Morgunblaðið - 22.08.2004, Side 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞAÐ er talsverð traffík hérna á
annatíma sumarsins. Núna er
mest að gera um helgar,“ segir
Pétur Blöndal Gíslason, sem rek-
ur afþreyingarþjónustu í
Hvammsvík í Hvalfirði, þar sem
m.a. er boðið upp á veiði, kajak-
ferðir, sjóstangaveiði, grillveislur
og hægt að tjalda. Þá er þar golf-
völlur þar sem allir eldri borg-
arar á veitusvæði Orkuveitu
Reykjavíkur geta farið ókeypis í
golf.
„Stærstur hlutinn af mínu fólki
er Íslendingar en það er alltaf
eitthvað af erlendum ferðalöng-
um líka. Þetta eru mikið stór
starfsmannafélög og svoleiðis
hópar sem eru að koma, ættar-
mót, óvissuferðir, fyrirtækjahóp-
ar og steggja- og gæsapartí,“
segir Pétur.
Á þrjú ár eftir af
10 ára leigusamningi
Orkuveita Reykjavíkur á jörð-
ina, en þar er talsverður jarðhiti
sem Orkuveitan hefur áform um
að nýta í framtíðinni. „Þeir eru
með einhver áform um að leggja
hérna leiðslur fyrir heitt vatn og
jafnvel um einhverja uppbygg-
ingu. Þeir eru að skoða samvinnu
við einhverja með jafnvel upp-
byggingu á sumarbústaðahverfi,“
segir Pétur.
Hann gerði upphaflega leigu-
samning til tíu ára og á nú þrjú
ár eftir af þeim samningi. „Í
rauninni hefur mér verið gefið
tilefni til að áætla að það verði
framlengt,“ segir Pétur.
Sjálfur er hann uppalinn í
Reykjavík en hefur nú búið í átta
ár í Hvalfirði ásamt fjölskyldu
sinni og líkar mjög vel. „Það má í
raun segja að þetta sé lítið fjöl-
skyldufyrirtæki, það eru allir
nýttir. Við erum bara þrjú sem
búum hérna fast, en svo er systir
mín og hennar fólk hérna yfir
sumarið og svo koma ýmsir að
hjálpa til um helgar.“
Inntur eftir því hvort Hval-
fjarðargöngin hafi breytt miklu
fyrir reksturinn segir Pétur að
það hafi að minnsta kosti ekki
haft neikvæð áhrif. Mun minni
hávaði sé af umferðinni nú en áð-
ur. „Ég heyrði þegar göngin voru
opnuð. Þá datt niður þessi niður
og svo heyrir maður orðið í ein-
um og einum bíl núna. Göngin
voru opnuð klukkan 14 á laug-
ardegi, það var alveg blankalogn
þennan dag og allt í einu þagnaði
allur fjörðurinn. Göngin hafa
ekki haft nein neikvæð áhrif fyr-
ir þennan stað, ekki önnur en
þau að ég reyndi að fara á putt-
anum í bæinn eitt haustið og það
var svona frekar erfitt,“ segir
Pétur og hlær.
Umferðin um Hvalfjörðinn er
þó að aukast að nýju að hans
sögn.
„Undanfarin þrjú sumur hefur
umferðin stóraukist, en þetta eru
bílar sem fara í rólegheitunum
t.d. með fellihýsið. Eins er orðið
vinsælt að fara Hvalfjarðarhring-
inn.
Að fara Hvalfjörðinn er orðinn
valkostur eins og að fara á Þing-
völl,“ segir Pétur.
Morgunblaðið/Þorkell
Pétur Blöndal Gíslason við tvo af kajökunum sem hann leigir til siglinga á firðinum.
Talsverður jarðhiti hefur fundist í landi Hvammsvíkur í Hvalfirði og hefur Orkuveita
Reykjavíkur áform um að nýta jarðhitann þar í framtíðinni með einhverjum hætti.
„Allt í einu þagnaði allur fjörðurinn“
MIÐSTJÓRN Bandalags háskóla-
manna (BHM) segir í ályktun það
vera augljóst að launarammar í
kjarasamningum séu ekki í samræmi
við þau laun sem greidd séu í raun
fyrir dagvinnu. Því hafi stjórnendur
stofnana gripið til þess ráðs að greiða
viðbótarlaun og telur miðstjórnin ein-
sýnt að úr þessu þurfi að bæta við
endurnýjun kjarasamninga í haust.
Miðstjórn BHM telur einnig nauð-
synlegt að samið verði um reglulega
upplýsingaskyldu stofnana til hlutað-
eigandi stéttarfélaga um öll viðbótar-
laun sem ekki sé kveðið á um í kjara-
samningum. Skýrsla Ríkisendur-
skoðunar frá því í vor um viðbótar-
laun sé enn ein sönnun þess að
launamunur kynjanna minnki lítið.
Mikill launamunur kynja hjá ráðu-
neytum hljóti að vera „áfellisdómur
yfir þeim sem eigi að ganga á undan
með góðu fordæmi“.
Launamunur ekki að minnka
Halldóra Friðjónsdóttir, formaður
BHM, segir við Morgunblaðið að
upplýsingaskylda um laun sé ein
meginforsenda þess að hægt sé að
vinna gegn launamun kynjanna. Öll
aðildarfélög BHM hafi verið að ræða
sameiginleg áhersluatriði í kjaravið-
ræðum og viðbótarlaun séu ein af
þeim. Verið sé að vinna kannanir um
launaþróun, bæði sérstaklega fyrir
BHM og einnig í samstarfi við BSRB,
Kennarasambandið og Samband
bankamanna.
„Þær tölur sem við höfum fengið í
hendur sýna að launamunurinn er
ekki að minnka. Það var ein af gulrót-
unum í samningunum 1997 þegar
samið var um nýtt launakerfi,“ segir
Halldóra.
Miðstjórn BHM kemur saman til
aukafundar 1. september nk. en um
miðjan þann mánuð þarf að leggja
fram viðræðuáætlun til ríkisins og
viðsemjenda, 10 vikum áður en samn-
ingar renna út. Halldóra býst við að á
þessum fundi verði línurnar lagðar
nánar og ákveðið hvort farið verði í
sameiginlegar viðræður aðildarfélag-
anna. Búast megi einnig við að ríkið
haldi að sér höndum þar til búið verði
að semja í deilu grunnskólakennara
og sveitarfélaganna.
BHM vill taka á viðbótar-
launum í næstu samningum
SKIPULAGSSTOFNUN hefur
auglýst tillögu Landsvirkjunar að
breyttu svæðisskipulagi vegna Ufs-
arveitu, sem er hluti af virkjunar-
svæðinu við Kárahnjúka. Eru breyt-
ingarnar tilkomnar vegna
niðurfellingar á áður áformaðri
Bessastaðaveitu Fljótsdalsvirkjun-
ar.
Í tillögu Landsvirkjunar hefur
verið gert ráð fyrir ýmsum mann-
virkjum, m.a. göngum, stokki, bor-
holum og nýrri brú yfir Jökulsá í
Fljótsdal neðan Ufsarstíflu. Í breyt-
ingartillögunni segir m.a. að við at-
hugun á áhrifum niðurfellingar
Bessastaðaveitu á rennsliseiginleika
aðrennslisganga Kárahnjúkavirkj-
unar hafi komið í ljós að nauðsynlegt
sé að gera sérstök jöfnunargöng á
Jökulsárgöng um 2,5 km neðan við
Ufsarlón, bora loftunarholur niður í
göngin á um 1 kílómetra bili og
byggja þrýstijöfnunarstokk tengdan
göngunum. Telur Skipulagsstofnun
að þessi breytta tæknilega útfærsla
kalli á breytingu á sérstöku svæð-
isskipulagi Kárahnjúkavirkjunar. Í
skipulagstillögunni er jafnframt lögð
til breyting á legu Hraunavegar við
Ufsarlón með nýrri brú á Jökulsá í
Fljótsdal og gert er ráð fyrir nýju
haugsvæði við lónið.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna
að gæta á svæðinu geta skilað inn
skriflegum athugasemdum við tillög-
una til Skipulagsstofnunar fyrir 22.
september nk. Fram það þeim tíma
verður tillagan til sýnis hjá Skipu-
lagsstofnun, á skrifstofu Fljótsdals-
hrepps í Végarði og á vefsíðunni
www.skipulag.is.
Breytt svæðisskipulag
vegna Ufsarveitu
! "
#
$
MÁLUM til meðferðar í kjara-
máladeild Verslunarmannafélags
Reykjavíkur fækkaði um 30% á
fyrstu sex mánuðum ársins miðað
við sama tíma í fyrra. Gunnar Páll
Pálsson, formaður VR, segir þetta
ánægjulega þróun sem bendi til
þess að góðæri sé framundan.
„Við höfum séð það að fjöldi
mála í meðferð hjá okkur fer svo-
lítið eftir stöðunni í atvinnulífinu.
Þessi skýra lækkun núna, á fyrstu
sex mánuðum ársins, gefur okkur
vonir um að góðæri sé nú kannski
að koma hingað á höfuðborgar-
svæðið og við vonum að það muni
sýna sig í minnkandi atvinnuleysi
þegar líða fer á haustið. Þetta er
viss vísbending þótt maður geti
ekkert fullyrt fyrirfram,“ segir
Gunnar Páll.
Hann segir að tölurnar um
fjölda mála nú séu hlutfallslega
svipaðar því sem var í kringum ár-
ið 2000.
Mál er varða stöðu
og réttindi launafólks
Á árunum 2001–2003 komu að
meðaltali 600 mál til meðferðar í
kjaramáladeild VR fyrstu sex
mánuðina, en á þessu ári voru þau
422 á þeim tíma. Einkum er um að
ræða mál vegna innheimtu launa,
en einnig ágreining á vinnustöðum
og fleira sem varðar stöðu og rétt-
indi launafólks á vinnumarkaði, að
því er fram kemur á heimasíðu
VR.
Allt árið í fyrra fékk kjaramála-
deild 1.461 mál til meðferðar og
hafa þau aldrei verið fleiri. VR
bendir þó á að í lok ársins hafi Út-
gáfufélagið DV orðið gjaldþrota,
en í því máli einu hafi verið gerðar
launakröfur fyrir hönd 430 ein-
staklinga.
Atvinnuleysi er svipað fyrstu
sex mánuði þessa árs og ársins í
fyrra. „Menn hafa séð þessar
miklu hagvaxtartölur og klórað sér
í kollinum yfir því af hverju at-
vinnuleysi minnki ekki meira en
raunin hefur verið.
Þegar atvinnulífið var að rétta
úr kútnum eftir samdráttinn á
fyrri hluta tíunda áratugarins
sáum við að það tók svolítinn tíma.
Menn fóru að sjá launaskrið og
þenslu varðandi launahækkanir,
áður en fjölgun starfa fór virkilega
á skrið. Við erum að vona að þetta
sé svipað því sem er að gerast
núna,“ segir Gunnar Páll.
30% færri mál til kjaradeildar VR
Bendir til að góð-
ærið sé framundan