NT - 14.12.1985, Blaðsíða 10

NT - 14.12.1985, Blaðsíða 10
Hvað mun veröldin vilja? Andrés Björnsson: Töluð orð Áramótahugleiðingar 1968-1984 ■ Nýárshugleiðingar Andrésar Björnssonar útvarpsstjóra á árun- um 1968-1984 hafa hlotið miklar vinsældir hjá þjóðinni. Þar hefur farið saman vandað efni, frábært mál og ræðuflutningur. Það sannast þó hér eins og oftar að skrifuð orð eru áhrifameiri en töluð orð. Töluð orð geta skapað hrifningu og þau geta varað lengi, en þó aldrei til jafns við skrifuð orð. Þá fyrst dæmist ræðan góð, þegar hún stenst vandlegan lestur. Það er mikill fengur að áramóta- ræðurAndrésar Björnssonar eru komnar út á prenti og nú er því hægt að njóta þeirra enn betur en á erilsömu gamlárskveldi. Ég vissí að þær voru góðar, fullar margvís- legum fróðleik og lífsspeki, en ég hafði þó ekki gert mér það ljóst að þær væru eins frábærar og kom í ljós við lesturinn. Áramótahug- leiðingar Andrésar sóma sér við hlið bestu rita, sem til eru á ís- lensku. Slíkum snillingshöndum fer hann um „móðurmálið mitt góða, hið mjúka og ríka.“ Fyrir þá, sem vilja gerast góðir ræðumenn, eru áramótaræður Andrésar hinn besti skóli. Þar er hvergi að finna málalengingar né ofhlaðið orðalag. Dregið er saman fjölbreytt efni, fróðlegt og skemmtilegt. Jafnan kemur svo í ljós öðru hvoru sterkur undir- straumur, sem verður þó aldrei of áleitinn. Undirstraumurinn er lífspeki Andrésar Björnssonar. Hæst ber þar lögmálið. „ Allir menn eru einu lögmáli bundnir," segir á einum stað. „Nefna má það lögmál mann- legs eðlis, siðgæðislögmál, lögmál um greiningu rétts og rangs eða blátt áfram samvisku. Þetta lögmál er öllum í brjóst borið og það lætur til sín taka hvarvetna í mannlegu samfélagi.1' Á öðrum stað segir: „Lögmál er takmörkun á frelsi - frelsi, þessu undurfagra orði, eftir- lætisorði skálda - hugsjóna- og stjórnmálamanna.... Það kann að ’virðast þversögn, en frelsi er í bestu merkingu það að menn leggi sjálfviljugir hömlur á vissar til- hneigingar sínar svo að aðrir megi njóta frelsis. Frelsið er fórn eigin frelsis fyrir aðra. Að öðrum kosti er það aðeins hefndargjöf. Án lög- málsins, án siðgæðis og sjálfsaf- neitunar er ekkert frelsi fyrir einn eða neinn, aðeins taumlaus ótti og skelfing allra.“ Andrési Björnssyni verður oft hugsað til tæknibyltingarinnar og þeirra dilka, sem hún muni draga á eftir sér. Hún getur jafnt boðað blessun og bölvun. Þegar rýnt er í framtíðina verða allir spádómar óráðnir. Þó velta menn því fyrir sér líkt og Skáld-Sveinn á 15. öld: Hvað mun veröldin boða? I ræðum Andrésar er að finna margt um- hugsunarvert um þetta efni, en ákveðin svör fær maður ekki. Ein staðreynd er þó augljós. Andrés Björnsson víkur að henni í fyrstu og síðustu áramótaræðu sinni: „Hin nýja heimsmynd gerir harðar kröfur til mannsins sem félags- veru.“ f lokaræðu sinni dregur Andrés Björnsson saman þau fjögur atriði, sem mestu varða Islendinga. Hann segir: „Saga, tunga, trú og siðalögmál eru verðmæti, sem allir þegnar þjóðarinnar eiga hlut í. Við þurf- um ekki að líta lengi í kring um okkur til að sjá hvað gerist, ef ein- hver þessara þátta rofnar. Dæmi þess blasa alls staðar við, jafnvel hjá grannþjóðum, sem af þessum sökum eiga við margs konar hörm- ungar að stríða. Héreru vítin sann- arlega til varnaðar. Þau atriði, sem nefnd hafa verið veita okkur þegnrétt meðal þjóða. Þau hafa veitt okkur það frelsi sem við njótum í hörðum heimi. Gæt- um þeirra af árvekni, ef við gleym- um því verðum við hvorki frjáls né óháð heldur gleymd og týnd hvert öðru og allri veröldinni." Ég gat ekki lagt bók Andrésar Björnssonar frá mér fyrr en ég var búinn að lesa hana alla í einni lotu. Laugardagur 14. desember 1985 Blað II 10 Andrés Bjömsson. Hún er jafnt skemmtileg og göfg- andi. Hún er ein af minnstu jóla- bókunum að fyrirferð, en ég hygg að það verði margir fleiri en ég, sem setja hana í öndvegið. Að lokum skal rifjað upp hvern- ig Andrés Björnsson lauk ára- mótaspjallinu 1977: „Það er líka hægt að ferðast í veröld ómælisins og eiga sér þar yndisstaði. Auðvelt er að finna þá, þótt myrkur sé, frost og fjúk. Eng- inn ferðabúnaður er nauðsynlegur, engin farartæki. Ekki þarf annað né meira en loka augunum og opna hugann, þá er komið á áfangastað. Engin óhöpp verða í þeirri ferð, engin áætlun bregst. Allt fer að óskum og dvölin kostar ekkert, hvort sem hún er löng eða stutt. Fararstjóri er hugur manns. í þessu landi eiga ennþá margir hulin pláss og yfirskyggða staði, sem sóttir verða heim í kvöld.“ Þórarinn Þórarinsson ■ Gils Guðmundsson. Biart í lofti ■ Birtan að handan. Saga Guðrúnar Sigurðardóttur frá Torfufelli. Sverrir Pálsson skráði. Skuggsjá. Þeir sem lesið hafa fyrri bækur' Guðrúnar munu kannast við þann boðskap sem hér er fluttur. Guð- rún var búin að kynna lífsskoðun sína og viðhorf. En auk þess er hér rakin ævisaga hennar. Boðskapur Guðrúnar er sömu ættar og það sem spíritisminn hef- ur jafnan boðað í aðalatriðum, sá ð kærleikur og góðvild sé það sem estu máli skipti fyrir alla framtíð ers einstaks manns. Það er allegur boðskapur og hollur og má styðja hann margskonar rökum. Vitranir þær og fyrirburðir sem frá er sagt í sögu Guðrúnar eru þess háttar að ekki fallast allir á sömu skýringar. Sumum er þetta fagnaðarboðskapur en öðrum ömun að. Víst er það að seint verð- ur fullsannað hvað um er að ræða svo að enginn efi geti á því leikið. Hins vegar væri það óbilgirni úr hófi fram að neita því að sýnirnar hefðu átt sér stað. Én þó að viður- kennt sé t.d. að Guðrún hafi þrá- sinnis við jarðarfarir séð hinn látna sem verið var að kveðja er ekki víst að allir viðurkenni að hann hafi verið þar í raun og sannleika. Þá vantar þó skýringu á því hvers vegna svipurinn sást. Svo að tekið sé hér hliðarspor þá er það greinilegt að saga Guðrúnar af Ragnheiði Brynjólfsdóttur hef- ur orðið fyrir áhrifum frá Guð- mundi Kamban, sem raunar hóf feril sinn sem rithöfundur með ósjálfráðri skrift í miðilsástandi. Sitthvað er óljóst og ósannað í þeim efnum og ástæða til að þyki forvitnilegt. Þessi bók Guðrúnar er engin tímamótabók og ekki beint nýstár- ■ leg. En hún segir frá konu sem naut vinsælda og margir töldu sig eiga þökk að gjalda. Og hún skipar sitt rúnt í bókmenntum þeirra sem taka undir það að birtan að handan gefi lífi þeirra gildi, ljós og yl og von. H.Kr. Gesti fagnað ■ Gcstur. í slcnskur fróöleikur gamall og nýr. Gils Guömundsson safnaði efninu. II. Iðunn. Þetta er rnjög góð lesbók til fræðslu um íslenskan þjóðarhag og menningu. Ég held að ekki sé ástæða til að segja um nokkra grein þessa bindis að valið sé misheppn- að. Og hér kennir margra grasa. Hér eru mannraunasögur frá æsku og bernskuárum núlifandi fólks, Elínar Gísladóttur frá Öl- keldu og Ara Jóhannessonar. Þær frásagnir, eins og fleira í þessari bók, sanna að margt er það í heig- arblöðum dagblaðanna og jóla- blöðum sem vert er að geymist í ■ Guðrún Sigurðardóttir. bókum sem fleiri ná til en gamalla blaða. ^ Meira einkennist þessi bók af lýsingum aldarfars og þjóðlífs en einstökum hetjusögum. Fræðilega er kannski ástæða til að staldra við ritgerð safnandans um sálmabókina 1801 og deilur um hana. Bendir hann þar á að Magnús Sephensen hafi ekki verið metinn scm vert er í sögunni. Hann var óheppinn að því leyti að rómantík- in tók forustu í menningarmálum um það bil sem hann hvarf samtíð- inni á vit sögunnar. Og hann var hvorki skáld né rithöfundur að smekk rómantísku stefnunnar. Landsuppfræðingarstefnan átti þungan róður þegar hagur þjóðar- innar var hvað aumastur og verður starf Magnúsar Stephensen í anda upplýsingarinnar vart of metið. Óllum var kunnugt og alviður- kennt að Magnús mildaði dóma og refsingar og var þannig tímamóta- maður á sviði dómsmála. í sálmabókardeilunni og trúar- bragðasögunni sést viðhorf hans glöggt af því hvernig hann fór með sálminn: Vor guð er borg á bjargi traust. Einar Kvaran kallar hann hergönguljóð Lúthers móti fjand- anum. Magnús byrjaði eins og trú- uðum manni sæmir: Óvinnanleg borg er vor guð. En þegar kom að því að ræða um „hinn gamla óvin“ sagði hann: 111 girnd, óvinur vor. Ritgerð Gils um þessa sálma- bókardeilu er skemmtileg og fróð- leg upprifjun en sú deila var háð bæði í gamni og alvöru. En þannig er með efnið farið að bæði Magnúsi Stephensen og Jóni Þorlákssyni á Bægisá er sómi það. Hér er á ferð góður gestur sem ástæða er til að fagna. H.Kr.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.