Morgunblaðið - 30.08.2004, Page 30

Morgunblaðið - 30.08.2004, Page 30
30 C MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Margrét Sigfúsdóttir naminnanhússarkitektúr íDanmarks Designskoleog útskrifaðist þaðan árið 1991. Þegar hún hóf nám var innanhússarkitektúr deild í Fred- riksberg Tekniske Skole, þurftu námsmenn að þreyta inntökupróf til að komast inn í skólann. Af um 350 umsækjendum komust aðeins 30 inn. Á meðan á námi stóð var innan- hússarkitektanámið fært inn í náms- skrá Danmarks Designskole. Í dag býður skólinn upp á fjölbreytt hönn- unarnám, s.s textil-deild, húsgagna- hönnun, innanhússarkitektúr, myndlist, fatahönnun og fleira. Í dag er um að ræða 4–5 ára nám, tveggja ára grunnnám á þriðja ári er sér- grein valin eftir áhugasviði. Næstu tvö árin er svo unnið með sjálfstæð verkefni innan fagsins. Þegar heim var komið hóf hún störf á öðrum vettvangi þar sem lítið var um ráðningar nýútskrifaðra hönnuða með litla reynslu. Margrét ílengdist því sem fjármálastjóri Sölufélags garðyrkjumanna um margra ára skeið. Hún sneri þó ekki alveg baki við innanhússhönnuninni á þessum tíma, því hún tók að sér ýmis hönnunarverkefni samhliða vinnunni, en eftirspurn eftir ráðgjöf hennar var þó svo mikil að iðulega þurfti hún að gefa verk frá sér sem henni buðust. Árið 2000 ákvað hún hins vegar að snúa sér alfarið að innanhússhönn- uninni og stofnaði þá sitt eigið fyr- irtæki sem hún hefur rekið síðan. Að samræma þarfirnar Margrét segir að aldrei hafi verið jafnmikil gróska og eftirspurn eftir innanhússráðgjöf og nú. Þar helst í hendur að áhugi fólks á innanhúss- hönnun og almennri hönnun hefur aukist mikið, en einnig hefur batn- andi efnahagur sitt að segja. „Ég hef mjög gaman af allri hönn- un, enda er vinnan aðaláhugamálið um þessar stundir,“ segir Margrét. Innanhússarkitekt þarf að vera lipur í mannlegum samskiptum og næmur á persónuleika fólks. Margrét segir að mikilvægt sé að reyna að lesa í karakter viðskiptavinarins og þrýsta á hann um að gera kröfur útfrá sín- um eigin þörfum og smekk. „Þarfagreiningin er mjög mik- ilvæg í þessu starfi. Þegar ég tel mig hafa fundið út hvað það er sem við- skiptavinurinn vill í raun og veru reyni ég að vinna út frá því. Ég held að það sé varhugavert að ryðja öll- um eigum fólks í burtu í þeim einum tilgangi að endurhanna heimilið samkvæmt nýjustu tísku. Persónuleiki fólksins lifir í eigum þess og ef allt er tekið í burtu er hætta á að persónulegt yfirbragð heimilisins glatist. En það hefur þó vissulega komið fyrir að ég hef verið beðin um skipta öllu út og koma með nýja stefnu . En oft er aðalmálið að samræma þarfir fólks. Hjón hafa iðulega mismunandi þarfir og smekk og þá kemur til kasta innanhúss- arkitektsins að sameina þessar þarf- ir. Það hefur leitað til mín fólk sem gat ekki komið sér saman um hve- nær og hvernig ætti að ljúka bygg- ingarferlinu. Allt í uppnámi. Þau höfðu leitað til ráðgjafa varðandi sambandið og óttuðust að alvarlegir brestir væru komnir í hjónabandið. Ráðgjafinn komst að þeirri nið- urstöðu að grunnur hjónabandsins væri góður, en ágreiningurinn væri hins vegar svo veigalítill að það dygði að fá innanhússhönnuð til að leysa vandann!“ Bendir á hagkvæmar lausnir Þegar fólk leitar eftir innanhúss- ráðgjöf gerir það sér ekki alltaf grein fyrir því hvaða möguleika rýmið, sem á að hanna, hefur upp á að bjóða og gerir sér jafnvel óraun- hæfar kröfur þar að lútandi. Mar- gréti finnst skemmtilegt að takast á við krefjandi verkefni og leysa úr ágreiningi og álitamálum. „Oft þarf ég að byrja á því að tala um fyrir fólki sem gerir óraunhæfar köfur og útskýra hvernig er best að standa að málum. Þá er einnig nokkuð um að fólki metur kostnað ekki rétt, sumt er ónýtt en annað má laga með minni tilkostnaði, t.d. í gömlum hús- um. Ég hef fengið ótal símtöl frá þakklátum viðskiptavinum sem hafa sparað sér umtalsverðar fjárhæðir í þessu sambandi.“ Það skiptir miklu máli að karakter hvers húss fái að njóta sín. Efn- istökin eru mismunandi eftir því hvort verið er að vinna við end- urgerð gamals húsnæðis, eða hvort verið er að skipuleggja t.d. nýbygg- ingu. „Ég reyni að draga fram kar- akter hússins í hvert skipti,“ segir Margrét. „Í gömlu húsunum er spennandi að færa húsið í upp- runalegt horf þ.e. með rósettum, hurðagerettum, gluggarömmum, stigahandriðum o.þ.h. en nýta tæknina og efnisnotkun til að færa okkur nær nútímanum. En í nýju húsin velur maður frekar látlausari fleti, jafnvel höldulausar skúffur og skápa, allt er stílhreinna og naum- hyggjan svífur yfir vötnunum.“ Margrét segir að naumhyggjustíll sé dálítið inni í dag, en varast beri að stíllinn sé á kostnað notagildisins. Bæði umhverfi og litir hafa áhrif á líðan fólks, og hún bendir t.d. á Feng shui-fræðin máli sínu til stuðnings, en þau ganga út frá því að nánasta umhverfi og heimilið sé þannig úr garði gert að það laði fram andlegt jafnvægi og hugarró. „Ég set nota- gildið í öndvegi því óreiða hefur slæm áhrif. Flestir vilja líka minnka óreiðuna í kringum sig og hafa hirslur fyrir dótið sitt. Þegar ég get sameinað þetta tvennt, þ.e. að hanna stílhreint húsnæði en jafnframt búa hverjum hlut sinn stað og formin standi af sér tísku og strauma, þá er markmiðinu náð og segja má að hönnunin eldist vel.“ Fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir Viðskiptavinahópur Margrétar er orðinn stór. Hún segir að hann spanni fólk á öllum aldri og þarfir þeirra séu afar misjafnar, en stærsti hópurinn sé á milli þrítugs og fer- tugs. Gróflega megi þó skipta fólki í tvo hópa, annars vegar þá sem vilja tvinna persónulega muni saman við nýrri muni og stíl, eða bara að fá heildarsvip á heimilið, og svo hina sem vilja fá alveg nýtt útlit. „Þarfir þessara hópa eru talsvert ólíkar. Eldra fólkið hefur oft meira á milli handanna og hefur einnig mun sjálfstæðari smekk. Það er búið að fara í gegnum fjölskylduferlið með opnu rýmunum og er aftur farið að huga að því að loka að sér. Yngra fólkið leitar oftar eftir fjölskyldu- vænu umhverfi, stórum eldhúsum og samveruherbergjum og vill hafa allt opnara. Það hefur hins vegar meiri tilhneigingu til að elta tískustraum- ana og kannski minni tilfinningu fyr- ir raunverulegum þörfum. Það er heldur ekki mikið fyrir það að end- urnýta hluti heldur vill fá meira nýtt inn til sín. Ég reyni að slá aðeins á slíka tilhneigingu. Ég hef einnig unnið nokkuð mikið með eldra fólki sem er að minnka við sig húsnæði. Það er afar krefjandi því þá þarf iðu- lega að skera margt niður í búslóð- inni og valið verður stundum erfitt.“ Margrét segir að verk hennar spyrjist út á milli vina og kunningja og smám saman hefur viðskiptavina- hópurinn stækkað. „Þetta hefur undið upp á sig með tímanum,“ segir hún. Mikil þróun og gróska Tækniþróun í hönnun, bæði innan húss og utan, er mjög ör um þessar mundir og því verður vægi símennt- unar sífellt meira. Því er afar mik- ilvægt að fylgjast vel með því helsta sem er að gerast, viðhalda þekkingu sinni og bæta við hana. Margrét seg- ir að hún hafi það alltaf bakvið eyrað að fara í framhaldsnám og bæta við sig þekkingu á t.d. lýsingu eða öðr- um sérgreinum í sama skóla og hún útskrifaðist frá. Um þessar mundir sé hins vegar svo mikill kraftur og gróska í starfinu sjálfu að frekari sérmenntun muni sitja á hakanum um sinn. „Þarfagreiningin mikilvægust“ Morgunblaðið/Árni Torfason Uppgert eldhús í gömlu húsi í Vesturbænum. Nýtt, en með áherslu á gamla tímann. Margrét Sigfúsdóttir nam innan- hússarkitektúr í Danmarks Design- skole og útskrifaðist þaðan árið 1991. Árið 2000 stofnaði hún sitt eigið fyrirtæki, MBS hönnun og ráðgjöf ehf. Tæknivætt eldhús í sama naum- hyggjustílnum. Lítil snyrting inn af hjónaherbergi.Margrét Sigfúsdóttir Fyrir og eftir breytingar í húsi í Mosfellsbæ. Í nýju húsi í Reykjavík. Rafdrifin gluggatjöld, innfellt sjónvarp, gasarinn. Naumhyggjan og tæknin í hnotskurn. gudlaug@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.