NT - 14.12.1985, Síða 14
mr Laugardagur 14. desember 1985 Blað II 18
LlL Umsögn
Aðalheiðar saga
Lífssaga baráttukonu. Inga Huld
Hákonardóttir rekur fcril Aðal-
heiðar Bjarnfreðsdóttur.
Vaka - Helgafell 1985.
229 bls.
■ Fyrsti kaflinn í sögu Aðalheið-
ar Bjarnfreðsdóttur ber yfirskrift-
ina „Er eitthvað að borða?“ og það
vel við hæfi. Aðalheiður ólst upp í
mikilli fátækt austur í Meðallandi.
í upphafi bókar lýsir hún á næsta
átakanlegan hátt allsleysi bláfá-
tæks barnafólks á fyrri hluta aldar-
innar. Hún greinir frá bernsku
sinni og æsku, frá foreldrum og
systkinum og lýsir glögglega heim-
ilisháttum á bernskuheimili sínu.
Hún segir frá fyrstu kynnum af
kenningum sósíalista, frá veru í
Vestmanneyjum, vonlitlu hjóna-
bandi og frá dvöl á Vífilsstöðum.
í öðrum þætti greinir frá fátækt-
arbasli í Reykjavík, búskap fyrir
austan fjall, frá ýmiss konar félags-
starfi og frá undirbúningi kvenna-
frídagsins fræga árið 1975.
Þriðji þáttur fjallar um þátttöku
Aðalheiðar í verkalýðsbaráttunni
og greinir þar ýtarlegast frá starf-
inu í Sókn, en einnig frá starfi í
samninganefndum, frá setu á ASÍ
þingum og framboðum þar.
Því er ekki að neita, að lífssaga
Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur er
fyrir flestra hluta sakir mjög at-
hyglisverð. Hún er sögð af hispurs-
leysi og stórskemmtilega skrifuð.
Aðalheiður hefur kynnst margvís-
legum erfiðleikum í lífinu, hún er
alin upp í sárri fátækt, hefur lengst
af ævinnar unnið erfiðisvinnu og á
síðari árum tekið virkan þátt í bar-'
áttu þeirra sem minnst mega sín
fyrir bættum kjörum. Þar - á vett-
vangi félagsmálanna - hefur hún
unnið feikimikið starf, sem seint
mun fullþakkað.
Við lestur þessarar bókar mun
engum dyljast, að Aðalheiður hef-
ur alla tíð verið mjög stéttvís. Hún
byrjaði að taka þátt í verkalýðsbar-
áttunni á unga aldri í Vestmanna-
eyjum og þótt nokkuð hlé yrði á
störfum hennar þar um skeið getur
engum dulist, að hún studdi ávallt
þá sem minna máttu sín. Af frá-
sögn hennar er ljóst, að hún á afar
sterka réttlætiskennd og það er
réttlætiskenndin, sem rekur hana
áfram í baráttunni, miklu fremur
en einhver pólitísk sannfæring.
Eins og áður sagði, er þessi bók
stórskemmtilega skrifuð. Aðalheið-
ur býr yfir sérkennilegri frásagnar-
gáfu, hún lýsir fólki og atburðum á
mjög ljósan hátt, dregur ekkert
Ásgeir Hvítaskáld:
Froskurinn sem
vildi fljúga
- barnaleikrit
á kassettu
■ „Froskurinn sem vildi
lljúga", heitir nýtt barnaleikrit
eftir Ásgeir Hvítaskáld, og kom
það nýlega út á kassettu. Þeir
Bessi Bjarnason og Árni
Tryggvason leika aðalhlutverkin,
en auk þeirra fara Klemens Jóns-
son og Elfa Gísladóttir með hlut-
verk í leikritinu. Leikstjóri er
Gísli Alfreðsson.
„Leikritið fjallar eins og nafnið
gefur til kynna, um frosk sem
dreymir um að læra að fljúga"
sagði höfundur í samtali við NT,
en þegar hann loks fær vængi,
kemst hann að raun um að það er
ekkert skemmtilegra að kunna að
fljúga en kafa, þannig að hann
tekur á ný upp sína fyrri lífshætti.
Æ tli að það megi ekki segja að í þessu
sé dálítill boðskapur.“
Er þetta fyrsta leikrit Ásgeirs
■ „Byrjaöur að spá í leikrita-
gerð,“ segir Ásgeir Hvítaskáld, en
frumraun hans á því sviði hefur
fengið góðar viötökur.
NT-mynd: Svcrrir.
Hvítaskálds, sem hingað til hefur
mest fengist við skáldsagna- og
Ijóðasmíð, en sagði hann að
leikritið hefði fengið betri viðtök-
ur en hann þorði að vona.
„Kassettuútgáfan er þegar á
sléttu, og fer líklega að borga sig
innan tíðar með þessu áframhaldi
hún er seld í flestum hljómplötu-
verslunum og ég er núna að reyna
að koma henni í bókaverslanir.
Mér finnst það vera mjög gott án
þess að hafa eytt krónu í auglýs-
ingakostnað.
Svo er það stærsti kosturinn við
þetta að geta hreinlega framleitt
þetta samhliða eftirspurn, því að
ef hún verður mikil tek ég upp á
spólur í samræmi við það, þannig
að áhættan við það að eiga stafla
af þessu á lager, er engin. Þessa
dagana hef ég ekki undan að setja
leikritið á kassettur."
Að lokum sagði Ásgeir Hvíta-
skálda tvær skálsögur væru í
smíðum hjá honum, en auk þess
væri leikritagerð farin að heilla
hann, einkum eftir að frumraun
hans á því sviðinu fékk þessar
ágætu viðtökur.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.
undan og hikar ekki við segja álit
sitt á mönnum og málefnum.
Mörgum kunna að þykja ýmsir
dómar hennar yfir samverkamönn-
um í verkalýðsforystunni harðir
og vinnubrögðin, sem hún lýsir við
samningagerð næsta fáránleg. Þar
mun þó ekkert ofsagt.
Inga Huld Hákonardóttir hefur
fært frásögn Aðalheiðar í letur og
verður ekki annað séð an að hún
hafi skilað sínu verki með miklum
sóma. Er þó oft í bókum, sem unn-
ar eru eins og þessi, erfitt að greina
í sundur hlut sögumanns og skrá-
setjara.
Fjölmargar myndir prýða bók-
ina og állur frágangur hennar er
með ágætum.
Jón Þ. Þór
Spennum beltin
ALLTAF
ekki stundum
Þjóðkunnir menn fjalla
um Jónas frá Hriflu
■ Komin er út bók í tilefni af
aldarafmæli Jónasar Jónssonar
frá Hriflu, þar sem þjóðkunnir
menn fjalla um og segja frá lífi og
starfi hins mikla stjórnmála-
skörungs. Gylfi Gröndal hefur
annast útgáfuna og skrásett hluta
efnisins.
Höfundar og viðmælendur eru
26 talsins: Valur Arnþórsson Er-
lendur Einarsson, Indriði G. Þor-
steinsson, Árni Bjarnarson, Finn-
ur Kristjánsson, Þórir Baldvins-
son, Þórarinn Þórarinsson, Jónas
Pálsson, Eggert Þór Bernharðs-
son, Guðmundur Sveinsson, Sig-
urvin Einarsson, Jón Sigurðsson
skólastjóri, Baldvin Þ. Kristjáns-
son, Haraldur Ólafsson, Halldór
E. Sigurðsson, Helgi Skúli Kjart-
ansson, Jón Baldvin Hannibals-
son, Andrés Kristjánsson, Har-
aldur Matthíasson, Aðalgeir
Kristjánsson, Þór Whitehead,
Leifur Sveinsson, Albert Guð-
mundsson, Halldór Kristjánsson
frá Kirkjubóli, Auður Jónasdótt-
ir og Gerður Steinþórsdóttir.
Hér er um safnrit að ræða, sem
hefur að geyma erindi, greinar,
ræður og viðtöl við samferða-
menn. Efnið er aðallega tvenns
konar: Annars vegar fræðileg
umfjöllun um einstaka þætti í
stjórnmálastarfi Jónasar, en hins
vegar persónulegar minningar
manna. sem þekktu hann vel og
störfuðu með honum. Margt af
efni bókarinnar hefur ótvírætt
heimildargildi og verður kær-
komið, þegar fram líða stundir og
farið verður að rannsaka feril
Jónasar með vísindalegum að-
ferðum.
í eftirmála bókarinnar, sem
Gylfi Gröndal skrifar, segir með-
al annars: „Jónas frá Hriflu var
umdeildur stjórnmálamaður...
Æ fleiri gera sér þó ljóst, hvílíkur
tímamótamaður hann var og hve
staða hans í þjóðarsögunni er sterk.
Menn hafa smátt og smátt áttað
sig á því, hve lífsstarf hans var
margþætt og mikilvægt. Valda-
dagar hans á vettvangi stjórnmál-
anna voru ekki ýkja margir, en
það er með ólíkindum, hve miklu
hann kom í verk. Merki um stór-
hug hans og framsýni sjást enn
um land allt.“
Samband íslenskra samvinnufé
laga gefur út bókin „Á aldaraf-
mæli Jónasar frá Hriflu“, en hún
er 264 bls. að stærð, prýdd fjöl-
mörgum myndum, þar af nokkr-
um litmyndum. Upplag er tak-
markað og bókin verður ekki
endurprentuð. Hún fæst í flestum
bókaverslunum, einnig hjá
Fræðsludeild Sambandsins,
Lindargötu 9A, sími 26344.
■ Jónas frá Hriflu