Lesbók Morgunblaðsins - 16.10.2004, Side 1
Laugardagur 16.10. | 2004
FAÐIR
HEIMASTJÓRNARINNAR
Maðurinn sem sagan gleymdi.
Valtýr tókst á við Hannes Haf-
stein og íslenska ættarveldið og
tapaði. Saga fátæka smaladrengs-
ins af Skagaströnd er ein eftir-
minnilegasta og fróðlegasta ævi-
saga seinni ára, snilldarvel skrif-
uð af Jóni Þ. Þór.
SKÁLDIÐ Minning Jóhanns Sigurjónssonar er
sveipuð blæ goðsagnar. Jón Viðar Jónsson sviptir
hulunni af. Sýfilis, vínhneigð, dóttirin gleymda,
ástarsambandið, snilligáfan; ekkert er dregið und-
an sem varpar ljósi á persónu og ævi frægasta leik-
ritaskálds Íslendinga. Kaktusblómið og nóttin er
einstæð ævisaga sem lætur engan ósnortinn.
ÆVISÖGUR EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR
[ ]Grafísk hönnun | Heimóttarlegir eða eins og þegar rakarinn gerir skiltið sitt sjálfur | 8Kjarvalsmyndin | Smásaga eftir Ólaf Gunnarsson segir frá málara í skugga Kjarvals | 10Dauðinn í Írak | Ógnvænlegt miðlunarform valds sem birtir háleitan tilgang | 2
LesbókMorgunblaðsins
Ljósmynd/Sophie Bassouls
Jacques Derrida
Monsieur Texte
Franski heimspekingurinn Jacques Derrida lést aðfaranótt laugardagsins 9. október á spítala í
París eftir erfiða baráttu við krabbamein í briskirtli. Derrida var borinn til grafar sl. þriðjudag,
12. október, án viðhafnar, í kirkjugarði í heimabæ hans, Ris Orangis, í útjaðri Parísar, að
viðstöddum ættingjum, nánum vinum og samstarfsfólki. Hér er stiklað á stóru um persónu, verk,
hugmyndir og stöðu eins afkastamesta og áhrifamesta heimspekings síðari tíma. 3