Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.2004, Qupperneq 1
Laugardagur 7.8. | 2004 | 32. tölublað | 79. árgangur
[ ]Sjálfsmyndin| Grúskað í fortíðinni, brugðist við samtímanum og leitað að sjálfsmyndinni | 4Harry Potter|Ævintýraheimur Harrys Potters er draumaveröld nýfrjálshyggjumanna |7 Taxi driver| Tilgangslaust blóðbað er upphafið sem hetjudáð í tímamótamynd Scorseses |8
LesbókMorgunblaðsins
H
vernig hefur bókinni, The Smoking Di-
aries, verið tekið?
Viðtökurnar hafa verið framúrskar-
andi.
Kveiktirðu þér í fyrstu sígarettunni
ef þú færir aftur í tímann með þá vitn-
eskju sem þú býrð yfir núna?
Mér finnst ekki sérstaklega gott að
vera reykingamaður og þekki ekki nokkurn lifandi mann sem
finnst það. Tvennt ólíkt er að þykja gott að vera reykingamað-
ur og þykja gott að reykja sígarettur. Mér þætti betra að vera
ekki reykingamaður en ég er reykingamaður.
Hefurðu reynt að hætta?
Ég hætti einu sinni í hálft ár og tuggði jórturleður með nikó-
tíni en mér fannst það ansi ógeðslegt. Mér leið miklu verr af
því en reykingunum og fékk reyndar martraðir þar sem ég
rogaðist með stórar klessur af nikótíntuggugúmmíi með hári.
Ég hætti þessu og byrjaði aftur að reykja og leið strax miklu
betur.
Var mikill munur á að hætta að reykja og hætta að drekka?
Ég mátti til að hætta að drekka af því að ég var við dauðans
dyr. Ég gat valið milli þess að halda áfram að drekka og geispa
golunni innan skamms af því að lifrin í mér var orðin handónýt
eða hætta; og ég hætti. Ef ég stæði í sömu sporum með reyk-
ingarnar held ég að ég reyndi þá að hætta að reykja.
Hvenær hættirðu að drekka?
Þegar leið yfir mig á veitingahúsi eftir kampavínsglas. Ég
var einmitt að segja Alan Bates frá því að læknirinn minn hefði
sagt að ég yrði að hætta að drekka. Þetta var fyrir sjö árum.
Sérðu eftir því að hafa drukkið?
Nei, nei, ég skemmti mér oft frábærlega þegar ég drakk. Og
ég skrifaði mörg leikritin mín drukkinn. Ég held að það hafi
frelsað mig á einhvern hátt.
Varstu illgjarn undir áhrifum?
Ég var stundum svolítið kvikindislegur en aldrei árásar-
gjarn. Lausmáll líka svo ýmislegt sem ég sagði þá myndi ég
ekki segja núna. Þegar ég fer í matarboð líður mér bölvanlega
því allir drekka nema ég og þegar fólkið drekkur breytist það;
allir nema ég. Ég er fastur í mínu allsgáða sjálfi. En ég hef
ekkert á móti áfengisdrykkju. Ég styð hana eindregið og vildi
ég gæti drukkið sjálfur.
Reiður vas Ving-þór …
Heldurðu að reykingar verði fyrr eða síðar bannaðar með
lögum?
Já, það held ég. Líklega finna þeir upp nýjan glæp. Rétt eins
og menn tala um glæpi sem tengjast eiturlyfjum tekst þeim að
sjóða saman glæpi sem tengjast sígarettum með því að gera
tóbakið svo dýrt eða banna það eins og eiturlyf, það verði ólög-
legt að hafa tóbak í fórum sínum. Fólk neyðist til að borga
morð fjár fyrir sígarettupakka svo að fíklarnir fremja glæpi til
að fá skammtinn. Þeir bæta ekki úr neinu með því að
Simon
Gray
Játningar
reykingamanns
Stórreykingamaðurinn Simon Gray er eitt ástsælasta leik-
skáld Breta. Nýverið hóf göngu sína í Lundúnum nýtt leikrit
eftir Gray, Old Masters, en Harold Pinter leikstýrir og Peter
Bowles og Edward Fox leika helstu hlutverk. Simon Gray á
að baki öndvegisleikrit á borð við Butley, Melon, The Com-
mon Pursuit og Cell Mates. Gray hefur og samið urmul af
bráðskemmtilegum dagbókum en sú nýjasta í röðinni, The
Smoking Diaries, kom út á dögunum.
Eftir Jónas Knútsson | j.knutsson@worldnet.att.net
3