Morgunblaðið - 22.08.2004, Page 32
UMRÆÐAN
32 SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UM ÞESSAR mundir eru liðin
20 ár frá stofnun Fjölís, hags-
munafélags um höfundarrétt.
Fjölís er hagsmunafélag sam-
taka sem koma fram fyrir hönd
rétthafa að verkum
sem njóta höfund-
arréttarverndar og
nýtt eru með ljósritun
eða annarri hliðstæðri
eftirgerð rita.
Eitt meginhlutverk
Fjölís er að annast
hagsmunagæslu fyrir
höfunda og útgef-
endur með samn-
ingum sem heimila
ljósritun úr verkum
þeirra gegn hæfilegu
endurgjaldi. Slíkir
samningar gera stofn-
unum, fyrirtækjum og öðrum
stærri notendum verndaðra verka
kleift að nýta verkin í atvinnu
sinni með ljósritun, án þess að
þurfa í hvert sinn að fá til þess
leyfi rétthafa.
Fjölís var stofnað 22. ágúst 1984
í framhaldi af samningi nokkurra
rétthafasamtaka við mennta-
málaráðuneytið 1983 um ljósritun
í skólum. Sá samningur var gerð-
ur eftir áralangar viðræður vegna
ljósritunar verndaðra verka sem
fram fór án heimildar í skólum
landsins.
Í dag eiga eftirtalin samtök
rétthafa aðild að Fjölís: Blaða-
mannafélag Íslands,
Félag íslenskra bóka-
útgefenda, Hag-
þenkir – félag höf-
unda fræðirita og
kennslugagna, Mynd-
stef, Rithöfunda-
samband Íslands og
STEF.
Nýlega urðu for-
mannsskipti í Fjölís,
þegar Ragnar Að-
alsteinsson hrl. ákvað
að láta af for-
mennsku í samtök-
unum, til að sinna
öðrum verkefnum. Ragnar hefur
verið lögmaður Rithöfunda-
sambands Íslands um langt árabil
og var einn af stofnendum Fjölís.
Hann hefur verið formaður
samtakanna frá upphafi og eiga
samtökin honum mikið að þakka
þann árangur sem náðst hefur í
baráttu fyrir endurgjaldi fyrir
fjölföldun verndaðra verka.
Nýr stjórnarformaður er Hall-
dór Þ. Birgisson, hrl. Halldór er
lögmaður Félags íslenskra bókaút-
gefenda og hefur verið í stjórn
Fjölís um margra ára skeið.
Enda þótt ennþá fari víða fram
ljósritun án heimildar, hefur lög-
leg ljósritun verndaðs efnis aukist
verulega með samningum Fjölís
við notendur frá því samtökin
voru stofnuð. Jafnframt hefur höf-
undum og öðrum rétthöfum þann-
ig verið tryggt nokkurt endurgjald
vegna ljósritunar á verkum þeirra.
Auk samnings við mennta-
málaráðuneytið um ljósritun í
skólum og háskólum hefur Fjölís
gert samning við ríkið vegna ljós-
ritunar í Stjórnarráði Íslands og
stofnunum þess, við einstakar rík-
isstofnanir, samninga við sveit-
arfélög, við Kirkjuráð, við Samtök
tónlistarskóla í Reykjavík, og við
allmarga einkaskóla. Fjölís á að
auki í samningaviðræðum við fleiri
aðila.
Á þeim 20 árum sem liðin eru
frá stofnun Fjölís, hefur orðið ör
þróun á sviði upplýsingatækni,
með tilkomu stafrænnar eintaka-
gerðar.
Allt frá árinu 1994 hefur farið
fram umræða innan Fjölís um
hvernig brugðist verði við eintaka-
gerð sem fram fer í gegnum tölv-
ur, og hafa verið haldnir nokkrir
samráðsfundir með aðildarfélög-
unum til að ræða þessi mál og
hlutverk Fjölís í því sambandi.
Það var þó ekki fyrr en árið 2002
að undirritaður var fyrsti til-
raunasamningurinn um stafræna
eintakagerð, með samningi við
Háskólann á Akureyri um notkun
á útgefnum vernduðum verkum á
innraneti háskólans.
Í samningi Fjölís og mennta-
málaráðuneytisins um ljósritun í
skólum og háskólum er ákvæði um
að unnið skuli í samvinnu að því
að finna lausnir á höfundarrétt-
Fjölís 20 ára
Elín Helgadóttir
skrifar um Fjölís ’Eitt meginhlutverkFjölís er að annast
hagsmunagæslu fyrir
höfunda og útgef-
endur …‘
Elín Helgadóttir
Glæsilega 4ra herb. 113 fm íbúð á 3.
hæð (efstu) í litlu fjölbýli í Lindunum
Kópavogi. Þrjú stór svefnherb. Rúm-
góð stofa með útg. á S-svalir m/fal-
legu útsýni. Flísalagt baðherb. Sér
þvottahús innan íbúðar. Loft upptekin
m/halogenlýsingu. Fallegar innrétting-
ar. Stutt í skóla og aðra þjónustu.
Glæsileg eign á góðum stað.
Áhv. 8,1millj. húsbréf. Verð 18,9 millj.
Jónas og Helga sýna eignina í dag sunnudag frá kl 15:00 – 17:00
Laugalind 5 - 4ra herb. íbúð á 3. hæð
Opið hús í dag kl. 15-17
Víkurás 6 - 2ja herb. íbúð á 3. hæð
Opið hús í dag kl. 14-16
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
Falleg 56 fm 2ja herb. íbúð á 3. hæð í
góðu fjölbýli ásmt 22 fm stæði í bíla-
geymslu. Stórt og rúmgott herb. Stór
og björt stofa með útg. á suðursvalir.
Góðar innréttingar. Fallegt útsýni.
Góð sameign. Eignin getur verið laus
fljótt.
Áhv. 6,5 millj. Byggsj. Og húsbréf.
Einnig 1,7 millj. Viðbótarlán Samtals
áhv. 8,2 millj. Verð 10,5 millj.
Eignin verður til sýnis í dag sunnudag frá kl. 14:00 – 16:00
Upplýsingar sendist til auglýsingadeildar Mbl.
merktar: „Traust – 15799“.
Óskum eftir að kaupa
atvinnuhúsnæði
með trausta leigusamninga
Á verðbilinu 100 til 1000 milljónir
á stór-Reykjavíkursvæðinu.
Aðrir staðir koma til greina.
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík,
sími 568 2444, fax 568 2446.
Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali.
Til sölu þetta virðulega, fallega og sögufræga hús Galtafell við Laufásveg. Stærð hússins er um 500
fm. Húsið skiptist m.a. í jarðhæð, sem er innréttuð sem 5 fullbúnar vandaðar ósamþykktar stúdíó-
íbúðir allar með sérinngangi. Aðalhæð hússins skiptist í forstofu, snyrtingu, stórt hol, stórt herbergi,
stóra stofu með arni og er gengt úr henni út á stórar suðursvalir, stór setustofa, stór borðstofa,
svefnherbergi með sérbaðherbergi og stórt eldhús með borðkrók. Úr holi er gengt upp í stórt turn-
herbergi en þaðan er frábært útsýni. Aðalhæðin er með mikilli lofthæð og þakgluggum. Rósettur eru í
loftum og kverklistar. Húsið var á sínum tíma eitt glæsilegasta hús bæjarins byggt af miklum efnum
af Pétri Thorsteinson frá Bíldudal föður Muggs listmálara. Húsið býður upp á mikla möguleika með
núverandi nýtingu eða sem glæsilegt einbýlishús. Verð tilboð.
TIL SÖLU
LAUFÁSVEGUR 46 – GALTAFELL
Sími 533 4040
Fax 533 4041
ÍBÚÐAREIGENDUR Í LINDAHVERFI
Kæru íbúðareigendur í Lindahverfi Kópavogs.
Mér hefur verið falið að finna 3ja til 4ra her-
bergja íbúð með bílskýli fyrir einn af okkar við-
skiptavinum. Fjársterkur kaupandi með góðar
greiðslur í boði fyrir réttu eignina.
Vinsamlegast hafið samband við mig,
Ólaf Guðmundsson,
í síma 896 4090.
Ármúla 21 • Reykjavík
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
jöreign ehf Opið mán.–fim.
frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.
Heimili fasteignasala - þinn hagur er okkar metnaður
Sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
BRÁVALLAGATA 16
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 15-17
Mikið endurbætt 100
fm íbúð á á 3. hæð
með vinnuherbergi í
risi. Nýlegt eldhús, bað-
herbergi, raflagnir og
rafmagnstafla. Vinsælt
og rólegt hverfi. Áhv.
6,5 m. Verð 15,7 m.
Björn og Margrét taka á móti fólki í dag
milli kl. 15.00 og 17.00
Opið hús í dag kl. 14-16
Björtusalir 4 - íbúð 0201
Valhöll,
sími 588 4477
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
- www.valholl.is
- Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Glæsil. 127 fm íb. á 2. h. í nýl. vönduðu
fimm íb. húsi á fráb. stað í Salahverfi.
3 góð svefnherb. Vandaðar innrétt.
Parket. Stórar svalir. Gott útsýni. Stutt í
ört vaxandi þjónustu. Áhv. hagst. lán
ca 8,8 m. V. 18,9 m. Í dag, sunnudag,
er opið hús frá kl. 14-16. Örn og
Stella taka á móti áhugasömum.
Áratuga reynsla tryggir fagleg vinnubrögð!