Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.2004, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.2004, Page 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 11. september 2004 | 3 Þ egar bækurnar Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar og Eins og steinn sem hafið fágar birtust 1997 og 1998 lokaðist viss hring- ur. Ekki aðeins á lífsferli Guð- bergs Bergssonar, en fyrri bókin hefst svo: „Ég er ekki staddur í herbergi móður minnar [...] Aftur á móti er ég kominn aftur í húsið sem var áður hús foreldra minna“ – held- ur hefur þorpið sjálft einnig snúið aftur, sjáv- arbyggðin er lesendur kynntust fyrst í Músinni sem læðist (1961) og var meginsögusvið Tanga- sagnanna svokölluðu sem birtust fyrir um 30 árum. Hvað er á seyði hér? Finnur þessi sjóaði skelmir skjól í bernsku sinni eða skyldi hér fremur mega greina nýjan sjónarhól? Finnur heimsborg- arinn hér staðfestu á tímum hnattvæðingar? Er þetta í senn hans Gunnarshólmi og Hlíðarendi, þar sem hann vill una ævi sinnar daga og undr- ast jafnframt enn á köldum söndum, eins og skáldið forðum, að hægt sé að sigra ólma ógna- bylgju? Ég er ekki frá því að íslenskir lesendur hafi margir talið þetta endurnýjaða þorp hugljúfara en þann Tanga sem Guðbergur skapaði fyrir alllöngu, allt eins þótt enn velti kringlóttar vambir um sögusvið. Kannski fylgdu áður drungalegir kviðverkir þeirri sterku kennd að Tangi væri Ísland; hann var mynd af íslenskri veröld, íslensku lífi. En lesanda léttir nú að sjá að þessi veröld er þarna enn, í verkum sem höf- undur kallar „skáldævisögu“. Með þessu ný- yrði, þessu nýja hugtaki, skilgreindi Guðbergur skáldlega afstöðu til þess að draga ævina saman í texta, í lífssögulega merkingarheild sem æv- inlega er tilbúningur, þótt æviatriðin kunni að vera „rétt“. Eins og Gunnþórunn Guðmunds- dóttir ræddi í grein í Lesbók Morgunblaðsins 7. ágúst sl. hefur undanfarið borið mikið á íslensk- um verkum sem beinlínis vinna á þessum mörk- um ævisögu og skáldlegrar textagerðar. Um mörk ævi og listar í þessum sem og öðrum verkum Guðbergs hefur Birna Bjarnadóttir einnig fjallað í doktorsritgerð sinni Holdið hem- ur andann (2003). En skáldævisaga Guðbergs kann einnig að vera tímanna tákn að því leyti sem í íslenskum bókmenntum hefur um skeið farið fram allmikil leit að Íslandi. Það er því ekki aðeins að aukin áhersla á samgrip textans og hinnar ein- staklingsbundnu vitundar (sjálfsins) setji mark sitt á mörg verk, heldur ekki síður áleitnar spurningar um tengsl sjálfsins og staðarins sem er sögusvið þess. Þann stein sem hafið fágar má lesa sem sögusjálf Guðbergs og jafnóðum þó sem heimaklett hans, og gæti sá steinn verið í senn þorpið hans og eyjan í úthafinu. Það er svo lesandans að meta hversu mikil kaldhæðni leynist í slíkri mynd af grjóti sem vegna stöð- ugrar ágjafar verður ávalt og rennilegt; er það ef til vill að umbreytast í djásn? – Í huganum hljóma aftur orð Jónasar um Gunnarshólma, „skrauti prýddan“, þótt undirleikurinn komi sem úr öðrum heimi. Freistandi er að velta því fyrir sér hvort hin afmarkaða landfræðilega staða Íslands, og sú sérstaða og þó jafnframt samfella í máli og sögu sem oft er talin móta íslenska menningu, end- urspeglist í sköpulagi bókmenntaverka í meira mæli en raunin er í stærri samfélögunum. Þetta þarf ekki að þýða að í sérhverri íslenskri skáld- sögu megi til dæmis finna útlínur eyjar (þótt þetta sé oft raunin) heldur að í sköpunar- mynstri, einkum frásögnum, bókmenntaverka megi bera kennsl á vissa grunnþætti í sjálfs- mynd eða sjálfskilningi Íslendinga, þætti sem eru nátengdir staðarvitund. Þetta geta að vísu verið varasamar slóðir í bókmenntatúlkun, því tilhneigingin til að lesa verk sem dæmisögur eða allegóríur getur leitt til blindu. Þannig hef- ur atriðið í Njálu þegar Gunnar snýr aftur oft verið lesið á þjóðernislegum nótum: Hlíðarendi verður Ísland. En jafnvel þeir sem vísa slíkum lestri á bug gætu átt erfitt með að neita því að Gunnarshólmi Jónasar sé Ísland, enda tengir skáldið sjálft hinn lága hólma við „hnípna þjóð“. Túlkun á sumum helstu skáldsögum Halldórs Laxness hefur oftar en ekki byggst á því að sögusvið þeirra séu þjóðfélagið í hnotskurn. Og öll þau bókmenntaverk á 20. öld sem fjalla um það hvernig persónur rífa sig upp úr sveita- samfélaginu og flytjast í þéttbýli endurspegla vissulega þá „þjóðflutninga“ sem áttu sér stað í raun. Frá hreinrökrænum sjónarhóli mætti jafnvel segja að slík verk séu allegóríur um það hvernig sögusvið íslenskrar menningar, og þar með bókmenntanna, flyst úr sveit í borg. En þar komum við aftur að takmörkunum allegóríunnar að því leyti sem hún er talin línu- leg dæmisaga. Sögusvið og skynheimar bók- menntanna myndast síður en svo eingöngu sem rökrænar afleiðingar samfélagslegrar búsetu heldur verða þeir til sem heimsmynd í flóknu samspili margra þátta. Staðarvitund tengist þar tilfinningu fyrir tengslum fortíðar og sam- tíðar og mótast einnig af hugmyndum um þjóð- erni, náttúru (þar á meðal náttúru borg- arinnar), tækni og aðra nútímavæðingu, sem og um tengsl heimabyggðar við fjærliggjandi um- hverfi. Síðast en ekki síst litast hún af öllum þeim arfi frásagna, texta, tóna og mynda sem berast frá fyrri kynslóðum. Íslensk sögusvið Sögusviðum á Íslandi má í einfölduðu yfirliti skipta í fernt: sveit, óbyggð náttúra, þorp (og kaupstaðir) og borg. Ef til vill er ástæða til að telja hafið sérstakt sögusvið og jafnframt er það ein af ferðaleiðunum milli staða. En frum- samdar bókmenntir eru ekki einbundnar Ís- landi, þær fjalla einnig um ferðir milli Íslands og annarra landa og hafa gert svo frá öndverðu, sem og um mannlíf á erlendri grund. Þar mæta þær gríðarstórum flokki bókmennta sem „ger- ist“ allajafna í senn á erlendri grund og í ís- lensku máli, þ.e.a.s. þýðingum. Öldum saman, allt fram á síðustu öld, var sveitasamfélagið ráðandi sögusvið í frum- sömdum íslenskum bókmenntum. En þótt Reykjavík væri um miðja 20. öld orðinn efna- hagslegur og lýðfræðilegur segull, viss mið- punktur, borg að verða til, þá varð hún ekki um- svifalaust hin nýja viðmiðun íslenskrar heimsmyndar. Bókmenntirnar stökkva ekki inn í alskapaða borg; í mörgum nýstárlegustu verk- um þriðja aldarfjórðungsins er hún einmitt frekar „borg að verða til“. Hjónin í Leigjand- anum (1969) eftir Svövu Jakobsdóttur leigja íbúð, en ekki reynist það tryggur dvalarstaður né heldur húsið sem þau ljúka við að byggja og þótt konan leggi þar hönd að vegg og finnist blóð sitt renna um húsið, þá er hún í heimilisleit söguna á enda. Tónskáldinu í Farðu burt skuggi (1971) eftir Steinar Sigurjónsson tekst að leigja sér íbúð en kemst aldrei þar inn með hljóðfæri sitt og heldur áfram að ráfa heim- ilislaus um borgina. Tómas í Tómasi Jónssyni metsölubók (1966) eftir Guðberg Bergsson minnist þess hvernig hann tvísté „um nakin hurðalaus herbergin“ í nýsteyptri kjallaraíbúð sinni; „snerti húsið og dreg fingurna niður vegginn hrjúfan og þægilegan undir fing- urgómunum á hendi minni sem gránar af sem- entsdufti. Og ég prenta fingraför mín á rúð- urnar með þessu gráa dufti“ (bls. 159). En þótt þannig sé á táknrænan hátt reynt að festa sjálfsmyndina á hina nýreistu borg, verð- ur hún ekki umsvifalaust sá staður þar sem vit- undin býr. Thor Vilhjálmsson sneiddi að mestu hjá Reykjavík í verkum sínum á þessum árum (sem og reyndar fyrr og síðar) og hélt á vit borgarlífs á meginlandi Evrópu; hann setti les- endur sína í svo magnað sjónrænt samband við þann vettvang að myndirnar í hinu nýja svart- hvíta sjónvarpi voru sem skuggaflökt í þeim samanburði. Steinar og Guðbergur dvöldu heldur ekki mikið við Reykjavík á þessum ár- um, því hið íslenska sjávarþorp virtist fyrir þeim fremur vera staður þar sem klófesta mætti íslenska heimsmynd. Og þorpið hefur æ síðan verið áleitið sögusvið íslenskra höfunda, eins konar „vinnustofa“ þar sem leitað er að samastað íslenskrar menningar. Titillinn á einni þessara þorpssagna, Átt þú heima hér? (1978) eftir Úlfar Þormóðsson, segir margt um þessa leitandi sviðsetningu, sem rekja má allt til þessa dags og takmarkast ekki við bók- menntirnar, eins og staðfestist í einni áleitnustu íslensku kvikmyndinni sem gerð hefur verið, Nóa albínóa (2002). En eftir að hin íslenska vitund – að því marki sem við getum notað það orðalag um leiðandi heimsmynd – flosnaði upp úr sveitinni virðist hún þó ekki hafa tekið sér fasta bólfestu í þorp- unum, enda margt þar með verbúðarbrag, þótt „allir þekki alla“ eins og sagt er. Skáldin eru á ferð og flugi í leit að staðfestu og finna hana kannski bara í andhverfunni, staðleysunni, ekki-staðnum þar sem aðeins er staldrað við. „Staðarskáli er Ísland“ segir Þórarinn Eldjárn í samnefndu ljóði, „einhver þétting / í andrúms- lofti veldur þeirri staðreynd“ (Ort, 1991, s. 29). Þetta er ekki fráleit lýsing á stað þar sem vit- undin býr og hið sama á við um fleiri línur í ljóð- inu: „Í skurðpunkti þessum skerast allar línur / og skýrt er þar í einni sjónhendingu / hvernig okkar lífi í þessu landi / er lifað og í raun og sanni varið.“ Að vísu mætti ætla að hér sé hreinræktuð kaldhæðni á ferðinni, og endur- ómur frá áðurnefndu ljóði Jónasar Hallgríms- sonar virðist í fyrstu staðfesta það: „Hér vil ég una ævi minnar daga / innst í skoti bíða veiting- anna / átekta og halla mímishöfði / hógvær und- ir flatt og nema allt þetta.“ Þegar nánar er að gáð er þessi magnaði ljóðmælandi tvöfaldur í roðinu; hann er hinn íslenski ferðamaður og neytandi, en hann er líka skáldið sem nemur og man og kortleggur. Nokkrum árum síðar er hins vegar Jónas þarna á ferð, Þorbjarnarson þó, og fjallar í ljóðinu „Sjálfsmynd“ um ferðir sínar norður og suður sem hafa staðið árum saman, þannig að ferðaslóðirnar verða sem andlit hans, „förin dýpka“; „förin suður, norður /af nefinu, Staðarskáli miðjan / í sjálfsmynd- inni“ (Hliðargötur, 2001, s. 47). Ísland – sækjum það heim Hvað er að gerast – hefur Staðarskáli tekið við af Þingvöllum sem hjarta landsins? Jú, í vissum skilningi er því svo farið. Þjóðin er á ferð og flugi og áningarstaðurinn er eins konar „þétt- ing“ þess millibilsástands; miðja sem er tóm en líka viss rannsóknastaður sjálfsmyndar og heimsmyndar. Og þetta er ástand íslenskra samtímabókmennta og í það ástand sækja þær mikið af lífskrafti sínum og honum er jafnframt varið, eins og áður sagði, í leitina að Íslandi. Hvaða líf getum við kallað íslenskt í samtíma heimsins? Hvar á íslensk menning heima? Þessi leit endurspeglast í ýmsum bókartitlum, ekki aðeins í Leitinni að landinu fagra (1985) eftir Guðberg Bergsson, heldur líka í Gulleyjunni (1985) eftir Einar Kárason, Íslenska draumn- um (1991) og Íslandsförinni (1996) eftir Guð- mund Andra Thorsson; í Góðir Íslendingar (1998) eftir Huldar Breiðfjörð, þar sem segir af vetrarferð höfundar um hið „framandi land“ ut- an Reykjavíkur; í Myndinni af heiminum (2000) eftir Pétur Gunnarsson, þar sem komið er að landinu frá víðu sjónarhorni heimssögunnar og þá man maður líka eftir ljóðabókinni Hnattflug (2000) eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur. Nú kunna sumir að segja að ný miðja lands- ins hafi verið „fundin“ í öðrum bókum frá síð- ustu árum, bókum sem taki fyrst og fremst mið af samtímanum, og þetta megi sjá glöggt í skáldsögunni Dís (2000) eftir Birnu Önnu Björnsdóttur, Oddnýju Sturludóttur og Silju Hauksdóttur. Í þeirri sögu er miðpunktur Ís- lands 101 Reykjavík, eins og Hallgrímur Helga- son hafði áður lagt áherslu á með titli sam- nefndrar bókar (1996). Ef við hugum að samspili heimsmyndar og sjálfsmyndar, þá vaknar sú spurning hvort Íslandssagan sé hér ef til vill að hefjast að nýju, því söguhetja Hall- gríms, Hlynur Björn, er um margt eins og núll- ið í „101“. Ennþá áleitnari mynd af slíkum „frummanni“ fáum við þó í skáldsögum Braga Ólafssonar, Hvíldardagar (1999) og Gæludýr- unum (2001), þar sem söguhetjurnar eru sem streinrunnar í hundraðogeinum og í síð- arnefndu sögunni er sögumaður eiginlega kvik- settur undir eigin rúmi. Jafnvel sú persóna mótast þó einnig af kynn- um sínum af öðrum borgum og þótt Bragi dragi sögu sína saman í vissan kyrrpunkt (miðju sjálfsmyndarinnar?), sýnir hann jafnframt hvernig hin íslenska borg er menningarlega samvaxin öðrum borgum, en þetta útfærir Ragna Sigurðardóttir á táknrænan og fant- asíukenndan hátt í skáldsögu sinni Borg (1993). Margir íslenskir höfundar hafa á liðnum árum sýnt hvernig staðfesting íslenskrar heims- myndar „truflast“ af tengslum við útlönd; hér mætti nefna, auk Thors Vilhjálmssonar, þau Álfrúnu Gunnlaugsdóttur, Rúnar Helga Vign- isson, Sigurð Pálsson, Ólaf Jóhann Ólafsson og nýlegar sögur Vigdísar Grímsdóttur; það er semsé talsvert af „aðfluttu landslagi“ í íslensk- um bókmenntum, svo ég noti mér ljóðabók- arheiti Sveins Yngva Egilssonar (1983). Stundum leitar raunar á mann sú hugsun að Reykvíkingar beri margir skýrara skynbragð á tengsl borgarinnar við „útlönd“ heldur en tengslin við heiminn „úti á landi“. En hin síð- arnefndu tengsl eru þó engan veginn horfin úr bókmenntunum; öðru nær. Íslendingar búa ekki aðeins í borg, heldur líka „undir eldfjalli“ eins og Svava Jakobsdóttir kemur snilldarlega til skila í titilsögu bókar sinnar Undir eldfjalli (1989) og fleiri höfundar hafa í verkum sínum dregið fram að íslensk heimsmynd sé samsett fyrirbæri, þar sem borgin er vissulega viðmið- unarpunktur, en „hjartastaðurinn“ kann að vera annars staðar, svo vísað sé til samnefndrar skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur (1995), og það liggja ýmsir þræðir til þorpa, sveita, óbyggðrar náttúru, sem og inn í ævintýraheima sem ekki verða mældir af vegagerðar- og virkj- unarmönnum. Í höfundarverki sínu hefur Gyrð- ir Elíasson tengt alla þessa heima saman í vef sem er samtímalegur og ber þó oft með sér keim af liðinni tíð. Þessi síðustu orð minna á einn þátt íslenskra bókmennta sem ekki verður litið fram hjá þeg- ar maður athugar heimsmynd samtíma- bókmennta út frá sögusviðum og staðarvitund. Fyrir aldarfjórðungi eða svo hafa vafalaust margir talið að liðin væri sú tíð þegar sögulegar skáldsögur gátu talist í fararbroddi bókmennta- sköpunar. Nú mætti hins vegar ætla að öldin sé önnur; hver höfundurinn af öðrum skrifar sögu- legar skáldsögur og spannar viðfangsefni þeirra allt frá forsögulegri tíð til tiltölulega ný- liðins tíma. Búa þessar sögulegu skáldsögur yf- ir sýn á líðandi stund? Hvar staðsetja þær sig í samtímanum? Þetta eru stórar spurningar sem hljóta að leita á bókmenntagagnrýnendur. Í bili verður látið nægja að segja að slík verk minna okkur á að við leitum ekki aðeins að stöðum, til dæmis Íslandi, í rými, heldur líka í tíma; við leit- umst við að staðsetja okkur í sögunni. Samastaður í sögunni Endurspeglast hin afmarkaða landfræðilega staða Íslands, og sú sérstaða og þó jafnframt samfella í máli og sögu sem oft er talin móta íslenska menningu, í sköpulagi bókmennta- verka í meira mæli en raunin er í stærri sam- félögunum? Hér er athugað hvort greina megi vissa grunnþætti í sjálfsmynd eða sjálfs- skilningi Íslendinga í bókmenntum samtím- ans, þætti sem eru nátengdir staðarvitund. Morgunblaðið/Magnús Gíslason „Staðarskáli er Ísland“ segir Þórarinn Eldjárn í samnefndu ljóði, „einhver þétting / í andrúmslofti veldur þeirri staðreynd.“ Eftir Ástráð Eysteinsson astra@hi.is Nokkrar glæfralegar athuganir Höfundur er prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.