NT - 09.11.1985, Page 4
Skipting loðnukvótans:
Sama reglan
■ Enn hefur ekki verið reikn-
að út hver skipting 500 þús.
tonna viðbótarkvótans milli
hinna einstöku skipa verður. Þó
er ljóst að 2/3 hlutar heildar-
kvótans munu skiptast jafnt á
milli skipanna og 1/3 hluti skipt-
ist niður á skipin eftir burðar-
getu.Stærstu skipin fá því mest.
Þetta er sama regla og gilti
áður, svo það lætur nærri að
hver bátur tvöfaldi sinn kvóta.
Þeir sem þegar voru búnir að fá
viðbótarkvóta fá minna, sem
þeirri viðbót nemur.
Trúlega verður eitthvað um
kvótasölur þegar fram í sækir
þar sem bátar eru nú búnir að
veiða mjög misjafnlega mikið.
Samstarf
Skotvís
og SVFÍ
■ Skotveiðifélag fslands og
Slysavarnafélag Islands héldu
fund í vikunni, þar sem rætt
var um nauðsynlegan útbúnað
fyrir rjúpnaskyttur. Félögin
tvö hafa sent frá sér eftirfar-
andi lista, þar sem talið er upp
hvað nauðsynlegt sé að hafa
með sér í eins dags ferð, þar
sem gengið er frá bíl eða skála
og komið aftur sama dag.
1. Neyðarútbúnaður sem
skilyrðislaust skal taka með í
fjallaferðir: Attavita, landa-
kort, skyndihjálparpakka - lít-
inn og léttan en þó með því
nauðsynlegasta. Úr eða
klukku, flautu, eldspýtur og
álpoka - varmapoka.
Þá er bent á tvær sjálfsagðar
öryggisreglur, að skilja bíllykl-
ana eftir við bílinn, og láta vita
um ferðaáætlun.
Útbúnaður sem æskilegt er
að hafa með sér: Vasahníf,
snæri, vasaljós, hitatæki, labb/
rabb-tæki, ferðaútvarp, kerti,
stormglcraugu, andlitshlíf,
hæðarmæli, þrúgur eða skíði,
mannbroddar og loks snjó-
spaði.
Klæðnaður skal vera: Nær-
föt - síðar buxur og langerma
bolur úr alull. Milliskyrta sem
loftar vel. Lopapeysa, víð og
þykk. Anorakur, vindheldur
síður með góðum vösum og
síðast en ekki síst í áberandi
lit. Buxur, helst úr ull, víðarog
sterkar, svonefndargallabuxur
harðna t frosti og rifna og eru
því óhæfar, mælt er með
gönguskíðabuxum. Sokkar
eiga að vera úr ull, háir og
þykkir. Trefill einnig úr ull og
sömuleiðis vettlingar. Þá er
mælt með leðurskóm.
Fer Drangur
í sólina?
■ í útvarpinu sunnudags-
kvöldið þriðja nóv., var greint
frá því að flóabáturinn
Drangur, sem hefur verið í
ferðum frá Akureyri á hafnir í
nágrcnninu og til Grímseyjar,
væri á förum til sólarlanda og
væri þar leigður til flutninga.
„Þessi útvarpsfrétt kom mér
mjög á óvart,“ sagði Jón Stein-
dórsson þegar NT hafði sam-
band við útgerðarfélag Drangs.
„Við höfum átt í erfiðleikum,
verkefnaskortur er mjög mikill
og báturinn að stöðvast vegna
hans, þess vegna hafa farið fram
þreifingar hér og þar um leigu
en að báturinn sé á förum til
flutninga íSuðurhöfum er alltof
snemmt að segja til um,“ sagði
Jón aðlokin. Þannigaðöldungis
er óvíst hvort að Drangur fær að
baka sig í Miðjarðarhafssólinni
í vetur.
Fjöldi islendinga:
Tvöfaldaðist á 45 árum
■ Láta mun nærri að íslend-
ingar verði tvöfalt fleiri 1. des-
ember n.k. en árið 1940, þ.e.
fyrir 45 árum. Árið 1940 voru
landsmenn 121.474, en með
sömu fólksfjölgun í ár og í fyrra
ættu þeir að verða 242.730 þann
1. des. n.k. - þ.e. 99,8% fleiri
en 1940. Athygli vekur að körl-
um hefur á s.l. 44 árum fjölgað
um 2.250 meira en konum.
Fyrir 1940 höfðu konur alltaf
verið mun fleiri en karlar, en
undir 1950 snerist dæmið við.
Mjög er það misjafnt hvar
þessi helmings fjölgun hefur
valið sér búsetu. T.d. eru Vest-
firðingar nú um 2.500 færri en
þeir voru 1940 og segja má að á
Norðurlandi-vestra hafi mann-
fjöldi staðið í stað þennan hálfa
fimmta áratug. (Siglfirðingar
eru þó um þúsund færri nú.)
Raunar hafa aðeins rúmlega 20
þús. af þessum 120 þús. íslend-
ingum sem við hafa bæst sest að
á landsbyggðinni (úr um 74 í 95
þús.) og þar af nærri helmingur
á Norðurlandi-eystra.
Hin tæplega 100 þúsundin
hafa tekið sér bólfestu á suð-
vesturhorni landsins. í Reykja-
vík sjálfri hefur fjölgað úr rúm-
lega 38 þús. í tæplega 89 þús.
manns. Hlutfallslega erþófjölg-
unin mest á fyrrum kotum jafnt
sem höfuðbólum í nágrenni
borgarinnar, þ.e. sem nú telst
til höfuðborgarsvæðisins, eða
úr um 5.900 manns 1940 upp í rúm-
lega 36 þús. manns 1984, sem er
625%. T.d. bjuggu 1940 aðeins
627 manns á þeim svæðum sem
nú eru Kópavogur og Seltjarn-
arnes en samtals rúmlega 18
þús. á síðasta ári. í Garðabæ
hefur fjölgað úr 379 í tæplega 6
þús.
Þá hefur Suðurnesjabúum á
þessu tímabili fjölgað um 310%
- úr um 3.500 í rösklega 14 þús.
manns.
Nú hefur dregið svo úr barn-
eignum íslendinga að talið er að
þeim muni aðeins fjölga um 34
þús. á næstu 35 árum - til 2020
- í stað 98 þús. manna fjölgunar
á síðustu 35 árum. Verði sú
fjölgun með svipuðum hætti og
síðustu 45 árin mundi aðeins
fjölga um 6 þús. manns á lands-
byggðinni til ársins 2020, en
hins vegar 28 þús. manns á
höfuðborgarsvæðinu og Suður-
nesjum, eða um álíka fjölda og
nú býr í Kópavogi og Hafnar-
firði samanlagt.
Á sama tíma og fjöldi íbúa
hefur tvöfaldast hefur íbúða-
fjöldi nær fjórfaldast, úr 23 þús.
íbúðum 1940 í um 83 þús.
íbúðir 1985 - um helmingi færri
búa því núna í hverri íbúð að
meðaltali. Þá er fróðlegt að rifja
upp að fyrir aðeins 45 árum var
ekki bað nema í fjórðu hverri
íbúð og innan við helmingur
hafði vatnssalerni. Miðstöð var
í 6 af hverjum 10 íbúðum og enn
vantaði rennandi vatn í fjórð-
ung allra íbúða árið 1940. ís-
lendingar á besta aldri muna því
tímanna tvenna í húsnæðismál-
um, að ekki sé nú talað um þá
öldruðu.
VALFOÐUR■■
INNIHALDSRIKT OG
FÓÐURSPARANDI
l^dfóður er fljótandi dýrafóður, l^dfóður er fóðursparandi, vegna
framleitt úr nýjum fiski. Við fram- ~ þess hve prótein I öðru fóðri nýtist
leiðsluna er ekki notast við hita, sem vel, sé Valfóður gefið með.
skaðar næringargildi hráefnisins.
Walfóður er mikilvægt með öðru
fóöri, vegna liffræðilegs gildis þess.
V
alfóður er ódýr, innlend fram-
leiðsla.
•eitið nánari upplýsinga.
VIÐ SETJUM GEYMSLUTANK HEIM
Á BÆ, ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU.
P.O. BOX 269
222 HAFNARFJOROUR
SÍMI: 91-651211
SÍMI í VERKSMIÐJU: 92-2273
RAFMAGNSLAUST?
Tryggðu þig gegn rafmagnsleysi
medMAGNATE
TRAKTORSDRIFINNI
RAFSTÖÐ
Fyrirliggjandi í stærðum:
8 Kw 380/220 volt 3ja fasa
ca. kr. 100.000.-
8 Kw 220 volt 1. fasa
ca. kr. 109.000.-
16 Kw 220 volt 1 fasa
ca. kr. 130.000.-
Góð greiðslukjör
Vélaborg
Bútækni hf. Sími 686655/686680