Morgunblaðið - 22.10.2004, Page 22
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Bókasafn 100 ára | Efnt verður til dag-
skrár í Safnahúsinu á Sauðárkróki næst-
komandi sunnudag í tilefni af 100 ára af-
mæli Héraðsbókasafns Skagfirðinga.
Athöfnin verður milli kl.
14 og 17.
Meðal efnis verður fyr-
irlestur um Guðrúnu
Árnadóttur frá Lundi, en í
tilefni afmælisins verður
gefið út lítið kver um hana,
að því er fram kemur á vef
Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar. Opnaðar verða tvær litlar sýn-
ingar. Önnur er um Ísleif Gíslason kaup-
mann sem var fyrsti bókavörður safnsins
og hin er á Hólaprenti í eigu safnsins.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Nýr formaður bæjarráðs | Bæjarstjórn
Grindavíkur hefur kosið Sigmar Eðvarðs-
son, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, til
setu í bæjarráði í stað Ómars Jónssonar
sem er fluttur úr byggð-
arlaginu og hefur sagt af
sér störfum í bæjarstjórn.
Sigmar tekur væntanlega
við formennsku í bæj-
arráði á næsta fundi þess,
í samræmi við samstarfs-
samning Sjálfstæðisflokks
og Samfylkingar um stjórn bæjarmálefna.
Á fundi bæjarstjórnar var Ómari Jóns-
syni þakkað gott og óeigingjarnt starf í bæj-
arstjórn Grindavíkur og honum og fjöl-
skyldu hans færðar óskir um gæfu og gengi
á nýjum vettvangi. Fyrsti varamaður sjálf-
stæðismanna er Margrét Gunnarsdóttir
kennari og hefur hún tekið sæti í bæj-
arstjórn í stað Ómars.
Heimasíða bæjarstjóra | Halldór Hall-
dórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, hefur opnað
heimasíðu á slóðinni www.haddi.is. Vef-
fangið tengist styttingu á nafni hans.
„Tilgangurinn er að auka aðgengi að mér
og mínum skoðunum og að gera mér kleift
að koma skoðunum mínum á ákveðnum
málum enn frekar á framfæri sem ein-
staklingur og bæjarfulltrúi,“ segir Halldór í
kynningu á síðunni.
Tekur hann fram að það sem hann setur
fram á síðunni er algjörlega á hans eigin
ábyrgð og tengist ekki endilega stefnu bæj-
arstjórnar. Halldór hyggst reyna að halda
dagbók á síðunni. Hann hefur undirbúið það
með því að halda lokaða dagbók fyrir sjálfan
sig í nokkra mánuði og telur nú tímabært að
opna hugsanir sínar fyrir öðrum.
Áhugi er á að geraálfakort fyrirReykhólahrepp,
með sama hætti og gert
var á sínum tíma í Hafn-
arfirði. Af því tilefni efnir
Reykhólahreppur til fund-
ar í Reykhólaskóla næst-
komandi laugardag,
klukkan 16. Yfirskrift
hans er vættir, álfakort og
þjóðsögur.
Á fundinum segir Erla
Stefánsdóttir sjáandi frá
vættum á Íslandi og í
Reykhólahreppi og Kol-
brún Þóra Oddsdóttir
landslagsarkitekt segir frá
álfakortum og hvernig þau
eru gerð. Loks mun Ás-
laug Guttormsdóttir
skólastjóri segja frá þjóð-
sögum og álfatrú í Reyk-
hólahreppi.
Álfakort
Nemendur í Lögregluskólanum fengu hálfs ann-ars dags kennslu í sjóbjörgun hjá Landhelg-isgæslunni í vikunni. Í verklegu kennslunni
fara þeir á milli æfingastöðva. Æfð er björgun úr sjó,
stjórnun á léttabátum og björgun um borð í harðbotna
björgunarbáta. Nemendurnir fara í björgunarbún-
ingum í sjóinn og keppa í sundi. Verklega náminu lýk-
ur með því að lögregluskólanemarnir fá þjálfun í að
sigla léttabátum upp að skipi á ferð og eru síðan hífðir
upp í þyrlu.
Þjálfun í sjóbjörgun
Lífshættir mannabreytast með ár-unum. Ármann
Jóhannsson birti sína
upplifun eitt sinn í hag-
yrðingahorni héraðs-
fréttablaðsins Aust-
urgluggans og byrjar
fimmtíu ára:
Aldur hækka á mér fer
ei þó stækki skrokkur.
Sól að lækka lífs nú er
löstum fækkar ört hjá
mér.
Sextíu ára:
Elli fjölgar árunum
eins og vindur bárunum.
Á höfði fækkar hárunum
hættur að roðna í nár-
unum.
Og sjötíu ára:
Ekki fer ég onafþví
eitthvað vil ég muna.
En seint ætla ég að sigla
í
seinni náttúruna.
Aldurinn
frett@mbl.is
Húsavík | Börnin á Húsavík
finna sér alltaf eitthvað til dund-
urs í verkfalli grunnskólakenn-
ara og snjórinn sem þar féll í
vikunni skapaði þeim ýmis tæki-
færi til viðbótar. Snjókarlinn
sem Selmdís Þráinsdóttir, Aníta
Ösp Gunnlaugsdóttir og Börkur
Guðmundsson gerðu er genginn
til liðs við þau börn sem orðin
eru leið á verkfallinu. „Jeg hata
verkfall, keyrðu á mig“, stendur
á spjaldinu og er stafsetning-
arvilla sett í textann til að undir-
strika hve langt er síðan börnin
hafa verið í skóla og að kunn-
áttan gæti hafa gloprast eitt-
hvað niður á þessum tíma.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Snjókarl í kröfugöngu
Verkfall
Reykjanesbær | Aðeins þrjú tilboð bárust í
byggingu húss fyrir Íþróttaakademíu í
Reykjanesbæ sem Eignarhaldsfélagið
Fasteign hf. hyggst byggja fyrir Reykja-
nesbæ. Lægsta tilboð
var 2% yfir kostnað-
aráætlun.
Eignarhaldsfélagið
Fasteign hf. byggir
hús í nágrenni Reykjaneshallarinnar í
Njarðvík og fær Íþróttaakademían það til
afnota næsta haust. Húsið er um 2700 fer-
metrar að stærð, að hluta til á tveimur hæð-
um. Inni í því er meðal annars íþróttasalur.
Íslenskir aðalverktakar hf. áttu lægsta
tilboð, 379 milljónir kr. sem er 2% yfir
kostnaðaráætlun en hún hljóðaði upp á 370
milljónir. Keflavíkurverktakar buðust til að
byggja húsið fyrir 387 milljónir og ÞG-verk
bauð 408 milljónir.
Viðar Már Aðalsteinsson, framkvæmda-
stjóri umhverfis- og skipulagssviðs
Reykjanesbæjar, segir að það valdi von-
brigðum hversu fáir hafi séð sér fært að
bjóða í verkið. Tilboðin hafi verið heldur
hærri en menn áttu von á. Þetta endur-
spegli miklar framkvæmdir á svæðinu og
hækkandi verð. Hann segir að verið sé að
fara yfir tilboðin og sjá hvernig þau sam-
rýmist áætlunum um uppbyggingu íþrótta-
akademíunnar.
Öll tilboð
yfir áætlun
Hús Íþróttaakademíu
Skaftárhreppur | Unnið hefur verið að
því að meta veiði í Skaftárhreppi til verðs.
Var unnið að þessu verkefni í sumar, að
því er fram kemur á vef Skaftárhrepps.
Ábati neytenda er metinn ásamt hagn-
aði landeigenda og áætlað hvernig þessar
tölur þróast á komandi árum. Hagnaður
og neytendaábati um alla framtíð er síðan
núvirtur. Fram kemur í frétt á vefnum að
matið hefur sérstaka þýðingu núna þar
sem ráðagerðir eru uppi um að veita hluta
vatns sem rennur í Skaftá vestur í
Tungnaá. Veitan gæti haft áhrif á streymi
vatns í silungsám og lækjum í hreppnum
þar sem vatn í þeim er að stórum hluta úr
Skaftá. Matið gæti því hugsanlega orðið
að liði til þess að taka upplýsta og skyn-
samlega ákvörðun um það mál. Verðmati
á umhverfisverðmætum hefur mjög lítið
verið beitt hér á landi og aðeins eitt dæmi
er þekkt um að ferðakostnaðaraðferð hafi
verið notuð við slíkt mat, segir ennfremur.
Verkefnið hefur verið unnið af Ragn-
heiði Jónsdóttur hagfræðinema.
Veiði í Skaft-
árhreppi metin
til verðs
♦♦♦
Fjölmenning og
trúarbrögð
Málþing haldið á vegum Biskupsstofu
þjóðkirkjunnar og Alþjóðahúss
23. október kl. 9.30-13 á Holtavegi 28,
hús KFUM og KFUK
Dagskrá:
9.30 Málþingið sett. Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss.
9.40 Menning og málefni innflytjenda. Gerður Gestsdóttir,
verkefnastjóri Alþjóðahúss.
10.40 Fjölmenning og samlögun. Dr. Unnur Dís Skaptadóttir, dósent.
Léttar veitingar.
11.20 Christian, secular, multi-faith: the changing faces of religion in
Britain today. Dr. Michael Opgrave, guðfræðingur og ráðgjafi
erkibiskupsráðs anglíkönsku kirkjunnar.
12.20 Minerva Iglesias sýnir flamenco dans.
12.35 Jákvætt og neikvætt trúfrelsi. Dr. Hjalti Hugason, prófessor.
13.00 Málþinginu slitið.
Skráning í síma 535 1500 eða Ragnheidur@biskup.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn