Morgunblaðið - 19.10.2004, Page 6

Morgunblaðið - 19.10.2004, Page 6
6 | 17.10.2004 Ég fæ stundum á tilfinninguna að ég sé dýr í útrýmingar-hættu. Þessi tilfinning fylgir yfirleitt yfirlýsingunni umað ég sé Íslendingur þegar ég ræði við útlendinga. Ósjaldan mætir manni torræður svipur viðmælandans, augljóst að hann veit ekki hvað Íslendingur er. Eftir örstutt hik ákveður hinn útlenski að spyrja hvar Ísland sé. Þegar maður lýsir því í stuttu máli kemur ósjaldan spurningin hvort þar séu mörgæsir og eskimóar og hvort við búum í snjóhúsum. Gamla, góða klisjan. Maður leiðréttir það, lofsyngur þjóð sína, hún sé afar þróuð og tæknivædd, lífsgæði með besta móti og allt svo hreint og ómengað. Undrast sjálfur að maður skyldi nokkurn tíma kvarta yfir því að búa á Íslandi miðað við hina rómantísku ræðu. Gleymir alveg að minnast á rok og rigningu, myrkur og kulda. Þó er ég ekki þessi manngerð sem telur fegurstu konur og sterkustu menn heims íslenska og íslenska vatnið það besta í heimi. Ég sat á knæpu nokkurri fyrir skömmu með þremur öðrum Íslendingum. Ungur maður á næsta borði virtist nokkuð áhugasamur um dýrin fjögur og gaf sig á tal við okkur. „Vá, fjórir Íslendingar!“ sagði maðurinn yfir sig hrifinn, sjálfur nýsjálenskur. „Ég hef aldrei séð Íslending, hvað þá fjóra í einu,“ bætti hann við og ljómaði. Ákvað ég þá að spyrja hann hvort hann vildi að við dönsuðum fyrir hann dansinn sem Ís- lendingar dönsuðu alltaf til heiðurs þeim sem sæi Íslending í fyrsta sinni. Nýsjálendingurinn áttaði sig engan veginn á því að ég væri að fíflast í honum, horfði furðu lostinn á mig. Var þetta einungis upphafið að frekari misskilningi. Nýsjálendingurinn heldur sjálfsagt héðan í frá að Íslendingar séu undarlegar skepnur. En eitt virðast þó flestir útlendingar vita um Ísland og gettu, kæri les- andi, hvað það er. Jú, einmitt: Björk er frá Ís- landi. „Aaah, Bjooork is from Iceland, isn’t she?“ segir fólk og býst við því að maður verði himinlifandi yfir þeirri vitneskju. Framburður nafnsins þó meira eins og ropi. „Yes, and also Siggurr-ross,“ svarar maður hálfmæðulega, löngu leiður á þessum endurteknu Bjarkar-samræðum. Fyrir viku birtist hin margumrædda „Bjooork“ í vinsælum viðtalsþætti Jonathans Ross á BBC1 sjónvarpsstöðinni. Litla Ís- lendingshjartað sló hraðar í brjósti mér, undarlegt hvernig þjóðerniskenndin getur læðst upp að manni. Ross kynnti hana með allt að því hárréttum, íslenskum framburði. Björk flutti lag af nýrri plötu með bjöllukór og mennskri bassatrommu og settist að því loknu í sófann hjá Ross sem alla jafna er frumlegur og skemmtilegur spyrill. „Þú ert frá Íslandi,“ sagði Ross. Björk staðfesti það. „Hvernig er það, eru ekki eskimóar og snjóhús þar?“ Björk virtist allþreytt á þessari spurningu og sagði að hún væri ansi oft spurð að því. Ross spurði hvort við værum ekki í raun ljóshærð og bláeyg. Björk sagði það nokkuð nærri lagi, nennti augljóslega ekki að kafa í Íslandssöguna, franska sjómenn, írska þræla og aðra blóðblöndun undanfarinna alda. Skellti Ross þá upp mynd af Björk sem ungbarni, hældi fegurð barnsins en sagði að þetta liti nú út fyrir að vera „fjárans eskimói“. Björk tók þátt í gríninu eins og sannur diplómati og fékk uppstoppaðan lunda að launum. Lundinn var augljóslega ekki íslenskur. Björk yfirgaf sófann og hljómsveitin Duran Duran tók við, ræddi um rakstur nasahára og aukinn andlegan þroska enda hljómsveitarmeðlimir allir komnir vel á fimmtugs- aldurinn. Næst þegar einhver sem ekkert veit um Ísland yfirheyrir mig ætla ég bara að ljúga. Segja að Íslendingar séu ljóshærðir eskimóar sem hlaupi um í selskinni í 30 gráða frosti, drepi ís- birni með berum höndum og éti þá hráa. Fari svo heim í snjó- húsið, fóðri lundann sinn og drekki sig rænulausa á gerjuðu jólaöli. Það er miklu skemmtilegra. | helgisnaer@mbl.is Bjooork Helgi Snær En eitt virðast þó flestir útlend- ingar vita um Ís- land og gettu, kæri lesandi, hvað það er. É g hef fengið áhugaverð verkefni fyr- ir fræðafélög eins og Sagnfræðinga- félagið, ReykjavíkurAkademíuna og Rannsóknarstofu í kvenna- og kynja- fræðum, og einnig félög eins og Stígamót og UNIFEM – og hefur verkefni mitt þá verið að koma hugmyndum þeirra og viðburðum á framfæri. Ég hef áhuga á að brúa bilið milli fræðanna og samfélagsins með hönn- un,“ segir Sóley Stefánsdóttir. Sóley er fædd árið 1973 í Mosfellsbæ og gekk hún í Varmárskóla í æsku. Hún varð stúdent af myndlistarbraut Fjölbrautaskól- ans í Breiðholti vorið 1994. Hún útskrifaðist við árþúsundamótin frá Háskóla Íslands með BA próf í guðfræði og kynjafræði. „Ég fór þá að vinna á Íslensku auglýsingastof- unni og ákvað í framhaldi af því að fara í grafíska hönnun í Listaháskóla Íslands,“ segir Sóley og að það hafi verið mjög skemmtilegt og krefjandi nám. „Lokarit- gerðin var um myndmál sem samræðu- form,“ segir hún, „ég kannaði hvort al- menningur gæti sagt skoðun sína í myndmáli líkt og fyrirtæki, t.d. með því að birta aðsenda mynd í stað aðsendrar greinar – þannig að innihald greinarinnar væri í formi myndmáls í stað texta, en þeir (fjöl) miðlar sem ég hafði samband við höfnuðu því.“ Notkun myndmáls er feikilega áhrifa- ríkt í nútímasamfélagi en í raun hefur mark- aðurinn einkaleyfi á þeirri notkun. Almenn- ingur má segja hug sinn á því myndáreiti sem hann verður fyrir í almannarými með texta og tilvísun í texta, en ekki með tilvísun í myndmál fyrirtækja, vegna þess einkarétt- ar sem þau hafa á myndrænni ímynd sinni. „Ég er núna sjálfstætt starfandi og vinn t.d. að hönnun afmælisrits UNIFEM, en Ís- landsdeildin er 15 ára,“ segir Sóley sem einnig hannaði spjald Sagnfræðingafélags Íslands um hádegisfundaröðina „Hvað er vald?“ – í Norræna húsinu. Þá er Sóley ráðskona staðalímyndahóps Femínista- félags Íslands en þar er Femínistavikan í undirbúningi; hefst 24. október nk. á af- mælisdegi Kvennafrídagsins. Sóley býst við að fara í meistaranám á næstu árum, og að halda áfram að beita kynjafræði og hönnun í samtali sínu við samfélagið. | guhe@mbl.is Sóley Stefánsdóttir LOFAR GÓÐU L jó sm yn d: Á rn i S æ be rg Brúar bilið milli fræða og samfélags með hönnun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.