NT - 14.12.1985, Blaðsíða 1
Laugardagur 14. desember 1985
Hafnarfjörður:
Kveikt á
jólatrénu
■ í dag kl. 16 verður kveikt á
jólatrénu á Thorsplani við
Strandgötu í Hafnarfirði. í til-
efni þess munu jólasveinar vera
á sveimi í bænum og verður
dansað kringum tréð að lokinni
afhendingunni.
Frederiksberg, vinabær
Hafnarfjarðar í Danmörk, hef-
ur í rúm þrjátíu ár gefið göflur-
um jólatré og mun ungur dreng-
ur að dönsku og íslensku bergi
brotinn kveikja á ljósunum þeg-
ar Hans A. Djurhuss, sendi-
herra Danmerkur hefur afhent
tréð í nafni bæjarstjórnar Fre-
deriksbergs. Einar I. Halldórs-
son, bæjarstjóri Hafnarfjarðar,
mun veita trénu viðtöku.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar
mun leika við athöfnina og
karlakórinn Þrestir þenur radd-
böndin.
Á laugardaginn verða versl-
anir í Hafnarfirði opnar til kl. 18
og í veitingahúsunum við
Strandgötu og Vesturgötu verð-
ur boðið upp á heitt súkkulaði
og nýbakaðar kökur.
Akranes:
Jóiatré á
Akratorgi
■ Kveikt verður á jólatrénu á
Akratorgi, Akranesi, kl. 15.30 á
morgun. Tré þetta er gjöf frá
vinabæ Akraness í Danmörk,
Tönder.
Athöfnin verður með hefð-
bundu sniði og munu jólasvein-
ar heilsa upp á yngri kynslóðina
að henni lokinni.
Kópavogur:
Sænskt
jólatré
tendrað
■ Á ntorgun, sunnudaginn 15.
desember, verður kveikt á jóla-
tréi sem staðsett er austan
Kópavogskirkju. Það er Nörr-
köping, vinabær Kópavogs í
Svíþjóð, sem hefur gefið íbúum
Kópavogs þetta tré.
Dr. Esbjörn Rosenblad,
sendiráðunautur mun afhenda
Ragnari Snorra Magnússyni
tréð. Skólahljómsveit Kópa-
vogs mun þeyta horn sín við at-
höfnina og Samkór Kópavogs
syngja. Þá munu jólasveinar
heimsíekja samkomuna.
BLAÐII
■ „Jú, það er rétt það væri hægt að kaupa Hafskip fyrir þessa ávísun en hún á að fara til bænda sem yrkja jörðina og skaffa okkur lambakjötið,“ sagði Gunnar
Guðbjartsson þegar hann brá ávísun frá ríkissjóði á löft fyrir NT. NT-mynd Róbert
Bændur fá borgað eftir helgi:
Framleiðsluráð fékk
450 milljóna ávísun!
■ Það er ekki oft sem menn
geta handfjatlað ávísanir upp á
tæpar450milljóniren ígærfékk
Gunnar Guðbjartsson, fram-.
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs
landbúnaðarins, í hendurnar
ávísun sem hljóðaði upp á
449.687.000, og var þarna um að
ræða fyrirframgreiðslu ríkis-
sjóðs á niðurgreiðslum og út-
flutningsbótum vegna kinda-
kjötsframleiðslunnar. Þessi
upphæð mun renna til slátur-
leyfishafa.
Það er því Ijóst að staðið
verður við það ákvæði í fram-
leiðsluráðslögunum nýju sem
kveður á um að greiðslur þessar
eigi að inna af hendi fyrir 15.
desember, en sauðfjárbændur
hafa haft af því nokkrar áhyggj-
ur að ekki yrði staðið við þetta
ákvæði og þeir fái ekki greiðslur
fyrir innlegg sín í sláturhús fyrr
en eftir dúk og disk og þar nteð
blasi jafnvel gjaldþrot við
sumurn.
Útreikningar í sambandi við
greiðslur á sauðfjárafurðum
hafa dregist nokkuð þar sem
Stéttarsambandið og viðskipta-
bankarnir lögðu mismunandi
skilning í grundvöll þann sem
útreikningarnir eru byggðir á.
Það ntál er að leysast að sögn
Stefáns Valgeirssonar alþingis-
manns þannig að hægt er að
standa við gefin loforð og bænd-
urfái sitt.
■ Jólasveinarnir verða víða á kreiki um heigina, enda víða
kveikt jólaljós á trjám. Þessi var nýkominn í bæinn þegar
Ijósmyndarinn rakst á hann og veit greinilega ekki hvernig
hann á að bregðast við þegar börnin hópast að.
NT-mynd: Ámi Rjarna.
Umferð
takmörkuð um
i Laugaveginn í dag
■ Öll umferð einkabíla er
bönnuð um Laugaveginn í dag
frá kl. 13 til 18. Einu bifreiðarn-
ar sem mega aka um Laugaveg
eru strætisvagnar og leigubílar,
sem hafa verið pantaðir að hús-
um við Laugaveg. Þá njóta bif-
reiðar merktar fötluðuni undan-
þágu frá þessu banni.
Sömu reglur gilda laugardag-
inn21.desemberþáfrákl. 13-22
og mánudaginn 23. desemberfrá
kl. 13-23. Amilli kl. 19og20er
þó umferð heimil vegna vöru-
dreifingar í verslanir.
Þessa daga verður gjald-
skylda við stöðumæla sem virka
daga einnig verða bifreiðastæði
í Tollhúsinu við Tryggvagötu og
í Kolaportinu opin.
I fréttatilkynningu frá gatna-
niálastjóra eru starfsmenn versl-
ana og annarra fyrirtækja í mið-
borginni hvattir til að leggja bif-
reiðum sínum fjær vinnustað en
venjulega frant að jólum. Er
þeim bent á bifreiðastæði á lóð
Eimskips milli Vatnsstígs og
Frakkastígs.
Þá er fólk hvatt til að nota al-
menningsvagna dagana fram að
jólurn til að létta á umferðinni
og spara tíma og erfiðleika við
leit að bifreiðastæðum.
Lögreglan mun verða með
aukna löggæslu þessa daga og
greiða fyrir og aðstoða fólk í
þeirri rniklu umferð sem fra-
mundan er.