NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 31.12.1985, Qupperneq 15

NT - 31.12.1985, Qupperneq 15
 Þriðjudagur 31. desember 1985 15 ■ Þegar NT spurði Reyni Pétur að því hvort hann hefði áður farið hringinn sagði garpurinn: „Iss, það var nú bara i bíl,“ Ogsveiaði. NI-myndAn. Reynir Pétur safnaði 7 millj. kr. - göngugarpurinn vinsæli maður ársins „Ég er svo montinn með íslands- gönguna að ég ræð ekki við mig. Ég er búinn að sjá svo margt að það er eins og ég sé í Paradís," sagði göngugarpurinn glettni Reynir Pét- ur Ingvarsson þegar 12-14 þúsund manns hylltu hann eins og þjóð- hetju áLækjartorgi í Reykjavík25. júní. Reynir Pétur hafði þá gengið langleiðina hringinn í kringum landið, tæplega 1500 km, og átti þá . einungis eftir spottann til Selfoss og þaðan aftur til Sólheima. Marg- sinnis þurfti að stöðva gönguna svo að Reynir Pétur kæmi ekki á undan áætlun til Lækjartorgs. Hann var reyndar á undan áætlun alla göng- una. Upphaflega var talið að hann yrði 5-6 vikur með hringinn en Reynir fór létt með að ganga vega- lengdina á rétt rúmum fjórum vikum. Má með sanni segja að öll þjóðin hafi fylgst með honum af al- hug enda er göngugarpurinn Reyn- ir Pétur án efa vinsælasti maður ársins. Og eftir að göngunni lauk héldu menn meira að segja áfram að heita á Reyni og fróðir menn tjá NT að það hafi reynst sérstaklega árangursríkt. Fyrir jólin var þjóðhetjan síðan upptekinn við að undirrita bók sína og Eðvarðs Ingólfssonar um göng- una. Þá var fólk enn að rétta hon- um umslög með peningum og í árs- lok hafa því safnast rúmlega 7 milljónir, og íþróttaaðstaða fatl- aðra ætti því að geta tekið breyting- um til betri vegar. Grafarvogur símalaus! - nú hafa 230 heimili fengiö síma „Hundruð íbúa Grafarvogs sam- bandslausir við umheiminn," sagði NT í fyrirsögn að frétt í janúar sl. Um 200-300 íbúar Grafarvogs (um 160 samkvæmt þjóðskrá 1. des. 1983) voru á vissan hátt einangr- aðri við umheiminn en þótt þeir hefðu búið á Hólsfjöllum, nema hvað styttra var til annarra manna- byggða. Einna verst þótti fólki al- gert símasambandsleysi - sérstak- lega með tilliti til þess ef eitthvað óvænt bæri að - eldsvoða, veikindi eða slys. En aðra þjónustu var þar heldur enga að hafa, t.d. strætis- vagnaferðir, skóla, verslanir eða annað slíkt. Samkvæmt upplýsingum sím- stjórans í Reykjavík eru nú komnir um 230 símar í Grafarvog, sem gæti bent til þess að þangað hafi nú flutt um þúsund manns. Grafarvogur er því orðinn álíka fjölmennur byggðakjarni og t.d. Þorlákshöfn, Patreksfjörður, Blönduós og Eski- fjörður, en á þesum stöðum búa um 1.080-1.090 manns. Álíka fjöldi býr í heilli sýslu - Dalasýslu. I Grafarvogi þarf nú enginn lengur að bíða mánuðum saman eftir svo nauðsynlegu tæki eins og síminn er. Jafnframt má geta þess að þar er nú ný símstöð í smíðum. Af annarri þjónustu má nefna að nýr skóli - Foldaskóli - var opn- aður í haust þar sem yfir 160 börn 6-14 ára hófu nám í september. Strætisvagnar hafa nú hafið akstur í Grafarvog. Bensínstöð hefur opn- að í hverfinu, þar sem seldar munu ýmsar brýnar nauðsynjar sem ekki er til siðs að selja á bensínstöðvum, meðan beðið er eftir verslun á staðnum - en verslunarmiðstöð er í smíðum. „Höfum orðið fyrir miklum þrýstingi“ - segir Hjalti Einarsson, framkvæmdastjóri SH ■ Islendingar samþykktu að gangast inn á bann Álþjóðahval- veiðiráðsins við hvalveiðum á næsta ári. í samþykkt þessari er heimild fyrir einstök aðildarríki ráðsins til að veiða hvali í vísindaskyni, enda einn megin tilgangur bannsins að rannsaka og kanna ástand hvala- stofnanna. Þann 24. maí tilkynnti Halldór Ásgrímsson síðan nýja rannsóknaráætlun sem Hafrann- sóknarstofnunin gerði en í henni fólst að veiddar yrðu 40 sandreyð- ar, 80 langreyðar og 80 hrefnur, á ári hverju fram til 1990. Á grund- velli þessara rannsókna á síðan að taka ákvörðun um áframhaldandi veiðar. Náttúruverndarmenn víða um heim túlkuðu þessa rannsóknar- áætlun hins vegar sem dulbúning á áframhaldandi veiðum í atvinnu- skyni, og mótmæltu kröftuglega þegar líða tók á sumarið. Halldór Ásgrímsson kynnti þessa áætlun nteðal annars á ráðstefnu í London í júlí, en málflutningur íslendinga fékk lítinn hljómgrunn hjá um- hverfissinnum og skipulögðum samtökum þeirra. I ágúst náði þessi umræða síðan hámarki hér heima, en þá komu skip Green Peace manna, Sirius, og hið kanadíska Sea Sheapard hingað til lands. Sea Sheapard var á leið til Færeyja þar sem hinn sjálfskipaði umhverfis- lögreglumaður Paul Watson hugð- ist hindra veiðar Færeyinga á grind- hvölum. Green Peace menn voru hingað komnir í friðasamlegum er- indum að eigin sögn og vildu síður vera bendlaðir við hinn herskáa Watson. Heldur þótti för þeirra Green Peace manna sneypuleg, enda voru þeir illa undirbúnir og höfðu litla þekkingu á málum hér við land og áttu fá svör önnur en slagorð við málatilbúnaði íslend- inga. Hvalaævintýrinu lauk þó engan veginn með burtför þessara skipa. Samtök hvalaverndunarmanna eru vel skipulögð og öflug og kom það meðal annars til tals að þeir ætluðu að beita sér fyrir því að íslenskur fiskur yrði hunsaður á Bandaríkja- markaði. Enn hefur ekki orðið vart við að salan hafi dregist saman, en ógerlegt er að segja Itvað gerist þegar hvalveiðar í vísindaskyni hefjast næsta sumar. Nú þegar hafa umhverfisverndunarsamtök í Bandaríkjunum skorað á fólk að skrifa viðskiptaaðilum íslendinga og íslenskum fyrirtækjum í Banda- ríkjunum mótmælabréf og hafa þúsundir slíkra bréfa borist. Hjalti Einarsson framkvæmda- stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna sagði í samtali við NT að fyrirtækið væri í mjög erfiðri að- stöðu. Hann sagði að samúð SH væri vissulega hjá hvalarannsókn- um íslendinga en þeir yrðu að at- huga sinn gang í Bandaríkjunum. „Það er ljóst að almenningur, lög- gjöf og jafnvel stjórnvöld í Banda- ríkjunum eru mjög hval- verndunar sinnuð og því höfum við talsverðar áhyggjur af hvalveiðum í vísindaskyni," sagði Hjalti. „Stærstu viðskiptavinir okkar og okkar fyrirtæki í Bandríkjunum hafa orðið fyrir mjög miklum þrýst- ingi, og áhrif samtaka umhverfis- sinna ætti ekki að vanmeta. Það er okar mat, að þarna geti einfaldlega verið um það að ræða, að meiri og mikilvægari hagsmunum sé fórnað ■ Mannskæðasta slys ársins varð að kvöldi 27. mars þegar Bervík SH 43 sökk í mynni Rifshafnar með fímm manna áhöfn. Þessi mynd hirtist i NT 29. niars og sýnir leitarmenn ráða ráðuni sínum við hafnargarðinn í Rifi á Snæfellsnesi. N'l'-mvnd Ámi lljarmi. fyrir minni og lítilvægari hagsmuni. Korni það í Ijós þegar hvalveiðarn- ar byrja aftur og á þetta fer virki- lega að reyna, að íslenskur fiskur seljist ekki í Bandaríkjunum af þessu sökum reikna ég með að við munurn reyna að hafa áhrif á stjórnvöld til að hætta þessum lival- veiðum," sagði Hjalti að lokum. Faum ennþá hamingjuóskir - segir Magdalena Schram Fegurðarsamkeppni var haldin á árinu, eins og flest önnur ár og væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi ef „brandarakarlinn” og borgar- stjórinn Davíð Oddsson hefði ekki látið þau umntæli falla við krýning- arathöfnina að ef þessar 13 föngu- legu stúlkur sem tóku þátt í feg- urðarsamkeppninni væru í I3efstu sætum Kvennaframboðsins þá yrði framboð annarra flokka svo von- laust að þeir myndu hætta við að bjóða fram! Borgarfulltrúar Kvennafram- boðsins sáu sér leik á borði og mættu á borgarstjórnarfund 7. j úní í síðum kjólum með pappakórónur á höfði og konur í Kvennafram- boðinu fylltu áheyrandabckki borgarstjórnar í sömu múnder- ingu. Allar báru þær borða um sig miðjar og þarna mátti sjá Ungfrú sí- unga, Ungfrú þögla, Ungfrú undir- leita o.tl. Guðrún Jónsdóttir eða Ungfrú mcðfærileg, eins og hún kailaði sig sagði á fundinuni að borgarstjóri hefði gerst opinber fulltrúi karl- rcmbunnar mcð ummælum sínum og hefði sýnt sinn innri mann með því að reyna að vera fyndinn á kostnað kvenna. Davíð Oddsson sjálfur var hvumsa, brást hinn versti við og sagðist aldrei hafa upplifað annað cins í 11 ára setu sinni í borgar- stjórn og taldi fulltrúa Kvenna- framboðsins hafa orðið sér til minnkunar og borgarstjórn til van- sæmdar. „Þetta var geysiskemmtileg uppákoma og af öllu því sem Kvennaframboöið hcfurgert hefur þetta vakið mestu athygli og mestu hrifningu. Fólk cr meira að segja enn að óska okkur til hamingju með þetta,“ sagði Magdalena Schram borgarfulltrúi Kvenna- framboðsins í samtali við NT.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.