NT - 14.12.1985, Blaðsíða 6
Laugardagur 14. desember 1985 Blað II 6
limsögn / Bækur
AF KOLLUMALUM
OG FLEIRU
Klías Snæland Jónsson: Undir högg
aö sækja. Aldarspegill.
Vaka - Helgafell 1985.
L89 bls.
■ í þessu öðru bindi Aldarspegils,
ritraðar, sem hóf göngu sína á síð-
astliðnu ári, eru þrír þættir. Hinn
fyrsti þeirra, sem fjallar um ásakanir
á Hermann Jónasson þáverandi lög-
reglustjóra í Rcykjavík um kollu-
dráp í Örfirisey, er sýndu lengstur,
tekuryfir liðlega 130 blaðsíður.
Kollusagan var mesta kosninga-
bomba ársins 1934, en eins og mörg-
um mun kunnugt, var hún þannig til
komin að menn í Reykjavík kváðust
hafa séð Hermann Jónasson skjóta
æðarkollu úti í Örfirisey. Hermann
var kærður, hlaut að víkja úr sæti sem
dómari og var setudómari settur í
málinu. Hann hóf yfirheyrslur og
urðu málferlin öll harla skrýtin.
Vitni urðu sum margsaga en erfitt
reyndist að henda reiður á fram-
burði annarra og fór svo að lokum
að Hermann var sýknaður í Hæsta-
rétti. Þá var hann sjálfur orðinn
forsætisráðherra.
Frásögn Elísar Snæland af þess-
um málarekstri öllum er fróðleg og
ýtarleg, á köflum spennandi. Eini
gallinn við hana er sá, að mínu mati,
að hann reynir ekki að leggja nógu
rækilegan sjálfstæðan dóm á niður-
stöðuna. Dómsorð Hæstaréttar er
óttalega loðið og ber þess vott að
dómararnir hafi ekki treyst sér til að
dæma mann sekan á grundvelli svo
lítilla sönnunargagna, sent þarna
var um að ræða.Af lestri frásagnar
Elísar er hins vegar næsta ljóst, að
allur málatilbúnaðurinn var til þess
gerður að ófrægja Herntann
Jónasson, trúlega vegna þeirra kosn-
inga, er í hönd fóru. Á þessu hefði
höfundur að skaðlausu mátt
hnykkja enn betur en hann gerir.
Hinar tvær frásagnirnar eru mikl-
um mun styttri og báðar dapurlegar,
fjalla um illa meðferð á börnum. Er
önnur þeirra austan af landi en hin
norðan úr Skagafriði. Báðar eru
þessar frásagnir með nokkrum ólík-
indum, en vel sagðar af hálfu Elísar.
í bókarlok er skrá yfir helstu
heimildir og allur frágangur bókar-
innar er höfundi og útgefanda til
sóma.
Jón Þ. Þór.
■ Elías Snæland Jónsson.
m * c o fíl*
-"faww
SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910 81266
Um öll heims
ins höf
Jón Steingrímsson: Kolakláfar og
kafbátar. Sjóferðaævintýri á stríðs-
árum og friðartímum.
Vaka - Helgafell 1985.
186 bls.
■ JónSteingrímssonheitirmaður,
upprunninn á Akureyri. Hann
hleypti ungur heimdraganum, réðst
í siglingar á seglskipum í langfart,
stundaði síðan aðrar siglingar með
útlendum eftir því sem pláss fékkst
og eyddi misgóðum dögum á „bísan-
um“ í Bordeaux. Að því búnu sneri
hann heim til fslands, stundaði
veiðiskap og nám og lauk stýri-
ntannsprófi. Þá tóku við siglingar á
Gullfossi gamla, en lauk er skipið
lokaðist inni í Kaupmannahöfn í
heimsstyrjöldinni síðari og Jón kom
heint ásamt öðrunt skipverjum um
Petsamo. Eftir heimkomuna tóku
við ýmsar siglingar, en lengst af
stríðsárunum var sögumaður á Sel-
fossi gamla, sem margir muna eftir
en fór síðan á önnur skip Eimskipa-
félagsins og var þar enn við sögulok,
þótt þá virðist sem mjög styttist í
dvölinni hjá óskabarninu.
Það sem hér hefur verið talið má
kalla meginstef þessarar bókar.
Farmennska hefur löngum heillað
íslendinga, enda ævintýrin oft á
hverju strái. Sögumaður fór ekki
varhluta af ævintýrum og mannhætt-
um, hvorki í stríði né friði. Hann
segir skemmtilega frá, lýsir lífinu á
ýmsum skipum, fjallar um eftir-
minnilegar sjóferðir, félaga og dvöl í
höfnum á lifandi og fjörmikinn hátt.
Á stundum verður frásögnin þó ansi
stórbrotinog það svo að saklaus les-
andi getur ekki varist þeirri hugsun
að nú hljóti sögumaður að ýkja. Það
getur þó á köflum verið fullkomlega
leyfilegt, - þegar stíll sögunnar
krefst.
Þetta er skemmtileg bók aflestrar,
og ekki ósennilegt að margir fyrr-
verandi skipsfélagar sögumanns og
vinir hafi gaman af að rifja upp með
honum liðna daga.
Jón Þ. Þór.