Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 21

Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 21 ERLENT Kl. 11:00 Ráðstefnan sett. Jón Loftsson, skógræktarstjóri. Kl. 11:15 Oppbyggning av skogresurs i vest- og nord-Norge i forrige århundred: målsetting, resultat og status i dag. (Uppbygging skógarauðlinda í Vestur- og Norður-Noregi á síðustu öld: markmið, árangur og staðan í dag). Oluf Aalde, fyrrverandi skógræktarstjóri Noregs. Kl. 12:00 Hallormsstaður í Skógum – Svipmyndir úr bók í smíðum. Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur. Kl. 12:20 Hádegisverðarhlé. Kl. 13:20 Tilpasning til klima – liv eller død for nordiske trær. (Aðlögun að veðurfari – líf eða dauði fyrir norræn tré). Tore Skrøppa, skógerfðafræðingur. Kl. 14:00 Það er komið haust strákar. Þorsteinn Tómasson, erfðafræðingur. Kl. 14:20 Skógræktarskilyrði á Íslandi. Arnór Snorrason, skógfræðingur. Kl. 14:40 Breytingar á vaxtarlagi birkis. Helgi Hallgrímsson, náttúrufræðingur. Kl. 15:00 Aðlögun lerkis að hlýrra Íslandi. Þröstur Eysteinsson, trjákynbótafræðingur. Kl. 15:20 Kaffihlé. Kl. 15:50 „Birki og tréð með rauðu berjunum“: Afstaða Íslendinga til skóga og skógræktar. Sherry Curl, mannfræðingur, Karl S. Gunnarsson, verkefnisstjóri og Hrefna Jóhannesdóttir, skógfræðingur. Kl. 16:10 Íslenskir skógar og skáldskapur. Skúli Björn Gunnarsson, bókmenntafræðingur. Kl. 16:30 Framandleiki, innrásargirni og skóggangssök. Aðalsteinn Sigurgeirsson, skógerfðafræðingur. Kl. 16:50 Samantekt. Vilhjálmur Lúðvíksson, efnaverkfræðingur. Kl. 17:00 Ráðstefnulok. Ráðstefnustjórar: Ingvi Þorsteinsson, náttúrufræðingur og Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri. Ráðstefnugjald er kr. 2000.- (innifelur hádegismat, kaffi og ráðstefnumöppu). Kvöldverður í Valaskjálf kl. 20. Veislustjóri er Níels Árni Lund. Ganga í Hallormsstaðaskógi kl. 10-12 á sunnudegi ef veður leyfir. Skráning hjá aðalskrifstofu Skógræktar ríkisins í síma 471 2100 eða með tölvupósti: vala@skogur.is. Skógræktargeirinn á Íslandi stendur fyrir ráðstefnunni: Skógrækt ríkisins, Skógræktarfélag Íslands, Landsamtök skógareigenda, Héraðsskógar, Suðurlandsskógar, Vesturlandsskógar, Skjólskógar, Norðurlandsskógar, Austurlandsskógar, Landbúnaðarráðuneytið. Dagskrá: „fietta getur Ísland“ Ráðstefna um aðlögun Íslands að skógum og aðlögun skóga að Íslandi til heiðurs Sigurði Blöndal áttræðum. Íþróttahúsinu á Hallormsstað, laugardaginn 6. nóvember, kl. 11-17. A T H Y G L I GÖRAN Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, breytti í gær ráðherra- skipan í ríkisstjórn sinni. Þrír nýir ráðherrar taka til starfa, þeir Jens Orback, Ibrahim Baylan og Sven-Erik Österberg. Fimm nú- verandi ráðherrar skipta um ráðu- neyti. Bosse Ringholm, sem verið hefur fjármálaráðherra, verður að- stoðarforsætisráðherra og einnig íþróttamálaráðherra. Nýr fjármálaráðherra verður Pär Nuder, sem áður var skipulagsráð- herra. Skipan Ibrahims Baylans vekur einna mesta athygli. Hann er aðeins 32 ára og verður ráðherra grunn- og framhaldsskóla. Baylan er fæddur í kúrdískum bæ í suð-austurhluta Tyrklands en flutti ungur til Svíþjóðar með foreldrum sínum. Hann verður fyrstur innflytj- enda sem fæddir eru utan Evrópu til að taka við ráðherraembætti í Sví- þjóð. Fyrsti sænski ráðherrann sem fæddur var utan Svíþjóðar var Laila Freivalds utanríkisráðherra. Hún fæddist í Lettlandi. Sænsku stjórninni breytt AÐ MINNSTA kosti 63 menn fórust af völdum fellibylsins Tokage í Jap- an í gær og fyrradag og 25 annarra var saknað. Er þetta mannskæðasti fellibylur sem herjað hefur á Japan í sextán ár. Mikið úrhelli fylgdi fellibylnum og þyrlur þurftu að bjarga tugum manna úr bílum á þjóðvegunum vegna flóða. Áin Yura sést hér flæða yfir götur í borginni Maizuru í vestanverðu landinu. Vatn flæddi inn í 9.200 hús í landinu og um sextíu hús til við- bótar eyðilögðust eða skemmdust í aurskriðum. Reuters Tugir Japana farast í fellibyl BANDARÍSKUR herlögreglumað- ur, sem viðurkenndi að hafa mis- þyrmt föngum í Abu Ghraib-fang- elsinu í Írak, var í gær dæmdur í átta ára fangelsi. Lögmaður her- lögreglumannsins hyggst áfrýja dómnum. Ivan Frederick liðþjálfi viður- kenndi að hafa brugðist skyldum sínum, misþyrmt föngum og neytt þá til að framkvæma ósiðlegar að- gerðir. Viðurkenndi hann m.a. að hafa neytt fangana til sjálfsfróun- ar. Frederick sagðist í réttarhöld- unum hafa gert sér grein fyrir því að hann var að brjóta lög og regl- ur. Hann gaf hins vegar til kynna, að yfirmenn í Bandaríkjaher hefðu í raun hvatt til þess að föngum væri misþyrmt til að „mýkja“ þá fyrir yfirheyrslur. Réttað verður yfir tveimur bandarískum hermönnum til við- bótar í vikunni en alls hafa sjö hermenn verið ákærðir vegna málsins. Hermennirnir tveir hafa verið ákærðir fyrir að hafa myrt særðan Íraka í Bagdad. Verði þeir fundnir sekir eiga þeir yfir höfði sér ævilangt fang- elsi og jafnvel dauðadóma. Í fangelsi fyrir að pynta fanga í Írak Bagdad. AFP. PAUL Nitze, einn þeirra sem mótaði bandaríska utanríkis- stefnu í kalda stríðinu, er lát- inn, 97 ára að aldri. Nitze var um tíma helsti samninga- maður Bandaríkja- manna í við- ræðum við Sovétmenn um fækkun kjarnorkuvopna. Hann var íhaldssamur demókrati en starfaði fyrir ríkisstjórnir jafnt demókrata sem repúblikana. Nitze fæddist árið 1907 í Massachusetts, stundaði kaup- sýslu um hríð en gekk síðan til liðs við Franklin D. Roosevelt forseta árið 1936. Eftir það starfaði hann fyrir marga for- seta, þ. á m. fyrir John F. Kennedy, Lyndon B. Johnson og Ronald Reagan. Colin Pow- ell, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, var öryggismálaráð- gjafi Reagans og rifjaði hann upp liðna tíma fyrir skömmu og samskiptin við Nitze. Sagði Powell að þetta hefði líkst því að „sitja til borðs með Móse“. Nitze var einn helsti höfund- ur leyniskýrslu sem gerð var fyrir Harry Truman, þáverandi forseta, árið 1950. Þar var því lýst yfir að helsta markmið Sovétríkjanna væri að ná heimsyfirráðum. Sagði Nitze að Sovétmenn létu stjórnast af „nýjum, ofstækisfullum trúar- brögðum“ kommúnismans. Í skýrslunni var hvatt til mikillar hernaðaruppbygging- ar til að draga úr áhrifum kommúnista um allan heim. Á 9. áratugnum var Nitze síðan helsti fulltrúi stjórnar Ronalds Reagans í viðræðum við Sovét- menn um fækkun kjarnorku- vopna. Árið 1982 lagði Nitze til að Bandaríkjamenn legðu af kjarnorkuvopn með öllu ef Sov- étmenn samþykktu að gera slíkt hið sama. Nitze látinn Paul Nitze Washington. AP. BRESKA stjórnin varð í gær við beiðni Bandaríkjamanna um að hluti breska herliðsins í sunnanverðu Írak yrði sendur til svæða vestan við Bagdad. Geoff Hoon, varnarmála- ráðherra Bretlands, sagði á þingi í gær að yfirmenn breska heraflans í Írak hefðu komist að þeirri niður- stöðu að áhættan sem þessu fylgdi væri viðunandi. Talsmaður Íhaldsflokksins sagði flokkinn hafa ákveðið að styðja þessa ákvörðun enda væri tekið skýrt fram að um tímabundna ráðstöfun væri að ræða. Frjálslyndir demókratar lýstu hins vegar yfir andstöðu við liðs- flutninginn og sögðu að bresku her- mennirnir ættu að halda sig í Suður- Írak. Um 850 breskir hermenn úr bryn- vagnasveitinni Black Watch verða sendir á vettvang og eiga þeir að leysa af hólmi bandaríska hermenn sem ætlunin er að taki þátt í að bæla niður uppreisnina í borginni Fall- ujah ásamt írösku stjórnarherliði. Hoon neitaði að gefa nánari upplýs- ingar um málið en sagði að liðið myndi hlíta breskum reglum um að- gerðir. Gaf hann í skyn að það myndi ekki verða lengur á svæðinu en nokkrar vikur. „Þessi ráðstöfun herliðsins er mik- ilvægur þáttur í að skapa rétt skil- yrði til að kosningarnar í Írak geti farið fram í janúar,“ sagði ráð- herrann. Hann sagði að líta yrði á stöðu breska liðsins í Írak í sam- hengi við ástandið í landinu öllu. „Það sem gerist annars staðar í Írak hefur áhrif á breska hermenn hvar sem þeir hafa bækistöðvar.“ Efasemdir og gagnrýni Tillagan um herflutningana var samþykkt einróma í bresku stjórn- inni. Breskir fjölmiðlar hafa lýst miklum efasemdum og andstöðu við hugmyndina og ljóst er að margir liðsmenn Verkamannaflokks Tony Blairs forsætisráðherra eru andvígir því að breskir hermenn fari á hættu- svæðin. Hafa 63 þeirra undirritað yf- irlýsingu þar sem krafist var sér- stakrar atkvæðagreiðslu á þingi ef tekin yrði ákvörðun af þessu tagi. Einnig segja gagnrýnendur Blairs að hann sé með liðsflutningnum að hjálpa George W. Bush Bandaríkja- forseta í forsetakosningunum 2. nóv- ember. Keppinautur Bush, John Kerry, hefur margsinnis fullyrt að Bandaríkjamenn taki á sig allar þyngstu byrðarnar í Írak. Yfirleitt hefur ástandið á svæði Breta í Suð- ur-Írak verið mun rólegra en um miðbik landsins þar sem Bandaríkja- menn hafa helstu bækistöðvar sínar. Bretar samþykkja að flytja herlið til svæða við Bagdad London, Bagdad. AP, AFP. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.