Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.2004, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.2004, Blaðsíða 16
16 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 20. nóvember 2004 KRISTÍN Steinsdóttir hefur fengið verðlaun og viðurkenningar fyrir skemmtilegar og spennandi barnabækur sínar. Í sögum sínum hefur hún ver- ið einkar fær í að blanda saman raunveruleika og þeim veruleika sem gerist aðeins í hugum barna eða ævintýraheimi skáldskaparins. Til dæmis hefur hún látið drauga upplýsa unga lesendur sína um lífið fyrrum. Með hlýlegum og glaðlegum stíl sínum hefur Kristín náð vel til lesenda og tekist að vekja áhuga þeirra á öðru en því sem gerist hér og nú. Í nýju bókinni Vítahring, Helgusonasögu, er farið aftur fyrir árið þúsund og ljósi skáldskap- arins varpað afar skýrt á umhverfi og líf barna á tíma vopnaskaks og hefnda en Kristín byggir söguna að hluta til á Harðarsögu. Einnig er í bókinni leikið mjög sannfærandi með trú fólks til forna á dulda krafta og galdra, forynjur og tröll auk þess sem öðrum menningarheimum og frið- samlegri er lýst lítillega frá sjón- arhóli þræla. Aðalpersóna sögunnar er Grímkell, strákur á tólfta ári, sonur Harðar sem Harðarsaga seg- ir frá og Helgu sem fræg er fyrir að hafa synt til lands úr Helguhólma í Hvalfirði með syni sína og gengið að Indriðastöðum í Skorradal. Sag- an hefst þegar fjölskyldan býr að Breiðabólstað í Reykholtsdal í Borgarfirði en neyðist til að fara þaðan og búa í Botni hjá Geir, fóst- bróður Harðar. Í örstuttu máli fjallar sagan um hugarangur og áhyggjur drengs sem vill heldur yrkja kvæði og safna jurtum og berjum með móður sinni en taka þátt í bardagaleikjum jafnaldra sinna sem fá í hendur alvöru vopn ellefu til tólf ára gamlir svo þeir geti verið við öllu búnir. Krakkarnir þurfa að vinna eins og fullorðnir, sér- staklega ambáttin Afreka og systir hennar Kormlöð sem eru á svipuðum aldri og Grímkell. Einnig er því lýst að stúlkur þurfi að giftast fljót- lega eftir tólf ára aldurinn og hvernig drengir líta á það sem sjálfsagðan hlut að misnota ungar am- báttir. Allt er þetta sett fram þannig að lesendur sjá eðlilegt líf og hugsanir barnanna sem urðu leiksoppar og fórnarlömb víkingaaldarinnar. Hefndarskyldan er sett ofar öllu og þá skiptir engu hvort maður er fullorðinn eða bara tólf ára drengur. Eitt hið jákvæðasta við þessa ágætu bók er að hlutskipti fólksins er lýst látlaust og án þess að upp- hefja hetjuskap eða rómantík en daglegt líf og tilfinningar verða þó ljóslifandi. Sjónarhorn barna og kvenna er ráðandi. Hetjur sögunnar eru ekki síður Helga, móðir Grím- kels, og ambáttin Afreka, en þær grípa hvor til sinna ráða gegn of- beldi og tilgangslausum drápum karlanna í kringum þær. Það eru svo ekki síst teikningar Höllu Sólveigar sem lýsa upp lifnaðarhætti á tíma sögunnar ásamt því að skýra persónulýsingarnar. Það er vel til fundið að hafa kort af svæðinu innan á bókarkápu og skemmtilegar teikningar af sögupersónum fremst. Kristín og Halla Sólveig hafa unnið vel saman að því að færa nútímabörnum heim forn- sagnanna ljóslifandi og eðlilegan. Tólf ára vígamenn BÆKUR Börn eftir Kristínu Steinsdóttur. Myndir eftir Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur. 159 bls. Mál og menning, Reykjavík 2004. Vítahringur Helgusona saga Hrund Ólafsdóttir Kristín Steinsdóttir KRISTIAN Guttesen á nú að baki fjórar ljóðabæk- ur en hann hefur verið býsna iðinn við skáldskap og þýðingar undanfarin tíu ár eða svo. Þessi nýút- komna bók hans er byggð upp á nokkrum prósa- ljóðum sem eiga skylt við danskt form, kallað „punktroman“. Þ.e. stuttar og heildstæðar frásagn- ir en einnig má finna styttri ljóð inn á milli. Hversdagurinn er meginumfjöllunarefni bók- arinnar og nær Kristian oft og tíðum ágætlega raunsannri lýsingu á honum. Stíll hans er einfaldur sem fer efnistökunum vel, hér er ekki verið að skreyta með flóknu formi eða orðaforða. Einn prósanna fjallar um einstæða móður og er hann fléttaður með hugmynd höfundar um fjall- konuna. Málar hann upp nokkuð hversdagslegar myndir af lífi þessarar einstæðu móður, jafnvel dökkar. Hann teflir sögunni af móðurinni gegn hefðbundnum rómantískum hug- myndum um fjallkonuna. Það ljóð lýs- ir kannski hnignun þjóðfélagsins og hvernig hugmynd okkar um fjallkon- una á ekki við í dag. Er þessi róm- antíska fjallkona til, eða er hún orðin einstæð þriggja barna móðir? Stund- um fer Kristian offörum í þessum lýs- ingum þannig að þessi raunveruleiki verður ótrúverðugur og jafnvel yf- irþyrmandi venjulegur. Segir t.d.: „Best að panta kínverskan mat, það er einfaldast. Svo er líka vinna í kvöld. Aldrei slakað á. Taka tvö til þrjú ár í viðbót, síðan hætta þessu harki. Strákarnir skulu alast upp í öruggu umhverfi.“ Þessi prósi tapar þó mest á því að stöku sinnum skjóta upp kollinum klisjukenndar myndlíkingar og setningar. Eins og upphafssetn- ingin í ljóðinu „Nótt“: „Tunglinu blæðir“. Þetta skýtur skökku við því að jafnaði nær höfundur að viðhalda jöfnum og tilgerðarlausum takti. Í öðrum lengri prósa, „Fáein orð um geðveiki“ er Kristian hins vegar að fjalla um hugmyndaheim ungs karlmanns í dag. Ljóðið er misjafnt, ég velti því fyrir mér hvort hér væru nokkur ljóð á ferð því efnið fer í raun fram úr forminu. Í þessum prósa er brugðið upp mörgum myndum sem fléttast hugleiðingum, meinhæðnum sögukornum og reynsluheimi höf- undar. Þarna er líka ádeila á banda- rískt samfélag sem er nú æði marg- tuggin verður að segjast. Hér vantar helst meiri skerpu því oft er í prós- anum skemmtilegar líkingar og sannfærandi lýsingar. Umræddir prósar, sem fylla drýgstan hluta bókarinnar, fanga raunsæið best þegar naumhyggjukenndum lýs- ingum er beitt en þegar þeim sleppir er eins og höf- undur missi niður taktinn. Taktur hversdagsins BÆKUR Ljóð eftir Kristian Guttesen. 60 bls. Salka 2004. Mótmæli með þátttöku – bítsaga Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Kristian Guttesen Sólin sest að morgni er eftir Kristínu Steins- dóttur. Kristín Steins- dóttir sýnir hér á sér nýja hlið og skrifar í fysta sinn sögu fyrir full- orðna. Efniviðinn sækir hún í bernsku sína og úr verður margræð saga þar sem undir niðri krauma miklar tilfinningar. Hér segir frá skapmikilli stúlku sem vex upp í skjóli hárra fjalla. Að henni standa sterkar konur sem eru haldreipi hennar og fyrirmyndir í tilverunni. En yfir leikjum og kátínu bernskunnar hvílir skuggi sem vill ekki hverfa. Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bókin er 87 bls. Verð: 4.290 kr. Nýjar bækur Leigjandinn er eftir Svövu Jak- obsdóttur. „Maður er svo ör- yggislaus þegar maður leigir.“ Þessi upphafsorð gefa enga vísbend- ingu um þann magn- aða söguheim sem Svava Jak- obsdóttir kynnti lesendum sínum árið 1969 þegar Leigjandinn kom fyrst út. Draumur og veruleiki tak- ast á og ótal spurningar vakna. Og nú, þrjátíu og fimm árum síðar, leynast ef til vill nýjar gátur á bak við tjöldin. Útgefandi er JPV-útgáfa. Laufskálafuglinn er eftir Margréti Lóu Jónsdóttur. Ína Karen stendur á kross- götum og kannar nýja stigu í fleiri en einum skiln- ingi. Hún yf- irgefur mann sinn og barn og á ferðalagi um Spán kynnist hún ástinni með óvæntum hætti. Í brennandi sólinni skrásetur hún ýmislegt sem leitar á hugann og reynir þannig að átta sig á tilfinningum sínum jafnt sem annarra. Margrét Lóa hefur áður gefið út ljóðabækur en Laufskálafuglinn er fyrsta skáldsaga hennar. Útgefandi er Salka. Bókin er 213 bls. Verð er 4.290 kr. Rigning í nóv- ember er eftir Auði Ólafsdóttur. Ung kona stígur upp úr volgri hjónasæng og heldur í æv- intýralegt ferðalag um myrkt og blautt landið. Með í för er heyrnarlaust barn sem henni hefur verið falið að gæta. Þar með hefst leit að týndum þræði og stefnumót við heim handan orða. Með skáld- sögunni fylgir uppskriftakver sögu- hetjunnar með 47 matarupp- skriftum og einni prjónauppskrift. Salka gefur bókina út. Hún er 224 bls. Um kápuhönnun sá Guðrún Tryggvadóttir. Verð er 4.290 kr. PÁLL Kolka segir í Föðurtúnum að Fritz Hendrik Berndsen, kaupmaður á Skagaströnd, hafi skrifað ævisögu sína sem hann telur með öllu glataða. Sé það miður því Berndsen gamli hafi lýst hreinskiln- islega lífi og aldarbrag Skagstrendinga. Björn Th. Björnsson hefur haft uppi á handritinu og notast við það sem uppistöðu í þessari skáldsögu sinni, fylgir minningum Berndsens í megindráttum en fyllir í eyður. Berndsen ólst upp í Kaupmannahöfn. Gekk á ýmsu í æsku hans. Hann greip því fegins hendi tækifærið þegar honum bauðst að flytjast til Ís- lands. Skyldi hann verða beykir við danska verslun á Skagaströnd. En Höfðakaupstaður hafði löngum verið eini verslunarstaðurinn í Húnavatnssýslu. Ís- landsverslunin var þá enn í höndum Dana, víðast hvar að minnsta kosti. Berndsen var kjarkmikill draumóramaður, gerðist góður og gegn Íslend- ingur og lifði langa ævi; náði níræðisaldri. Með heppni og útsjónarsemi – en einnig vegna óheppni keppinauta – tókst honum að koma undir sig fót- unum. En Skagastrandarverslunin var þá að missa vægi sitt þar sem kaupmenn voru að koma sér fyrir á Blönduósi, nær þungamiðju héraðsins. Úr því gat kaupmennska Berndsens vart orðið stór í sniðum. Björn Th. Björnsson gerir efni þessu hin prýði- legustu skil, hefur enda til þess alla burði. Hann er maður sögufróður. Hann hefur áður unnið með svipuð efni. Hann nauðaþekkir gömlu Kaupmanna- höfn, jafnt stræti og torg sem mannlíf og aldarfar á þeim tíma sem Berndsen var að alast þar upp. Þar af leiðir að hann á auðvelt með að setja sig í spor þeirra Dana sem hingað komu til dvalar eða bú- setu. En þeir komu að sjálfsögðu af mismunandi ástæðum og með mismunandi ásetningi. Að sumum þeirra setti hroll um leið og þeir sáu þetta kulda- lega land rísa úr sæ. Þeir héldu gjarnan hópinn og blönduðu lítt geði við innfædda framar en nauðsyn krafði. Dvölina þreyðu þeir við spil og vín. Ófáir létu sjálfsagann lönd og leið og lögðust í drykkju. Framkoma þeirra við innfædda markaðist þá af hroka og yfirlæti. Ömurlegt dæmi þess er framferði Hillebrandts kaup- manns á Blönduósi. Þegar hann er kominn í þrot fjárhagslega ræður Ís- lendingur honum að biðja sér efnaðrar konu í héraði. Hillebrandt var þrjátíu og sex, hún sjötíu og tveggja. Gamla konan stóðst ekki þennan framandi glæsileika, hélt að maðurinn væri að bjóða sér ást og virðing og beit á agn- ið. En hvort tveggja lét á sér standa, ástin og virðingin. Vafi leikur á að nokkur íslensk kona hafi fyrr né síðar goldið frúartitil dýrara verði. Ekki verður heldur bent á ambátt sem fremur hafi verið auðmýkt og niðurlægð en þessi mæta kona, Þórdís á Vindhæli. Hillebrandt var þá orðinn eins og hver annar volaður auðnuleysingi. Aðrir – sennilega voru þeir færri – fundu sig strax heima í víðáttunni hér, þeirra á meðal Bernd- sen. Hann sýnist þegar hafa ákveðið að setjast hér að til frambúðar. Hér væri hann frjálsari. Honum ægði ekki svo mjög það frumstæða umhverfi sem strax mætti augum hans. Hér gæti hann allt eins fullnægt löngun sinni til að njóta heimsins lysti- semda. Honum hugnaðist vel að ferðast langleiðir á hestbaki í góðra vina hópi og þiggja veitingar á heimilum fyrirmanna vítt og breitt um héraðið. Og hann varð á fyrsta degi hugfanginn af ungri stúlku sem síðar varð barnsmóðir hans og sambýliskona. Björg hét hún Sigurðardóttir frá Sólheimum í Svínadal. Kaflarnir um samdrátt þeirra, átök í stormasamri sambúð og að lokum sambúðarslit eru minnisstæðasti hluti bókarinnar. Þar njóta sín best hæfileikar höfundar til að skapa persónur, skrifa samtöl og endurvekja andblæ liðinna daga. Þar hittir danski kavalerinn konu sem er í senn sjálf- stæð og ákveðin, konu sem vill standa fyrir sínu hvað sem það kostar, er ör til ásta, frábiður sér eigi að síður húsbóndavald. En aldarandinn er ekki enn orðinn slíkri konu í vil, langt því frá. Ósigur Bjarg- ar er því fyrirsjáanlegur. Reyndar verður ekki annað sagt en skipti Fritz Hendriks við konur einkennist af eigingirni, sjálfselsku og, þegar verst gegnir, ófyrirleitni. Fyrir sjónum hans voru konur ein- ungis til gagns og skemmtunar eða, í fáum orðum sagt – til að njóta! Arn- þrúður, önnur barnsmóðir hans, mátti svo sannarlega kenna á því. En hún varð móðir Sigurðar sem síðar varð þjóðkunnur fjármálamaður og þjóðsagnapersóna, bæklaður maður en fluggáfaður, unnandi fagurra bókmennta en almennt fordæmdur vegna starfsemi sinnar. Líkast til var hann svo sem öld á undan samtíð sinni. Síðustu kaflarnir segja frá Sig- urði og fjölskyldu hans, svo og frá úthugsaðri að- ferð hans til að rétta hlut móður sinnar. Hann var þá búinn að læra á spilin! Glóið þið gullturnar er bók sem heldur manni rækilega vakandi. Best tekst höfundi upp þegar hann gefur sér frjálsastar hendur. Þar njóta sín til fulls hæfileikar hans sem skáldsagnahöfundar. Ferðalýsingar hans eru, svo dæmi sé tekið, frábær- ar. Skal þá einkum bent á frásögn af ferðaslarki heldra fólksins frá Skagaströnd vestur til Borð- eyrar í Hrútafirði. En Borðeyri var þá vaxandi verslunarstaður. Í síðari hluta bókarinnar bindur höfundur sig um of við skráðar heimildir sem margar hverjar eru ófullnægjandi, dregur þá inn í söguna fólk sem birtist í svipsýn án þess að skipta stórmiklu máli fyrir heildina með þeim afleiðingum að samtöl og tilsvör geta misst marks. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að hér er á ferðinni bók sem höfundur getur verið fyllilega sáttur við. Björn Th. Björnsson er höfundur sem ekki bregst, hugkvæmur, vandvirkur og sérlega fundvís á merkileg viðfangsefni eins og þessi saga af Berndsen kaupmanni á Skagaströnd vitnar gerst um. Ást og peningar BÆKUR Heimildaskáldsaga Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. 234 bls. Mál og menning. Reykjavík, 2004. Glóið þið gullturnar Erlendur Jónsson Björn Th. Björnsson Dularfulla daga- talið er eftir Her- dísi Egilsdóttur. Að morgni annars desember dettur dul- arfullur pakki inn um bréfalúguna hjá systkinunum Kötu og Gunna. Inni í honum er einhvers konar jóla- dagatal. Um leið fara dularfullir at- burðir að gerast og spennan magnast allt til jóla. Krakkarnir vita ekki að á bak við allt stendur sjálf Grýla sem er sármóðguð út í föður þeirra fyrir að ætla að eyðileggja bælið hennar. Um árabil sagði Herdís Egilsdóttir nemendum sínum í Ísaksskóla sög- una um dularfulla dagatalið á aðvent- unni. Nú er þessi spennandi saga loksins komin á bók með skemmti- legum myndum Erlu Sigurðardóttur. Útgefandi er Mál og menning. Bókin er 165 bls. Verð: 2.490 kr.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.