lýsingu menntamálaráðherra, enda hefur hann af málinu reynslu úr iðnaðarráðuneytinu og málefnum iðnfræðslunnar. Ég tel miklu meiri líkur til þess að tengja saman hags- muni atvinnulífsins og menntunarinn- ar með því að gera þetta með þessum hætti,“ sagði Halldór. Fiskiþing hefst klukkan 14 á mánu- dag í húsi Fiskifélagsins við Skúla- götu. Þar mun Halldór flytja ræðu og er viðbúið að málefni sjávarútvegs- skóla verði ofarlega á baugi. Ekki hafa farið fram viðræður milli ráð- - bíllinn bilaði á Kili ■ Björgunarsveitarmenn úr björg- unarsveitinni Tryggva frá Selfossi fóru í vikunni upp að Hagavatni í grennd við Kjalveg, til þess að sækja þangað bíl frá bílaleigu Loftleiða. Bíllinn sem er af gerðinni Volkswag- en Golf var skilinn eftir af þremur Ameríkönum sem höfðu hann á leigu. Þeir félagar voru á leið til baka frá Hagavatnsskála þegar bíllinn bil- aði um tvo kílómetra frá skálanum. Þeir létu fyrirberast í skálanum um nóttina. Daginn eftir gengu þeir fimmtán kílómetra vegalcngd og herranna tveggja sem málið snertir, en líkur eru til þess að af því verði innan skamms. komu þá niður á Kjaiveg. Þar hittu þeir jeppamenn sem voru á leið norður Kjalveg. Ameríkanarnir voru orðnir kaldir og hraktir þegar þeir komust í bílana. Jeppamennirnir héldu áfram ferð sinni norður, og skildu ferðalangana eftir á Hveravöll- um. í bakaleiðinni tóku þeir Amerík- anana aftur og komu þeim til byggða. Bílaleigan bað síðan Tryggva um að ná bílnum og koma honum aftur til byggða. Að sögn formanns Tryggva Ólafs fshólms gekk ferðin vel og var bíllinn í góðu ásigkomulagi þegar þeir nálguðust hann. Ameríkanar í hrakningum ■ Öryggisþjónustan Vari hefur nú verið starfrækt í 15 ár og hefur frá upphafi flutt inn og notað við sína þjónustu viðvörunarkerfi frá banda- ríska fyrirtækinu Ademco, en það fyrirtæki var stofnað árið 1929 og hefur mikla reynslu í sölu og gerð varnarkerfa, er raunar eitt stærsta sinnar tegundar í heiminum. í tilefni afmælisins er staddur hér á landi John J. Stinson varaforseti Ademco og veitti hann Baldri Ágústs- syni eiganda Vara, viðurkenningar- skjöld fyrir 15 ára samstarf. í tengsl- um við komu Stinsons hingað til lands stendur yfir kynning á nýjungum í viðvörunarbúnaði og þjófakerfum. „Það sem við erum einkum að kynna, er nýtt þráðlaust þjófavarnar- kerfi, sem komið er fyrir í heimahús- um eða fyrirtækjum,“ sagði Stinson í samtali við NT. „Þetta tæki er það fullkomnasta sem við höfum komið með hingað til, það skynjar líkams- hita manns í herbergi, þar sem engar mannaferðir ættu annars að vera, og gerir viðvart í vaktmiðstöð öryggis- þjónustu eins og Vari er, með því að hríngja þangað í síma.“ Að sögn Baldurs Ágústssonar er möguleiki á því að fyrirtækið taki í sína notkun þessa nýjung, það veltur þó á leyfi frá Póst og símamálastofn- un. Annars sagði Baldur að það færðist í vöxt að fyrirtækið annaðist öryggisgæslu fyrir einstaklinga, fyrir- tæki og stofnanir, en einnig fylgdist Vari með t.d. hitastigi og vatnsrennsli í mörgum fiskeldisstövum. Starfrækt væri fullkomin stjórnstöð sem tæki á móti boðum frá viðvörunarkerfum, þetta nýja tæki sem heitir á frummál- inu Digital communicator gæti stuðl- að að ennþá meira öryggi. Spariskírteini ríkissjóðs: Vaxta- lækkun ■ Ríkissjóður hefur ákveðið að breyta genginu á hefðbundnum spari- skírteinum ríkissjóðs, þannig að árs- vextir umfram verðtryggingu; miðað við þriggja ára binditima, lækka úr 9,23% ársvöxtum í 8,09%. Ástæðan fyrir þessari vaxtalækkun, sem kemur til framkvæmda 11. október, er sú að ríkissjóður stóð frammi fvrir því að taka erlent .lán eða breyta genginu á spariskírteinunum. Síðan 30. október hafa spariskírt- eini sem bera 7% vexti umfrarn verð- tryggingu verið seld á genginu 94, en þáð gefur 9,23% ársávöxtun, genginu verður breytt á mánudag í 97, sem gefur 8,09% ársvexti. Sala skírtein- anna hefur gengið mjög vel. Fólksbílar og Sport Nú fáanlegir með 5 gíra kassa Afar hagstæð greiðslukjör Kaffiveitingar - Gosdrykkir frá Sanitas og blöðrur fyrir börnin. (PEPSll Mikið úrval af notuðum bílum til sýnis og sölu BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF. ily 'díj SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.