Morgunblaðið - 22.10.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.10.2004, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR SENDUM Í PÓSTKRÖFU Rauðsmára- Phytoestrogen Fyrir konur á breytingarskeiðinu www.islandia.is/~heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum, Borgartúni 24 Árnesaptóteki Selfossi Kárastíg 1 Fjarðarkaupum Síðumúla 13, sími 588 2122 www.eltak.is VOGIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum eitt mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband Allt til músaveiða og flugnaveiða Rafmagnsflugnabanar, límborðar, flugnaljós o.fl. Verslunin er staðsett á Selfossi Opið mán.-fim. 9-13, föstudaga 9-18 og laugardaga 11-14 Gagnheiði 59 • meindyravarnir@meindyravarnir.is www.meindyravarnir.is • s: 482 3337 & 893 9121 Grímsbæ & Ármúla 15 Stærðir 36 - 50 Glæsilegur fatnaður fyrir allar konur Þú færð skóna hjá okkur Efnalaug og fataleiga Garðabæjar Garðatorgi 3 • 565 6680 www.fataleiga.is Ný sending af glæsilegum samkvæmiskj ólum í öllum stærðu m. AKUREYRI Kvenímynd | Maríurnar – kven- ímyndin í trúnni er heiti á nám- skeiði sem efnt verður til í Mennta- smiðjunni, en fjallað verður um kvenímynd sem birtist og þróast í kristinni trú og skoðað hvaða áhrif hún kann að hafa á sjálfsmynd kvenna og stöðu þeirri í samfélag- inu. Námskeiðið er byggt á stuttum fyrirlestrum sem fylgt verður eftir með umræðu. Það er 10 tímar og er kennt á miðvikudagskvöldum, frá 23. okt. til 10. nóv. kl. 19.30 til 22. MIKILL áhugi hefur verið fyrir helgarferðum til borga í Evrópu og í vikuferðir á sólarstrendur í beinu flugi frá Akureyri. Í gærmorgun fór um 190 manna hópur í beinu flugi frá Akureyri í sólina í Madríd á Spáni og var þetta jafnframt síð- asta beina flugið frá Akureyri á þessu ári. Farþegarnir voru úr Eyjafirði, frá Sauðárkróki og Egils- stöðum og víðar, að sögn Ragnheið- ar Jakobsdóttur hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar en flogið hefur verið með leiguvélum á vegum Ice- landair. Ragnheiður sagði að þessar ferðir hefðu mælst mjög vel fyrir og að uppselt hefði verið í flestar þeirra. Alls hafa verið farnar sjö ferðir til útlanda í beinu flugi frá Akureyri á árinu og hefur á annað þúsund manns ferðast með þessum hætti. Flogið hefur verið tvívegis til Dubl- in og einu sinni til Barcelona, Mall- orca, Costa del Sol, Krítar og nú síð- ast til Madrídar. Að sögn Ragnheiðar verður áfram boðið upp á ferðir í beinu flugi frá Akureyri á næsta ári en ekki liggur endanlega fyrir hverjir áfangastaðirnir verða. Beint flug í sólina Morgunblaðið/Kristján Beint í sólina Það var heldur kuldalegt um að litast í Eyjafirðinum í gær- morgun þegar 190 farþegar héldu í beinu flugi frá Akureyri í sólina í Madríd. UMTALSVERÐ breyting hefur orðið á afstöðu Akureyringa og ná- granna þeirra til stóriðju í Eyja- firði á síðastliðinum tveimur árum. Um 74% Akureyringa eru hlynnt uppbyggingu stóriðju í Eyjafirði og rúm 26% á móti að því er fram kemur í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar. Könnunin var gerð dagana 16. september til 3. október síðastliðinn og var úrtakið 1000 manns, slembiúrtak úr þjóðskrá og svarhlutfall var 65%. Atvinnuþró- unarfélagið gerði sambærilega könnun fyrir tveimur árum en nið- urstaða hennar var sú að fylkingar skiptust nokkuð jafnt, með og á móti stóriðju í Eyjafirði. „Þarna hefur umtalsverð breyt- ing orðið á,“ sagði Magnús Þór Ás- geirsson framkvæmdastjóri At- vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. „Þetta eru skýr skilaboð til okkar sem vinnum að atvinnumálum í byggðarlaginu, fólk vill greinilega sjá eitthvað stórt fara að gerast á þessum vettvangi.“ Atvinnuástand á svæðinu sagði Magnús geta verið skýringu á því að fleiri lýsa sig nú fylgjandi stóriðju en fyrir tveimur árum. „Sumir nefna að þeir vilji bara sjá eitthvað stórt gerast.“ Könnunin náði til íbúa á Akur- eyri og í nágrannasveitarfélögum, þ.e. íbúa í póstnúmerinu 601, sem er Eyjafjarðarsveit, Hörgárbyggð og Svalbarðsstrandarhreppur. Fram kemur að 62,6% íbúa á um- ræddu svæði eru hlynnt uppbygg- ingu stóriðju í Eyjafirði, 26,3% andvíg en 11,1% tóku ekki beina af- stöðu. Þegar niðurstöður voru skoðaðar einungis fyrir Akureyri var hlutfall þeirra sem eru fylgj- andi hærra, eða um 66%, en and- vígum fækkaði í 23,5%. Ef aðeins þeir sem taka afstöðu eru taldir með kemur í ljós að tæp 74% Ak- ureyringa eru hlynnt uppbyggingu stóriðju í Eyjafirði en rúm 26% á móti. Í könnuninni var spurt hvort menn væru, ef reisa ætti eitt álver í viðbót á Íslandi, hlynntir eða and- vígir staðsetningu þess í Eyjafirði. Fylgjandi því voru 55,6%, andvígir 36% en 8,7% tóku ekki afstöðu. Þegar aðeins þeir sem tóku afstöðu eru taldir með er niðurstaðan sú að rúm 60% eru fylgjandi, tæp 40% andvíg. Helstu ástæður viðhorfa til stór- iðju voru kannaðar og kom þá í ljós að þeir sem eru andvígir nefna einkum náttúruverndarsjónarmið og mengun en þeir sem fylgjandi eru nefna atvinnusköpun og fjölgun íbúa. Almennt voru heldur fleiri karlar en konur hlynntir stóriðju, meiri andstaða kom fram í sveitunum umhverfis Akureyri en í bænum og þá var fylgni milli menntunar og afstöðu til stóriðju á þá leið að þeir sem minni menntun höfðu voru lík- legri til að vilja stóriðju í Eyjafirði en þeir sem meiri menntun höfðu. Æ fleiri fylgjandi stóriðju í Eyjafirði Tæp 75% Akureyringa vilja stóriðju Morgunblaðið/Kristján Fleiri fylgjandi stóriðju Magnús Þór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri At- vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, kynnti niðurstöðu könnunar um viðhorf íbúa á Akureyri og í nágrenni til uppbyggingar stóriðju í Eyjafirði. Fleiri flytja til Akureyrar | Á fyrstu níu mánuði ársins hafa 49 fleiri flutt til Akureyrar en frá bænum samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Þetta kemur fram á vef Akureyr- arbæjar. Fólkið sem hingað flytur kemur flest frá nágrannasveit- arfélögunum en einnig frá útlöndum. Þeir sem flytjast á brott fara til ann- arra landssvæða, líklega höfuðborg- arsvæðisins. Þrátt fyrir að íbúum bæjarins fjölgi jafnt og þétt, vekur at- hygli hversu mikil hreyfing er á fólki segir í frétt á vefnum. Það sem af er árinu hafa 967 flutt til bæjarins en 918 flust á brott. Þess ber að geta að þessar tölur endurspegla ekki heild- arfjölgun bæjarbúa því ekki er tekið tillit til fjölda þeirra sem fæðst hafa umfram þá sem hafa látist. Árið 2003 fjölgaði Akureyringum um 210 eða 1,31% en þá voru aðfluttir umfram brottflutta 69 allt árið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.