NT - 09.11.1985, Blaðsíða 16
SNJOHJOLBARÐAR
Sólaðir og nýir snjóhjólbarðar af öllum stærðum og
ýmsum tegundum, bæði radial og venjulegir, sterkir
og með góðu gripmunstri.
Einnig lítið slitnir snjóhjólbarðar á gjafverði.
Snöggar hjólbarðaskiptingar. Vanir menn - Allir
bílar teknir inn - Setustofa, alltaf heitt á könnunni
meðan hinkrað er við.
Komið, skoðið, gerið góð kaup
BARÐINN
Skútuvogi 2, símar: 30501 og 84844
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Vestur-
landsveg á Hvalfjarðarströnd, um Kalastaði
að Galtarholti.
Helstu magntölur:
Lengd........................ 6,0 km
Fylling, fláafleygar og burðarlag . .. 80.000 m3
Verkinu skal að fullu lokið 1. júlí, 1986.
Útboösgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík og Borgarbraut 66,
310 Borgarnesi frá og með þriðjudeginum 12.
nóvember 1985.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14:00 hinn 25. nóv.
1985.
Vegamálastjóri
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ARMÚLA3 SlMI 81411
Starf í Brunadeild
Óskum eftir að ráða starfsmann í Brunadeild til
almennra skrifstofustarfa.
Æskilegt er, að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst og hafi til að bera færni í skrifstofustörfum.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá starfs-
mannahaldi, Ármúla 3, sími 81411.
Samvinnutryggingar
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í endur-
byggingu Vesturlandsvegar í Botnsvogi og Kjós-
arskarðsvegar.
(Lengd 1,4 km, magn 14.000 m3).
Verki skal lokið 1. febrúar 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og meö 11. þ.m.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00
þann 18. nóvember 1985.
Vegamálastjóri
Borgarbókavörður
Reykjavíkurborg auglýsir lausa stöðu borg-
arbókavarðar í Reykjavíktil umsóknar. Stað-
an veitist frá og með 1. janúar 1986.
Samkvæmt ákvæðum laga skal forstöðu-
maður að jafnaði vera bókasafnsfræðingur.
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal skila til borgarstjórans í
Reykjavík eigi síðar en 1. desember n.k.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
Reykjavíkurborgar í síma 18800.
Borgarstjórinn í Reykjavík
flokksstarf
Drífa Unnur
Inga Þórunn
Konur í Reykjavík og nágrenni
L.F.K. heldur fimm kvölda námskeiö sem hófst 5. nóvember
nk. fyrir konur á öllum aldri. Fyrsta námskeiðið verður haldið
að Rauðarárstíg 18. Veitt verður leiðsögn í ræðumennsku,
fundarsköpum, í styrkingu sjálfstrausts og framkomu í útvarpi
og sjónvarpi.
Sækjum fram. Skráið ykkur hjá Þórunni í síma 24480.
Verði stillt i hóf. Fjölmennum á námskeiðið.
Stjórn L.F.K.
Kjördæmisþing í
Suðurlandskjördæmi
Kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðurlandskjördæmi
verður haldið föstudag og laugardag 8. og 9. nóvember n.k.
og hefst kl. 17.30stundvíslegaáföstudeginum í Félagsheimil-
inu Hvoli Hvolsvelli. Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ræða: Stjórnmálaviðhorfið. Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra.
3. Ræða: Framsóknarflokkurinn störf og stefna. Guðmundur
Bjarnason alþingismaður.
4. Ávarp gesta landssambanda. L.F.K.: Unnur Stefánsdóttir,
S.U.F.: Magnús Ólafsson.
5. Umræður og fyrirspurnir.
6. Þingslit kl. 17.30 á laugardeginum.
Gisting og matur á Hótel Hvolsvelli á frábærum kjörum. Félög
og einstaklingar tilkynnið þátttöku sem fyrst. Stjórnin
Siglfirðingar - Sauðkrækingar
Landssamband framsóknarkvenna heldur námskeið í fram-
sóknarhúsinu við Suðurgötu Sauðárkróki fyrir konur og karla
á öllum aldri.
Námskeiðið verður haldið dagana 15., 16. og 17. nóvember
n.k. og hefst það kl. 20.00 15. nóv. Veitt verður leiðsögn í
styrkingu sjálfstrausts, ræðumennsku, fundarsköpum og
framkomu í útvarpi og sjónvarpi. Leiðbeinendur verða þær
Inga Þyrí Kjartansdóttir og Guðrún Jóhannsdóttir. Þátttaka
tilkynnist hjá Halldóru í síma 96-71118 og Guðrúnu í síma
95-25200.
Fólk er eindregið hvatt til að nota sér þetta sérstaka tækifæri.
L.S.K.
Konur Suðurnesjum
Landssamband framsóknarkvenna heldur fimm kvölda nám-
skeið fyrir konur á öllum aldri í framsóknarhúsinu við
Austurgötu sem hefst 18. nóvember n.k. kl. 20.00. Veitt verður
leiðsögn í styrkingu sjálfstrausts, ræðumennsku, fundarsköp-
um og framkomu i útvarpi og sjónvarpi. Leiðbeinandi verður
Drífa Jóna Sigfúsdóttir. Þátttaka tilkynnist til Drífu í síma
92-3764 eöa Þórunnar í síma 24480.
Laugardagur 9. nóvember 1985 20
flokksstarf
Framsóknarvist
Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur framsóknarvist n.k.
sunnudag 10. nóvember að Hótel Hofi kl. 14.00. Veitt verða
þrenn verðlaun karla og kvenna. Aðgangseyrir er kr. 200 og
eru kaffiveitingar innifaldar í því verði. Guðmundur Bjarnason
alþingismaður flytur stutt ávarp í kaffihléi. Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Kjördæmisþing í
Suðurlandskjördæmi
Kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðurlandskjördæmi
verður haldið föstudag og laugardag 8. og 9. nóvember n.k.
og hefst kl. 17.30 stundvíslega á föstudeginum í Félagsheimil-
inu Hvoli Hvolsvelli. Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Ræða: Stjórnmálaviðhorfið. Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra.
3. Ræða: Framsóknarflokkurinn störf og stefna. Guðmundur
Bjarnason alþingismaður.
4. Ávarp gesta landssambanda.
5. Umræður og fyrirspurnir.
6. Þingslit kl. 17.30 á laugardeginum.
Gisting og matur á Hótel Hvolsvelli á frábærum kjörum. Félög
og einstaklingar tilkynnið þátttöku sem fyrst.
Stjórnin
Konur Suðurnesjum -
Hádegisverðarfundur
Aðalfundur Félags framsóknarkvenna í Keflavík og nágrenni
verður haldinn á Glóðinni laugardaginn 9. nóvember kl.
12.00-14.00.
Dagskrá:
Framboðsmál: Drífa Jóna Sigfúsdóttir.
Söngur: Hlíf Káradóttir.
Píanó: Ragnheiður Skúladóttir.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gamanmál.
Konur mætið vel og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Spilafólk takið eftir
Hin árlega þriggjakvölda spilakeppni Framsóknarfélagsins í
Árnessýslu hefst að Borg í Grímsnesi fimmtudaginn 7.
nóvember kl. 21. Síðan í Þjórsárveri föstudaginn 15.
nóvember kl. 21. og endar að Flúðum föstudaginn 22.
nóvember kl. 21. Glæsileg verðlaun að verðmæti um 60.000
kr. Meðal annars utanlandsferð og margt góðra muna.
Framsóknarfélag Árnessýslu
Viðtalstímar
Halldór E. Sigurðsson verður til viðtals
j á skrifstofu félagsins að Rauðarárstíg
i 18, mánudaga til fimmtudags
kl. 13.30- 15.30, fyrst um sinn.
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
I|| Lausar stöður hjá
W Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal-
inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara-
samningum.
• Staða forstöðumanns íþróttavalla í
Laugardal (vallarstjóra) er laust til um-
sóknar. Staðan veitist frá og með 1.
febrúar 1986.
Upplýsingar um starfið veitir fram-
kvæmdastjóri íþrótta og tómstundaráðs,
Fríkirkjuvegi 11, sími 21769.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást fyrir kl. 16.00, þriðjudaginn 19. nóvember
1985.
I