Sunnudagsblaðið


Sunnudagsblaðið - 29.06.1958, Qupperneq 11

Sunnudagsblaðið - 29.06.1958, Qupperneq 11
SUNNUDAGSBLAÐIÐ 343 FLESTIR íslendingar munu kannast við hinn ágæta hagyrðmg Svein fr'á Ellivogum. Fyrir um þrem árum gaf hann út ijóðabók, eða vísnabók, sem hét Andstæður. Nú er nýútkomin bók eftir Svein, Nýjar andstæður, og fæst hún hjá bóksölum. Margar vísur Sveins eru landfleygar, m. a. þessi: Flest hef ég gleypt og fáu levft, fengið sleipt úr mörgu hlaði, selt og keypt og stömpum steypt, stundum hleypt á tæpu vaði. Líkt rímum er þessi alkunna vísa eftir Pál Vídalín: Það endar verst, sem byrjar bezt og byggt er á mestum vonum, Svo er um prest og svikinn hest og sannast á flestum konum. —o— Fyrir um ári síðan var lögregl- unni í Vínarborg tilkynnt innbrots þjófnaður hjá vissri frú Marek, og var tilkynnt að verðmæti hins stolna næmi uni 12.000 krónum. Þegar lögreglan kom á vettvang komst hún að raun um, að frú Mar ek var ung og falleg ekkjufrú, en hún gat ekki hreyft sig, hún var lömuð. Glæpamlálasérfræðingurinn, er fékk málið til rannsóknar, fékk þegar í stað illar bifur á frúnní og ákvað að njósna um hagj hennar. Eftir tveggja mánaða njósnir sá liann hana eitt kvöld ganga út úr húsi sínu og var þá hin hressasta. Og svo hófst rannsókn, sem leiddi margt í ljós. Fyrst kom það í ljós, að maður hennar hafði diáið nokk- ru áður, og hafði ekkjan fengið út- borgaða allháa líftryggingu. Einn ig hafði orðið eldsvoði í ibúðinni, og hafði tryggingarféð, 70.000 kr., verið útborgað. Og því meir sem málið var rannsakað, því fleiri grunsamleg dauðsföll komuts upp. Lögreglumaðurinn lét nú graía upp lík herra Mareks og jafnframt lík frænku frúarinnar og dóttur. Við krufningu kom í ljós, að per- sónur þessar höfðu verið drepnar á eitri. Eftir 11 mánaða rannsókn var frú Marek tekin föst og nú er mái hennar fyrir dómstólnum í Vínarborg. X framkvæmdastjóri var vanur að fara til Oslo einu sinni í viku og þóttist þurfa að fara þessar ferðir í verzlunarerindum. Konan hans, sem var sjö árum eldri en hann hafðj illar bifur á þessum ferðum og hélt að ekki vær; ajlt með felldu. Heimtaði hún því að fá að vera með, þegar hann færi næst og var það látið eftir henni. Setjast þau nú inn á friðsamlegt kaffihús og ber ekkert markvert til tíðinda. Stingur frúin upp á því, að þau skuli fara inn á annað kaffihús, þar sem sé dansað. — Framkvæmdastjórinn lét það iíka eftir henni eftir töluverðar vífi- lengjur. En þar fer frúnni líka að leið- ast og eftir stundarkorn stingur hún upp á því, að nú skuli þau fara- heim á hótelið og fara að hátta. En á þrepunum mæta þau manni, sem þekkti framkvæmda- stjórann en ekki frúna og ávarpr aði hann framkvæmdastjórann með svofelldum orðum: •— Góða kvöldið! Hvaða déskot- ans grásleppu hefurðu húkkað í núna? Gústalf litli hefur allan dag- inn verið að biðja móður sína um aura fyrir bíómiða. Loks missir móðirin þoiinmæðina og segir: — Heyrðu Gústaf litli: Nai segi ég nei í síðasta skipti. — Ætlarðu þá að segja já þar á eftir? sagði Gústaf. (Alþýðublaðið 1937). || VITBÐ ÞÉR að Tuareg-ættbálkurinn í Sahara liefur sínar sérstöku siðaregl- ur, þar eru það karlmennirnir, sem ganga með slæður fyrir andhtinu og vinna er iangt fyr ir neðan þeirra virðingu, — það eru konumar, sem fram- kvæma störfin. að iðnaður, sem byggist á kjarn- orku, fer sífellt vaxandi í USA, og starfa nú £ kjarnorkuiðnað- inum um 150 þúsund manns. að bánvöxtur fólks er meiri yfir hlýjustu sumarmánuðina en að vetrinum. að Ameríkumenn reyktu árið sem leið 406 milljarða sígaretta, óg var aukningin 4,1 prósent frá órinu óður. að 1,2 milljónir manna hafa flutzt til Ástralíu eftir síðustu heims styrjöld.

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.