Morgunblaðið - 30.08.2004, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2004 C 43
Lómasalir Stórglæsileg 120,8 fm endaíbúð
á 3. hæð í nýju 5 hæða lyftuhúsi á frábær-
um stað í Salahverfi í Kópavogi. Íbúðinni
fylgir stæði í bílageymslu (innangengt í sam-
eign). Lokaður stigagangur með lyftu en op-
inn svalagangur að íbúðinni. Vandaðar
mahóní-innréttingar, hurðir og skápar. Park-
et og flísar. Garður glæsilegur, mikið útsýni.
Áhv. 9,3 millj. Verð 18,9 millj.
Nýbyggingar
Andrésbrunnur Falleg og skemmtilega inn-
réttuð 5 herbergja 126,9 fm íbúð á 3. hæð
(efstu) í lyftuhúsi ásamt stæði í bíla-
geymslu. Forstofa með fatahengi. Sér-
þvottahús og geymsla. Stofa með útgangi á
suðursvalir. 4 svefnherbergi öll með fata-
skápum. Baðherbergi flísalagt með baðkari.
Íbúðin er fullinnréttuð en án gólfefna. Sam-
eign fullfrágengin.
Marteinslaug - Grafarholti Erum með
glæsilegar 2ja til 4ra herbergja íbúðir í
þessu fallega útsýnishúsi. Allar innréttingar
ná upp í loft, spónl. úr eik eða mahóní. Sér-
þvottahús, fataherbergi og hiti í gólfum.
Vandaður frágangur. Verð frá 12,9 millj.
www.eignir.is
Laufásvegur - Stórglæsilegt, virðulegt
alls 500 fm einbýlishús á eftirsóttum stað
við Laufásveg. Um er að ræða alla hús-
eignina sem skiptist í aðalhæð, turnher-
bergi og jarðhæð ásamt sólskála.
Hrísholt
Vorum að fá skemmtilega eign við Hrís-
holt í Garðabæ. Eignin er samtals 280
fm á tveimur hæðum með innbyggðum
tvöföldum bílskúr. Mjög stór og vel hirt-
ur garður er umhverfis eignina, holta-
grjót og mikill gróður. Verð 35,9 millj.
Freyjugata - Reykjavík. Skemmtileg 65,9
fm 2ja herbergja íbúð í kjallara við Freyj-
ugötu. Forstofa flísalögð, svefnherb. með
gegnheilu eikarparketi, eldhús flísal. með
nýlegri innréttingu, stofa með gegnheilu eik-
arparketi, baðherb. flísalagt í hólf og gólf
með fallegri innréttingu. Halogen lýsing er í
allri íbúðinni. Búið er að endurnýja allt raf-
magn og gluggar og gler er nýtt. Stór og
fallegur garður. Verð 13,4 millj.
3ja herb.
Hringbraut - Sérlega vel skipulögð 3ja her-
bergja íbúð með sérinngangi að sunnan-
verðu við húsið. Húsið er í góðu ástandi og
sameign mjög snyrtileg. Parket á holi og
stofu, eldhús með hvítri innrétt. Spennandi
staðsetning. Verð 13,8 millj.
Torfufell FALLEG 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ
Á 3. HÆÐ Í GÓÐU FJÖLBÝLI. Íbúðin er öll
nýmáluð, falleg hvít eldhúsinnrétting og
parket á stofu og svefnherb. Sameign er
mjög falleg. Stutt í alla þjónustu. Góð fyrstu
kaup. Verð 9,6 millj.
Lómasalir Stór og sérlega rúmgóð 3ja her-
bergja 102 fm íbúð á fyrstu hæð með suð-
urgarði. Sérinngangur af svölum. Stæði í
bílageymslu fylgir íbúð. Parket og flísar á
gólfum. Verð 15,7 millj.
4ra herb.
Álfholt - Hafnarf. Falleg 99 fm 4ra her-
bergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. Útsýni
er til suðurs og norðurs. Íbúðin er öll nýend-
urgerð, þ.e. innrétttingar, málning og gólf-
efni. GETUR LOSNAÐ FLJÓTT. Áhv. 9,1
millj. Verð 13,6 millj.
Naustabryggja
Stórglæsilegt 3ja hæða raðhús, alls
210 fm (186 samkv. Fastm.) með inn-
byggðum bílskúr. Húsið er á frábærum
stað í Bryggjuhverfinu við Grafarvog.
Frábært útsýni er úr húsinu út á sjóinn
til vesturs og norðurs. Nánar: 4 svefn-
herbergi eru í húsinu, sjónvarpshol
og 2 stofur. Tvö baðherbergi auk
glæsilegs eldhúss. Hiti í gólfum. Bíl-
skúr flísalagður með sjálfvirkum hurðaopnara. 20 fm svalir í suður með steinflís-
um. Um er að ræða nýja glæsilega nær viðhaldsfría eign á einstökum stað.
Verð 32,9 millj.
Engihlíð
Stórglæsileg, björt og vel staðsett
160 fm sérhæð í Hlíðunum. Húsið er
allt nýsteinað að utan og lítur mjög vel
út með glæsilegri aðkomu, sérinngang-
ur í íbúð. Möguleiki á séríbúð í risi. Á
aðalhæð er stór stofa, borðstofa,
svefnherbergi, barnaherbergi, bað-
herbergi, gangur og eldhús. Parket
og flísar á hæð. Verð 24,9 millj.
Rað- og parhús
Furugerði Stórglæsilegar íbúðir í sérbýli
sem verið er að breyta frá grunni. Íbúðirnar
eru tveggja hæða glæsiíbúðir með öllu sér.
Forstofa flísalögð. Allar innréttingar eru frá
HTH, bæði baðherbergi flísalögð með upp-
hengd salerni og lýsing og hönnun lýsingar
er frá Lúmex. Um er að ræða tvær 3ja her-
bergja íbúðir. Verð 24,9 millj.
Einbýli
Markarflöt - Garðabæ Glæsilegt einbýli á
einni hæð ásamt bílskúr og sólstofu, alls
224 fm. Húsið er mikið endurnýjað t.d. eld-
hús og bað, arinn í stofu. Nuddpottur í sól-
skála og útgengt mót suðri. Einnig er í hús-
inu saunaklefi. Nýir skápar í svefnherb. Frá-
bær eign á frábærum stað. Verð 33,9 millj.
Sérhæð • Parhús
Raðhús
Einbýlishús
í Foldahverfi, Grafarvogi,
fyrir ákveðinn kaupanda
Vantar - Vantar - Vantar
2ja herb.
Digranesheiði/Kópavogi. Tveggja hæða
145 fm einbýlishús. Lýsing: 4 svefnherbergi
með dúk á gólfum, 2 samliggjandi teppa-
lagðar stofur, lítið salerni á efri hæð og gott
baðherbergi á neðri hæð, rúmgott eldhús
og þvottahús þar inn af, hægt að ganga úr
þvottahúsi út í garð. Fyrirliggjandi teikningar
um breytingu á húsnæði og byggingu bíl-
skúrs. Stór og fallegur garður með gróður-
húsi og litlu útihúsi. Bílastæði hellulagt. Frá-
bær staðsetning. Verð 24,5 millj.
háþrýstiþvo það til þess að hreinsa
burtu óhreinindi og eins mikið af
gamalli málningu og hægt er. Einnig
þarf að huga að ryðskemmdum út frá
járni, sprungum og lekavandamálum,
því allt hefur þetta áhrif á endingu
málningarinnar. Að því loknu þarf
húsið að þorna vel, jafnvel í nokkra
daga, og þá er öll laus málning, sem
ekki fór með háþrýstiþvottinum, skaf-
in í burtu. Gott er að bera sílan á þá
staði sem málningin hefur farið alveg
í burtu svo sér í beran stein og þá sér-
staklega á sprungusvæði. Það hefur
hins vegar engan tilgang að bera síl-
anið ofan á málningu. Að því loknu
tekur við sama ferli og ég nefndi hér
að ofan.“
Á vatnsbretti, t.d. undir gluggum
og ofan á ruslageymslur og fleiri lá-
rétta fleti, er gott að setja þykkmáln-
ingu, en þá kemst síður vatn að stein-
inum. Hraunuð hús verja sig yfirleitt
betur en hús með sléttri áferð. Það
þarf meiri málningu til að þekja slík
hús, þannig að hver fermetri hefur
meira magn af málningu sér til hlífðar
en hús með sléttri áferð. Dýrara er að
mála hraunuð hús vegna þess hve
mikil málning fer á þau, en á móti
kemur að það þarf ekki að mála þau
eins oft og slétt hús. Þannig geta hús
verið máluð á 5–12 ára fresti, þótt það
geti verið mjög breytilegt eftir að-
stæðum.
Suður- og austurhliðar fara yfir-
leitt verst, vegna þess að sólin og
rigningin vinna hvað mest á þeim
hliðum.
Þá er einnig misjafnt hvaða aðferð-
ir eru notaðar við vinnuna. Málning-
unni er stundum sprautað á hús, en
oftast er málað með rúllu.
Litur er skilgreindur þannig að
hann er endurkast ljóssins sem nem-
stafi við hvern lit. Þannig þýðir litur
sem merktur er bókstafnum *W að
liturinn verður aðeins ljósari en NCS-
kortið sýni, *S segir að liturinn verði
aðeins dekkri, *T þýðir að þessi litur
þeki illa, *U að liturinn sé ekki ráð-
lagður úti vegna hættu á upplitun
og*M þýðir að liturinn geti virst
breytilegur eftir lýsingu og birtuskil-
yrðum. Nokkrum slíkum bókstöfum
getur verið raðað við einn lit og því
þýðir merkingin *TUM að liturinn
hafi lélega þekju, sé ekki ráðlagður
úti vegna hættu á upplitun og geti
verið breytilegur eftir lýsingu og
birtu.
Það er því að mörgu að hyggja þeg-
ar litur er valinn og alls ekki á færi
nema fagmanna að skera úr um hvort
rétt er valið.
„Á síðasta áratug var vinsælt að
mála hús í dökkum litum,“ segir
Valdimar. „Núna fyrst erum við að
sjá afleiðingar þess, við málarar vilj-
um meina að steypuskemmdir sem nú
eru komnar fram, séu að einhverju
leyti dökka litnum að kenna.“
Múrskemmdir
Fagmenn eiga alltaf að geta séð
hvort einhverjar aðrar veigamiklar
skemmdir eru á húsum og því afar
brýnt að fólk leiti til þeirra, t.d. ef um
alvarlegar múrskemmdir er að ræða.
Valdimar segir það algjört glapræði
að mála yfir skemmdir til að fela þær,
það muni fljótlega koma í bakið á
manni og þegar upp er staðið er bara
verið að henda peningum og vinnu.
„Það ættu allir að fá leiðbeiningar hjá
fagfólki áður en þeir ráðast í fram-
kvæmdir af þessari stærðargráðu.“
ur við ákveðinn flöt sem síðan end-
urkastast aftur til augnhimnunnar.
Birtan ræður því úrslitum um hvern-
ig fólk sér liti. Smekkur manna um
litaval er mjög mismunandi, en hafa
þarf í huga að val lita getur haft áhrif
á endingu málningarinnar. Þannig er
það sannað að ljósir litir endast betur
en sterkir eða dökkir litir vegna upp-
litunar sólarljóssins. Í heitari löndum
heyrir það t.d. til undantekninga að
hús séu máluð í dökkum lit, því dökku
fletirnir hitna mikið og þá getur
steypan undir málningunni skemmst.
Sölumenn málningar geta séð í lita-
forriti hvort litir eru ráðlagðir úti eða
ekki og eiga þannig að geta leiðbeint
fólki með litaval. Stundum getur
reynst erfitt að útiloka fallegasta lit-
inn. Ef litur sem forritið samþykkir
ekki verður samt sem áður fyrir val-
inu kemur yfirleitt í ljós með tímanum
forritið hafði rétt fyrir sér.
„Það er oftast þannig að fólk hefur
meiri áhuga á að velja lit á húsið, held-
ur en tegund af málningu,“ segir
Valdimar. „Sölumenn eiga að geta
ráðlagt fólki varðandi litaval. Ætla má
að það sé til u.þ.b. 400 þúsund litir í
hinum ýmsum litakerfum. Venjulegt
auga greinir ekki nema brot af þeim
litum sem skilgreindir eru. Algeng-
asta litakerfið sem notað er hér á
landi er svokallað NCS-litakerfi (Nat-
ural Color System), sem auðvelt er að
vinna með, t.d. er hægt að fletta upp
litum í forritinu COLORVIEW, en
samkvæmt því eru t.d. 205 litir í NCS-
kerfinu sem forritið mælir ekki með
að notaðir séu utanhúss. Það fer
þannig fram að sölumaðurinn slær
litanúmerinu inn í tölvu. Forritið
kemur þá með ýmsar upplýsingar um
litina sem og viðbótarupplýsingar
með því að setja stjörnumerkta bók-
Valdimar G. Sigurðsson, málarameistari hjá Slippfélaginu, í heimsókn á vinnu-
stað hjá Jónasi Aðalsteinssyni, málarameistara hjá Málarasmiðjunni. gudlaug@mbl.is