Morgunblaðið - 20.09.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.09.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 256. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Hannar í Hollandi Dreymir um að lifa af hönnun og selja vörur úr íslenskri ull | Daglegt líf Íþróttir | Rúmenar lagðir í Keflavík Rafmögnuð botnbarátta Sigurganga evr- ópskra kylfinga Arsenal og Chelsea misstu stig Fasteignir | Að minnka við sig Lóðir ofan við Jaðarsel Vatnsúði til eldvarna  Sumar brýr eru listaverk Íþróttir og Fasteignir í dag ARABÍSKA sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sýndi í gær myndband frá samtökum upp- reisnarmanna í Írak þar sem sjá má átján íraska þjóðvarðliða sem samtökin segjast hafa hneppt í gíslingu. Hótuðu þau að drepa mennina, sem þau telja föðurlandssvikara, ef róttækum sjítaleiðtoga, Hazem al-A’araji, verður ekki sleppt innan tveggja sólar- hringa. Þá birtist á Netinu myndband þar sem sjá má hvar þrír íraskir Kúrdar, liðs- menn vopnaðra sveita Lýðræðisflokks Kúrdistans, eru teknir af lífi. Lík mannanna fundust nærri borginni Mosul í gær. Að minnsta kosti átta Vesturlandabúar eru í haldi mannræningja í Írak og er ekki vitað um örlög þeirra. Ástandið í Írak hefur verið slæmt að undanförnu og í gær dóu þrír menn í sjálfsmorðssprengjuárás í borginni Samarra. Í síðustu viku sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, að við núverandi aðstæður verði erfitt að halda kosningar í landinu í janúar, eins og að hefur verið stefnt. Iyad Allawi, forsætisráðherra írösku bráðabirgðastjórnarinnar, fullyrti hins vegar í gær að ekkert myndi koma í veg fyrir að kosningarnar yrðu haldnar. Fleiri gíslar teknir í Írak Bagdad, Doha. AP, AFP.  Bush hvattur/12 AP Tony Blair og Iyad Allawi hittust í gær. NÁNUSTU aðstandendur Dane Squares, 48 ára gamals Kanada- manns, stóðu í þeirri meiningu að hann hefði orðið fyrir lest í úthverfi Toronto 10. september sl. Systir hans, Diana Branton, hafði borið kennsl á lík hans og jarðarförin hafði verið ákveð- in. En Squares var ekki dauðari en svo að hann gat bankað upp á hjá systur sinni daginn sem jarðarförin fór fram. Þann dag lá Branton veik heima. Þegar gest bar að garði fór hún til dyra. Stóð þá ekki fyrir framan hana bróðir hennar, sem hún taldi látinn. Hún lét sér ekki bregða, taldi fullvíst að hún væri farin að sjá drauga og sagði einfaldlega við gestinn: „Dane, það eru allir í jarðarförinni þinni.“ Þegar Dane Squares hafði tekist að sannfæra systur sína um að hann væri alls ekki horfinn yfir móðuna miklu vildi hann ólmur koma gestum í eigin jarðarför á óvart. Branton taldi hins vegar skynsamlegra að hringja á stað- inn og láta vita hvernig málum væri háttað. Squares sagði í samtali við blaðið Globe and Mail í Toronto að hann hefði grunað að ekki væri allt með felldu þegar hann sá eigin dánarfregn í blaðinu. Branton viðurkenndi hins vegar að líkið, sem hún bar kennsl á í líkhúsinu, hefði verið býsna illa leikið. Hún hefði þó verið viss um að um bróður hennar væri að ræða. Hugðist mæta í eigin jarðarför Toronto. AFP. ÞÝSKI Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD) beið enn einn ósigurinn í gær þegar haldnar voru kosningar í tveimur sambandslöndum Þýska- lands, Brandenburg og Saxlandi, en bæði eru þau í austurhluta landsins. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, getur þó huggað sig við að helsti keppinautur SPD á landsvísu, Kristilegi demókrataflokkurinn (CDU), tapaði jafnvel enn meira fylgi og því fengu báðir stóru flokk- arnir á baukinn í þessum kosningum. Fylgi öfgahægriflokka jókst verulega, sem og fylgi fyrrverandi kommúnista (PDS). Úrslit kosninganna í gær þykja sýna að gjá sé að myndast milli íbúa í austurhluta Þýska- lands, þar sem er mikið atvinnuleysi og fátækt, og vesturhlutanum þar sem ríkir meiri velmeg- un. Lýsir það sér í auknu fylgi flokkanna lengst til hægri annars vegar, og lengst til vinstri hins vegar. Er ljóst að kjósendur í sambandslönd- unum í austurhluta Þýskalands eru óánægðir með afrakstur sameiningar Þýskalands fyrir fjórtán árum síðan. Þá ríkir mikil óánægja með umbótatillögur Schröders, sem m.a. fela í sér skerðingu bóta, en CDU styður þær. Nýnasistar í 9,2% í Saxlandi Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fékk SPD 31,9% í Brandenburg, sem er ríflega sjö prósentustigum minna en í síðustu kosningum 1999. Í Saxlandi fékk flokkurinn 9,8%, nokkru minna en síðast. CDU tapaði meira en 7% í Brandenburg og fékk ekki nema 19,4% og í Saxlandi, þar sem flokkurinn hafði hreinan meirihluta, fór fylgið niður um heil 16%, í 41,1%. NPD, sem er flokkur nýnasista, bætti veru- lega við sig í Saxlandi, fór úr 1,4% í 9,2% og annar öfgahægriflokkur, Þjóðarfylkingin (DVU) fékk 6,1% í Brandenburg. Sósíalistar í PDS, arftakar Kommúnistaflokksins sem stýrði Austur-Þýskalandi í fjörutíu ár, bættu stöðu sína á báðum vígstöðvum, PDS fékk 28% í Brandenburg, en fékk 23,3% síðast, og í Sax- landi bætti flokkurinn fylgi sitt lítillega, fékk nú 22,6% en fékk 22,2% síðast. Mikillar óánægju gætir meðal kjósenda í austurhluta Þýskalands Jaðarflokkar bættu við sig Berlín. AFP. VERKFALL grunnskólakennara hófst á miðnætti eftir að upp úr slitnaði í viðræðum milli samninga- nefnda Launanefndar sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara á tí- unda tímanum í gærkvöld. Verkfall- ið nær til um 45 þúsund grunnskóla- barna, á aldrinum 6–16 ára. Annar fundur deiluaðila hefur verið boðaður á fimmtudagsmorgun en að sögn viðsemjenda ber enn allt of mikið í milli. Kennarar lögðu þó í gær fram tillögu að skammtíma- lausn sem Launanefndin hafnaði. Skammtímalausn var hafnað Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að ákveðið hafi verið að setja fram hugmynd að skammtímalausn þar sem kennarar fengju „sömu launa- hækkanir og aðrir hefðu fengið“ síð- asta misserið en á móti væru tekin inn meginatriðin í vinnutímabreyt- ingum sem kennarar hafi lagt áherslu á í samningunum. „Hug- myndin var sú raunverulega að leggja áherslu á vinnutímabreyt- ingar og fresta þessum launaum- ræðum. Við vissum svo sem ekki hvað félagsmenn myndu gera við það en okkur fannst allavega þess virði að prófa það en þeir sýndu því engan áhuga,“ sagði Eiríkur í gær- kvöld. Samninganefnd kennara hefði metið kostnaðarauka sveitar- félagsins um 15–16 prósent vegna þessa. „Þessi vinnutímaatriði verða áfram á borðinu hjá okkur sem úr- lausnaratriði númer eitt, tvö og þrjú. Þannig að þeim verður ekki vikið til hliðar,“ sagði hann. Eiríkur sagðist óttast að verkfallið gæti dregist á langinn. Reynslan kenndi mönnum að ef ekki tækist að taka upp þráðinn að nýju strax væri allt- af hætta á að verkföll drægjust á langinn. um skammtímalausn sem hefði falið í sér framlengingu á núgildandi samningi.“ Að sögn Finnboga hefði sá samningur jafnvel gilt í tvö skóla- ár. Launahækkanir hefðu verið inn- an við sjö prósent og kostnaðarauk- inn sem fyrr segir um 15–16%. Um 4.300 kennarar leggja niður störf í dag en frístundaheimili skól- anna verða þó áfram opin eftir há- degi en þjónusta þeirra verður ekki aukin. Innan fjölmargra fyrirtækja og stofnana hefur verið skipulögð gæsla fyrir börn starfsmanna. Kennsla verður að mestu óbreytt í einkaskólum þrátt fyrir verkfall. sem myndi kosta okkur eitthvað um þrjá milljarða og það er ansi langt bil á milli okkar og þeirra,“ segir Birgir Björn. Samninganefnd Launanefndarinnar hafi metið kostnaðarauka við kröfur kennara upp á 5,7 milljarða við lok samn- ingstíma. Finnbogi Sigurðsson, formaður Félags grunnskólakennara, sagði að Launanefndin hefði í raun boðið kennurum sama tilboð um helgina og lagt var fram í maí og kennarar höfnuðu. „Síðan hefur verðbólgan étið af því þannig að þarna voru í raun færri krónur í boði en í maí. Við vorum hins vegar með á borðinu hugmynd Birgir Björn Sigurjónsson, for- maður Launanefndar sveitarfélaga, sagði mikið bera í milli en vanda- málið væri ekki einungis kostnaður- inn við kröfur kennara heldur kerf- isbreytingar sem þeir vildu koma á sem hefðu áhrif á vinnutímann. Of mikið ber í milli „Það má segja að við höfum um helgina gert ákveðnar tilraunir sem því miður mistókust. Það einfald- lega ber enn allt of mikið í milli þrátt fyrir að við höfum verið að skoða langa samninga og stutta samninga og allt mögulegt annað- Við höfum þegar boðið – með okkar tilboði frá 13. maí í vor – samning Um 45 þúsund nem- endur án kennslu Morgunblaðið/Þorkell Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, og Birgir Björn Sigurjónsson, formaður Launa- nefndar sveitarfélaga, eftir að upp úr viðræðum slitnaði á tíunda tímanum í gærkvöld. Verkfall kennara hafið eftir að upp úr viðræðum slitnaði í gærkvöld  Afhentu undirskriftir/4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.