Morgunblaðið - 30.08.2004, Qupperneq 42
42 C MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að er margt sem þarf að at-
huga þegar fólk stendur
frammi fyrir því verki að
mála húsið sitt. Miklu máli
skiptir að allt ferlið sé vel ígrundað,
rétta málningin valin, réttu litirnir og
rétta efnismeðhöndlunin. Hús eru
máluð annars vegar til að auka end-
ingu þeirra og hins vegar til að fegra
þau. Málning er misdýr og þá að sama
skapi misjöfn að gæðum. Sumir fram-
leiðendur segja að „málningin hafi
verið reynd við íslenskar aðstæður“
og hafi farið í gegnum ýmsar rann-
sóknir sem eiga að auka veðrunarþol
og fleiri álagsþætti. En í hverju eru
þessar rannsóknir fólgnar?
Valdimar G. Sigurðsson málara-
meistari hefur kynnt sér vel kosti
málningarkerfa og val lita á húsnæði.
Hann segir að flestar íslenskar máln-
ingarverksmiðjur séu reyndar í fag-
inu og í samstarfi við rannsóknaraðila
á borð við Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins og erlendra rann-
sóknaraðila. Atriði líkt og vatnsþol,
veðrunarþol, öndun og viðloðun eru
þættir sem þurfa að vera í lagi miðað
við íslenskar aðstæður. Niðurstöður
rannsókna eru síðan skoðaðar og í
kjölfarið er reynt að finna út hvað hef-
ur mest áhrif á endinguna. Varan er
síðan þróuð í samræmi við það og
fundið er út hvaða málning hentar
best við mismunandi aðstæður. Til
dæmis má sjá veðrunarspjöld við
Veðurstofuna í Öskjuhlíð og á þökum
málningarframleiðenda.
Nauðsynlegt að kunna réttu
handtökin
Málarar vinna eftir ákveðnum
kerfum. Mælt er með því að sílanbaða
ný hús, síðan eru þau grunnuð, oftast
með þynntri olíumálningu, og að lok-
um eru þau máluð með tveimur um-
ferðum af olíu- eða akrýlmálningu.
Valdimar segir það afar brýnt að
málningin fái að þorna vel á milli um-
ferða.
„Það er mjög mikilvægt að fólk
verji húsin sín sem best. Ef um nýtt
hús er að ræða þarf að sílanbaða hús-
ið. Sílanið virkar þannig að það smýg-
ur inn í fínar sprungur í steypunni og
myndar vatnsfælandi yfirborð. Sé
húsið ekki sílanbaðað má búast við að
vatn eigi greiðari aðgang inn í steyp-
una og hætta á t.d. frostskemmdum
aukist.
Eftir að húsið hefur verið sílanbað-
að þarf sílanið að þorna í einn sólar-
hring áður en húsið er grunnað. Oft-
ast er olíumálning notuð sem
grunnur, en hún smýgur vel inn í ber-
an steininn. Þessi grunnmálning er
yfirleitt þynnt um 10–20% svo hún
smjúgi enn betur inn. Þegar farið er
að kólna á haustin, eða ef hitinn er
undir fimm gráðum, er frekar mælt
með að notuð sé olíumálning en akrýl-
málning, vegna þess að arkýlmálning-
in þornar verr í kulda. Ókosturinn við
olíumálninguna er hins vegar sá að
hún er skítsælli en akrýlmálningin,
sem hrindir óhreinindum betur frá
sér. Ég vel því fremur akrýlmálningu
yfir olíugrunninn verði því komið við,“
segir Valdimar.
Þegar mála á gamalt hús eru fleiri
þættir sem huga þarf að. „Ef við erum
að ræða um hús sem er orðið dálítið
illa farið, t.d. byrjað að flagna, er
nauðsynlegt að byrja á því að
Vel málað
hús er
bæjarprýði
Það getur verið vandaverk að mála hús að utan og
miklu skiptir að rétt sé að málum staðið. Guðlaug
Sigurðardóttir ræddi við Valdimar G. Sigurðsson sem
sagði henni að málningartegund, litur og efnismeðferð
geti ráðið úrslitum um endingartíma málningarinnar.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Einbýlishús sem var málað sumarið 1997 og hefur staðið sig með prýði. Húsið
er staðsett úti á Seltjarnarnesi þar sem seltan og veðrunin er mikil.
Fjölbýlishús þar sem málað hefur verið með mjög dökkum lit og má glögglega sjá hvar gert hefur verið við múrskemmdir.
Fjöldi kaupenda á skrá -
Átt þú réttu eignina?
Óskum eftir öllum
gerðum eigna
Verðmetum samdægurs
Rauðarárstígur
Glæsileg 105 fm íbúð á tveimur hæðum í
nýlegu húsi ásamt stæði í bílageymslu.
Stofa, borðstofa og eldhús í einu rými, eld-
hús með birkirótarinnréttingum. Baðher-
bergi með nýlegum og góðum tækjum. Á
efri hæð eru þrjú svefnherbergi og þvotta-
herbergi. Gólf flotuð með granítflísum.
Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar. Laus
strax. Lyklar á skrifstofu. Verð 17,6 millj.
Klapparstígur
Glæsileg 190 fm íbúðarhæð í fallegu og
virðulegu steinhúsi sem í dag er nýtt sem
skrifstofuhúsnæði og auðvelt að breyta aft-
ur íbúð. Eignin skiptist í þrjár stórar og
glæsilegar samliggjandi stofur, miðstofan
með bogaglugga. 2-3 svefnherbergi, aust-
ursvalir. Eikarparket og flísar á gólfum. Mikil
lofthæð, gipslistar og rósettur í loftum. Eign
í sérflokki. Nánari upplýsingar á skrif-
stofu.
Funafold Mjög falleg og vönduð 120 fm
neðri sérhæð í tvíbýlishúsi. Rúmgóð stofa
með afgirtri suðurverönd. Vandað eldhús, 3
svefnherbergi. Baðherbergi flísalagt í hólf
og gólf. þvottahús í íbúð. 26,5 fm bílskúr.
Gott aðgengi. Skipti möguleg á litlu einbýl-
ishúsi í hverfinu.
Kaplaskjólsvegur
Mjög góð 113,3 fm íbúð á 3. hæð í fallegu
fjölbýlishúsi. Íbúðin skiptist í saml. stofur, 2
rúmgóð svefnherb. eldhús og baðherb.
ásamt stóru íbúðarherb. í kjallara með að-
gang að snyrtingu. Íbúðin getur losnað fljót-
lega. Nánari uppl. á skrifstofu.
Hamraborg
Vorum að fá í sölu 115 fm 5 herb. íbúð á 4.
hæð ásamt stæði í bílageymslu. Fjögur góð
svefnherbergi, rúmgóð stofa, gengið út á
stórar suðursvalir með miklu útsýni. Bað-
herb. flísar á gólfi, tengi f. þvottavél, gluggi.
Eldhús, góð innrétting, borðkrókur. Sam-
eign mjög snyrtileg. Verð 17, 6 millj.
Framnesvegur
Falleg 113 fm íbúð á tveimur hæðum í nýlegu
húsi. Á neðri hæðinni er rúmgóð stofa með
vestursvölum, stórt eldhús, og þvottahús. Á
efri hæð eru 3 stór svefnherb., alrými og flísa-
lagt baðherbergi. Parket á gólfum. Mikið út-
sýni. Stæði í bílskýli fylgir. Stutt í grunnskóla,
verslun og alla þjónustu. Verð 18,5 millj.
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
Ingibjörg Þórðardóttir,
löggiltur fasteignasali.
Réttarheiði - Hveragerði 4ra
herb. 128 fm raðhús ásamt 33 fm garðstofu
og 26 fm bílskúr. Eignin er í smíðum en
verður afhent tilbúin að utan sem innan.
Eldhús með ljósri eikarinnréttingu og gas-
eldavél. Tvö svefnherb. Gott baðh. með
sturtuklefa og góðri innréttingu. Opið úr eld-
húsi í stofu, borðstofu og garðskála. Parket
á öllum gólfum. Verð 16,9 millj. fullbúin
Giljaland
Sérstaklega vandað og vel byggt 188 fm
raðhús á pöllum. Stórar stofur með frábæru
útsýni, flísalagðar suðursvalir þar útaf.
Rúmgott eldhús, sjónvarpsherb. þar innaf.
3 svefnherb. gestasnyrting. Óvenju góðar
geymslur. 23 fm bílskúr. Frábært staðsetn-
ing, skjólsælt og gróið umhverfi.
Gvendargeisli Afar glæsileg 127 fm 5
herb. íbúð á 3. hæð (efstu) með sérinn-
gangi í nýju fjölbýlishúsi. Íbúðin skiptist í
stórar stofur, vandað eldhús með innrétt-
ingu úr kirsuberjaviði. 3 góð svefnherbergi.
Fataherb. innaf hjónaherb. Vandað bað-
herb. flísalagt í hólf og gólf. Þvottahús og
geymsla í íbúð. Sórar suðursvalir. Stæði í
bílskýli. Eignin getur losnað fljótlega.
Hagstæð langtímalán.
Blikaás Hafnarfj.
Afar glæsileg og vönduð 120,4 fm neðri
sérhæð í litlu fjölbýlishúsi. Íbúðin skiptist í
stóra stofu með verönd útaf, 3 góð svefn-
herbergi, eldhús með harðviðarinnr. Bað-
herbergi flísalagt í hólf og gólf. Þvottahús í
íbúð. Parket og flísar á gólfum. Áhv. 8,8
millj. húsbr. Verð 18,5 millj.
Gullteigur
Falleg og nýlega innréttuð 85 fm íbúð á 1.
hæð með sérinngangi. Stór stofa, tvö
svefnherbergi. Flísalagt baðherb. Þvottahús
í íbúð. Merbau-parket. Mahóní-innréttingar.
Timburverönd fyrir framan. Gott aðgengi
fyrir fatlaða. Áhv. 7,5 millj. Húsbréf. Verð
14,5 millj.
Hringbraut Sérlega falleg 3ja herb.
íbúð á tveimur hæðum ásamt stæði í bíla-
geymslu í mjög góðu fjölbýli. Stór stofa, tvö
svefnherbergi, nýtt parket á gólfum. Bað-
herbergi nýlega endurnýjað. Sameign mjög
snyrtileg. Áhv. 7,2 millj. Byggsj. og lífe.sj.
Verð 13,5 millj.
Kleppsvegur
Góð 85 fm íb. á 5. hæð í lyftuhúsi. Stór
stofa, 2 rúmgóð svefnherb. Rúmgott eld-
hús. góðar svalir í suðvestur. Laus strax.
Áhv. 6 millj. Húsbréf o.fl. Verð 11,9 millj.
Vesturgata við sjóinn Mjög góð
75 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð í góðu stein-
húsi. Stór stofa með suðvestursvölum. 2
svefnherbergi. Góður garður. Glæsilegt
sjávarútsýni. Verð 13,5 millj.
Safamýri
Glæsileg 82 fm 3ja herb. íbúð í kjallara/jarð-
hæð með sérinngangi. Verið er að endurnýja
og endurhanna íbúðina eftir teikningum arki-
tekts og verður henni skilað fullbúinni með
vönduðum innréttingum og gólfefnum. Nán-
ari upplýsingar á skrifstofu.
Nýlendugata
Vorum að fá í sölu mjög skemmtilega og
mikuð endurnýjaða 2-3ja herb. íbúð á jarð-
hæð með sérinngangi í tvíbýlishúsi. Björt og
rúmgóð stofa, 2 svefnherb. Ný eldhúsinn-
rétting. Baðherb. endurbætt. Íbúðin er ný-
máluð. Raflagnir endurbættar. Laus strax.
Verð 9,8 millj.
Asparfell Mjög falleg og mikið endurnýj-
uð 57 fm íbúð á 2. hæð i lyftuhúsi. Baðher-
bergi flísalagt, nýleg vönduð eldhúsinnétt-
ing. Góðar suðvestursvalir. Ný lyfta, hús-
vörður og þrif. Gevihnattarsjónvarp.
Brunab.mat. 6,7 millj. Áhv. 3,5 millj.
Bygg.sj. Verð 8,4 millj.