Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 49

Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 49 MENNING „MATTHÍAS Viðar ætlaði að skrifa tvær bækur um Héðin Valdimars- son en féll frá í miðjum klíðum verksins. Þetta fyrra bindi er því ansi mikil forsaga að starfsævi Héðins og endar þegar hann kemur heim úr námi frá Kaupmannahöfn, og er fullur af áhuga á að takast á við lífið,“ segir Sigurður Gylfi Magnússon einsögufræðingur um nýútkomna bók Matthíasar Viðars Sæmundssonar, Héðinn, Bríet, Valdimar og Laufey. Fjölskylda og samtíð Héðins Valdimarssonar sem JPV útgáfa gefur út. Í bókinni teflir Matthías Viðar fram svipmyndum úr daglegu lífi fólks um aldamótin 1900. Þar bregður fyrir einstaklingum sem áttu við drykkjuvanda að stríða, öðrum sem tókust á við banvæna sjúkdóma, enn öðrum sem glímdu við ólæknandi bakteríu stjórnmál- anna og loks þeim fjölmörgu sem glímdu við fátækt og örbirgð. Systkinin, Héðinn og Laufey, gengu menntaveginn og héldu bæði til framhaldsnáms í Kaupmanna- höfn. Brugðið er upp líflegum myndum af skólasystkinum og sam- ferðarmönnum þeirra, sagt frá bar- áttu Bríetar fyrir betri heimi, aukn- um réttindum kvenna og málaferlum föður þeirra, Valdimars Ásmundssonar, frá upphafi stétta- stjórnmála og fyrstu tilraunum verkafólks til að mynda samtök. „Það sem er áhugaverðast við þessa bók og nýlunda í ævisagna- gerð er leiðin sem Matthías velur til að vinna sig að viðfangsefninu. Það gerir að verkum að bókin stendur fyllilega fyrir sínu sem sjálfstætt verk þó seinni helming- inn vanti. Matthías ætlaði sér að nýta sér aðferðir einsögunnar til að draga fram ævi Héðins og hans fólks og samfélagsins,“ segir Sigurður Gylfi. „Aðferð einsögunnar er fyrst og fremst sú að minnka mælikvarðann, horfa á smáu brotin og vinna með þau á eins ítarlegan hátt og mögu- legt er. Það er semsagt ekki verið að fjalla um heila stétt manna, heilt félag eða heilt samfélag, heldur litla einingu sem getur verið einn ein- staklingur eða margir einstaklingar og tilteknir þættir ævi þeirra. Matthías fer eins konar millileið sem er ein helsta nýlunda bók- arinnar; hann bregður upp alveg einstaklega sterkum samtímaspegli á seinni hluta 19. aldar. Fyrst og fremst með því að fjalla um fjöl- skyldu Héðins, þetta stórmerkilega fólk, Valdimar föður hans og Bríeti og Laufeyju systur hans. Bríet er óumdeilanlega þekktasta kvenrétt- indakona Íslands og Laufey er með allra fyrstu konum sem ljúka stúd- entsprófi frá Lærða skólanum í Reykjavík.“ Sannfærandi grunnur að póli- tískri hugmyndafræði Héðins „Til þess að undirbyggja sögu þessa fólks þá tekur Matthías enda- lausar sögur úr Reykjavíkurlífinu af alls kyns fólki, aðallega þó al- þýðufólki og undirmálsfólki sem eins og rekst inn í frásögnina og síðan fylgir Matthías því eftir um hríð og skilur eftir mjög sterka mynd af kjörum alþýðu manna á þessum tíma. Með þessu fær les- andinn mjög skýra hugmynd um aðstæður þess fólks sem Héðinn átti síðan eftir að berjast fyrir og í rauninni tekst Matthíasi að skapa mjög sannfærandi grunn að póli- tískri hugmyndafræði Héðins með þessari frásagnaraðferð. Um leið er frásögnin mjög lýrisk og bregður alveg nýju ljósi á íslenskt samfélag 19. aldarinnar. Hann hefði getað farið þá leið að telja upp hver íbúa- fjöldinn var, þjóðarframleiðslan, tekjur á mann o.s.frv. en Matthías kýs að gera þetta á mun lýrískari hátt og bregður fyrir vikið upp samtímaspegli sem ég hef ekki séð annars staðar.“ En er frásögnin þá byggð á traustum staðreyndum? „Svarið er afgerandi já. Þetta er jafn traust frásögn og um hefð- bundna sagnfræði væri að ræða. En þetta er klassísk spurning sem sagnfræðingar spyrja gjarnan ein- sögufræðingana. Einsögufræðing- urinn fæst við undantekningarnar sem meðaltöl lýðfræðingana ná ekki yfir. Einstaklingana sem í ljósi sögunnar eiga eins konar samtal við samfélagið vegna þess að þeir rák- ust á það. Annað hvort við opinbera aðila eða aðra einstaklinga. Eftir standa heimildir um þessa árekstra svo svarið við spurningunni er að við getum alveg treyst sögunum og heimildunum, sem Matthías Viðar byggir á og útkoman er óvenju svipmikil mynd af því tímabili sem Héðinn Valdimarsson ólst upp í.“ Bækur | Saga Héðins Valdimarssonar og fjölskyldu hans Einstaklega sterkur samtímaspegill Héðinn Valdimarsson Matthías Viðar Sæmundsson Sigurður Gylfi Pálmason havar@mbl.is BRESKI rithöfundurinn G.P. Tayl- or, brenndi fyrir mistök þrjú af upphaflegum bókahandritum sín- um þegar hann stóð í flutningum um daginn. Hann var að brenna rusli í garði sínum þegar hann átt- aði sig á því hvað stóð á blöðunum í eldinum. Eitt handritanna, að bókinni Shadowmancer, hafði nýlega verið metið á 100.000 pund, tæpa eina og hálfa milljón íslenskra króna. Presturinn fyrrverandi, sem seldi mótorhjól sitt á sínum tíma til að fjármagna barnabókaskrifin, segir handritin nú orðin að „dýr- mætri öskuhrúgu“, að því að frétta- vefur BBC greinir frá. Brenndi óvart handritin G.P. Taylor rithöfundur var heldur seinheppinn á dögunum. PERGOLESI er ódauðlegur í tón- list sinni, enda þótt berklarnir hafi valdið ótímabærri burtkvaðningu hans úr þessu lífi árið 1736, og átti hann þá fjögur ár í þrítugt. Snill- ingur á fiðlu og einstakur að leika af fingrum fram og uppalinn og menntaður af söngvinum Nap- olíuppalendum. Ekki fer Napolíupp- runin fram hjá neinum sem heyrir seyðandi sönginn til hinnar eilífu Nínu, sem reyndar liggur veik í rúmi í ljóði, en hefur lifað góðu lífi og verið haldið eilífri í gullbörkum allra tíma. Þannig stendur einnig Stabat Mater messan og óperan La Serva Padrona af sér sýkla og veirur hvers tíma og verða ný og hugnæm við hverja vandaða endur- uppfærslu. Stabat Mater er víðkunnur sálm- ur sem notaður var í rómversk kaþ- ólsku kirkjunni og talinn saminn af munkinum Jacobone da Todi á 13. öld. Fyrsti þátturinn hefst með stígandi fögrum tregasöng strengjanna og fannst mér þar að hljóminn í strengjasveitinni, sem annars var mjög góður á tónleik- unum skorti meiri stigmögnun í styrk. Innkoma þeirra Emblu- kvenna var örugg og kraftmikil og samhljómur þessara 13 kvenna í kórnum mjög góður. Í öðrum þætti ríkir fullkomin andstæða tónmáls, sem er á léttu nótunum, og merk- ingu orða, sem tjá nístandi sorg og örvæntingu. Hildur Tryggvadóttir söng þar ein af hrífandi léttleika með blæfagra sópranrödd og fannst mér lofsvert hve létt röddin hljóm- aði og auðveldlega í hæðinni. Í þriðja atriði söng svo Elvý G. Hreinsdóttir af miklu öryggi, en mér fannst að helst skorti dekkri lit í röddina á lágsviðinu. Raddir Hild- ar og Elvýjar féllu vel saman í dú- ettum. Heildaráhrif af flutningi Stabat Mater voru sterk og fór þar saman einstök fagmennska stjórn- enda, söngvara og hljómsveitar. Þó fannst mér kontrabassi oft of sterk- ur. Næst á efnisskránni var kvöld- tíðamessa (sbr. vesper) „Vesperae pro Festo Sancti Innocentium“ eftir Johann Michael Haydn, sem hann lauk við í desember 1793 í Salzburg, og var verkið samið til minningar um þær þúsundir saklausra barna sem Heródes konungur lét drepa í Betlehem og var frumflutt á „Hátíð hinna heilögu sakleysingja“ sem var haldin 28. desember það sama ár. Johann Michael Haydn var þekkt og virt tónskáld á meðan hann lifði, en hefur fallið í skugga Jóseps bróður síns sem var 5 árum eldri og telst auk þess sem einn af þessum stóru tónlistarfrömuðum sem hvað mest áhrif hafa haft á þróun vest- rænnar tónlistar. Slík flokkun orkar mjög tvímælis og enginn veit t.d. hver áhrif vinskapur Michaels við Wolfgang Amadeus hafði á tón- smíðar þess síðarnefnda, er þeir voru um skeið samtímis tónskáld erkibiskupsins í Salzburg. Michael samdi mikinn fjölda tónverka og m.a sálumessu, sem sagt er að hafi haft áhrif á tóntak Mozarts. Í flutningi verksins bættust við í Kammersveitina tveir hornleikarar, en í Stabat Mater lék strengjasveit og orgelleikari. Texti verksins er tekinn úr Davíðssálmum nr. 110, 111, 112, 130 og 132, ásamt sér- stökum sálmi og texta „magnifik- ats“(Boðun Maríu). Stjórnandi valdi þá leið að fela sjö konum í kórnum einsöngsatriði, sem eykur á fjölbreytni söngmáta og er áhugavert fyrir söngfólkið. Flutningur einsöngvara var yfirleitt góður. Messa Michaels er áhrifa- mikið, heillandi og vel samið verk. Fyrir þessa tónleika eiga í heild, bæði flytjendur og sér í lagi stjórn- andinn, Roar Kvam, mikið hrós skilið. Góðar undirtektir í lokin þökkuðu flytjendur með líflegum þætti úr Bach-kantötu og var sá flutningur einnig glæsilegur. TÓNLIST Akureyrarkirkja Tónleikar Emblu og Kammersveitar Ak- ureyrar. Einsöngvarar: Elvý G. Hreins- dóttir, mezzosópran, Hildur Tryggvadóttir, sópran, Kristín Alfreðsdóttir, sópran, Margrét Sigurðardóttir, sópran, Ólöf Regína Torfadóttir, sópran, Stefanía Hauksdóttir, sópran, Gunnfríður Hreiðarsdóttir, alt. Stjórnandi: Roar Kvam. Efnisskrá: Stabat Mater eftir Giovanni Battista, Pergolesi (1710–1736) Vesperae pro Festo Sancti Innocentium eftir Michael Haydn (1737–1806). KAMMERTÓNLEIKAR Jón Hlöðver Áskelsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.