Morgunblaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ögmundur sagði að þar væri af- dráttarlaust kveðið á um að ekki stæðist íslensk lög að ráða menn til erlendrar herþjónustu. „Það er því ekki undarlegt að ríkisstjórn Íslands reynir nú allt hvað hún getur að sýna fram á að íslenska gæslusveitin í Kab- úl í Afganistan sé ekki hersveit. En sannast sagna er málatilbúnaðurinn mjög ósannfærandi,“ sagði hann. Ögmundur sagði að íslenska sveitin bæri öll einkenni hersveitar, hún bæri hermannstitla, flestir liðþjálfar og majorar og væru undir forystu „ofurstans“ Hallgríms Sigurðssonar. Hann beindi nokkrum spurningum til Davíðs Oddssonar, m.a. hvaða lagastoð væri fyrir því að koma á fót vopnaðri liðssveit Íslendinga í Afgan- istan sem bæri hertitil og lyti heraga. Hann spurði hvaða réttarstöðu ís- lensku friðargæsluliðarnir hefðu varðandi eigin tryggingar og skaða sem þeir kynnu að valda öðrum og sömuleiðis hver hefði lögsögu yfir rannsókn á því ef friðargæsluliði myndi vega ríkisborgara þess ríkis sem hann væri að friða. Þá spurði Ög- mundur utanríkisráðherra hvort ís- lenskur friðargæsluliði nyti verndar ákvæða Genfar-sáttmálans um með- ferð stríðsfanga ef hann yrði tekinn til fanga af óvinveittum aðilum. Utanríkisráðherra svaraði því til að ekki væri litið á friðargæsluliðana sem hermenn, þótt þeir nytu réttar- stöðu hermanna innan NATO, lentu þeir í átökum. Loks spurði Ögmundur hvort það DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra sagði í utandagskrárumræðum á Al- þingi í gær, um árásir á íslenska starfsmenn utanríkisþjónustunnar í Kabúl í Afganistan, að skipti á yfir- manni friðargæsluliðsins á flugvellin- um færu fram fyrr en ráðgert hefði verið, í kjölfar árásarinnar í Kabúl 23. október sl. Nýr yfirmaður fer utan 10. nóvember næstkomandi og er ætlað að endurskoða öryggisreglur á flug- vellinum í samráði við fráfarandi yf- irmann, Hallgrím Sigurðsson. Davíð sagði að ekki væri litið á friðargæslu- liðana sem hermenn. Þeir hefðu á hinn bóginn réttarstöðu hermanna innan NATO ef til einhverra atvika kæmi. Utanríkisráðherra sagði að Kabúl væri hættulegur staður, friðargæslu þyrfti ekki þar sem engin væri ógnin, og því væri nauðsynlegt að tryggja öryggi friðargæsluliðanna og að eng- in „óþarfa áhætta“ væri tekin vegna þeirra. Ráðherra sagði að ítarlega hefði verið farið yfir árásina, aðdrag- anda hennar og allar aðstæður. Verið væri að athuga starfshætti friðar- gæsluliða og hvort þjálfun þeirra væri nægjanleg. „Við tökum mjög nærri okkur þann skaða sem okkar menn urðu fyrir, um leið og við lýsum aðdáun okkar á æðruleysi þeirra og aga eftir að ógn- irnar dundu yfir og þökkum guði fyrir að ekki fór verr í þetta skiptið. Ég vil ítreka að starfsemi friðargæslulið- anna hefur verið mjög árangursrík. Stefna íslenskra stjórnvalda er óbreytt og áfram verður staðið með bandalagsþjóðum okkar í Afganistan og ég vona að um það geti ríkt bæri- legur friður hér,“ sagði Davíð. Stenst ekki íslensk lög Umræðan á Alþingi í gær fór fram að beiðni Ögmundar Jónassonar, þingmanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Ögmundur vitnaði í upphafi máls síns til 114. gr. almennra hegningarlaga að hver sá sem réði menn innan íslenska ríkisins til er- lendrar herþjónustu skyldi sæta fangelsi allt að tveimur árum. kæmi til greina að verða við óskum Bandaríkjamanna, að sameina gæslu- liðið í Afganistan bandarískum her- sveitum sem þar væru í „svokölluðu stríði“ gegn hryðjuverkum. Davíð sagði enga afstöðu hafa verið tekna til þessarar beiðni. Sinna borgaralegum verkefnum Utanríkisráðherra sagði að á síð- ustu árum hefðu íslensk stjórnvöld markvisst unnið að aukinni þátttöku Íslands í friðargæslu. Friðargæslulið- ar væru nú á þriðja tug manna. „Þátt- taka í friðargæslu felur í sér aukin tækifæri fyrir okkur, til að leggja okkar af mörkum, sem við öll viljum, til að stuðla að friði og stöðugleika í heiminum. Það má vera ljóst að við Ís- lendingar reynum seint að leika lyk- ilhlutverk á alþjóðavettvangi í þess- um málum, en við einbeitum okkur að ákveðnum afmörkuðum verkefnum og þess vegna getur framlag okkar skipt nokkru máli,“ sagði Davíð. Að mati Davíðs þarf ekki sérstaka lagastoð til að stunda friðargæslu af þessu tagi. „Það er alveg ljóst að þess- ir menn, sem eru á okkar vegum, eru að sinna borgaralegum störfum, svo sem eins og kennslu og þjálfum í brunavörnum, flugumferðarstjórn og fleiri þess háttar hlutum.“ Á hinn bóg- inn, sagði Davíð, hljóta aðilar á frið- argæslusvæðum að vera til þess færir að verja sjálfa sig ef til árása kæmi. „Það felst í eðli friðargæslu, að menn sem stunda hana starfa á svæðum, þar sem ógn er á ferðinni. Ella þyrfti enga friðargæsluliða,“ sagði utanrík- isráðherra. Þarf þjálfaða hermenn Nokkrir þingmenn tóku til máls í umræðunum. Þingmönnum stjórnar- andstöðunnar varð tíðrætt um að frið- argæsluliðarnir hefðu greinilega stöðu hermanna, þeir lytu heraga og tækju við tilskipunum yfirmanna sinna. Nauðsynlegt væri að ræða hlutverk íslenskra friðargæsluliða og hvernig þeir væru þjálfaðir til starfa. Var kallað eftir umræðu um málið innan utanríkismálanefndar Alþingis. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, sagði það blasa við að til friðargæslu þyrfti þjálfaða hermenn ef vel ætti að ganga. Sagðist hún löngum hafa gert athugasemdir við það að litið væri til friðargæslu innan íslensku utanríkis- þjónustunnar sem þróunarsamvinnu. Sólveig Pétursdóttir, Sjálfstæðis- flokki, sagði að leita þyrfti allra leiða til að tryggja öryggi friðargæsluliða, þannig að atvik eins og í Kabúl í síð- asta mánuði endurtæki sig ekki. Sagði hún friðargæsluliðana hafa sýnt mikið hugrekki og fórnfýsi og þakkaði þeim fyrir vel unnin störf við erfiðar aðstæður. Siv Friðleifsdóttir, Framsóknar- flokki, sagði friðargæsluliðana ekki vera hermenn í hefðbundnum skiln- ingi þess orðs. Þeir sinntu borgara- legum verkefnum en það blasti við að þeir þyrftu að bera vopn á ófriðar- svæðum. Eitthvað hefði heyrst ef verr hefði farið í Kabúl og friðar- gæsluliðarnir ekki verið vopnaðir. Utandagskrárumræður á Alþingi um störf íslensku friðargæsluliðanna í Afganistan Hafa réttarstöðu hermanna í NATO Morgunblaðið/Árni Torfason Davíð Oddsson utanríkisráðherra. Morgunblaðið/Kristinn Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar. EFTIR að yfirmaður öryggisgæslu Íslendinga á flugvellinum hafði gert vettvangskönnun í Chicken Street, fjölförnustu verslunargötu Kabúl, vegna fyrirhugaðrar ferðar þangað til teppakaupa, var rætt um að viðkoma í versluninni yrði að vera stutt og vörur tilbúnar til afhendingar þegar þangað væri komið. Það brást og mið- að við áætlaðan komutíma í versl- unina höfðu friðargæsluliðarnir verið þar í klukkustund þegar árásin var gerð. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt utanríkisráðuneyt- isins vegna sprengjuárásarinnar í Kabúl 23. október sl. Í samtali við Morgunblaðið sagðist Hallgrímur telja að þeir hafi verið inni í búðinni í um 45 mínútur. Gunnar Snorri Gunnarsson ráðu- neytisstjóri sagði að samantektin væri byggð á upplýsingum þeirra sem voru á staðnum. Lengi áform um ferðina Fram kemur að áform höfðu verið uppi um það í nokkurn tíma að efna til ferðar í verslunarhverfi borgarinnar vegna teppakaupa áður en heim yrði haldið, en mannaskipti á flugvellinum eru fyrirhuguð 30. nóvember. Hall- grímur Sigurðsson, yfirmaður flug- vallarins, bað Ásgeir Ásgeirsson, yf- irmann öryggisgæslu Íslendinganna, að kanna vettvang í verslunarhverf- inu m.a. hvar þá teppaverslun var að finna sem mælt hafði verið sérstak- lega með af hálfu tyrkneskra kunn- ingja og fleirum. Sú vettvangskönnun fór fram fimmtudaginn 21. október. Þegar ferðin var farin var öryggis- ástandið nokkuð gott, ástandið hafi verið metið sem „grænt“ af hálfu ör- yggisyfirvalda friðargæsluliðsins sem er lægsta viðbúnaðarstigið. Í bifreiðinni voru, auk íslensku frið- argæsluliðanna sex, Bandaríkjamað- ur sem starfar á flugvellinum og Tyrki sem að sögn Hallgríms hafði milligöngu um verslunarferðina. „Gestrisni með tilheyrandi spjalli“ Brottfarartími frá flugvellinum var um 13:55 og var áætlaður komutími til verslunarinnar um 14:15. „Þegar á reyndi var verslunareigandi ekki tilbúinn með þær vörur sem lofað hafði verið og er lélegu símasambandi um kennt. Var hafist handa um að taka til varninginn jafnframt því sem þiggja þurfti hefðbundna afganska gestrisni með tilheyrandi spjalli. Allt tók þetta lengri tíma en áætlað var. Komið hefur fram að þeir sem úti voru töldu stoppið orðið of langt og að Ásgeir hafi með fasi og látbragði gefið þeim sem inni voru til kynna að tíma- bært færi að fara að tygja sig, en ekki sagt það berum orðum eða krafist þess. Í framhaldi af því segir þó [Hall- grímur] við þá sem inni voru að klára málið og það er við upphaf að und- irbúningi að brottför þeirra sem árás- in er gerð eða um kl. 15:15,“ segir í samantektinni. Í niðurlagi segir að það liggi fyrir að upprunaleg tímaáætlun stóðst ekki en þó verði að hafa í huga að ferðin var farin við tiltölulega góðar öryggis- aðstæður. Ennfremur segir: „Ekki liggja fyrir neinar vísbendingar frá öryggisyfirvöldum friðargæslunnar um að lengd dvalarinnar fyrir utan verslunina í „Chicken Street“ hafi or- sakað árásina eða hvort hún hafi ráð- ist af því að þar var um tilviljanakennt skotmark að ræða.“„Staðreyndin er sú að ferðir utan flugvallar geta verið hættulegar og á það hefur verið lögð áhersla í öllu starfi friðargæslunnar í Kabúl,“ segir í niðurlagi samantekt- arinnar. Í samantektinni er tekið fram að ein ástæða þess að Ásgeir Ásgeirsson leitaði frekar eftir aðstoð Íslendinga við öryggisgæslu í ferðinni, fremur en til annarra friðargæsluliða sem starfa við flutninga á flugvellinum, var sú, að hann taldi Íslendingana betur hæfa til að sinna því hlutverki. „Reynslan hafði sýnt að ekki aðeins voru þeir betri og varkárari ökumenn heldur töluðu þeir bæði íslensku og ensku, en málakunnáttu og þjálfun margra al- þjóðlegra friðargæsluliða er verulega ábótavant,“ segir í samantektinni. Samantekt utanríkisráðuneytisins um sprengjuárásina Höfðu verið í allt að klukkustund í versluninni HALLGRÍMUR Sigurðsson, yfir- maður flugvallarins í Kabúl sagðist í viðtali við Morgunblaðið ekki sjá hvað hefði átt að gera með öðrum hætti í sambandi við verslunarferð í teppa- búð í borginni en meðan á henni stóð var gerð sprengjuárás á íslenska frið- argæsluliða. „Ég sé það satt að segja ekki. Ég held að okkar viðbúnaður og hegðun hafi verið eins og best var á kosið, miðað við að við vorum að fara í bæinn,“ sagði hann. Engar reglur hefðu verið brotnar með því að fara í ferðina og engar viðvaranir frá her- liðinu í Kabúl um ferðir um þessa götu hefðu verið í gildi. Hallgrímur, tveir aðrir íslenskir friðargæsluliðar, Bandaríkjamaður sem starfar á flugvellinum og tyrk- neskur sendiráðsstarfsmaður voru inni í búðinni þegar árásin var gerð. Í viðtali við Morgunblaðið í gær, sem tekið var áður en tilkynnt var um að yfirmannsskiptum á flugvellinum yrði flýtt, sagði Hallgrímur að hann, Friðrik Már Jónsson flugumferð- arstjóri og Bandaríkjamaðurinn hafi ætlað að kaupa teppi í búðinni en að Tyrkinn hafi átt milligöngu um ferð- ina. Hann telur að hafi verið inni í teppabúðinni í Kabúl í um 45 mínútur þegar sjálfsmorðssprengjuárásin var gerð. Aðspurður sagðist hann ekki hafa gert ráð fyrir sérstökum tíma- takmörkunum vegna ferðarinnar. „Þetta er öðruvísi en að fara út í búð og að kaupa sér kók. Það eru ýmsir siðir sem tengjast þessu. Maður þarf að byrja á að setjast niður, tala við kaupmanninn og drekka te áður en maður fær að skoða og versla,“ sagði hann. Hallgrímur kvaðst ekki hafa verið tekinn að ókyrrast þegar árásin var gerð en hún hefði hafist í þann mund sem þeir ætluðu að yfirgefa verslunina. Engum skipað Í viðtali við friðargæsluliðana þrjá sem slösuðust í árásinni kom m.a. fram að þeir höfðu engan áhuga á teppakaupum. Spurður um hvað hefði gerst ef þeir hefðu neitað því að fara í ferðina, sagði Hallgrímur að þá hefðu þremenningarnir einfaldlega ekki farið. Aðrir menn, ekki endilega Íslendingar, hefðu verið fengnir til fararinnar. Hann ítrekaði að engum væri skipað að fara í slíka ferð. Aðspurður kvaðst Hallgrímur þurfa að fara um Kabúl 3–4 sinnum í viku vegna vinnu sinnar og í slíkum ferðum lentu menn gjarnan í umferð- artöfum. Hallgrímur Sigurðsson, yfirmaður flugvallarins í Kabúl „Viðbúnaður og hegðun eins og best verður á kosið“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.