Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.2004, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.2004, Page 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 11. september 2004 ! Fór í leikhús um daginn. Mikið afskaplega var það nú leið- inlegt. Það er alveg merkilegt hvað manni getur leiðst mikið við að horfa á lélega leiksýn- ingu. Ef sagan er ekki grípandi, þá getur ekkert bætt það upp. Öll sýningin verður samdauna, leik- myndin, búningarnir, leikararnir – það vantar herslumuninn allstaðar. Fram- vindan verður löturhæg; endalaus tími til að grandskoða illa máluð leiktjöld, gervilega förðun, ótrúverðuga búninga. Snilldartilþrif í leik fara fyrir ofan garð og neðan, góður söngur skiptir ekki máli og dansspor eru bara eitthvert sprikl. Það hellist yfir mann óbærilegt eirðarleysi. Maður fer að finna fyrir óþægindum í baki og rassi. Það er annaðhvort of heitt í salnum, eða of kalt. Lyktin af hinum áhorfendunum verður uppá- þrengjandi og þá sérstaklega á frum- sýningu – þá er nefnilega notaður vænn aukaskammtur af rakspíra og ilmvatni. Ég hef oft dundað mér við að rannsaka fólkið í kringum mig. Maður rekur aug- un í t.d. skrýtinn fæðingarblett á hálsi, flösu á öxlum, loðin eyru o.s.frv. Einu sinni lét ég mér leiðast á farsa, sem mér þótti ekki fyndinn. Aftur á móti tók maðurinn sem sat fyrir framan mig bakföll af hlátri. Þá gafst mér kjörið tækifæri til að rannsaka hvað hann var kafloðinn innan í nefinu. Það var mjög athyglisvert. Maður sleppur ekki út, það væri of áberandi. Heil röð þyrfti að standa upp. Leikararnir mundu taka eftir því; það væri mjög gróf móðgun – sem ég vil ekki leggja á þá, greyin. Svo kemur hlé, sem er oftast allt of langt – og þá gæti maður látið sig hverfa – en maður þrjóskast við. Miðinn kostaði svo og svo mikið. Líklega er sýningin styttri eftir hlé. Kannski er seinni hlutinn skárri? En það er hann reyndar aldrei. Ég hef misst af öllum sýningum í heilu leikárin eftir svona reynslu. Það tekur marga mánuði, jafnvel ár, að gleyma, fyrirgefa, byggja upp traustið aftur – og forvitnina, til að maður taki áhættuna á ný. En af hverju er þetta svona erfitt? Það er ekki svona sterk upplifun að horfa á lélega bíómynd í kvikmynda- húsi. Það eru ekki eins mikil vonbrigði, þó að myndin sé slöpp. Maður situr bara rólegur og kvikmyndin líður hjá. Í versta falli er það bara ómerkileg tíma- eyðsla. Bindur maður of miklar væntingar við leikhús? Er maður að gera sér of mikinn dagamun; sparifötin eru dregin fram, það er farið út að borða, allir mæta tímanlega, númeruð sæti og ekki hleypt inn í salinn eftir að sýningin hefst ... Er það af því að þarna er alvöru fólk uppi á sviðinu? Það gengur í gegnum þessa erfiðleika kvöld eftir kvöld. Stundum nær maður óvart augn- sambandi við leikara. Getur hann séð það á mér hvað mér leiðist? Heyrir hann að ég klappa frekar lítið? Að ég hlæ ekki þegar til þess er ætlast? Kannski er þetta sameiginleg upp- lifun, af því að við erum undir sama þaki, öndum að okkur sama súrefninu. Maður er gerður að þátttakanda í ein- hverju sem maður er ekki sáttur við. Þetta eru samræður áhorfandans og höfundarins, þar sem maður ræður ekki framvindunni – og maður getur ekkert sagt. Og maður neyðist til að klappa með í lokin. Ég hef sennilega aldrei sleppt því að klappa. Meira að segja í arfalélegum sýningum, þá eru leik- ararnir klappaðir upp, aftur og aftur. En á nákvæmlega sama hátt eru góð- ar leiksýningar einhver sú sterkasta upplifun sem maður getur orðið fyrir. Þar er maður til í að standa á fætur og hrópa bravó og taka þátt í öllum til- gerðarpakkanum – af því að maður er þátttakandi. Það verður ekki umflúið. Og þá er maður stoltur af því. Að hafa valið þessa sýningu. Að hafa tekið séns- inn – og uppskorið ríkulega. Leikhús dauðans Eftir Óskar Jónasson evita@internet.is Virðing fyrir börnum er áberandi íSvíþjóð. Þeim er heilsað meðhandabandi, talað er við þau einsog fullgilda þegna, þau eru spurð álits og á þau er hlustað. Fjölmiðlarnir tala líka til þeirra með virðingu og bjóða þeim upp á fleira en bandarískar teiknimyndir. Bolibompa heitir barnatíminn í sænska rík- issjónvarpinu og á þeim klukkutíma sem hann var- ir á hverjum degi eru vissulega fáeinar banda- rískar teiknimyndir inn á milli en þær eru ekki uppistaðan eins og ég fullyrði að íslensk börn eigi að venjast. Einhvern veginn var manni farið að þykja eðlilegt að eina innlenda dag- skrárgerðin fyrir börn væri Stundin okkar, hálftíma á viku. En þegar til Svíþjóðar er komið og sjónvarpið notað til að læra málið, streyma fram sænskir fræðsluþættir, fréttir, íþróttaþættir, matreiðsluþættir og afþreying- arefni – allt ætlað börnum – og það rennur upp fyrir manni ljós: Auðvitað er nauðsynlegt að búa til meira vandað efni fyrir börn. Því það verður að segjast að Stundin okkar virð- ist hvorki mjög vandað efni né mikið. Á hverjum degi er einhver innlend dag- skrárgerð fyrir börn í sænska ríkissjónvarp- inu. Og til að gefa íslenska Ríkissjónvarpinu nokkrar hugmyndir: Lilla Aktuelt: Fréttir fyrir börn. Börnum sagðar heimsfréttirnar á aðgengilegan máta og spurningar frá börnum notaðar. T.d. var fréttaritari í Rússlandi spurður: Varstu hræddur að vera á staðnum þar sem teknir voru gíslar? Utanríkisráðherra Svíþjóðar kom í viðtal um málið og sýndi barnafrétta- tíma því sömu virðingu og fullorðinsfrétta- tíma. Önnur frétt: Tíu ára strákur talar við ís- hokkíhetjuna sína um að hann virðist alltaf vera reiður úti á svellinu – er hann svona fyr- ir utan svellið líka? Og hvenær grét hann síð- ast? Börn eru í fréttamannahlutverki í sum- um fréttum, fullorðnir í öðrum. Lilla Sportspegeln: Íþróttaþáttur fyrir börn. Landsliðskona í fótbolta kennir knatt- tækni, júdó er kynnt og fjallað er um íþróttir barna af börnum fyrir börn. Hentar full- orðnum víst líka. Umsjónarmennirnir eru tveir, karl og kona, og þau eru eðlileg en ekki með endalaust sprell og læti. Það þarf nefni- lega ekki þó svo verið sé að tala til barna. Hjärnkontoret: Fræðsluþáttur þar sem ýmsum spurningum er svarað: Af hverju verður maður brúnn af því að vera úti í sól- inni? Og maður bara spyr: Af hverju eru þættir eins og Nýjasta tækni og vísindi á dagskrá um tíuleytið á kvöldin í íslensku sjónvarpi eða enn verra: þeir teknir af dag- skrá? Vísindavefurinn gæti nefnilega verið góð uppspretta í fræðsluþátt fyrir börn. Myror i brallan: Náttúrufræðsla. T.d. um slöngur og hvernig er hægt að þekkja högg- orma? (Eitthvað sem maður þarf raunveru- lega að vita í sænskum skógum). Fróðleikur settur fram á skemmtilegan hátt með hæfum umsjónarmönnum. Rätt i rutan: Matreiðsluþáttur. Hrærivélin er önnur af aðalpersónunum og kemur með fróðleiksmola um hitt og þetta sem viðkemur bakstri og matreiðslu. Svo eru það sögupersónur þjóðhetjunnar Astrid Lindgren sem spretta fram í leiknum myndum og teiknimyndum. Kalli á þakinu, Maddit, Lína Langsokkur og Emil í Kattholti eru félagar sem koma oft í heimsókn og eru satt að segja mun skemmtilegri en blessað Disney-draslið. Nú þarf Ríkissjónvarpið og e.t.v. aðrar sjónvarpsstöðvar að taka sig saman í andlit- inu og bjóða börnum á Íslandi upp á eitthvað meira en Disney-stundina, lélegar teikni- myndir, Stundina okkar og einstaka sam- norræna stuttmynd. Bolibompa ’En þegar til Svíþjóðar er komið og sjónvarpið notað tilað læra málið, streyma fram sænskir fræðsluþættir, fréttir, íþróttaþættir, matreiðsluþættir og afþreying- arefni – allt ætlað börnum – og það rennur upp fyrir manni ljós: Auðvitað er nauðsynlegt að búa til meira vandað efni fyrir börn. ‘ Fjölmiðlar eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@mbl.is 1. Stundum losnar fylling úr tönn / þá er ráð að koma frímerkjasafninu í verð. 2. Stundum fer lampi í sjónvarpinu / þá er ráð að draga stöðumælavörðinn á tálar. 3. Stundum sýður upp úr pottinum / þá er ráð að ganga úr þjóðkirkjunni. 4. Stundum berst bréf frá skattayfirvöldum / þá er ráð að íhuga vængjuð strau- járn. 5. Stundum finnast ekki gleraugun / þá er ráð að mótmæla lægðunum yfir Græn- landi. 6. Stundum er strætisvagninn nýfarinn / þá er ráð að endurmeta hjúskaparstöð- una 7. Stundum ætlar allt um koll að keyra / þá er ráð að sækja gömlu sundhettuna upp á háaloft 8. Stundum verður bíllinn bensínlaus / þá er ráð að geyma spiladós í hanskahólf- inu. 9. Stundum gleymist að kaupa mjólk / þá er ráð að sáldra hveiti yfir pottablómin 10. Stundum stíflast eldhúsvaskurinn / þá er ráð að ganga í Bifhjólasamtök lýð- veldisins. Óskar Árni Óskarsson www.Bjartur.is Grænhöfði heldur við Maríu Callas Hvað er með álitsgjöfum? Hvenær varð orðið álitsgjafi til? Sennilega fyrir nokkrum mánuðum eða árum; nú tíðkast að gefa álit á álitsgjöfum, oft ekki jákvætt. Þetta leiðir hugann að lífinu almennt, því sem er einkalegt en ekki opinbert. Í lífinu er til að mynda að finna gifta konu sem nefnist María Callas. Hún er alnafna söngkonunnar frægu, síkát og fjörug og eiginkona bakarans í bæn- um Losna, 15 kílómetra frá Ribeira Grande á eyjunni Santo Antão sem tilheyrir Grænhöfðaeyjum. Grænhöfði býr í Losna. Grænhöfði heldur við Maríu Callas. Bakaranum, sem heitir Pedrinho, er vel kunnugt um ástarfundi Grænhöfða við Maríu Callas, sem eiga sér til að mynda stað í rómantísku rjóðri í vegkanti á jaðri bæjarins. Pedrinho gleðst yfir sambandinu. Raunar er hann hommi. Það vita allir bæjarbúar nema hann sjálfur. Pedrinho hefur ekki haft tíma til að leggja rækt við eðli sitt og því er það honum að mestu hulið. En hann er feginn að einhver nennir að sinna eiginkonunni. Grænhöfði Kistan www.kistan.is Skáld gefur ráð Morgunblaðið/Ómar Var Lautréamont greifi á ferðinni? I Meirihlutinn hefur ekki alltaf rétt fyrir sér.Meirihlutinn hefur til dæmis ekki gott gild- ismat, hann er iðulega úti á þekju þegar kem- ur að því að meta hvað er fagurt og gott. Það er auðvelt að benda á dæmi eins og Hitler sem fylkti fjöldanum á bak við sig í Þýska- landi nasismans en hafði tvímælalaust rangt fyrir sér; hann hafði ekki fallegan og góðan málstað. Fleiri söguleg dæmi mætti tína til en það magnaðasta blasir þó við í samtíma okkar. Ein skýrasta sönnun þess að meirihlutinn hefur ekki alltaf rétt fyrir sér er glámskyggni markaðarins á það sem er fagurt og gott. Það sem markaðurinn hefur ákveðið að sé besti kosturinn með sinni grimmilegu útilokunar- aðferð er ekki endilega rétt. Markaðurinn kann að verðleggja hluti með kolröngum hætti bara vegna þess að hann er fávís um það sem skiptir máli, vegna þess að gildismat hans er brenglað, vegna þess að hann er blindaður af flottheitakröfum og innantómu stjörnugliti, tilgangslausum umbúðum. II Um þetta höfum við tvö mjög skýr dæmifrá íþróttaviðburðum sumarsins. Á Evr- ópukeppni landsliða í knattspyrnu í júní brugðust þeir leikmenn sem markaðurinn hefur verðlagt hæst og raunar sannfært okk- ur flest um að séu þeir bestu – já, og falleg- ustu í heimi hér um þessar mundir. Liðin sem voru skipuð þessum leikmönnum, sum jafnvel í nánast hverri einustu stöðu innan sem utan vallar (Frakkarnir, Englending- arnir, Ítalirnir, Spánverjarnir, Hollending- arnir), þurftu að yfirgefa Portúgal með skít og skömm. Liðin sem voru skipuð fáum ef nokkrum nafntoguðum leikmönnum stóðu sig aftur á móti undantekningarlítið vel. Lið Grikkja, sem hafði engan þekktan knatt- spyrnumann innanborðs, stóð uppi sem sig- urvegari á mótinu. Það sama gerðist síðan í körfuknattleikskeppni Ólympíuleikanna í Aþenu í ágúst. Þar mættu Bandaríkjamenn með ofurlaunaða, markaðsdýrkaða leikmenn sem héldu að þeir væru mættir til þess að sitja fyrir á ljósmyndum leikmanna annarra liða. Í fyrsta leik voru þeir teknir í bakaríið af Puertó Ríkó, síðan af Litháum og svo af Arg- entínumönnum. Allir höfðu talið öruggt að Bandaríkjamenn myndu sigra í körfuknatt- leikskeppninni að vanda en á endanum tókst þeim að bjarga sér fyrir horn með því að vinna til bronsverðlauna. III Markaðurinn er ekki eins stórkostlegttæki og hann lítur út fyrir að vera. Það stirnir oft á hann eins og stórkostlegt sig- urverk en þegar betur er að gáð kemur í ljós að hann er vart annað og meira en stagbætt ræksni. Markaðurinn er heimskari en hann lítur út fyrir að vera. Hann missir sjónar á augljósum sannindum. Þess vegna er vilji markaðarins líka vondur mælikvarði á listir. Um það fjallar Jónas Sen í athyglisverðri grein um dvínandi mörk há- og lágmenningar í Lesbók í dag en þar kemur meðal annars fram hörð gagnrýni á Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir að láta undan ofurvaldi mark- aðslögmálanna. Neðanmáls Lesbók Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.