NT - 31.12.1985, Side 13
Þriðjudagur 31. desember 1985 13
Sjónvarp nýársnótt
kl. 00.10:
í sjónvarpssal
■ Að lokinni áraniptakveðjuRíkis-
útvarpsins, sem nýr útvarpsstjóri,
Markús Örn Antonsson, flytur nú í
fyrsta sinn, verður slegið upp ára-
mótaballi í sjónvarpssal og gefst
áhorfendum kostur á að taka óbein-
an þátt í því í beinni útsendingu.
■ Stuðmenn halda uppi fjöri á áramótaballi Sjónvarpsins.
Ballið stendur til kl. 2.
Ymislegt verður sér til gamans
gert á ballinu. Ómar Ragnarsson og
fleiri taka á móti gestum og kynna
ýmsar uppákomur og Stuðmenn
halda uppi fjöri.
Viöar Víkingsson sér um stjórn út-
sendingar.
Sjónvarp nýársdag kl. 20.30:
Land og synir
■ Land og synir, fyrsta kvikmynd-
in í margumtöluðu íslensku „kvik-
myndaævintýri", sem gerð var 1980
undir leikstjórn Ágústs Guðmunds-
sonar verður sýnd í sjónvarpinu á ný-
ársdagkl. 20.30.
Myndin er gerð eftir samncfndri
skáldsögu Indriða G. Þorsteinsson-^
ar. Hún segir frá því þegar ungur
bóndasonur leitar til borgarinnar á
árinu 1937 þegar kreppa og fjárpest
hafa þrengt mjög kost íslenskra
bænda. I borginni gerir hann sér von-
ir um bjartari framtíð.
Með aðalhlutverk fara Sigurður
Sigurjónsson, Guðný Ragnarsdóttir,
Jón Sigurbjörnsson, Jónas Tryggva-
son og Magnús Ólafsson.
■ '
-*.T
■ Farartæki og vegagerð voru með öðrum brag fyrir um 50 árum.
Utvarp nýársdag
kl. 17.00:
„Eins og
fáviti sem
manni þykir
vænt um“
■ Kl. 17 á nýrársdag cr í útvarpi
þáttur sem ber hið forvitnilega heiti
„Eins og fáviti sent manni þykir vænt
um". Það eru þeir rithöfundarnir og
nafnarnir Einar Kárason og Einar
Már Guðmundsson sem hafa tekið
saman efni um land og þjóð.
Nafn þáttarins er tekið úr Ijóðlfnu
eftir Pétur Gunnarsson og gefur tón-
inn um efni hans, scm einmitt verður
lestur á ýmsum textum fornum og
nýjum, sem tcngjast landinu og
þjóðinni segir Einar Kárason okkur.
Vitnað verður í mörg höfuðskáld
þjóðarinnar á ýmsum tímum, s.s.
Egil Skallagrímsson, Sigfús Daða-
son. Jónas Hallgrímsson og Pétur
Hoffman Salómonsson. Það er sem
sagt komið víða við á 1100 ára sögu
þjóðarinnar í þessu landi.
Útvarp fimmtudag kl. 14.
Ný framhaldssaga:
Ævintýramaðurinn
Jón Ólafsson
ritstjóri
■ Á fimmtudaginn kl. 14 hefst í út-
varpi lestur nýrrar miðdegissögu:
„Ævintýramaðurinn", af Jóni Ólafs-
syni ritstjóra, scm Gils Guðmunds-
son tók saman og les.
Jón Ólafsson var Austfiröingur að
ætt. prestssonur frá Kolfrcyjustað,
hálfbróðir Páls Ólafssonar skálds.
Jón var afar bráðþroska, orti mikið í
skóla og gaf út fyrstu bók sína 17 ára.
Tæpra 18 ára stofnaði hann blað og
■ Jón Ólafsson rítstjóri og alþingis-
maöur. Hann átti aö eigin sögn bara
eitt þarflegt þing!
gerðist ritstjóri þess. Varð ritstjórn
blaðs og tímarita sfðan ævistarf
lians ásamt stjórnmálaafskiptum.
Snemma þótti Jón harðskeyttur í
skrifum sínum og tannhvass og átti
oftar í harðvítugum blaðadeilum en
aðrir menn. Tvisvar á yngri árum
flýði hann land vegna málaferla og
yfirvofandi sekta- og fangelsisdóma.
í þriðja sinn fluttist hann búfcrlum til
Kanada eftir pcrsónulcg áföll og
stjórnmálaósigra. Heim kominn úr
Ameríkudvöl orti hann:
Ég fór hálfan hnöttinn kring
og hingað kom ég aftur,
ég átti bara eitt þarflcgt þing,
og það var - góður kjaltur.
Jón Ólafsson hafði mikil alskipti
af þjóömálum, sat öðru hvoru á Al-
þingi og lét þar mjög að sér kveða.
Fyrstur íslendinga hóf hann á loft
kröfuna um algcran skilnað íslands
og Danmerkur en geröist síðan
ákafur talsmaður sambandslagaupp-
kastsins 1908. Þrívegis sagði liann af
sér þingmennsku, tvisvar með
hurðaskellum og hávaða í ntótmæla-
skyni. En í öll skiptin var hann kos-
inn á þingaðnýjueftirstutteðalangt
hlé, cinatt með glæsibrag.
I þcssari frásögn er rakinn æviferill
Jóns, en lífslciö hans var „einatt
bæði hlykkjótt ogskykkjótt", einsog
Matthías Jochumsson komst aðorði.
Helstu efnisþættir frásagnarinnar
eru sóttir í rit hans og ritsmíðar í blöð-
um og tímaritum, dagbókarbrot og
bréf. Þá er og stuöst við eitt og annað
sem ritaö var um Jón, jafnl af vinum
scm andstæðingum.
Lcstrarnir verða 27.
Fimmtudagur
2. janúar
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Finnski
úlfurinn og rússneski refurinn" Vilborg
Dagbjartsdóttir les fyrri hluta þýðingar sinn-
ar á ævintýri eftir Christinu Andersson.
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleikar,
þulurvelurog kynnir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veöurfregnir. Tónleikar.
10.40 „Ég man þá tið“ Hermann Ragnar Ste-
fánsson kynnir lög frá liðnum árum.
11.10 Morguntónleikar a. „Benvenuto Cell-
ini“, forleikur eftir Hector Berlioz Concert-
gebouw-hljómsveitin i Amsterdam leikur-
Bernard Haitik stjórnar. b. „Næturljóö" eflir
Antonin Dvorák. St. Martin-in-the-Fields
hljómsveitin leikur. Neville Marriner
stjórnar. c. „Æskusinfónian” eftir Sergej
Rakhmaninoff. Concertgebouw-hljóm-
sveitin í Amsterdam leikur. Vladimir As-
hkenazy stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn. - Umsjón: Ragnar Jón
Gunnarsson.
14.00 Miðdegissagan: „Ævintýramaður",-
af Jóni Olafssyni ritstjóra Gils Guð-
mundsson tók saman og byrjar lesturinn.
14.30 Á frívaktinni Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalögsjómanna.,
15.15 Spjallað við Snæfellinga. Umsjón: Eö-
varö Ingólfsson.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 „Tónlist tveggja kynslóða" Siguröur
Einarsson kynnir.
17.00 Barnaútvarpið. Stjórnandi: Kristín
Helgadóttir.
17.40 Kór Öldutúnsskóla syngur. Egill Frið-
Teifsson stjórnar.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Siguröur G. Tómasson
flytur þáttinn.
20.00 „Réttur hins sterka“ Dagskrá um Ág-
úst Strindberg og verk hans. Arni Blandon
tók saman. Lesari: Erlingur Gislason. (Áöur
útvarpaö 15. september siöastliöinn).
21.00 Gestur f útvarpssal.
21.35 „Jólatréð og brúðkaupið", smásaga
eftir Fjodor Dostojevský. Baldur Pálma-
son þýddi. Róbert Arnfinnsson les.
22.00 Fréttlr. Dagkskrá morgundagsins. Orö
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Fimmtudagsumræðan - Á ísland sér
framtið? Umsjón: Bjarni Sigtryggsson.
23.00Túlkun í tónllst. RögnvaldurSigurjóns-
son sér um þáttinn.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
31. desember
10.00-10.30 Ekki á morgun ...heldur hinn
Dagskrá fyrir yngstu hlustendurna frá
barna- og unglingadeild útvarpsins.
Stjórnendur: Kolbrún Halldórsdóttir og
Valdis Óskarsdóttir.
10.30-12.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Páll
Þorsteinsson.
Þriggja minútna fréttir sagðar klukkan
11.00.
HLÉ
24.00-02.00 Áramótadansleikur í sjón-
varpssal Samtenging við sjónvarp.
02.00-05.00 Aramótaskaup Stjórnendur:
Ásgeir Tómasson og Gunnlaugur Helga-
son
Miðvikudagur
1. janúar
14.00-16.00 Fyrsti Nýársþáttur í umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar.
16.00-17.00 Nú er lag Gömul og ný úrvals-
lög aö hætti hússins. Stjórnandi: Gunnar
Salvarsson.
17.00-18.00 Þræðir Stjórnandi: Andrea
Jónsdóttir.
Fimmtudagur
2. janúar
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnendur:
Ásgeir Tómasson og Kristján Sigurjóns-
son.
HLÉ
14.00-15.00 í fullu fjöri Stjórnandi: Ásta R.
Jóhannesdóttir.
15.00-16.00 í gegnum tiðina Stjórnandi:
Jón Ólafsson.
• 16.00-17.00 Bylgjur Stjórnandi:Árni Daniel
Júliusson.
17.00-18.00 Gullöldin Lög frá sjöunda árat-
ugnum. Stjórnandi: Vignir Sveinsson.
Þriggja minútna fréttir sagöar klukkan 11.00,
15.00,16.00 og 17.00.
HLÉ
20.00-21.00 Vinsældalisti hlustenda Rás-
ar 2 Tíu vinsælustu lögin leikin. Stjórn-
andi: Páll Þorsteinsson.
21.00-22.00 Gestagangur Stjórnandi:
Ragnheiöur Davíösdóttir.
22.00-23.00 Rökkurtónar Stjórnandi:
Svavar Gests.
23.00-24.00 Poppgátan Spurningaþáttur
um tónlist. Stjórnendur: Jónatan Garö-
arsson og Gunnlaugur Sigfússon.
17.00-18.30 Ríkisútvarpið á Akureyri -
svæðisútvarp.
17.00-18.30 Svæðisútvarp Reykjavikur
og nágrennis (FM 90.1 MHz).
Þriðjudagur
31. desember
gamlársdagur
13.50 Fréttaágrip á táknmáli.
14.00 Fréttir og veður.
14.20 Púður i Prúðuleikurunum. Ný
brúöumynd eftir Jim Henson. Aöalhlut-
verk: Kermit froskur, Svínka, Fossi björn,
Gunnsi og aörir prúöuleikarar ásamt aö-
stoðarfólki þeirra. Aörir leikendur: Diana
Rigg, Charles Grodin, John Cleese, Ro-
bert Morley, Peter Ustinov og Jack
Warden. Kermit og Fossi hafi gerst frétta-
menn hjá Dagblaðinu og Gunnsi er Ijós-
myndari þeirra. Þeir halda til Lundúna til
aö hafa uppi á gimsteinaþjófum og þar
kemur Svinka þeim til aðstoðar. Þýöandi
ÞrándurThoroddsen.
15.55 Hlé.
20.00 Ávarp forsætisráðherra, Steing-
ríms Hermannssonar.
20.20 1985 - Innlendar og erlendar svip-
myndir. Fréttamenn Sjónvarpsins heima
og heiman stikla á stóru með áhorfendum
um ýmsa viðburði á árinu.
21.40 Áramótabrenna Bein útsending frá
áramótabrennu á Kársnesi i Kópavogi.
Leikflokkurinn Svart og sykurlaust,
söngvarar, harmónikuflokkur og annað
huldufólk skemmtir í beinni útsendingu
eftir þvi sem veður og aöstæöur leyfa.
Samtímis flytja ýmsir af vinsælustu
söngvurum þjóðarinnar þekkt áramóta-
lög í upptökusal Sjónvarpsins og verður
þeim skotiö inn eftir þvi hvernig útsending
frá brennunni gengur. Meöal flytjenda:
Egill Ólafsson, Kristján Jóhannsson,
Ragnhildur Gisladóttir, Kristinn Sig-
mundsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú)
og Kristinn Hallsson. Kynnir á áramóta-
brennunni verður Edda Andrésdóttir.
Stjórnandi Björn Emilsson.
22.35 Áramótaskaup 1985 Höfundar: Sig-
urður Sigurjónsson, Randver Þorláks-
son, Örn Ámason, Þórhallur Sigurösson
og Karl Ágúst Úlfsson. Leikarar auk
þeirra: Guöjón Pedersen, Edda Heiörún
Backman, Tinna Gunnlaugsdóttir og
fleiri. Leikstjóri Siguröur Sigurjónsson.
Tónlist Ólafur Gaukur. Upptökustjóri: Eg-
ill Eövarösson.
23.35 Kveðja frá Ríkisútvarpinu. Umsjón:
Markús Orn Antonsson, útvarpsstjóri.
00.10 Áramótaball Bein útsending frá ár-
amótaballi í sjónvarpssal. Stuömenn
halda uppi fjöri fram eftir nóttu. Ómar
Ragnarsson og fleiri taka á móti gestum
og kynna ýmsar uppákomur. Stjórn út-
sendingar: Viðar Vikingsson.
Dagskrárlok um klukkan tvö eftir miön-
ætti.
Miðvikudagur
1.janúar1986
nýársdagur
13.00 Ávarp forseta íslands. Forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir, flytur ný-
ársávarp sem síöan verður endursagt á
táknmáli.
13.30 1985 - innlendar og erlendar svip-
myndir. Endursýndur þáttur frá gaml-
árskvöldi.
14.45 Falstaff. Gamanópera eftirGiuseppe
Verdi. Arrigo Boito samdi textann eftir
leikriti Shakespeares „Kátu konurnar i
Windsor" en í því kemur drabbarinn Fal-
staff mjög viö sögu. Fílharmóníuhljóm-
sveitin í Vínarborg leikur. Herbert von
Karajan stjórnar. Flytendur: Giuseppe
Taddei, Roland Panerai, Francisco Ar-
aiza, Christa Ludwig, Janet Perry, Raina
Kabaiwanska, Trudelise Schmidt, Heinz
Zednik, Federico Davia og fleiri ásamt kór
og ballett Vinaróperunnar. Þýöandi Ósk-
ar Ingimarsson.
17.05 Jólastjarnan Bandarisk teiknimynd
um dreng sem fer í geimferð til að sækja
sér stjörnu á jólatréð i stofunni heima.
Þýöandi Reynir Haröarson.
17.30 Stundin okkar - endursýning. Við
jólatréð í sjónvarpssal.
18.30 Hlé.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.20 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Land og synir. islensk bíómynd frá
1980, gerö eftir samnefndri skáldsögu
eftir Indriða G. Þorsteinsson. Leikstjóri
Ágúst Guðmundsson. Aöalhlutverk: Sig-
uröur Sigurjónsson, Guöný Ragnarsdótt-
ir, Jón Sigurbjörnsson, Jónas Tryggva-
son og Magnús Ólafsson. Áriö 1937 hafa
kreppa og fjárpest þrengt mjög kost is-
lenskra bænda. Ungur bóndasonur kærir
sig ekki um aö feta í fótspor feðranna og
axla skuldabaggana en leitar til borgar-
innar i von um bjartari framtiö.
22.10 Skrautsýning á svelli. John Curry,
fyrrum ólympiu- og heimsmeistari, sýnir
skautadans ásamt flokki sinum í Albert
Hall i Lundúnum.
23.10 Dagskrárlok.
Föstudagur
3. janúar
19.15 Á döfinni. Umsjónarmaöur Karl Sig-
tryggsson.
19.25 Kalli varamaður. Sænsk barnamynd
um Kalla sem aldrei fær aö vera meö hin-
um strákunum i fótbolta. Hann veröur aö
láta sér nægja aö sækja fyrir þá boltann
eöa leika viö Fríöu i næsta húsi. (Nor-
dvision - Sænska sjónvarpiö)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Skonrokk. Poppannáll ársins 1985.
Umsjónarmenn Haraldur Þorsteinsson
og Tómas Bjarnason.
21.40 Derrick. Tólfti þáttur. Þýskur sakam-
álamyndaflokkur. Aöalhlutverk: Horst
Tappert og Fritz Wepper. Þýöandi Vetur-
liði Guönason.
22.40 Seinni fréttir.
22.45 Óblitt land. (Hard Country) Banda-
risk bíómynd frá 1981. Leikstjóri David
Greene. Aðalhlutverk: Jan-Michael
Vincent, Kim Basingerog Michael Parks.
00.30 Dagskrárlok.