Morgunblaðið - 22.10.2004, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 22.10.2004, Qupperneq 50
50 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ HINN eini sanni kúreki norðursins sýndi það og sannaði manna fyrstur og fremstur að íbúar á norrænum slóðum geti sannarlega sungið sveita- tónlist og tamið sér túlkunarform kántrísöngv- arans. Einn af sporgöngumönnum Hallbjörns er Even Johansen, heimsþekktur maður í Noregi, og víðar undir nafninu Magnet. Johansen þessi hefur komið víða við á skömmum ferli sínum og lék með ástsælum norskum indíböndum á borð við Chocholate Overdose og Libdo. Hann gafst hins vegar upp á norræna hópvinnufyrirkomulag- inu um síðir og ákvað að fara eigin leiðir, láta ljós sitt skína, gefa sjálfselskupúkanum lausan taum- inn. Lækningin var segultattó Úr varð fyrirbærið Magnet. Eins manns hljóm- sveit skipuð Johansen og hinum ýmsu hjálp- arhellum. Nafnið Magnet hafði hann reyndar loð- að við hann frá táningsaldri, og það í bókstaflegri merkingu loðað, því hann er með segulstál tattó- verað á sig. Tattóið fékk hann 13 ára gamall. Sag- an segir að hann hafi þjáðst þá af blóðleysi. Faðir hans, gítaristi og hippi, sendi hann þá til frjáls- lynds rokklæknisins sem gat ekkert fyrir dreng- inn gert og vísaði áfram á austurlenskan skottu- lækni. Sá hafði lækninguna á reiðum höndum, tattóveraði segulstál á drenginn unga með sér- stöku töfrableki. „Sársaukinn var svo óbærilegur,“ lýsti Johansen í samtali við blaðamann á dögunum, „að það leið bókstaflega yfir mig. Þegar ég vaknaði trúði ég því heilshugar að ég væri læknaður. Var svo trúgjarn þá. En hvað sem því líður þá hef ég aldrei þjáðst af blóðleysi síðan þá. Ég er segull.“ Einn og alráður gat Johansen búið til nákvæmlega þá tónlist sem ómaði í höfði hans, sem er einhver ólgandi suðupottur af svölu sveitarokki Grams Parsons, dramatísku tilfinn- ingarokki Jeffs Buckleys, frjálslegu vísnapoppi föður hans Tims Buckleys og samferðamanna Tims á borð við John Martyn og Paul Simon og raf- rænu evruvænu nútímapoppi frönsku Air. „Menn vilja gjarnan tengja mig einhverri Am- eríkana-bylgju. Ætli skýringin sé ekki sú að pabbi hlustaði mikið á Lee Hazlewood og Nancy Sinatra og ég drakk þá tónlist í mig. Sjálfur hef ég velt mér miklu meira upp úr Bob Marley og Clash. Það býður upp á áhugaverða blöndu. „Krafturinn í þessum norska seið er síðan hún Björk, sem Joh- ansen hefur haft mikið dálæti á í gegnum tíðina. „Ég fer ekki í grafgötur um það að Björk hefur haft meiri áhrif á mig sem tónlistarmann en flestir aðrir, og hefur gert allt síðan hún var í Sykurmol- unum. Hún er ótrúlegur listamaður sem maður getur ekki annað en lært af. Það má kannski helst greina þessi áhrif í laginu „The Day We Left Town“, sem mér er sagt að sé alveg eins og eitt- hvert Bjarkar-lag,“ segir Johansen. Eins gott fyr- ir hann að viðurkenna það hugsar blaðamaður líka með sér, enda vart annað hægt, því lagið sem hann nefnir er nákvæmlega eins og Bjarkarlagið „Hy- perballad“ og gæti næstum því talist hreinn stuld- ur. En hann vill vel hann Johansen og við erum svo sem vön því að frændur okkar og nágrannar eigni sér og tileinki afrek okkar. Svo moðar hann líka býsna vel úr Bjarkargreiðanum drengurinn, býr til hið dægilegasta lag, líkt og hin lögin á annarri plötunni On Your Side sem kom út í fyrra. Platan sú hefur fengið afburðadóma, einkum í Bretlandi þar sem Magnet hefur jafnframt verið hlaðinn lofi fyrir frammistöðu sína á tónleikum þar sem hann hefur m.a. leikið með listamönn- um á borð við The Doves, Gemmu Ha- yes, Ed Harcourt og Zero 7. Gagnrýn- andi Guardian sagði tónleika hans m.a. „dáleiðandi stöff …“ Líkari múm en Robbie Williams Johansen bjó í áratug í Bretlandi en er nýflutt- ur heim til Noregs. Hann segir betra að búa þar vegna þess einfaldlega að landar hans séu ekki eins uppteknir af frægðinni. „Fólki í Bergen er nokkuð sama hvort maður er frægur eða ekki og kemur alltaf eins fram við mann. Viðhorfið til frægðarinnar er þannig býsna heilbrigt held ég. Það gildir sama um mig og kunningja mína í svip- aðri stöðu og ég; The Kings of Convenience og Röyksopp, við erum ekki að búa til tónlist til þess eins að verða frægir. Ef maður er góður þá á mað- ur alltaf séns á því að verða frægur – þ.e. ef heppnin er með manni.“ Magnet segir hæglega hægt að festast í þeim fasa að gera tónlist, einvörðungu til að verða fræg- ur. Vandinn sé bara að þá muni tón- listin sem til verði bera öll þess merki. „Það er auðveldlega hægt að hljóma eins og Robbie Williams. Eins og eitthvert fífl. Þetta er spurn- ing um afstöðu og metnað. Þið Ís- lendingar skiljið þetta alveg og ég vona heitt og innilega að tónlist mín eigi meira sameiginlegt með múm og Sigur Rós en Robbie Williams.“ Tónlist | Norska einmenningssveitin Magnet á Airwaves Segulstöðvarblús Even Johansen er indíhetja mikil í heimalandi sínu, Noregi. Betur þekktur sem Magnet hefur hann getið sér gott orð víða um heim fyrir sitt raf- ræna kántrískotna vísnapopp sem hann viður- kennir í samtali við Skarphéðin Guðmundsson að sé undir miklum áhrifum frá Björk. Magnet leikur á Listasafni Reykjavíkur í kvöld kl. 22.30. Platan On Your Side fæst í plötuversl- unum hér á landi. www.homeofmagnet.com &' ()! ( )*,   %%           *  +,   * , + - .  * +, " $   * ",  /       *  ", + . * +,  (    * , + 0  * +, " " ,   1 * " ", +  *  +,  !( *  ,   3' *  ,"  4      563 *  ,  "   *  ", + 78 * +,  / ' * , +  * +, " "   9 * " ", " :  9   *  ", " /;  *  ", "   *  ", " " * ", " = * ", " " > 0  * " ", " , /  *  ", " #?  *  ", + $' *  +, + / /  ) *  +,+ " $' )     *  ,  " @ #012  *  ", +    * +,  A * , + ( * +, " " "  '  * " ", + 7 *  +,   *  , + B   *  +, " 1' @ $''* 0  !"#  " * +, " +     * " +, " + C  * " +, " 7  *  ",  D *  , + 1( *  +, "  E 0  *  ","   "   "     TUGIR nýstofnaðra og efnilegra sveita koma fram á Airwaves- hátíðinni og munu vænt- anlega reyna að spila út trompunum sínum af til- efninu. Hoffmann er ein þessara sveita, rokk- hljómsveit sem kemur frá Vestmannaeyjum og hef- ur verið starfrækt í lið- lega ár. Hoffman hafa verið iðnir við spila- mennsku upp á síðkastið en í vikunni kom út fyrsta verk þeirra félaga, sex laga stuttskífa sem ber heitið Bad Seeds. Að sögn Víkings Mássonar gít- arleikara slógust hann og Þórir Ólafsson, hammond- og hljómborðs- leikari, í hópinn sem nú skipar Hoff- man fyrir ári. Aðrir meðlimir, þeir Ólafur Kristján Guðmundsson (söngur), Ástþór Ágústsson (bassi), Gunnar Geir Waage (gítar) og Magni Freyr Ingason (trommur), höfðu verið starfandi saman áður í ýmsum hljómsveitum í hartnær tíu ár. „Þegar við vorum orðnir sex small þetta ótrúlega vel saman,“ segir Víkingur. „Bæði móralslega séð og tónlistarlega.“ Allir eru meðlimir Eyjapeyjar en eru allir nema einn fluttir í borgina, m.a. með það að markmiði að sinna sveitinni. „Við æfum núna á hverju kvöldi. Það er mikill metnaður í sveitinni. Platan nýja er liður í því og er ætlað að koma okkur á framfæri. Vonandi ráðumst við svo í breiðskífu eftir áramót.“ Bad Seeds er útlitslega hinn mesti kjörgripur og innihaldið einkar kröftugt rokk og ról með frábærum hljómi þar sem lögin öskra í eyrun á manni. Platan var tekin upp af Silla Geirdal í Stúdíó September og er Víkingur einkar ánægður með það samstarf, segir að hugmyndir Hoff- man-liða um tónlist sína komist vel til skila á plötunni. Eitt það jákvæðasta við Iceland Airwaves er að tónlistarfólkið setur oft aukapúður í tónleika sína og blaðamaður hefur upplifað þar al- gera snilldartónleika. Hoffman ætla ekki að láta sitt eftir liggja. „Það verður spennandi að spila á Airwaves,“ segir Víkingur. „Það er svona áheyrnarprufuandi yfir þessu. Maður er nett stressaður og vonandi verður það til góðs. Við ætl- um nefnilega að gefa okkur alla í þetta.“ Iceland Airwaves | Hoffman leikur á Gauknum Sex laga stutt- skífa komin út Hoffman er metnaðarfull sveit. Hoffman spilar á Gauki á Stöng í kvöld ásamt Solid I.V., Manhattan, Sign, Dr. Spock, yourcodenameis- :milo™, Mínus og Drep www.icelandairwaves.com arnart@mbl.is Blóðrautt segulmagnað sólarlag. Náttúrubarnið norska Even Johansen – öðru nafni Magnet.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.