Morgunblaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 43 MENNING NÝ uppfærsla á ballettinum Sylvía, sem Fredrick Ashton skóp árið 1952, verður frumsýnd í Konung- legu óperunni í Lundúnum í kvöld. Á meðfylgjandi mynd sýna Darcy Bussell, í hlutverki Sylvíu, og Jonathan Cope, sem Aminta, listir sínar á loka- æfingu í vikunni. Reuters Sylvía á svið í Lundúnum LEIKFÉLAG Hafnarfjarðar heldur áfram með sína metnaðargjörnu, sumir myndu segja fífldjörfu, dag- skrá. Og þótt Hamskiptin og Beisk tár Petru von Kant séu þungavigt- arverkefni held ég að þetta verk Kroetz, Að sjá til þín maður, sé það erfiðasta til þessa. Útkoman er líka sú að þrátt fyrir að mörgu leyti ágæta frammistöðu og skýra hugsun þá nær hópurinn ekki að rísa undir nánast ómennskum kröfum verksins. Hér segir frá fjölskyldu verka- manns í bílaverksmiðju í Suður- Þýskalandi seint á áttunda áratugn- um. Spennustigið er hátt, enda er einkasonurinn atvinnulaus, stendur ekki undir kröfum foreldranna um að ná lengra í lífsgæðakapphlaupinu en þau. Fjölskyldan splundrast, dreng- urinn flytur að heiman og móðirin líka. Við fylgjumst með hvernig þau tvö ná að fóta sig meðan heimilisfað- irinn nær ekki að draga neina lær- dóma af skipbroti draumsins, ríg- bundinn af hugmyndum um mikilvægi sitt og karlmennsku sinnar. Eins og önnur verk þessa merka höf- undar er leikritið skrifað í smásmygl- islegum natúralískum stíl, mikið af fyrirmælum um athafnir, langar þögl- ar senur inn á milli innihaldslausra samtala og ofsafengins ofbeldis. Frá- bærlega skrifað, feiknlega áhrifaríkt, glettilega fyndið – en svínslega erfitt. Það sem stendur leikhópnum einna helst fyrir þrifum er aldurinn. Það er varla hægt að ímynda sér verra verk til að leika upp fyrir sig í, svo mjög stendur það og fellur með algerri samsvörun persóna og leikenda. En hér standa þrír jafnaldrar (eða því sem næst) á sviðinu. Þessi staðreynd neyðir Guðmund L. Þorvaldsson til að „leika“ of mikið, búa of mikið til sem gerir föðurinn að hálfgerðri grínfíg- úru. Firnavel gert sem slíkt enda Guðmundur óðum að verða einn af öflugustu leikurum áhugaleikhússins hér. En nálgunin kostar of mikið, sýn- ingin verður aldrei nægilega trúverð- ug. Mótleikarar Guðmundar, þau Sara Blandon og Jón Stefán Sigurðsson, eru mun reynsluminni leikarar, en sýna bæði sinn besta leik sem ég hef séð til þeirra. Sara sérlega góð í síðasta hlutanum þar sem hún berst við sjálfa sig fyrir sjálfstæði sínu og Jón Stefán átti áhrifaríkan leik, sérstaklega í þöglum atriðum. Þessi góða frammistaða dugir því miður ekki til að skila áhrifum verks- ins, sem helgast bæði af því hvað verkefnið er erfitt og túlkunarleiðum leikstjórans sem leggur of mikla áherslu á skopfærslu, t.d. með fram- göngu fjórða leikarans, Snorra Eng- ilbertssonar og hljóðsveitinni sem bætt er inn í verkið til óþurftar. Þó skipta hér mestu umfangsmiklar styttingar sem gerðar hafa verið og draga mjög úr áhrifamættinum. Ná- kvæm vinna með langdregin þögul at- riði eru eitt helsta höfundareinkenni Kroetz og eitt af hans öflugustu vopn- um. Þessum atriðum sleppir Gunnar Björn, en rýrir fyrir vikið það líf sem þarf að kvikna á sviðinu og okkur er ætlað að skoða og dæma. Útkoman verður of flatneskjuleg þó það taki vissulega styttri tíma. Leikmyndin er hreinn unaður – frábærlega rétt í períódu með unaðs- lega ósmekklegu og ósamstæðu veggfóðri á hinum ólíku flötum. Þeim mun furðulegra að heyra að verkið er ekki bara staðfært (misráðið að mínu viti) heldur virðist það eiga að gerast í nútímanum. Þetta misræmi truflar svo sem ekki að ráði, en einkennilegt samt í ljósi þeirrar nostursamlegu vinnu við að negla tímann niður í húsgögnum og búnaði. Að sjá til þín maður er metn- aðarfull og vel leikin sýning, unnin af fullri listrænni alvöru eins og búast mátti við af Leikfélagi Hafnar- fjarðar. Það reynist þó ofverkið þeirra að skila efninu og áhrifum þess til fullnustu, sem eftir á að hyggja kemur ekki á óvart í ljósi þessa krefjandi verkefnis. LEIKLIST Leikfélag Hafnarfjarðar Höfundur: Franz Xaver Kroetz, þýðendur: Ásthildur Egilsson og Vigdís Finn- bogadóttir. Leikstjóri; Gunnar B. Guð- mundsson. Gamli Lækjarskólinn í Hafn- arfirði 30. október 2004. Að sjá til þín maður Þorgeir Tryggvason Í ÞESSARI snotru bók á Sverrir Hermannsson lengstu umfjöllunina. Þar er þessum tveimum ám fylgt frá efstu veiðisvæðum til hinna neðstu. Staldrað er við hvern hyl, streng og breiðu, rætt um veiði, sagðar veiðisögur. Minnst á veiði- aðferðir, rifjaðar upp endurminn- ingar o.fl. o.fl. Sverrir skrifar á per- sónulegum nótum, eins og honum er lagið. Frásögn hans er fjörleg og hlý og væntumþykju til ánna, mér liggur við að segja ást, andar úr hverri línu. Ég býst við að frásögn hans fái veiðikampa veiðimanna til að rísa! Það fer ekki á milli mála að Hrúta er skemmtileg á. Og víst er um það, að betri leiðsögumann um þetta veiðisvæði er ekki unnt að fá. Þá spillir ekki fyrir að Matthías Johannessen á tvo lofsöngva um Hrútafjarðará á undan og eftir rit- smíð Sverris. Á eftir umfjöllun Sverris fara þrjár ritgerðir. Tvær þeirra eru eft- ir Gunnar Sæmundsson. Sú fyrri þeirra er Ágrip af sögu Veiðifélags Hrútafjarðarár og Síkár. Gunnar mun þekkja þá sögu vel, því að lengi hefur hann verið í stjórn Veiðifélagsins. Það er fróðleg lesning til viðbótar við frásögn Sverris. Nú, í þessum ritgerðum kemur fram að ekki hef- ur alltaf verið kyrrt um þetta gjöf- ula veiðisvæði, deilur hafa risið, eins og búast má við, þegar miklir hags- munir eru í veði. Og ekki hafa allir reynst ánum vel. Skemmtilegt finnst mér að lesa um skoska veiði- manninn, sem hafði árnar á leigu um árabil fyrir löngu. Þar fór merk- ur veiðimaður og mættu margir taka hann sér til fyrirmyndar. Raunar er hann ekki einsdæmi um slíka fyr- irmyndarmenn frá Bretlands- eyjum. Seinni ritgerð Gunnars nefnist Brot úr sögu jarða við Hrútafjarðará og Síká. Þar er fjallað um jarðir sem eiga land að ánum (og einni til vibótar) og getið ábúenda fyrr og nú. Þá er sérstaklega fjallað um Staðarskála og sögu hans og er ann- ar höfundur að þeirri umfjöllun. Það er áhugaverð viðbót við það sem segir um sama efni í ritinu Húna- þingi. Lokaritgerð bókarinnar er svo eftir Sigurð Má Einarsson frá Veiðimálastofnun. Ritgerð hans ber heitið Laxfiskar og veiði í Hrúta- fjarðará. Það er fræðileg úttekt og tölfræðilegt yfirlit um veiði. Í bók- arlok eru fjögur ágæt kort yfir svæðið. Margar myndir prýða þessa bók, flestar í lit. Þar eru myndir af veiði og veiðimönnum og loftmyndir eru af öllum jörðum, sem land eiga að ánum. Ég hafði ánægju af lestri þess- arar bókar. Hún er vel samin og skemmtilegur lestur. BÆKUR Veiðimennska eftir Sverri Hermannsson og fleiri Bókaútgáfan á Hofi, Gísli Pálsson, 2004, 138 bls. Hrútafjarðará og Síká Sverrir Hermannsson Sigurjón Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.