NT - 14.12.1985, Blaðsíða 4
- eftir Svanfríði Hagvaag
Kökuhús ffyrir börnin
■ Það er stór dagur fyrir börnin þegar á að fara að búa
til kökuhús fyrir jólin. En það fer oft þannig að það er
venjulegafullorðna fólkið sem skreytir húsið. Hér áeftir
kemur því uppskrift af kökuhúsi fyrir börnin. Það er
búið til úr kexi. Best er að nota heiíhveitikex, það þarf
líka að vera sem næst því að vera ferkantað. Best er að
hafa undir húsunum pappaspjald klætt með álpappír.
Síðan þarf að búa til sprautupoka. Hann er búinn til úr
þykkum smjörpappír sem er rúllað upp í kramarhús,
límið það saman með límbandi. Það er best að búa til
nokkur kramarhús fyrirfram þar sem það er ekki þægi-
legt að fylla aftur í þau. Notið frekar nýtt kramarhús í
hvert skipti. Húsið eru síðan límd saman með bræddum
sykri. Bræddur sykur er ekki fyrir börn þar sem hann er
mjög hetur svo það er best að það sé einhver fullorðinn
sem iímir saman húsin.
Kökuhús
heilhveitikex
sykur
glerjungur
sælgæti
Glerungur
(nógur í 4 hús
1. tsk.sítrónusafi
2 eggjahvítur
3 bollar eða meiri flórsykur
Blandið saman sítrónusafa ogeggjahvítum í litla skál.
Þeytið smám saman flórsykrinum saman við. Glerung-
urinn þarf að vera það stífur að ef hnífur er dreginn eftir
yfirborðinu sjáist farið greinilega.
Að setja saman húsin:
Látið2-3cm lagafsykri í þykkbotna pönnu. Hitið uppoghrærið
meðsleif þangað til sykurinn bráðnar. Sykurinn harðnar nijög fljótt
og þess vegna er nauðsynlegt að vera handfljótur við að setja saman
húsin. Hann erlíka mjög heitur þannigaöekki másnerta á honum.
Takið 4 kexkökur - ef kexið er ekki alveg ferhyrnt er lengri hliðin
látin snúa niður.
Dýfið styttri hliðunum á kcxinu í sykurinn og límið saman til að
inynda veggina. Dýfið síðan lengri hliðunum á tveim kexkökum til
að mynda þakið og festið það síðan við veggina. Haldið kexköku
upp að þakinu og merkið fyrir risinu. Leggið hana síða á borð og
ristið varlega þríhyrning. Snyrtið hana aðeins til ef með þarf. Dýfið
neðri enda þríhryningsins í sykurinn ásamt efsta hluta hans og límið
fast. Endurtakið fyrir liinn endann. Dýfið botninum á húsinu ofan
í sykurinn og límið fast á spjaldið. Nú geta svo börnin tekið við að
skreyta.
rn Laugardagur 14. desember 1985 Blað II 4
Ll y Neytendasíðan
Ljúffengir franskir
smáréttir á Hrafninum
■ Veitingahúsið Hrafninn við
Skipholt í Reykjavík hefur nú tek-
ið upp þá nýjung að bjóða gestum
sínum upp á franska smárétti í há-
deginu og á kvöldin.
Annar þessara rétta er svokallað
„croissant“ en það er fíngert
brauðhorn sem skorið er í þrennt og
síðan er aspas, skinku eða rækjum
komið fyrir á einum brauðhlutan-
um. Síðan er hellt yfir camen-
bertsósu með sérstöku krydd-
bragði og þar ofan á kentur rifinn
ostur. Þegar þetta allt saman er til
búið eru hinir brauðbitarnir settir
yfir og síðan er öllu saman stungið í
heitan ofn og bakað í smástund.
„Croissant“ er borið fram með
olíubornu salati með ristuðum
hnetum og kiwi ef vill.
Jón Viktorsson matreiðslumað-
ur á Hrafninum sagði að þessi rétt-
ur væri mjög vinsæll skyndimatur í
Frakklandi og væri hann í raun
svar Frakka við hamborgurum
Bandaríkjamanna, en Frakkareru
ekki eins hrifnir af þeim eins og
Bandaríkjamenn.
Hinn franski smárétturinn sem
Hrafninn býður upp á um þessar
mundir heitir á frummálinu
„quiche“ en það er brauðbotn með
eggjafyllingu, bragðbætt með
beikon eða skinku, sveppum eða
með sjávarréttum.
Þessi réttur er einnig mjög vin-
sæll í Frakklandi og fæst hann yfir-
leitt í flestum bakaríum og brauð-
búðum. Með honunt er einnig
framreitt salat og með báðum rétt-
unum er hægt að fá súpu.
Jón sagði það yfirleitt venju
Frakka að drekka kaffi með þess-
um réttum en í raun er þetta full-
komin máltíð sérstakiega ef súpan
er tekin með.
Þessir réttiy eru Ijúffengir og á
góðu verði, kosta 250 krónur og
allir þeir sem einhvern tíma hafa
dvalið í Frakklandi og kynnst þess-
um skemmtilegu réttum hugsa
eflaust gott til glóðarinnar að fá sér
góða súpu og „croissant“ eða „qu-
iché“ og rifja upp garnlar minning-
ar mitt í jólaösinni og þeir sem ekki
hafa verið í Frakklandi og kynnst
réttunum þar af eigin raun ættu að
drífa sig á Hrafninn og bragða
þessa ágætisrétti og ímynda sér að
þeir sitji á frönsku útikaffihúsi.
■ Jón Viktorsson matreiðslumaður á Hrafninum með hinn Ijúffenga
franska smárétt „croissant" tilbúinn.
NT-mynd Árni Bjarna.
Að sjálfsögðu býður Hrafninn
upp á fjöldamargt annað en þessir
tveir frönsku smáréttir eiga sér-
staklega upp á pallborðið hjá matf-
eiðslumanni Hrafnsins um þessar
mundir.
Dönsk jólastemn-
ing á veitinga-
húsinu Óðinsvé
■ Veitingahúsið Óðinsvé við
Óðinstorg í Reykjavík býður
gestum sínum upp á danskan
jólamat nú fyrir þessi jól, sem
undanfarin tvenn jól.
Gestir geta komið í hádeginu
alla virka daga og fengið sér af
hlaðborði t.d. „grisefleskesteg,
liver postej, salame, grise sylte,
kartoflesalat, brunkal, rugbröd“
og margt fleira og með þessum
kræsingum er hægt að fá jóla-
glögg á danska vísu eða aðra
drykki eftir eigin óskum.
Hlaðborðið er skreytt með
dönskum fánum eins og veitinga-
salurinn og nú geta fyrirtæki og
stærri hópar einnig fengið þennan
girnilega danska mat heimsendan
Veitingahúsið lánar diska,
glös, hnífapör, húshjálp og fleira
sem til þarf ogenginn þarfaðhafa
áhyggjur af uppþvottinum því
öllu ntá skila óhreinu aftur.
Að sögn Gísla Thoroddsen
yirmatreiðslumanns á Óðinsvéutn
hefur þetta danska jólahlaðborð
verið mjög vinsælt bæði af þeim
sent verið hafa á Danmörku og
þekkja matinn af eigin raun og
þeim sem eru alls ókunnugir.
Verði er rnjög stillt í hóf og
kostar maturinn af hlaðborðinu
570 krónur en heimsendingin
kostar 690 krónur á manninn.
Gísli segist hafa verið í Dan-
mörku um nokkurt skeið og vildi
bjóða löndum sínum upp á þenn-
an ágætis mat og auka þar með
upp á fjölbreytnina í matargerð-
inni, sem vissulega hefur tekið
stakkaskiptum hin síðari ár.
■ Yflrmatreiðslumennirnir á Óðinsvéum Gísli Thoroddsen og Stefán Sigurðsson bjóða gestum upp á
danskt jólahlaðborð í hádeginu fram að jólum
I íBi wStm 'Ea : nL. ifl
i v'/v’
m F fff IIIF