Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIDEL Castro Kúbuleiðtogi hvatti
landa sína í gær til að sýna still-
ingu en Castro hafði kvöldið áður
hrasað illa í beinni sjónvarps-
útsendingu og brákaði hann hné-
skel og handleggsbrotnaði. Í yf-
irlýsingu Castros í gær sagði að
landar hans þyrftu ekki að hafa
áhyggjur, hann væri áfram vinnu-
fær.
Castro flutti ávarp í Santa Clara
í fyrrakvöld. Hann datt í gólfið á
leið sinni af sviðinu og mátti sjá
hvar aðstoðarmenn hans flykktust
að til að hjálpa honum. Castro var
hins vegar fljótur á fætur og kom
seinna fram á útiskemmtun í borg-
inni og bað hann þá nærstadda af-
sökunar og lagði áherslu á að allt
væri í lagi. Kvaðst hann vilja koma
í veg fyrir að fólk hefði óþarfar
áhyggjur. Hann hefði hugsanlega
fótbrotið sig og hugsanlega væri
handleggurinn líka brotinn „en ég
er allur í einu lagi“.
Orðinn 78 ára gamall
Castro er 78 ára gamall og lengi
hafa verið vangaveltur um heilsu-
far hans, eða allt frá því að hann
leið út af á fjöldafundi á Kúbu fyr-
ir þremur árum. Hann hefur ekki
virst góður í hnjánum og göngulag
hans hefur borið þess merki.
Castro hét þjóð sinni því þegar á
miðvikudagskvöld, þegar óljóst var
enn hversu slæm meiðsl hans voru,
að hann myndi halda áfram störf-
um sínum í hennar þágu. „Þó að
þeir setji mig í gifs þá get ég hald-
ið áfram vinnu,“ sagði hann.
Castro sagði að sér væri ljóst að
erlendir blaðamenn hefðu orðið
vitni að byltunni. Sjálfsagt myndu
fréttir af óhappinu verða á for-
síðum blaða erlendis. Ástæða væri
hins vegar til að hvetja viðstadda
til að halda áfram skemmtun sinni.
Castro Kúbuleiðtogi virtist vera vel fyrir kallaður
áður en hann hrasaði. Hér ræðir hann við kúb-
verska flóttadrenginn Elian Gonzalez sem mjög var
í fréttum í Bandaríkjunum fyrir fjórum árum.
Castro bein-
brotnaði illa Fidel Castro eftir byltuna í beinni sjónvarpsútsendingu.
AP
JOSE Manuel Barroso, væntanlegur
forseti framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, sagðist í gær ekki ætla
að snúa baki við Ítalanum Rocco
Buttiglione, sem tilnefndur hefur ver-
ið til að fara með dómsmál í fram-
kvæmdastjórninni. Hefur Buttiglione
mætt miklu andstreymi á Evrópu-
þinginu eftir að hann lýsti því yfir að
samkynhneigð væri synd.
Barroso reyndi þó að bera klæði á
vopnin í gær þegar hann lýsti því yfir
að hann myndi sjálfur fara með mál er
vörðuðu mannréttindi og misrétti
byggt á kynhneigð fólks.
Þrátt fyrir tilslakanir Barrosos í
gær sátu sósíalistar og frjálslyndir á
Evrópuþinginu fast við sinn keip og
sögðu að fela þyrfti Buttiglione ein-
hver önnur störf en dómsmálin eða
jafnvel kasta honum úr framkvæmda-
stjórninni nýju.
Barroso átti mikinn hitafund með
fulltrúum Evrópuþingsins í gær en
skipan nýrrar framkvæmdastjórnar
verður borin upp til atkvæða í þinginu
á miðvikudaginn kemur. Benti hann á
að þingið gæti ekki greitt atkvæði um
skipan tiltekinna fulltrúa, fyrir því
lægi aðeins að greiða atkvæði um
framkvæmdastjórnina sem heild.
Sá möguleiki er því fyrir hendi að
Evrópuþingið hafni allri fram-
kvæmdastjórninni. Gerist það mun
það valda miklum erfiðleikum en sam-
þykki þingsins þarf að liggja fyrir eigi
ný framkvæmdastjórn að taka við
völdum í Brussel 1. nóvember eins og
að hefur verið stefnt.
Barroso lagði áherslu á það í gær
að stjórn hans yrði vitaskuld mótfallin
öllu misrétti, hvort sem um væri að
ræða misrétti er byggðist á kyn-
hneigð manna, kynferði eða trúar-
skoðunum.
„Harmar innilega“ að vera
valdur að vandræðum
Í yfirheyrslum í Evrópuþinginu
fyrir nokkru sagði Buttiglione að
samkynhneigð væri synd og að meg-
intilgangur hjónabandsins væri að
auðvelda konum að eiga börn og njóta
verndar eiginmanna sinna. Hann
reyndi í gær að draga úr þeim úlfaþyt,
sem orð hans hafa valdið, og sagðist
„alls ekki hafa ætlað að særa tilfinn-
ingar neinna“. Í bréfi sem Buttiglione
skrifaði Barroso sagðist hann
reiðubúinn til að afsala sér hluta verk-
efna, sem ella hefðu heyrt undir hann,
og þá einkum þeim er vikju að mis-
rétti og kynferðislegu áreiti. Þá
kvaðst hann „harma innilega“ þá erf-
iðleika og þau vandamál sem vitnis-
burður hans fyrir þinginu hefði vald-
ið.
Barroso stendur fast
við bak Buttiglione
Atkvæði greidd
á miðvikudag um
framkvæmda-
stjórn ESB
Brussel. AFP.
ELLEFU manns létust,
þeirra á meðal átta erlendir
ferðamenn, í árekstri rútu og
vörubíls nálægt bænum
Arusha í norðurhluta Tansaníu
í gær.
Sjónarvottar sögðu að vöru-
bíllinn hefði ekið á rútuna á
miklum hraða eftir að hafa flú-
ið af vettvangi annars slyss
sem hann hefði valdið. Í fyrra
slysinu drápust fjórir asnar.
Rútan gereyðilagðist, eins
og sést á myndinni. Á meðal
þeirra sem fórust voru þrír
Spánverjar, hollensk hjón,
tveir Kenýamenn, Svíi, Tan-
saníubúi og Ný-Sjálendingur.
Ekki var vitað um þjóðerni
eins ferðamannanna sem fór-
ust. Reuters
Ellefu manns létust í árekstri