Morgunblaðið - 30.08.2004, Page 22

Morgunblaðið - 30.08.2004, Page 22
22 C MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Barrholt - 200 m2 einbýli *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 166 m2 einbýlishús á einni hæð m. sólskála, heitum potti og 35 m2 bílskúr í grónu hverfi. 4 svefnherbergi, baðherbergi m. kari og sturtu, gestasalerni, sérþvottahús og stór stofa og borðstofa. Skjólsæll og gróinn garður, stutt í alla þjónustu. Verð kr. 24,9 m. Skeljatangi - 4ra herb. *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 94 m2, 4ra her- bergja íbúð a 2. hæð í litlu fjórbýlishúsi, með sérinngangi og svölum. 3 góð svefnherbergi, baðherbergi með kari, sér þvottahús, geymsla stór stofa og eldhús. Verð kr. 15,0 m. Klapparhlíð - 3ja herb. + bíl- skúr Mjög falleg, 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í nýlegu, 3ja hæða fjölbýli með mjög miklu útsýni til Reykjavíkur og út á sundin. Flísar á eld- húsi, forstofu og baðherbergi en beykiparket á svefnherbergjum, stofu og gangi. Íbúðinni fylgir 26 m2 bílskúr við húsið. Þetta er falleg íbúð á mjög góðum stað. Verð kr. 15,9 m. - áhv. 8,9 m. Hlaðhamrar - 135 m2 raðhús + bílsk. Mjög fallegt, 135,5 m2 raðhús m. risi ásamt 25,9 m2 bílskúr á mjög skemmtilegum stað í Grafarvogi. Á aðalhæð eru 2 stór svefnher- bergi, baðherbergi m. sturtu og kari, þvottahús, eldhús m. borðkrók, stór stofa og sólstofa, en í risi er sjónvarpsstofa, svefn-/vinnuherbergi og lít- ið salerni. Lítill suðurgarður og aðkoma að húsi eru til fyrirmyndar. Til afhendingar strax. Verð kr. 23,9 m. Einiberg - einbýli Erum með mjög fal- legt, 217,3 m2 einbýlishús með garðskála og tvö- földum bílskúr við Einiberg í Hafnarfirði. Húsið skiptist í þrjú, mjög stór svefnherbergi, mjög stóra stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, baðherbergi, gestasalerni og sólskála. Stór og falleg, gróin lóð og hellulagt bílaplan. Verð kr. 26,4 m.  Helgugrund - 170 m2 einbýli - Kjalarnesi Erum með nýlegt, 122,9 m2 einbýlishús á einni hæð ásamt 47,4 m2 bílskúr. Þetta er kanadískt timburhús og skiptist í 3 góð svefnherbergi, baðherbergi m. kari, stofu og eld- hús með fallegri innrétting. Húsið er byggt 2001 og er ýmis lokafrágangur eftir. Verð kr. 18,9 m. Klapparhlíð - raðhús Erum með þrjú, 140 m2 raðhús á einni hæð með innbyggð- um bílskúr við Klapparhlíð. Íbúðirnar verða af- hentar fullbúnar án gólfefna og þökulögðum garði. Val er um viðartegundir í innréttingum. 2 góð svefnherbergi, stór stofa, eldhús, sjónvarps- hol, gott baðherbergi og sérþvottahús. Húsin verða til afhendingar 15. desemer 2004. Verð frá 22,3 m. Tröllateigur 49-51 - Nýjar 4ra herb. íbúðir Vorum að fá í sölu 10 íbúðir í 3ja hæða fjölbýli við Tröllateig í Mosfellsbæ. Á jarðhæð eru tvær, 3ja herb., 101 m2 íbúðir, á 2. hæð eru tvær, 111 m2, 4ra herbergja íbúðir og tvær, 7 herbergja, 164 m2 íbúðir á 2 hæðum og á 3. hæð eru fjórar, 100-110 m2, 4ra herbergja íbúðir. Allar íbúðir eru með sérinngangi og garði eða svölum. Íbúðunum verður skilað fullbúnum án gólfefna, en baðherbergi og þvottahús verða flísalagt. Afhending í apríl og maí 2005. Hulduhlíð - 3-4ra herb. + bílsk. *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 94 m2, 3-4ra herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjórbýlishúsi, með sérinngangi ásamt 27 m2 bílskúr. 2 góð svefnherbergi, baðherbergi með kari, sérþvottahús, geymsla, stór stofa og eldhús. Eikar- parket á gólfum og kirsuberja-innrétt- ingar. Verð kr. 16,2 m. Klapparhlíð 5 - 50 ára og eldri Erum með í sölu glæsilegt, 4 hæða lyftuhús með 20 íbúðum fyrir 50 ára og eldri í Klapparhlíð í Mosfellsbæ. Sér- inngangur er í hverja íbúð af svalgangi með glerskermun. Innangengt er í bíla- geymslu með 16 bílastæðum. Húsið er einangrað að utan og klætt með báru- málmklæðningu og harðvið. 2ja her- bergja íbúðir eru 90 m2 og 3ja her- bergja íbúðirnar eru 107-120 m2. Íbúð- irnar verða afhentar í október nk. Nán- ari upplýsingar hjá Fasteignasölu Mos- fellsbæjar. Miðholt - 3ja herb. Erum með fína 3ja herbergja, 82,4 m2 íbúð á 2. hæð í snyrtilegu 3ja hæða fjöl- býli í miðbæ Mosfellsbæjar. Tvö rúm- góð svefnherbergi, baðherbergi flísa- lagt í hólf og gólf, m. sturtu, góð stofa og eldhús með borðkrók. Mjög stutt í alla þjónustu og skóla. Verð kr. 12,3 m. - til afhendingar strax. ÁGÆTU MOSFELLINGAR! Vegna ágætrar sölu undanfarið þá vantar okkur hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar allar gerðir eigna á söluskrá okkar. Við erum með fjölda áhugasamra kaupenda sem bíða eftir draumaeigninni sinni. „ÞAÐ ER fyrst og fremst stefna hjá okkur að vera eins skýrir í aug- lýsingum og upplýsingum til fólks og við getum í því litla plássi sem hver auglýsing tekur,“ segir Sig- urður Hjaltested eigandi Fast- eignasölunnar Kletts, en auglýsing- ar þeirra á fasteignum hafa vakið athygli fyrir það að þar koma fram meiri upplýsingar en gengur og gerist í fasteignaauglýsingum. „Með þessari aðferð er auðveld- ara fyrir fólk að átta sig á greiðslu- byrði, ásamt verði,“ segir Sigurður, „en það er þetta tvennt sem fólk vill vita þegar það fer út í fast- eignakaup, ásamt því hversu mikl- um lánum það kemur á eignina.“ Voruð þið með einhverja fyrir- mynd að þessari stefnu? „Í rauninni ekki, þótt við vitum að menn eru að veita betri upplýs- ingar víða erlendis en hér er gert. Við hér á Kletti álitum einfaldlega að þetta væri góður punktur til að upplýsa fólk, sem er í fasteigna- kaupahugleiðingum, um. Bygginga- fyrirtæki hafa oft komið með sér- stök kaupendadæmi um hversu mikið er greitt út og hvernig greiðslubyrði er af nýjum eignum. Við vildum færa þessa aðferð yfir á notaðar eignir líka.“ Hefur vakið athygli Hvernig hefur þetta virkað? „Fyrst til að byrja með hringdi fólk til okkar og spurði hvað við værum að meina með þessu. Það vildi fá skýringu. Síðan hefur þetta vakið mikla athygli.“ Er greiðslubyrði alltaf fyrirsjáan- leg? „Já, það er alltaf ljóst hversu mikið af lánum kemst á hverja eign og hver greiðslubyrðin verður, að minnsta kosti af íbúðasjóðslánum. Við getum hins vegar ekki tekið með í reikninginn önnur lán, til dæmis bankalán og lífeyrissjóðslán, þótt við reynum að sjálfsögðu að aðstoða fólk við að reikna slíkt út þegar þau bætast á eignir sem ver- ið er að kaupa.“ Hvernig getið þið reiknað íbúða- sjóðslánin svona nákvæmlega? „Það er einfalt. Segjum að þú kaupir íbúð á 18 milljónir. Íbúða- sjóðslánið er þá 9,2 milljónir en þú átt veðrétt á eigninni fyrir öðrum lánum upp að 70% áf kaupverði eignarinnar, eða 85% af brunabóta- mati. Ef þú tekur lánið til 20 ára hjá Íbúðalánasjóði, þá er greiðslubyrðin kr.6.326 á hverja milljón. Ef þú tek- ur lánið til 30 ára, er greiðslubyrðin kr.5.066 á hverja milljón. Á 40 ára láni er greiðslubyrðin 4.495 kr. á hverja milljón. Þessar tölur eru síð- an margfaldaðar með 9,2, eða þeirri upphæð sem þú færð að láni hjá Íbúðalánasjóði.“ Hvaða fleiri nýjungar bjóðið þið upp á í þjónustu? „Við höfum opnað sýningarsal á nýbyggingum sem við erum að selja og erum að ljúka við að gera eigna- möppur sem við afhendum við- skiptavinum okkar. Í stað þess að afhenda þeim bara kaupsamning í umslagi, látum við þá fá möppur með öllum upplýsingum um eign- ina; eignaskiptasamning, teikningar af húsnæðinu og allt slíkt og síðan hafa þeir þessa möppu fyrir alla pappíra sem viðkoma fasteigninni, allar kvittanir og slíkt. Þá er allt á einum stað.“ Hvers vegna farið þið þessar leið- ir? „Þetta er harður markaður og það er ekki um annað að ræða en að veita góða þjónustu. Við erum nýir á þessum markaði, opnuðum í mars síðastliðnum og erum með ýmsar nýjar hugmyndir. Fasteignamarkaðurinn hefur ver- ið of staðnaður um langan tíma og við munum halda áfram að fara aðr- ar leiðir en tíðkast hefur til þess að bæta þjónustuna við kúnnann.“ Morgunblaðið/Eggert Starfsfólk Kletts: Sigurður Hjaltested, Þorbjörg Árnadóttir, Valþór Ólason, Svavar Svavarsson og Ragnar Þórðarson. Viljum veita betri þjónustu Í auglýsingum Fasteignasölunnar Kletts má finna upp- lýsingar um verð og greiðslubyrði. Súsanna Svav- arsdóttir ræddi við Sigurð Hjaltested sem segir Klett bjóða upp á ýmsar nýjungar sem eiga að vera til þess fallnar að veita betri þjónustu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.