Morgunblaðið - 30.08.2004, Síða 2

Morgunblaðið - 30.08.2004, Síða 2
2 C MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ 410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna Í Landsbankanum getur þú valið hvort þú tekur íbúðalán á 1. veðrétti til 25 eða 40 ára: 1. Með föstum 4,4% verðtryggðum vöxtum út lánstímann. 2. Með endurskoðun vaxta á 5 ára fresti. Skilyrði fyrir þessum kjörum er að lántaki sé með launareikning í Landsbankanum og þrjá af eftirfarandi þjónustuþáttum í Landsbankanum: • Greiðsludreifing • Kreditkort • Lífeyrissparnaður • Líftrygging eða sjúkdómatrygging. Veldu þitt lán 4,4% 80% 100% vextir lánshlutfall þjónusta ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 56 81 08 /2 00 4 PÉTUR H. Ármannsson arkitekt þekkir vel til verka Manfreðs Vilhjálmssonar. „Arkitekt- inn Manfreð Vilhjálmsson þarf vart að kynna, hann er fyrir löngu orðinn þjóðþekktur fyrir verk sín,“ segir Pétur. „Á 7. áratugnum teiknaði hann nokkur íbúðarhús sem þóttu tíðindum sæta í íslenskum arkitektúr. Í þeim fléttast saman módernískar hugmyndir þess tíma um opna, flæðandi rýmisskipan að jap- anskri fyrirmynd, og svo norrænar áherslur í efnisvali, þar sem hinn náttúrulegi efniviður fær að njóta sín. Með notkun jarðlita og rák- aðs yfirborð á steyptum útveggjum sem teygja sig út í garðinn verður húsið sem hluti af landinu í anda hugmynda bandaríska arki- tektsins Frank Lloyd Wright. Kunnast íbúðar- húsa Manfreðs er Mávanes 4 í Garðabæ sem fjallað hefur verið um í innlendum og erlend- um ritum um arkitektúr. Húsið við Geita- stekk 4 í Neðra-Breiðholti teiknaði Manfreð árið 1967. Efnisáferð og uppbygging þessara tveggja húsa er mjög áþekk, þó að húsið við Geita- stekk sé nokkru minna og samþjappaðra, enda mótað af ólíkum að- stæðum á lóð, svo sem afstöðu til útsýnis og sólarátta. Helsta einkenni beggja húsanna er léttleiki. Þakið hvílir á sjálfstæðri, svartmálaðri burð- argrind úr timbri sem byggð er upp innan við steypta útveggina. Það snertir því hvergi steypuna og dagsbirtan á greiða leið inn um rifuna milli þaks og veggja. Efnisnotkun og útfærsluatriði í húsinu bera vott um þá sérstöku fágun sem er aðalsmerki höfundarins. Þar fer saman glæsilegur arkitektúr og einkar hentugt og þægilegt innra skipulag. Íbúðin er af hóflegri stærð, notalegt heimili þar sem öllu er haganlega fyrir komið. Árið 1979 var byggður laufskáli með bogadregnu þaki við aðkomuhlið hússins eftir teikningum Manfreðs, frumleg lausn sem kann að virðast framandi við fyrstu sýn. Hún vinnur mjög á við nánari skoð- un, enda rökrétt miðað við afstöðu húss og lóðar. Eigninni hefur verið mjög vel við haldið og nýlegar endurbætur gerðar með virðingu fyrir upphaflegum einkennum. Hér gefst því fágætt tækifæri fyrir áhugafólk um arkitektúr og hönnun sem vill njóta þess besta sem í boði er hér á landi.“ Fágun er aðalsmerki Manfreðs Vilhjálmssonar Reykjavík - Eignamiðlunin hefur fengið í sölu glæsilegt hús á góðum stað í Reykjavík. Kjartan Hallgeirsson hjá Eigna- miðluninni segir að um sé að ræða eitt af fallegri húsum sem íslenskur arkitektúr stríðsáranna hafi fært okkur. „Húsið er teiknað af Man- freð Vilhjálmssyni og byggt árið 1970. Það er einkar stílhreint og vel staðsett með góðri tengingu við garð og nánasta umhverfi.“ Húsið, sem er á einni og hálfri hæð, alls 204,8 fm, stendur í aflíð- andi halla og keyrt er niður fyrir það að bílskúr. Það skiptist í and- dyri, gang, stofu, þrjú svefn- herbergi, baðherbergi, eldhús, borðstofu, sólskála, þvottahús og búr og á neðri hæð er sjónvarps- herbergi/svefnherbergi, snyrting, geymsla og bílskúr. Komið er inn í rúmgott anddyri með fatahengi og steinflísum á gólfi og síðan inní gang. Til vinstri er rúmgóð og björt stofa með fallegu útsýni. Þar er gert ráð fyrir arni. Á gangi er hjónaherbergi með skáp- um. Eldhúsið er með upprunalegri innréttingu sem gerð hefur verið upp og endursmíðuð að hluta. Eld- húsið er opið inn í borðstofu sem síðan er opin inn í sólskálann. Þessi rými ná í gegnum húsið og mynda mjög skemmtilega heild. Úr sól- skálanum er síðan gengið út í garð- inn. Inn af borðstofu eru tvö rúm- góð herbergi. Baðherbergið er flísalagt með baðkari, sturtuklefa og snyrtingu. Innaf eldhúsi er gengið niður á neðri hæðina. Þar er rúmgott sjónvarpsherbergi eða svefnherbergi og innaf því geymsla og flísalögð snyrting. Af neðri hæð- inni er hægt að ganga út á bíla- planið við hlið bílskúrsins. Garðurinn er mjög gróinn og skjólgóður og húsið vel staðsett í botnlangagötu í fallegu einbýlis- húsahverfi, þaðan sem stutt er í náttúruparadís, s.s. Elliðaárdalinn og göngustíga í Fossvogi. Hiti er í stéttum, breiðband og öryggiskerfi. Kjartan hjá Eignamiðluninni segir að húsinu hafi verið mjög vel við haldið og tekist hafi að varð- veita stíl og handbragð höfundar þess, jafnt í útliti sem innrétt- ingum. Ásett verð er 39 milljónir. Geitastekkur 4 Húsið við Geitastekk 4 er vel staðsett í botnlagnagötu, þaðan sem stutt er í Elliðaárdalinn og göngustíga í Fossvogi. Fasteignablað Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is, sími 5691323 og Magnús Sigurðsson, magn- uss@mbl.is, sími 5691223, Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prent- un Prentsmiðja Árvakurs. Efnisyfirlit Akkurat .......................................... 5 Ás .................................................. 25 Ásbyrgi ........................................... 6 Berg .............................................. 54 Bifröst ............................................. 7 Borgir ........................ 50–51 og 56 Brynjólfur Jónsson ..................... 4 Búmenn ....................................... 26 DP fasteignir .............................. 34 Eignaborg .................................... 48 Eignamiðlun .... 24, 28–29 og 56 Eignaumboðið ............................ 43 Eignaval ........................................ 14 Fasteign.is .................................. 35 Fasteignakaup ........................... 40 Fasteignamarkaðurinn .......... 8–9 Fasteignamiðlun Hafnafjarðar 19 Fasteignamiðstöðin ................... 18 Fasteignasala Íslands ................ 31 Fasteignasala Mosfellsbæjar . 22 Fasteignastofan .......................... 15 Fjárfesting ................................... 16 Fold ............................................... 39 Foss ................................................ 13 Garður .......................................... 48 Garðatorg .................................... 42 Gimli ..................................... 24–25 Híbýli ............................................. 41 Heimili .......................................... 27 Hof ................................................ 26 Hóll ................................................. 17 Hraunhamar ........................ 36–37 Húsakaup ............................. 32–33 Húsavík ........................................ 23 Húsið ............................................ 49 Húsin í bænum ............................ 12 Höfði ..................................... 52–53 Kjöreign ....................................... 55 Klettur ..................................... 10–11 Lundur ................................. 44–45 Miðborg ................................. 20–21 Skeifan ......................................... 38 Smárinn ....................................... 49 Stakfell ........................................ 33 Valhöll .................................. 46–47 Manfreð Vilhjálmsson arkitekt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.