Sunnudagsblaðið - 26.02.1956, Síða 15

Sunnudagsblaðið - 26.02.1956, Síða 15
SUNNUDAGSBLAÐIÐ 47 stöðinni séu að hugsa um að úti loka yður, þegar veitingaleyíin verða endurnýjuð. Hvernig í fjandanum hafið þér farið að því að fá lögregluna upp á móti yður ?“ Matty ákvað að hafa tal af Fredericks. Hann labbaði við á stöðinni og komst inn í skrifstofu hans. Þar sat óeinkennisklæddur maður á tali við hann. — ,,Nú, \vall,“ sagði Fredericks. Matty þótti þetta hljóma hálf kynlega í munni hans, en brosti þó ekki. „Get ég fengið að tala við yður einslega ?“ „Nei, hvað viljið þér ?“ „Sjáið þér til, herra minn, ég' hef verið að brjóta heilann um þetta, og hef hugsað mér að gefa dálitla gjöf til styrktarsjóðs lög- reglunnai'. — Hundrað sjötíu og fimm dollara.“ „Hvað ætlist þér fyrir með því ? Mútur! — Þér heyrðuð, hvað hann sagði, herra George, ef ég skyldi þurfa á vitni að halda!“ „Já, en guð almáttugur, þetta eru engar mútur,“ sagði Matty. „Og ég sem hélt að þér væruð heiðarlegur meðlimur kaþólska safnaðarins. Viljið þér hypja yður út!“ Matty tók hatt sinn og fór. Næsta laugardag veitti Matty öllum, sem hafa vildu ókeypis á krá sinni. Þetta stríddi í fyllsta máta gegn lögunum, en Matty vissi, að hann myndi aldrei íram- ar opna veitingastofuna sína. - BRIDGE - Spaði: 8 6 5 3 Ujarta: Á K 4 Tígull: 7 5 Lauf: D 9 7 3 N V A S Spaði: Á D G 9 2 Hjarta: 7 5 2 Tígull: 8 6 2 Lauf: 8 4 Þetta er ekki mjög erfið þraut, en ef þú leysir.hana rétt, hefurðu sæmilegt auga fyrir varnarspili. Austur spilar 5 lauf. Suður spil- ar út hjarta 5, sem tekið er með K í borði. Síðan kemur lítið lauf, drepið með Ás á hendi, annað lauf til baka, drepið meö drottningu í boi'ði. N fylgir ekki lit í síðara skiptið. Úr borði er látinn lágur tígull, norður lætur lágt og aust- ur drepur á D. Austur lætur út lágt hjarta, drepur með Ás í borði, spilar lágu hjarta heim og trompar. Síðan tekur hann á tígulás, og lætur síðan út lítinn spaða. Hvað myndirðu gera í sporum suðurs ? (Sjá lausn í næsta blaði). oOo „Anna Lísa er orðin 15 ára, og ég hefði sennilcga átt fyrir löngu að vera búin að fræða hana eitthvað um lífið og tilver- una,“ andvarpaði móðir hennar við vinkonu sínnar. „En ég veit lireint ekki hvernig ég á að bera mig til við það.“ „Það er alls enginn vandi," svaraði vinkonan, sem átti margar tippkomnar dætur. „Þú skalt bara vera ákveðiir og övugg — og Játa, sem þu vitir sjalí jaímmkið um lífið og hún.“ í vetur var opnuð „skautahöll“ við Snorrabraut í Reykjavík — Sú fyrsta hér á landi. — Er hér um að ræða Skátasvellið svonefnda, er skátar létu gera í Skátahcimilinu. Hefur skálasvcllið mikið vcrið sótt, scrstaklrga af börnuin og unglingum í vetnr og margir hafa stigið þar sin íytslu spor á skautum. •— Myudiu hér að ofan cr tekin af börnum á Skátasvelliuu eftirmiddag einn. - (Ljósm. Stefán Nikulásson)

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.