Sunnudagsblaðið - 26.02.1956, Blaðsíða 6

Sunnudagsblaðið - 26.02.1956, Blaðsíða 6
38 SUNWUDAGS13LAÐIÐ leg' mök fyrir giftingu, hafa meiri möguleika á hamingjusömu hjónabandi með þeim, sem þær elska, heldur en hinar. 76ró þeirra, sem voru hreinar meyjar, er þær giftust, álitu hjónaband sitt „óvenjulega ham- ingjusamt“ eða „mjög hamingju- sarnt". Hundraðshluti þeirra. sem haft höfðu mök við karlmenn fyr- ir giftingu, var heldur lægri (68%). Tölurnar sýna, að kynferðisleg mök ógiftra verða venjulega í íyrsta skipti, þegar stúlkurnar eru 18 til 20 ára að aldri. En ein af hverjum fimm þeirra kvenna, sem spurðar voru, viðurkenndi, að hún hefði verið á milli 13 og 17 ára ald- urs, þegar hún fyrst lét undan karlmanni. Þá getur skýrslan þess, að sú staðreynd, sem eitt sinn var tai- in algild, að karlmaður kvæntist ekki þeirri stúlku, sem hann kæm- ist auðveldlega yfir, væri mjög að breytast, ef hún hefði þá á nokk- urn tíma verið rétt. Hins vegar er bent á, að hæsta hundraðstala óham- ingjusamra hjónabanda sé meðal þeirra stúlkna, sem fyrst voru með karlmönnum á milli þrettán og sautján ára aldurs. Sýnir niðurstaða rannsóknar- innar, að þessar stúlkur áttu í æsku við truflandi geðshræring- ar að etja. Athyglisverð er sú niðurstaða í skýrslunni, að þegar eiginkonan er sú, sem völdin hefur á heimil- inu, hefur það, þegar til lengdar lætur, ill áhrif á dótturina, Það kom hvað eftir annað fram í rann- sókninni, að konur, sem áttu í erf- iðleikum í hjónabandi, höfðu í uppeldinu fengið óbeit á öðru hvoru foreldranna. Hins vegar virðist mega rekja hamingjusöm- ustu hjónaböndin aftur til æsku, þar sem óhætt var að elska, hata, stjórna og láta undan án of mikils ótta. Rannsóknin leiðir í ljós, að strangt uppeldi hindrar stúlkur ekki í því að reyna fyrir sér í ástamálum. Hin óvænta niðurstaða af of ströngu uppeldi kann að vera uppreisn gegn öllum hömlum, einkum að því er við kemur kynferðismálum. Nálega helmingur (45tí) giftra kvenna, er áttu við strangt uppeldi að búa í upp- vextinum, viðurkenndu, að þær hefðu átt kynferðisleg mök við karlmenn fyrir giftingu sína. Talið er í skýrslunni, að móð- ir, sem á sjálf í kynferðislegum erfiðleikum, miðli dóttur sinni af þeim, annaðhvort sjálfrátt eða ósjálfrátt, og leiðir af þessu, að miklar líkur eru á því, að eitt óhamingjusamt hjónaband leiði af sér annað í næstu kynslóð. Átta af hverjum tíu konum, sem töldu hjónabönd sín ham- ingjusöm, álitu foreldra sína- hafa verið hamingjusama, og er þetta mikill stuðningur við það álit, sem kemur fram í skýrslunni, að geðrænt jafn- vægi á heimili sé afar mikil- vægt. Helmingur kvenna frá óham- ingjusömum heimilum höfðu get- að haldið hjónabandi sínu ham- ingjusömu. Þessi skýring er gefin í skýrsl- unni á því, hvers vegna svo mjög er rætt um kynferðismál í skýrsl- unni : „Kynhvötin kemur í ljós á þúsund vegu, ekki aðeins gegn um kynfærin, eins og margir halda. Hún á sinn þátt í því, hvernig við klæðum okkur, hvert viðhorf okkar er gagnvart hinu kyninu, hver smekkur okkar er á listum og skemmtunum og í allri hegðun okkar og framkomu.11 „Gerðu það sjálfur” í Ameríku og raunar viðar — þar á meðal hér á landi — er það orðin einskonar árátta á fólki að gera alla hluti sjálft, sem dytta þarf að við hús og heimili. En því miður eru ekki allir færir um þetta. Nýlega hefur tryggingarfélag eitt í Ameríku látið fara fram athugun á því, hverja þjóðnýta þýðingu þessi „sjálfshjálp“ fólks hefur, og sýna tölurnar að þessi „gerðu það sjálfur“ — hugsunar- háttur, sparar einstaklingunum að vísu töluverðar fjárupphæðir, sem annars myndu ganga til iðn- aðarmanna, en hins vegar rehnur mestur hluti þeirra aðra leið — nefnilega til læknanna. 1 skýrslu tryggingarfélagsins kemur það fram að árlega verða um 600 000 manns fyrir slysum við þessar „gerðu það sjálfur" — tilraunir. Þar af 150 000 við ýmis- konar smíðavinnu. Um 95 000 leita til læknis eftir að hafa sjálf- ir verið að burðast við að skipta um gluggarúður. — Um 107 000 þurfa á læknisaðgerð að halda, eftir að hafa málað og kvittað loft íbúða sinna. — 57 000 falla niður af húsþökum er þeir ryna að lagfæra rennur og þess háttar. — 32.000 falla til jarðar, er þeir eru að klippa trjágreinar — 16 400 fara sömu leið, er þeir eru sjálfir að koma upp útvarpsloft- netum sínum, og 11 000 leita jarð- arinnar, þegar þeir eru að lagfæra reykháfa og því um líkt! Húsmóðir ein í Englandi, Barn- es Green, að nafni, vann nýlega samkeppni, þar sem nefna átti með einu svari „nytsamasta hlut- inn í húsinu.“ Hún svaraði: „Mað- urinn minn.“

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.